Morgunblaðið - 09.11.1993, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1993
Tillögur um framkvæmd kvótakerfis-
ins á 52. Fiskiþingi
Ytir undir brask
með aflaheimildir
NÝAFSTAÐIÐ Fiskiþing samþykkti meðal annars ályktun þar sem
mótmælt var núvfcrandi framkvæmd á kvótakerfinu, „sem ýtir
undir brask með afiaheimildir." í greinargerð með þessari tillög-
ur, sem samþykkt var með 16 atkvæðum gegn 10 segir svo: „Ljóst
er að mikil óánægja er meðal sjómanna með kaup og sölu á afla-
heimildum og þá sérstaklega hvernig sjómenn eru látnir taka þátt
í slíkum kaupum. Þá er einnig talið óeðlilegt að einstakar útgerð-
ir geti liagnazt verulega á sölu aflaheimilda. í núverandi fram-
kvæmd ríkir nánast frumskógarlögmálið eitt í þessum viðskiptum.“
Hér fara á eftir þær tillögur á
Fiskiþingi, sem fjölluðu um fram-
kvæmd kvótakerfisins og afdrif
þeirra:
52. Fiskiþing skorar á á sjávar-
útvegsráðuneytið að sala á inn-
fjarðarrækju verði .gefin ftjáls. -
Samþykkt með 16 atkvæðum gegn
4.
52. Fiskiþing styður þá tillögu,
sem komið hefur fram að skip, sem
eru í eigu íslendinga en hafa ekki
veiðileyfi í íslenzkri fiskveiðilög-
sögu, verði skráð á íslandi. - Sam-
þykkt samhljóða.
52. Fiskiþing leggur til að út-
færsla á veiðiheimildum króka-
leyfisbáta verði heildardagafjöldi
160 dagar miðað við núverandi
heildaraflaQiark á þorski. Föst
sókn telst 92 dagar í mánuðunum
maí, júní og júlí. - Samþykkt með
17 atkvæðum gegn 9.
52. Fiskiþing leggur til að bátar
undir 10 tonnum með aflaheimild
geti fengið heimild til til hand-
færa- og línuveiða í júlí og ágúst
unz 25 tonna heildarafla á fisk-
veiðiárinu er náð. Enda hafi þeir
ekki selt frá sér kvóta og fiskað
sjálfir upp sínar aflaheimildir. -
Felld með 16 atkvæðum gegn 14.
52. Fiskiþing leggur til að línu-
veiðar í nóvember, desember, jan-
úar og febrúar verði óbreyttar
áfram eins og verið hefur, það er
afli að hálfu utan kvóta. - Sam-
þykkt með þorra atkvæða gegn 4.
52. Fiskiþing leggur til að fijáls
sókn verði í þær fisktegundir, sem
ekki er útlit fyrir að veiðist upp í
leyfilega heildarkvóta af ýsu, ufsa,
skarkola, úthafsrækju og loðnu. -
Felld með 12 atkvæðum gegn 10.
52. Fiskiþing samþykkir að
heimild til að framselja leigukvóta
verði afnumin, nema þegar um er
að ræða jöfn skipti á kvóta milli
skipa. - Felld með 16 atkvæðum
gegn 10.
Eftirfarandi tillaga kom frá
Fiskfélagsdeildinni á Vestfjörðum
og var hún borin undir atkvæði.
Aðalfundur Fiskifélagsdeildar
Vestfjarðar haldinn 23. október
1993, telur að meðan kvótakerfi
er við lýði sé eðlilegt að sala og
andvirði sölu veiðiheimilda verði á
'höndum ríkissjóðs. - Felld með
þorra atkvæða gegn 5.
Við umræður um ofangreindar
tillögur fluttu síðan Gísli Svan
Einarsson frá Sauðárkróki og Jón-
as Haraldsson, formaður stjórnar
Fiskifélagsins, eftirfarandi tillögu:
„52. Fiskiþing styður núverandi
aflamarkskerfi og fijálsan Jfram-
salsrétt á aflaheimildum." Flutt
var tillaga um frávísun hennar og
var hún samþykkt með 18 atkvæð-
um gegn 3 og kom tillagan því
ekki til umræðu.
Menntamálaráðherra á alþingi um
mál Hrafns Gunnlaugssonar
Umfang styrkveit-
inga ekki óeðlilegt
í UTANDAGSKRÁRUMRÆÐU á Alþingi a fimmtudag um tengsl
setts framkvæmdasijóra Sjónvarps við ýmsar opinberar stofnanir
og sjóði urðu snarpar umræður um skýrslu Ríkisendurskoðunar
um málið. Bent var á að samstarfsörðugleikar væru í stjórn Ríkis-
útvarpsins þar sem uppgjör fjármáladeildar hefði verið sent til
endurskoðunarfyrirtækis vegna þess að framkvæmdastjórinn bæri
brigður á það.
Kristín Ástgeirsdóttir,
Kvennalista, bar upp fyrirspur
til Ólafs G. Einarssonar mennta-
málaráðherra og vitnaði til
skýrlu Ríkisendurskoðunar um
fjármálaleg samskipti Hrafns
Gunnlaugssonar við ýmsa opin-
bera aðila.
Engar sakir
í svörum menntamálaráðherra
kom m.a. fram að ekkert í skýrsl-
unni benti til að Hrafn Gunnlaugs-
son hefði brotið af sér í starfí eða
dregið sér fé. í skýrslunni eru
kaup menntamálaráðuneytis á
kvikmyndum eftir Hrafn Gunn-
Iaugsson átalin, þar sem þau voru
gerð án sérstakrar heimildar frá
Alþingi. Ólafur G. Einarsson sagð-
ist vera ósammála þessu og telja
að ráðherra gæti ákveðið slík kaup
án þess að bera þau undir Alþingi
og benti á að slíkt hefði verið gert
og látið átölulaust allt frá árinu
1983.
Hann benti á að í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar segði að ekki verði
með réttu sagt þegar á heildina
er litið að Hrafn Gunnlaugsson
skeri sig sérstaklega frá öðrum
styrkþegum Kvikmyndasjóðs hvað
varðaði fjárhæð styrkja. Umfang
styrkveitinga til hans væri ekki
óeðlilegt í Ijósi þess fjölda mynda
sem hann hefði gert og þess hve
lengi hann hefði starfað að kvik-
myndagerð.
Samstarfsörðugleikar
Valgerður Sverrisdóttir, Fram-
sóknarflokki, kom í máli sínu inn
á samstarfsörðugleika innan Rík-
isútvarpsins. Sagði hún að komið
hefði fram á útvarpsráðsfundi að
settur framkvæmdastjóri sætti sig
ekki við mánaðarlegt uppgjör íjár-
máladeildar og til þess að fá ein-
hveija niðurstöðu í málið hefði
útvarpsstjóri brugðið á það ráð að
senda uppgjörið til endurskoðun-
arfyrirtækis. Þetta virtist eina leið-
in til að sátt yrði um niðurstöður
uppgjörsins og sýndi ljóslega að
ágreiningur væri í stjórn stofnun-
arinnar.
Fimm sluppu úr hörðum árekstri á brúnni yfir Stóru-Laxá
* # Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
I heimsokn
ADOLF Ingvi Bragason til vinstri og Baldur Óskarsson til hægri í heimsókn hjá Viktori Steingríms-
syni á Sjúkrahúsi Suðurlands.
Fyrsta sem ég gerði
eftir áreksturinn var
að fara með faðirvoriö
Selfossi.
„ÞAÐ FYRSTA sem ég gerði
eftir áreksturinn var að fara
með faðirvorið," sagði Sævar
Már Þórisson 13 ára Selfyssing-
ur. Hann var farþegi í fram-
sæti Toyotabíls sem lenti í hörð-
um árekstri við Subarubifreið
á brúnni yfír Stóru-Laxá í
Hrunamannahreppi. Árekstur-
inn varð um níuleytið á laugar-
dagsmorgun. Auk ökumanns
voru þrír farþegar í Toyota-
bílnum en ökumaður Subaru-
bifreiðarinnar, ung kona, var
ein í bílnum. Fólkið var flutt á
Sjúkrahús Suðurlands og fékk
að fara heim utan einn sem var
lagður inn vegna meiðsla í baki.
Bílamir eru báðir ónýtir eftir
áreksturinn.
Þessi árekstur mun vera sá
þriðji í röðinni á brúnni og í sum-
ar mátti litlu muna að árekstur
yrði þar en ökumenn forðuðu því
með því að nauðhemla á miðri
brúnni. Kunnugir benda á að
merkingar þurfi að vera greini-
legri vestan brúarinnar svo þeir
sem eru ókunnugir átti sig betur
á aðstæðum.
Vissi ekkert af brúnni
„Það er alveg á hreinu að belt-
in björguðu okkur,“ sagði Baldur
Óskarsson, 17 ára Hvergerðingur,
ökumaður Toyotabifreiðarinnar.
Hann tók bílpróf fyrir tveimur
mánuðum og var á leið frá Sel-
fossi að Flúðum á badmintonæf-
ingu ásamt Sævari Má sem sat í
framsætinu og Adolfi Ingva
Bjamasyni, 15 ára, og Viktori
Steingrímssyni, 24 ára, eiganda
bílsins.
Baldur segir að lítil umferð
hafi verið á leiðinni og hann ekið
á 80-90 kfiómetra hraða. „Ég sá
ljósin á bílnum löngu áður en við
rákumst saman en ég vissi ekki
að það var brú þarna og sá ekki
nein merki. Ég hægði á til að
mæta bílnum en sá þá allt í einu
brúna, bremsaði og lenti á hon-
um,“ sagði Baldur.
Vöknuðu við öskrin
Adolf Ingvi sagðist hafa litið
upp þegar hann heyrði öskrin í
félögum sínum í framsætinu, rétt
áður en áreksturinn varð. Hann
var hálfsofandi í aftursætinu með
hnén skorðuð við sætið fyrir fram-
an. Sama er að segja um Viktor
og báðir voru þeir hálfsofandi.
„Eg vaknaði við ópin í þeim, leit
þá upp og sjá ljósin á hinum bíln-
Heima
SÆVAR Már Þórisson í stof-
unni heima hjá sér en greini-
legt far er á bijósti Sævars Más
eftir bílbeltið.
um en henti mér þá niður aftur
áður en höggið kom,“ sagði Vikt-
or Steingrímsson. „Maður þakkar
auðvitað fyrir að hafa sloppið
svona vel eftir þetta harðan
árekstur og það er alveg á hreinu
að það bjargaði okkur í aftursæt-
inu hvað við vorum skorðaðir af
en hér eftir verða beltin ekki látin
ónotuð í aftursætinu," sagði Vikt-
or.
Hugsaði um hvort enginn
hefði dáið
„Ég sá bílinn löngu áður en við
rákumst á hann en maður gat
ekki áttað sig á því að þama
væri brú með einni akrein. Það
fyrsta sem ég gerði eftir árekstur-
inn var að fara með faðirvorið og
svo hugsaði ég um það hvort eng-
inn hefði dáið,“ sagði Sævar Már
Þórisson sem sat í framsæti Toy-
otabifreiðarinnar. „Við fórum í
úlpurnar okkar og breiddum yfir
okkur handklæðin á meðan við
biðum eftir að það kæmi bíll. Það
var ekki hægt að opna bílhurðina
mín megin en það blés inn um
rifu sem opnaðist á henni og það
varð dálítið kalt. Á meðan Baldur
hljóp eftir hjálp á næsta bæ töluð-
um við saman um að allt væri í
lagi og vildum með því koma í
veg fyrir að við sofnuðum.
Ég lá alveg kyrr og vildi ekki
hreyfa mig því ég var auðvitað
dálítið hræddur og sérstaklega um
að eitthvað hefði komið fyrir mig
þó ég fyndi ekki til. Svo kom
sjúkrabíllinn og þeir voru ótrúlega
fljótir uppeftir til okkar og við
gátum allir gengið yfir í hann.
Mér fínnst það ótrúlegt að þetta
hafi komið fyrir. Manni finnst
þetta alltaf koma fyrir einhveija
aðra en mann sjálfan. Ég var sem
betur fer í belti því annars hefði
ég örugglega flogið út um fram-
rúðuna. Beltið bjargaði lífí mínu,
það er alveg á hreinu," sagði
Sævar Már Þórisson.
Brúin er hættuleg
„Ég hugsaði um það eitt að
halda mér nógu fast í stýrið eins
og manni hafði verið sagt að gera
ef eitthvað kæmi fyrir mann á
traktornum,“ sagði María Magn-
úsdóttir frá Birtingaholti sem ók
Subarubifreiðinni. „Þetta var
feiknarlegt högg og ég var því
fegnust að geta staðið upp. Ég
ætlaði mér að hlaupa heim á
næsta bæ en fann að ég gat það
ekki og sagði piltinum sem ók
hinum bílnum að gera það.
Ég var á miðri brúnni þegar
ég sá hinn bílinn koma. Hann var
á miðjum veginum og ætlaði
greinilega yfir. Ég náði nánast
alveg að stoppa bílinn og var þá
komin út á enda á brúnni en þeg-
ar ég fór inn á brúna sá ég ekki
neinn bíl á móti. Brúin er hættu-
leg fyrir þá sem ekki þekkja til.
Ég hafði vara á mér þegar ég sá
bílinn koma þetta hratt á móti
mér og hemlaði, því ég vissi af
óhöppum sem orðið hafa tvisvar
áður á brúnni. Það eru ekki nógu
góðar merkingar vestan brúarinn-
ar. Síðan háttar þannig til að
beygjan fyrir vestan brúna skygg-
ir einhvern veginn á hana,“ sagði
María þegar hún rifjaði upp at-
burðinn. Hún var í bílbelti og sagði
það vissu sína að það hefði bjarg-
að lífí sínu. „Ég var því fegnust
að hafa ekki tekið krakkana með
í þessa ferð en ég var búin að
ætla mér það en gerði það svo
ekki,“ sagði María sem er tveggja
barna móðir.
Lögreglumenn sem komu á
slysstað lýstu undrun sinni á því
hversu vel fólkið slapp úr árekstr-
inum, sama gerðu læknar og
hjúkrunarfólk sem tóku á móti
fólkinu.
Sig. Jóns.