Morgunblaðið - 27.11.1993, Side 2

Morgunblaðið - 27.11.1993, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 Morgunblaðið/Þorkell Fyrsta verk sendiherra Þakkargjörðarkvöldverður að amerískum hætti var haldinn í Perlunni í gærkvöldi og var þar fjölmenni saman komið. Parker Borg, sendi- herra Bandaríkjanna, flutti ávarp, og var það fyrsta verk hins nýskip- aða sendiherra hér á landi. Á myndinni sést hann á tali við Mar- gréti Láru Ragnarsdóttur, formann íslensk-ameríska félagsins og á milli þeirra er sendiherrafrúin, Anna Borg. Pamela og Marshall Bre- ment, fyrrum sendiherrahjón, voru meðal gesta en nú eru einmitt liðin tíu ár síðan Pamela stofnaði sjóð til styrktar íslenskum lista- mönnum til náms í Bandaríkjunum. Nú stendur yflr í Perlunni sýning á verkum þeirra tíu listamanna sem notið hafa styrkja úr sjóðnum. Viðræður undirbún- ar um Svalbarðamál RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær að fela utanríkisráðuneytinu að leita eftir viðræðum við Norðmenn um Svalbarðamálið áður en endanlega yrði tekin ákvörðun um hvort íslendingar gerist aðilar að Svalbarðasamkomulaginu. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hittir Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra Noregs í dag á fundi leiðtoga norrænna jafnaðarmannaflokka og er búist við að ráðherramir ræði Svalbarðamálið óformlega við það tækifæri. Ríkisstjórnin hefur rætt mögu- leika á aðild að svonefndu Sval- barðasamkomulagi eftir að þrjú íslensk skip hófu veiðar á fisk- vemdarsvæði Norðmanna við Svalbarða um síðustu helgi. Skipin fóru þaðan aftur eftir hörð mót- mæli Norðmanna og eindregin til- mæli frá íslenskum stjómvöldum. Aðilar ekki áreittir Þegar Davíð Oddsson forsætis- ráðherra var spurður hvað ríkis- stjómin telji að ávinnist með aðild að Svalbarðasamkomulaginu, sagði hann að aðildarríki gætu meða! annars gert kröfu um að haldnir yrðu fundir um það sem Miklar umræður um útflutningsleiðina á landsfundi Alþýðubandalags Hundruð breytingatil- lagna og athugasemda yfir Svalbarðasvæðinu þá hefði það engu breytt um réttarstöðu þessara togara, að minnsta kosti til skamms tíma horft," sagði Davíð Oddsson. þar hefði verið ákveðið. „Það sem Norðmenn hafa ef til vill ákveðið einhliða hingað til gætu fleiri komið að. Og það virð- ist vera svo að þær þjóðir sem hafa orðið aðilar að samkomulag- inu hafí ekki orðið fyrir áreiti af hálfu Norðmanna á þessu svæði og eigi því að öllum líkindum auð- veldara með að tryggja öryggi sinna borgara þar. Sá misskilning- ur hefur verið uppi, að ríkisstjóm- in hafi getað gert eitthvað til að treysta stöðu togaranna sem vom á þessu svæði, en það er ekki svo. Þótt ríkisstjómin hefði lýst því yfír opinberlega að hún viður- kenndi ekki yfirráð Norðmanna ToIIstjóri Um 5.000 greiðslu- áskoranir EMIiÆTTI tollstjóra er nú að senda út rúmlega þrjú þúsund greiðsluáskoranir vegna gjaldfallins virðis- aukaskatts frá því í júli og ágúst, sem greiðast átti 5. október síðastliðinn, áuk þess sem embættið er að senda út um tvö þúsund bréf vegna vangreidds trygginga- gjalds. Bjöm Hermannsson, tollstjóri, segir að þetta sé svipaður fjöldi og var á sama tima í fyrra. Bjöm sagði að ef fólk áttaði sig ekki á þessari álagningu ætti það að snúa sér ti! skatt- stofunnar. Oft á tíðum gæti þetta byggst á því að fólk hefði ekki talið fram og þá þyrfti að koma framtali og gögnum til skattstofunnar. í mjög mörgum tilfellum væri um að ræða áætl- anir vegna þess að fólk hefði ekki skilað gögnum. HUNDRUÐ athugasemda og breytingatillagna við tillögugerð forystu Alþýðubandalagsins, útflutningsleiðina svokölluðu, voru komnar fram á öðrum degi landsfundar flokksins í gær. Sættu einstakir kaflar og tillögur í ritinu mikilli gagnrýni við umræð- ur sem fram fóru í gær. Töldu þó flestir ræðumenn að ritið væri góður grunnur til að vinna á til framtíðar en mjög skiptar skoðanir voru um hvaða málsmeðferð ritið ætti að fá. Fram kom tillaga frá Garðari Mýrdal og Einari Val Ingimundarsyni sem fól í sér frestun á endanlegri afgreiðslu ritsins og að kosið yrði 5 manna ráð sem starfaði til næsta landsfundar, eftir tvö ár, við að taka saman allar breytingatillögur og athugasemdir. Steingrímur J. Sigfússon vara- formaður lagði til í ræðu að unnið yrði að því að betrumbæta tillögu- gerðina á næsta ári þannig að stefn- an yrði tilbúin á bók upp úr áramót- um 1994/1995 sem kosninga- stefnuskrá flokksins. Ólafur Ragn- ar Grímsson formaður flokksins sagði í setningarræðu sinni á fimmtudag að fulltrúar flokksins ættu að efna til viðræðufunda um þjóðfélagið að loknum landsfundin- um svo hægt yrði að meta ábend- ingamar að vori og birta nýja út- gáfu ritsins. Ekki árangur grasrótarstarfs Nokkrir landsfundarfulltrúar gagnrýndu í gær að flokksmenn hefðu yfirleitt ekki fengið að koma nálægt vinnu við gerð útflutnings- leiðarinnar og sagði Sigríður Stef- ánsdóttir frá Akureyri það rangt að ritið væri árangur af grasrótar- starfi í flokknum og sagði það ein- göngu grunnplagg. I sama streng tóku Þuríður Backman og Einar Gunnarsson, sem kallaði ritið „stefnuskrá uppanna". Félagar í Alþýðubandalagsfélagi Reykjavíkur lögðu fram mikinn fjölda athuga- semda og ábendinga um breytingar á ritinu í 13 blaðsíðna fjölriti sem dreift var á fundinum og Hjörleifur Guttormsson alþingismaður lagði fram skýrslu í 12 köflum þar sem hann setur út á fjölmargar tillögur útflutningsleiðarinnar, en þingmað- urinn tók einnig fram að fyrirliggj- andi drög hefðu margt gagnlegt að geyma. í gær bar sérstaklega á gagnrýni á landbúnaðarkafla og á umfjöllun um umhverfísmál. Einnig var gagn- rýnt að ekkert væri þar fjallað um samskipti flokks og verkalýðshreyf- ingar, áherslur í útflutningsmálum voru gagnrýndar, varað var við að markaðurinn yrði látinn ráða skipu- lagi menntastofnana og varað var við of mikilli áhersiu á útflutning. Skilningur í garð heildsala Nokkrir landsfundarfulltrúar sem tóku til máls í gær lýstu ánægju sinni með útflutningsleiðina og bar þar mest á fulltrúum Birtingar. Mörður Ámason sagði að í ritinu væru ferskar hugmyndir og Kjartan Valgarðsson sagði að þar væri vel farið af stað í málefnastarfi flokks- ins. „Ég fagna því líka að sjá að í fyrsta skipti virðist ríkja nokkur skilningur meðal þeirra sem stóðu að þessu plaggi í garð okkar heild- sala,“ sagði Kjartan. Sjá einnig fréttir á bls. 19. 3M»rptwMnbit> tiir0 Erfitt samband skálds og þjóðar í dag Fegurð_______________________ Guðrún Rut Hreiðarsdóttir keppir í kvöld uw titilinn ungfrú heim- ur 5 Matvöruverðstríð_____________ Verðstríð heldur áfram milli stór- markaða á Akureyri 20 Aðventan að hefjast__________ Samkomur eru víða í kirkjum fyrsta sunnudag í aðventu 28 Leiðari______________________ Fáninn og kynning þess sem ís- lenzkt er 24 Menning/Listir Fullkomið listaverk: Leikdómur um Skilaboðaskjóðuna - Birgir Sigurðsson - Álfrún Gunnlaugs- dóttir - Björn Th. Bjömsson - Maðurinn Joyce Lesbók ► Hliðstæða við Fenrisúlf í Rómaborg -tvær smásögur eftir Gyrði Elíasson - Stormsveipur ofan af Jökli - blaðamaður Les- bókar á SnæfeUsnesi Morgunblaðið/Þorkell Við upphaf kvikmyndaviku FRÖNSK kvikmyndavika hófst í Háskólabíói í gærkvöldi. Meðal gesta var forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, sem hér sést með Francoise Peres, forstöðumanni Alliance Francaise, Francois Rey-Coquais, sendiherra Frakklands, og Friðbert Pálssyni, forstjóra Háskólabíós. Haföm hf. á Akranesi fær greiðslustöðvun Nettóskuldir rúm- ar 700 milljóiiir kr. HAFERNI hf. á Akranesi hefur verið veitt heimild tíl greiðslustöðvun- ar í þijar vikur, en fyrirtækið á nú í miklum rekstrarerfiðleikum. Að sögn Kristófers Oliverssonar, framkvæmdastjóra Hafarnar, eru brúttó- skuldir fyrutækisins tæplega 900 miUjónir króna, en nettóskuldir eru rúmar 700 milljónir. Hann sagði að fyrirtækið hefði verið rekið með um 100 milljóna króna halla fyrstu átta mánuði ársins, en meira en helmingur þess væri vegna gengisfellingarinnar síðastliðið sumar. Haföm hf. hefur gert út togarana Höfðavík og Sæfara auk þess að reka ftystihús og fiskvinnslu. Akra- nesbær er stærsti eigandi fyrirtækis- ins með um 42% eignarhluta, en aðrir stórir hluthafar eru Kirkjusand- ur og Olíufélagið. Hjá fyrirtækinu starfa 120 manns og hefur þeim öll- um verið sagt upp störfum. Reynt að selja Sæfara Kristófer sagði að rekstur fyrir- tækisins hefði gengið illa og tími væri kominn til mjög róttækrar end- urskipulagningar á honum. Hann sagði að tíminn á næstunni yrði not- aður til þess að kanna möguleika á því að selja eignir fyrirtækisins og endurskipuleggja lán.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.