Morgunblaðið - 09.11.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐURB
255. tbl. 81. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Lík Stal-
íns verði
flutt heim
Moskvu. Reuter.
ÆTTINGJAR Jósefs Stalín,
fyrrum leiðtoga Sovétríkj-
anna, hafa óskað eftir því að
líkamsleifar hans verði flutt-
ar í grafreit fjölskyldunnár
i suðurhluta Rússlands. Hann
hvílir nú í Krémlarmúrum.
Ástæðan fyrir kröfu ættingj-
anna eru þær hugmyndir sem
eru uppi um að flytja lík Leníns
úr grafhýsinu í Kreml í kirkju-
garð í Leníngrad og að flytja
lík þeirra sem grafnir eru í
Kreml á brott. Hefur ekki verið
hugað að því hvert eigi að flytja
Stalín og því settu ættingjar
hans fram óskir um að lík hans
verði flutt til Norður-Ossetíu,
sem er við landamæri Georgíu.
Stalín, réttu nafni Josef Dzug-
ashvili, var fæddur í Georgíu.
Ættingar hans eru hins vegar
Rússar, búsettir í Norður-Osse-
tíu. Segja þeir föður Stalíns
hafa verið Ossetíumann, sem
hafí lagað nafn sitt að georg-
ískum nafnareglum.
Fyrir ættingjunum fer Avr-
am Dzitsoyev, en hann hefur
boðið sig fram í kosningunum
sem fram fara í desember.
n* Keuter
Sarajevo yfirgefm
KRÓATAR yfirgefa Sarajevo í flýti, eftir að Sameinuðu þjóðirnar
fengu leyfi til að flytja alls um 1.500 Króata, Serba og múslima frá
borginni. Króatarnir verða fluttir til Split og Dubrovnik við Adría-
haf, en Serbarnir fara flestir til Belgrad.
Margaretha af Ugglas á Norðurlandaráðsþingi
Vera bandarískra
hersveita forsenda
stöðugieika í Evrópu
MARGARETHA af Ugglas utanríkisráðherra Svíþjóðar sagði i fram-
sögu um utanríkis- og varnarmál á þingi Norðurlandaráðs, sem hófst
í Maríuhöfn á Álandseyjum í gær, að vera bandarískra hersveita í
Evrópu og aukin viðskipti við ríki í Austur-Evrópu væru forsenda
stöðugleika í álfunni.
Umræður um utanríkis- og varn-
armál svo og umræður um atvinnu-
mál eru megin viðfangsefni þingsins
að þessu sinni, að sögn Geirs H.
Haarde alþingismanns, en hann er
varaformaður íslensku sendinefndar-
innar. Hann mun tala fyrir hönd
hægriflokka í umræðum um atvinnu-
málin á morgun, miðvikudag.
Sænski utanríkisráðherrann sagði
að ríki Vestur-Evrópu yrðu að sýna
samstöðu með íbúum fyrrum Var-
sjárbandalagsríkja. „Það er af hinu
góða að veita þeim tækniþekkingu
en áríðandi er að efla og auka við-
skipti og samstarf á sviði efnahags-
mála,“ sagði Ugglas.
Ráðherrann vék sérstaklega að
mikilvægi þess að bandarískar her-
sveitir yrðu áfram í Evrópu. „Ég vildi
segja í þessu samhengi að sú ósk
að Bandaríkjamenn viðhaldi skuld-
bindingum sínum gagnvart Evrópu
er grundvallarforsenda þess áhuga
sem er á Atlantshafsbandalaginu
(NATO). Undir þessa ósk taka Norð-
urlönd," sagði Margaretha af Uggl-
as. Hún sagði að ekki mætti setja
Rússa hjá garði við framtíðarskipan
öryggismála í Evrópu. „Öryggi Evr-
ópu í framtíðinni verður að byggjast
á lausnum sem leiða til aukins örygg-
is allra. Af þessu leiðir að aðlögun
Rússa að Evrópu ræður úrslitum.
Stuðla verður að öryggi Evrópu með
Rússum en ekki með því að útiloka
þá,“ sagði ráðherrann.
Sjá „Stytting vinnuvikunnar
ekki ráð við ...“ á bls. 22.
-------» ♦ ♦---
Liechtenstein
Furstimi hót-
ar að flytj-
ast úr landi
Sáttatillaga utanríkisráðherra Frakklands og Þýskalands í stríðinu í Bosníu
Viðskiptabanni verði af-
létt í skiptum fyrir land
Brussel, Sar^jevo, Vitez. Reuter.
FRAKKAR og Þjóðveijar lögðu í gær til við aðildarþjóðir
Evrópubandalagsins (EB) að viðskiptaþvingunum á Serba yrði
aflétt, gegn því að þeir samþykki að múslimar fái stærri svæði
í Bosníu við skiptingu landsins milli Serba, Króata og Bosníu-
manna. Er tillagan tilraun til að binda enda á stríðið í land-
inu, sem hefur staðið í 18 mánuði. Samþykkti EB að fundað
yrði um málið 22. nóvember nk.
framhaldi af því ræða við Mate
Boban, leiðtoga Bosníu-Króata, en
ætlun hans er að reyna að hefja
friðarviðræður að nýju. Hafa músl-
imar ásakað Stoltenberg og Owen
lávarð um að hafa ekki haft frum-
kvæði að friðarviðræðum í heilan
mánuð.
ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
HANS-ADAM II fursti í Liecht-
enstein setti nýtt þing í Vaduz á
laugardag. í setningarræðu sinni
hótaði hann að flytja úr landi ef
þingið semur og meirihluti lands-
manna samþykkir nýja stjórnar-
skrá sem dregur úr völdum furst-
ans.
Stjórnmálamenn í Liechtenstein
eru óánægðir með afskipti furstans
af innan- og utanríkismálum en
furstinn sjálfur hefur í hyggju að
auka frekar afskipti sín en draga úr
þeim í framtíðinni.
Franz Josef, faðir Hans-Adams,
hafði sig lítið í frammi í furstadæm-
inu. Hans-Adam fer hins vegar ekki
í launkofa með skoðanir sínar og
hefur lent upp á kant við stjórnmála-
menn í Liechtenstein.
í bréfi Alain Juppe, utanríkisráð-
herra Frakklands, og Klaus Kinkel,
utanríkisráðherra Þýskalands, til
samráðherra þeirra hjá EB segir
að ef bandalagið grípi ekki í taum-
ana, sé mikill mannlegur harmleik-
ur óumflýjanlegur í Bosníu í vetur.
Er lagt til að reynt verði að opna
leiðir fyrir matvæli og lyf á ný.
í tillögunum er gert ráð fyrir
að Serbar láti af hendi þau 3%
lands í Bosníu, sem múslimar hafa
krafist í sáttaumleitunum, en þær
strönduðu fyrst og fremst á þess-
ari kröfu múslima. Samþykki Serb-
ar, beiti Evrópubandalagið sér fyr-
ir því að Sameinuðu þjóðirnar af-
létti viðskiptabanni á landið í
áföngum. Segir í bréfi utanríkis-
ráðherranna að Slobodan Mil-
osevic, leiðtogi Bosníu-Serba, virð-
ist reiðubúinn til að ganga til samn-
inga.
I bréfinu kveður við nýjan tón,
þar sem hugmyndin er að EB geri
ekki eingöngu kröfur til Serba um
eftirgjöf, heldur bjóði í fyrsta sinn
eitthvað til skiptanna. Douglas
Hurd, utanríkisráðherra Breta, var
í gær lítt hrifinn af tillögu Kinkels
og Juppe og sagði það fyrst og
fremst vera hlutverk Sameinuðu
þjóðanna að aflétta viðskiptabanni,
ekki EB.
Múslimar skjóta á flóttaf ólk
Leyniskyttur múslima skutu á
bílalest Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
sem flutti flóttafólk frá Sarajevo í
gær en enginn særðist. Gera SÞ ráð
fyrir að flytja alls 642 Króata, 850
Serb'a og nokkra múslima frá
Sarajevo. Það eru einkum eldra
fólk, sjúklingar og ungar konur með
börn sem fá leyfi til að yfirgefa
borgina.
Thorvald Stoltenberg, sáttasemj-
ari Sameinuðu þjóðanna, hefur í
dag viðræður við Alija Izetbegovic,
forseta Bosníu. Mun Stoltenberg í
Stálu verkum eftir Picasso og Braque úr sænsku listasafni
Kvikmynd fyrir-
mynd innbrotsins
Stokkhólmi. Reuter.
SEX listaverkum eftir Picasso og tveim eftir Braque var stolið úr
Nútímalistasafninu í Stokkhólmi aðfaranótt mánudags. Björn
Springfeldt safnvörður sagði að þjófurinn eða þjófarnir hefðu
gert gat á þak hússins nákvæmlega yfir staðnum þar sem verkin
voru. Þjófavarnabúnaður mun ekki hafa farið í gang. Innbrotið
nú er nákvæm eftirlíking skartgripaþjófnaðar í frönsku kvikmynd-
inni Rififi-ránið sem gerð var á sjötta áratugnum
„Lögreglan og öryggisþjónustan til að koma í veg fyrir að hlutar
úr þakinu féllu á gólfið.
Meðal Picasso-verkanna eru
málverkin La Source og La
Demoiselle, einnig skúlptúrinn
Femme Boisgeloup og tvö máiverk
eftir Braque, Le Chateau de La
Roche-Guyon og La Nappe Blanc-
he. Verkin eru metin á rúma fjóra
milljarða ísl. króna samanlagt og
eru að reyna að komast að því
hvernig þetta gat gerst,“ sagði
Springfeldt. „Við erum furðu lostn-
ir, við vitum ekki hvernig þjófarnir
fóru að því að komast fram hjá
varnarbúnaðinum." Þjófarnir rufu
gat á 20 sm þykkt þakið og er
talið að þeir hafi notað regnhlíf,
eins og þjófarnir í kvikmyndinni,
Reuter
Hluti þýfisins
EIN mynda Picassos, sem stolið
var á sunnudag, „La Femme
aux yeux noirs" frá 1941.
er þetta mesti listaverkaþjófnaður
í sögu landsins.