Morgunblaðið - 27.11.1993, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.11.1993, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 271. tbl. 81. árg. LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER1993 ____________Prentsmiðja Morgunblaðsins a hernumdu svæðunum YITZHAK Rabin, forsætisráð- herra ísraels, sagði í gær að ísraelar kynnu að fresta heim- kvaðningu hermanna sinna frá Gaza-svæðinu og Jeríkó á Vest- urbakkanum vegna mikillar ólgu þar undanfarna daga. Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO), sagði algjörlega ástæðulaust að fresta brottflutningnum, en honum á að ljúka 13. næsta mánaðar samkvæmt friðarsamkomulagi ísraela og PLO. Arafat sagði í Stokkhólmi í gær að drápin á nokkrum stuðningsmanna hans að undanförnu væru það gjald sem PLO þyrfti að greiða fyrir frið. ísraelskir hermenn drápu í gær háttsettan mann innan hernaðarvængs Hamas-hreyf- ingarinnar, sem leggst gegn friðarsamkomulaginu. Á mynd- inni reisa palestínsk börn vega- tálma úr logandi hjólbörðum á Gaza-svæðinu. Grikkir æfir vegna hugmynda Þýskalands um að viðurkenna sjálfstæði Makedóníu Segja Þjóðverja miimi sundra samstöðu EB Aþenu. Reuter. GRIKKIR ásökuðu Þjóðverja í gær um fjandsamlega framkomu í sinn garð, þar sem Þjóðveijar íhuga að taka upp stjórnmálasamband við Fyrrum Júgóslavíulýðveldið Makedóníu. Þýsk yfirvöld mótmæltu þessum ásökunum og sögðust ekki vera eina ríkið sem ihugaði þetta. Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikkja, sagðist í gær hafa verulegar áhyggjur vegna þessa brests í samstöðu Evrópubandalags- ríkjanna og í sama streng tók utanríkisráðherra landsins, Karolos Papoulias, sem sagði framkomu Þjóðveija vera óviðunandi. Volvo og Renault Stuðningur við samein- ingii eykst Stokkhólmi. Reuter. STJÓRNIR tveggja öflugra hluta- bréfasjóða í Svíþjóð hafa ákveðið að greiða atkvæði með sameiningu bifreiðafyrirtækjanna Volvo og Renault. Er um að ræða Fjórða AP-sjóðinn og hlutabréfasjóð tryggingafélagsins Folksam. Fjórði AP-sjóðurinn, sem er einn fimm sjóða er ráðstafar opinberu lífeyrisfé, fer með 7,5% atkvæða í Volvo og Folksam með 3,6%. Sameining fyrirtækjanna hefur verið harðlega gagnrýnd í Svíþjóð þar sem margir telja samkomulagið óhagstætt fyrir Volvo. Samkvæmt útreikningum Svenska Dagbladet liggur nú ljóst fyrir, eftir að Folksam og Fjórði og Fimmti AP-sjóðirnir gáfu upp afstöðu sína, að 25,9% hluthafa eru fylgjandi en 13,4% á móti samkomulaginu. Aðrir hafa ekki gefið upp afstöðu sína. Um áramótin tekur Grikkland við forystuhlutverki í Evrópu- bandalaginu. Sagði Papoulias að ef önnur aðildarríki bandalagsins myndu stíga skref í átt að því að viðurkenna sjálfstæði Makedóníu svo stuttu áður en Grikkir tækju við forystu EB myndi það sundra samstöðu bandalagsins. Theodore Pangalos, aðstoðarut- anríkisráðherra Grikkja, sagði að ef öll aðildarríki EB tækju upp stjórnmálasamband við Makedóníu væri það samsæri gegn Grikklandi og það teldi hann siðferðilega rangt og stríða gegn hagsmunum bandalagsins. Risi með dýrslegt afl og heila barns Dieter Vogel, talsmaður þýsku stjórnarinnar, sagði í Bonn í gær að möguleiki væri á því að stjórn- málasamband yrði tekið upp fyrir árslok en lagði áherslu á að Þjóð- verjar myndu ekki verða einir til þess. I yfirlýsingu þýska utanríkis- ráðuneytisins, sem Vogel flutti, sagði að Þjóðverjar hefðu ekki haft frumkvæði í málinu heldur hefðu nokkrar aðildarþjóðir EB sýnt því áhuga. Tók Vogel fram að taka yrði tillit til óska Grikkja. Þjóðverjar kölluðu í gær sendi- herra Grikkja fyrir sig og kröfðu hann útskýringar á þeim ummæl- um gríska aðstoðarutanríkisráð- herrans, að Þýskaland væri „risi með dýrslegt afl og heila barns“. Grikkir óttast um samnefnt hérað Grikkir eru mótfallnir því að sjálfstæði Makedóníu verði viður- kennt, þar sem slíkt geti ýtt undir óskir íbúa samnefnds héraðs í norðurhluta Grikklands um sjálf- stæði. Fyrrum Júgóslavíulýðveldið Makedónía er byggt Slövum og Albönum og eru íbúar þess um tvær milljónir. Lýðveldið lýsti yfir sjálfstæði frá Júgóslavíu árið 1991 og hlaut að- ild að Sameinuðu þjóðunum fyrr á þessu ári. Jeltsín varar við gagnrýni á stjómar- skrárdrög Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- lands, varaði í gær flokkana sem bjóða fram í þingkosning- unum 12. næsta mánaðar við því að þeir myndu glata rétti sínum til ókeypis sjónvarpsút- sendinga fyrir kosningarnar ef þeir notuðu þær til að gagn- rýna drög hans að nýrri stjórnarskrá. Jeltsín sagði á fundi með leiðtog- um 13 flokka sem bjóða fram að hann myndi beita sér af alefli fyrir því að stjórnarskrárdrögin yrðu samþykkt í þjóðaratkvæði sem fram fer samhliða kösningunum. Hann sagði að flokkarnir yrðu að nota útsendingarnar til að kynna eigin stefnumið en ættu ekki að skipta sér af drögunum. Öllum flokkunum sem bjóða fram hefur verið úthlutað ókeypis sjón- varpsútsendingum. Gerðardómur hefur eftirlit með fjölmiðlum Sérstakur gerðardómur, sem Jeltsín skipaði til að hafa eftirlit með fjölmiðlum í kosningabarátt- unni, ávítaði leiðtoga tveggja flokka formlega í gær og áminnti alla flokkana um að gæta hófs í gagn- rýni á stjórnarskrárdrögin. Þjóðern- issinninn Vladímír Zhírínovskíj og miðjumaðurinn Níkolaj Travkín voru ávítaðir fyrir „ósiðleg ummæli í garð hvors annars". Kvikmynda- leikstjórinn og þjóðernissinninn Staníslav Govorúkhín, sem er í sama flokki og Travkín, var einnig ávítaður fyrir „ruddaleg ummæli um stjórnarskrárdrögin" og að hafa notað ókeypis sjónvarpsútsendingar til að auglýsa myndir sínar. Bretar varaðir við hmni velferðarinnar London. Reutor. PETER Lilley, félagsmálaráðherra Bretlands, sagði í fyrra- kvöld, að hætta væri á, að útþenslan í breska velferðarkerfinu ylli því, að það hryndi og skoraði á fólk að leggja fyrir og huga sjálft að lifeyrismálum sínum. Sagði hann það sína skoð- un, að velferðarkerfið ætti fyrst og fremst að vera fyrir þá, sem höllustum fæti stæðu. John Major forsætisráðherra tók undir þetta með Lilley í gær en breska sljórnarandstaðan hef- ur brugðist ókvæða við þessum yfirlýsingum. Lilley kvaðst óttast, að héldi velferðarkerfið áfram að þenjast út, myndi það hrynja saman undan eigin þunga. „Þessi þróun á sér stað um allan hinn vestræna heim, í Evrópu og annars staðar. Byrðarnar eru orðn- ar miklu meiri en efnahagslífið fær undir risið," sagði John Major for- sætisráðherrra í gær. Kenneth Clarke fjármálaráð- herra leggur fram sitt fyrsta fjár- lagafrumvarp nk. þriðjudag og þá kemur í ljós hvaða tökum hann tekur fjárlagahallann, sem er áætl- aður á sjötta þúsund milljarða ísl. kr., án þess að stöðva batann, sem orðið hefur í efnahagslífinu. Marg- ir þingmenn stjórnarandstöðunnar telja, að með ummælum sínum hafi Lilley verið að boða verulegan niðurskurð til velferðarmála. Það hefur raunar lengi verið á stefnuskrá breskra íhaldsmanna að minnka ríkisútgjöld og lækka skatta en Andrew Dilnot, forstöðu- maður fjárlagarannsóknastofnun- ar, sagði í gær, að þetta hefði ávallt verið meira í orði en á borði. „Sann- leikurinn er sá, að íhaldsmönnum hefur aldrei tekist að lækka skatta vegna þess, að þeir þora ekki að takast á raunverulegan niður- skurð," sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.