Morgunblaðið - 27.11.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
Hækkun vörugjalds af snyrtivörum og byggingarvörum
75 milljóna kr. tekju-
auki fyrir ríkissjóð
í FRUMVARPI til iaga ura breyt-
ingar í skattamálum sem lagt hef-
ur verið fram á Alþingi er gert
Lætur af
embætti
sýslumanns
JÓN Skaftason lætur af embætti
sýsiumanns í Reykjavík í lok þessa
árs og hefur staðan verið auglýst
með umsóknarfresti til 15. desem-
ber.
Hann hefur gegnt embætti yfír-
borgarfógeta frá árinu 1979 en emb-
ætti sýslumanns í Reykjavík frá
1992.
ráð fyrir hækkun vörugjalds af
snyrtivörum og byggingarvörum
úr 9% í 10%. Er gert ráð fyrir að
þessi hækkun skili um 75 milljón-
um króna í tekjuauka, en þetta
er þáttur í breytingum sem ráðist
er í vegna iækkunar virðisauka-
skatts af matvælum. Að öllu sam-
anlögðu er gert ráð fyrir að tekj-
ur ríkissjóðs vegna breytinga á
vörugjaldi dragist saman um 165
miiljónir og að verðiagsáhrif verði
í samræmi við það.
í frumvarpinu eru ennfremur lagð-
ar til breytingar á vörugjaldi af sæl-
gæti og drykkjarvörum, en virðis-
aukaskattur á þessum vörum lækkar
ekki um áramót eins og á matvörum.
A móti kemur að vörugjaid af þessum
vörum lækkar nokkuð og lagt er
vörugjald á samkeppnisvörur sem
verða í lægra þrepi virðisaukaskat.ts-
ins til þess að jafna samkeppnisstöð-
una. Samkvæmt gildandi lögum eru
gosdrykkir og ávaxtasafar með 25%
vörugjaldi og er lagt til að það lækki
í 18%. Ekki hefur verið lagt vöru-
gjald á kaffí og te og er lagt til að
á þær vörutegundir leggist 6% vöru-
gjald, en þessar vörur verða í lægra
þrepi virðisaukaskatts. Vörugjald á
sælgæti og súkkulaðikex lækkar
einnig úr 25% í 18%. Jafnframt er
lagt 6% vörugjald á ís, snakk og
ýmis sykruð matvæli sem verða í
lægra þrepi virðisaukaskatts til að
halda samkeppnisstöðunni sem næst
óbreyttri.
Samtals kostar lækkun vörugjalds
ríkissjóð að óbreyttu um 370 milljón-
ir, en á móti vegur að álagning 6%
vörugjaids skilar 110 milljónum
króna í tekjur, sem kemur til viðbót-
ar þeim 75 milljónum króna tekju-
auka sem skapast með hækkun 9%
vörugjaldsflokksins í 10%.
Morgunblaðið/lngvar
Menguninni
sópað upp
Slökkviliðsmenn hreinsa eit-
urefnið af gólfi vöru-
skemmu Samskipa. Á inn-
felldu myndinni sjást tunn-
urnar sem fóru að leka.
Vörugeymsla Samskipa í Holtagörðum
VEÐURHORFUR I DAG, 27. NÓVEMBER
YFIRLIT: Við Hvarf er víðáttumikil og hægfara 938 mb iaegð sem fer
að grynnast þegar líður á nóttina. Skil fara norðaustur yfir landiö í kvöld.
SPA: Suðlæg átt, víðast kaldi en allhvass á stöku stað vestanlands.
Skúrir suðaustanlands, slydduél um vestanvert landið en bjartviðri norð-
austanlands. Hiti víðast á bilinu 1-6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnan og suðaustan kaldi eða stinning-
skaldi, víða skúrir eða rigning sunnan- og austanlands. Úrkomulítið ann-
ars staðar. Hiti 5-7 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Allhvöss sunnan- og suðaustanátt. Rigning
sunnan- og austanlands en að mestu þurrt í öðrum landshlutum. Hiti
7-9 stig.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Suðvestan kaldi eða stinningskaldi, él suðvest-
an- og vestanlands, en úrkomulaust annars staðar. Hiti 3 stig niður í 1
stigs frost.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarsfmi Veöurstofu islands — Veðurfregnir: 990600.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Greiðfært er um mestallt landið, en talsverð hálka er á Mosfellsheiði og
í uppsveitum Árnessýslu. Á Vestfjörðum er hálka á flestum vegum og
þar er Dynjandisheiði ófær og Hrafnseyrarheiði þungfær. Eins er hálka
á vegum á Norðurlandi og fjallvegum á Norðausturlandi og Austfjörðum.
Á suðvestan- og vestanverðu landinu er mikið hvassviðri og vart ferða-
veður í Hvalfirði, undir Hafnarfjalli og á fjallvegum á Snæfellsnesi. Þetta
veður á að ganga austur yfir landið og er fólki ráðlagt að fylgjast vel
með veðurfréttum áður en lagt er í ferðir milli byggðarlaga.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
O A
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
:A
Skýjað
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
v ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
y súid
= Þoka
stig..
IIEÐUR IfÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti 3 6 veður skýjað rigning
Bergen 4 skúr
Helsinki 0 þokumóða
Kaupmannahöfn 2 þokumóða
Narssarssuaq 3 rigning
Nuuk +7 skýjað
Osló +2 snjókoma
Stokkhólmur 0 þokumóða
Þórshöfn 6 léttakýjað
Algarve 17 heiðskirt
Amsterdam 2 þoka
Barcelona 14 mistur
Beriín vantar
Chicago 2 rigning
Feneyjar 5 alskýjað
Frankfurt vantar
Glasgow 1 þoka
Hamborg vantar
London 4 þoka
Los Angeles 13 skýjað
Lúxemborg vantar
Madrid 9 heiðskírt
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 15 skýjað
Montreal +8 skýjað
NewYork vantar
Orlando vantar
ParÍ6 2 þokumóða
Madeira 18 léttskýjað
Róm 13 alskýjað
Vín vantar
Washington vantar
Wlnnípeg +5 snjókoma
Eldfimur vökvi
hreinsaður upp
LEITAÐ var aðstoðar Slökkviliðsins í Reykjavík til þess að hreinsa
upp eldfiman og tærandi vökva úr lekri tunnu í vörugeymslu
Samskipa í Holtagörðum í gærmorgun. Vökvinn, sem er eins
konar olía, er notaður til að skilja að vatn og olíu. Hætta vegna
lekans var óveruleg.
Samskip fluttu 5 tunnur með
vökva af þessu tagi til landsins fyr-
ir Olíufélagið hf. Var þeim komið
fyrir í vörugeymslu Samskipa í
Holtagörðum og hefur hitabreyt-
ingin að öllum líkindum haft þær
afleiðingar að ein tunnan bólgnaði
út og fór að leka. Vökvinn er talinn
bæði eldfimur og tærandi og var
því leitað til slökkviliðsins til að
hreinsa hann upp. Til þess var að
sögn Guðmundar Jónssonar, varð-
stjóra í slökkviliðinu, notað sérstakt
uppsogunarefni og var úrganginum
komið fyrir í sérstökum tunnum frá
Sorpu og ekið með bíl frá Hirði, sem
hannaður er til flutnings eiturefna,
til eyðingar. Hinum tunnunum fjór-
um var ekið til Olíufélagsins.
Lítilsháttar skemmdir urðu á
öðrum vörum í skemmunni vegna
mengunar frá tunnunum og var
einnig farið með þær í Sorpu.
Slanga sýnd 1
módelkeppní
UNGUR maður gekk um sviðið með slöngu um hálsinn á loka-
kvöldi í módelkeppni fyrirsætuskrifstofunnar Wild í Ömmu Lú í
fyrrakvöld. Var þetta óvænt uppákoma á vegum sýningarhaldar-
ans og heyra mátti að sumum gestanna brá nokkuð.
Finnur Jóhannsson sem var með
slönguna sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði verið beðinn
um að sýna slönguna sem kunningi
hans ætti. Hann sagði að þetta
væri kóngaslanga, um einn og hálf-
ur metri að lengd og væri hún köll-
uð Houdini. Finnur sagði að slangan
væri algerlega hættulaus en greini-
lega hefði einhverjum gestum
brugðið, það hefði heyrst í salnum.
Hann var einn á sviðinu þegar hann
lék sér með slönguna á undan tísku-
sýningarþætti. Ekki sagðist Finnur
vita hvernig slangan hefði komist
til landsins.
Ekkert leyfi
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Reykjavík þarf að sækja
um leyfi til að sýna dýr en hins
vegar væri það matsatriði hvort
umrætt atriði félli undir þessar regl-
ur. Ekki hafði verið sótt um leyfí
fyrir slöngusýningunni. Bannað er
að fiytja inn lifandi dýr og sam-
kvæmt upplýsingum yfirdýralæknis
hefur aldrei verið veitt undanþága
fyrir innflutningi á slöngum. Lög-
reglan lét farga slöngum sem frétt-
ist af fyrir örfáum árum.
Slöngumaðurinn
FINNUR Jóhannsson _ sýnir
kóngaslönguna Houdini i Ömmu
Lú.