Morgunblaðið - 27.11.1993, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NOVEMBER 1993
Meistara-
keppni í
dansi
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNI í
suður-amerískum og standard-
dönsum með frjálsri aðferð fer
fram á vegum Dansráðs Islands
sunnudaginn 28. nóvember í
Laugardalshöll og hefst með setn-
ingu kl. 14.
Keppt er í aldurshópunum 12-13
ára og 14-15 ára í fjórum suður-
amerískum dönsum og fjórum stand-
arddönsum, aldurshóparnir 16-18,
19 ára og eldri og atvinnumenn
keppa í fímm suður-amerískum
dönsum og fímm standarddönsum.
Einnig er keppt í einum dansi
með grunnaðferð og er yngsti hópur-
inn 10-11 ára með keppnisdansinn
Cha cha cha og sá elsti 50 ára og
eldri með keppnisdansinn enskan
vals. Einnig er keppt í dömuriðlum
í einsdanskeppnum.
Dómarar í þessari keppni eru frá
Danmörku, Noregi og Englandi.
Miðasala hefst að morgni keppnis-
dags kl. 11 og er miðaverð barna
400 kr. og fullorðna 600 kr., sæti
við borð er á 1000 kr. Samhliða
þessari keppni verða danssýningar
frá Jazzballetskóla Báru og Her-
manni Ragnar.
* *
★ Opið Itús *
Arthur Bogason formaður Landssámbands smábátaeigenda
Viljum halda öllum
möguleikum opnum
ARTHUR Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda
segir að umboðið sem gefið var stjórn LS til viðræðna um afla-
gjald sé einkum sökum þess að smábátaeigendur vilji halda öll-
um möguleikum opnum. „Við munum ekki eiga frumkvæði að
slíkum viðræðum en þær hugmyndir sem við höfum í sambandi
við þær eru að öllum verði tryggður eðlilegur aðgangur að
fiskimiðunum,“ segir Arthur.
Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar
Tveimur milljón-
um króna úthlutað
ÚTHLUTAÐ hefur verið námsstyrkjum úr Minningarsjóði Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar. Að þessu sinni voru veittir
8 styrkir hver að fjárhæð 250 þúsund kr. Samtals bárust 42 umsókn-
ir um styrki úr sjóðnum.
Arthur segir að nú sé svo þrengt
að smábátum á kvóta að dæmi séu
um að menn sem fengu 15-20 tonn
úthlutuð fyrir þremur árum fái 5
tonn nú og hann veit dæmi um að
maður sem fékk úthlutað kvóta 1.
september var búinn að veiða hann
þann 14. september. „Á meðan eru
svo stórútgerðir að flytja tugi þús-
unda tonna af geymslukvóta á milli
ára, láta báta veiða fyrir sig í tonn
á móti tonni og sem leiguliða meðan
að skip þeirra sjálfra eru send á
aðrar veiðar,“ segir Arthur. „Við
teljum því eðlilegra að greiða fyrir
aflaheimildir til ríkissjóðs þar sem
fiskurinn er jú sameign þjóðarinnar
í stað þess að greiða skatt af þeim
til stórútgerða eins og nú er í raun
gert.“
Arthur segir að þótt LS muni
ekki eiga frumkvæðið að viðræðum
sé hægur vandi fyrir að kalla saman
stjórnarfund eða aukaaðalfund fari
svo að sambandinu verði boðin þátt-
taka í viðræðum um aflagjald.
--------♦ ♦ ♦--------
Þinphðlsbraut 37 - Kóp.
Til sölu glæsileg 120 fm efri sérhæð í þessu fallega
þríbýlishúsi. íbúðin skiptist í samliggjandi stofur, 3
svefnherb., eldhús með nýlegri beykiinnréttingu, gesta-
snyrtingu og vandað, nýflísalagt baðherbergi. Parket á
allri íbúðinni. Sérþvottahús. Suðursvalir. Bílskúr. Stór-
kostlegt útsýni. íbúðin er öll nýstandsett. Hús í mjög
góðu ásigkomulagi.
íbúðin, sem er laus strax, verður til sýnis í
dag, laugardag, frá kl. 14-17.
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700.
011 Kfl 01Q7A LÁRUS VALDIMARSSON framkvæmðastjori .
L I I VU"fa I W / V KRISTINNSIGURJÓNSSON, HRL.lóggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu - meðal athyglisverðra eigna:
Nýtt einbýlishús - mikið útsýni
Glæsil. timburhús á tveimur haeðum v. Fannafold samt. 164,3 fm. 4
svefnherb. m.m. á efri hæð. Bílsk. - verkstæði 35,1 fm. 40 ára húsn-
lán um kr. 3,0 millj. Tilboð óskast.
Glæsileg eign í Þingholtunum
miðhæð í þríbhúsi. 4ra herb. Sólsvalir. Parket. Sérþvhús. Ræktuð lóð.
Góð lán. Húsið er byggt 1985.
Fyrir smið eða laghentan
endaraðhús í Smáíbúðahv. m. 4ra-5 herb. íb. á tveimur hæðum. Rúmg.
geymsla og þvhús í kj. Eignaskipti mögul.
Suðuríbúð - góður bílskúr
2ja herb. góð íb. á 2. hæð v. Stelkshóla. Sameign fylgir nýstandsett.
Góður bílsk. Sanngjarnt verð.
Skammt frá Háskólanum
einstaklíb. - 2ja herb. 56,1 fm. Allar innr. og tæki ný. Sérinng., sérþvað-
staða. íb. er á 1. hæð/jarðh.
Eignir óskast á skrá
Sérstaklega óskast 2ja-3ja herb. íb. í Smáíbúðahv. Einbhús af meðal-
stærð í Smáíbhv. Sérhæð á Högum eða Melum. Eignir í gamla bænum
og nágr. mega þarfn. endurbóta. Sérhæð í Hlíðunum. Margs konar
eignaskipti möguleg. Fjársterkir kaupendur.___________________
• • •
VOpið í dag kl. 10-13.
Teikningar á skrifstofunni.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
ALMENNA
FASTEIGHASAl AH
LAUGAVE6118 SÍMAR 21150-21370
Þeir sem styrki hlutu að þessu
sinni voru: Ásgeir Brynjar Ægis-
son, rafmagnsverkfræði, Björn
Ragnarsson, rafmagnsverkfræði,
Guðmundur Stefánsson, matvæla-
fræði, Hildur Hrólfsdóttir, efna-
verkfræði, Jón Tómas Guðmunds-
son, kjarnorkuverkfræði, Kári
Indriðason, eðlisfræði, Ragnhildur
Sigurðardóttir, umhverfisfræði og
Örnólfur E. Rögnvaldsson, stjarn-
eðlisfræði.
Stjóm mmningarsjóðsins skipa
frú Helga Áberg, Sigurður Guð-
mundsson, löggiltur endurskoð-
andi og dr. Ragnar Ingimarsson,
prófessor, sem jafnframt er for-
maður stjómar.
■ SÓLFRÍÐUR Guðmundsdótt-
ir, skólahjúkrunarfræðingur og lekt-
or í barnahjúkrun flytur fyrirlestur
um: Umönnun barna sem útskrif-
ast af sjúkrahúsi eftir bráðaað-
gerð, á málstofu í hjúkrunarfræði.
Málstofan verður haldin mánudag-
inn 29. nóvember kl. 12.15 í stofu 6
á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34.
&MMDDDÖ1
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 720. þáttur
Þá skal með þökkum gefa
Örnólfi Thorlacius orðið:
„Kæri Gísli!
Mörg eru þau skúrkastrikin
sem færð hafa verið á reikning
afturhaldsafla í aldanna rás. I
blaði allra landsmanna mátti
lesa þessa fyrirsögn sunnudag-
inn 10. október: „Glæst mark-
mið í Sómalíu víkja fyrir aftur-
haldi með sæmd.“
Ég sá fyrir mér afturhaldið
þjarma að hugsjónamönnum í
þessu hrjáða Afríkuríki svo þeir
yrðu að láta í minni pokann —
en héldu þó sæmd sinni. En aldr-
ei þessu vant fékk afturhaldið
uppreisn æru. Við lestur grein-
arinnar kom í ljós að hún fjall-
aði um áform bandarískra
stjórnvalda í þá veru að draga
her sinn út úr Sómalíu. Sæmdin
ljómaði því ekki af glæstum
markmiðum heldur af afturhald-
inu, sem raunar hafði snúist í
undanhald.
Ekki veit ég hvaðan sú mein-
loka hefur skotist inn í íslenska
tungu að enska orðið deer þýði
dádýr. Þessi villa veður uppi í
þýðingum í sjónvarpi, í blaða-
greinum og víðar þar sem ís-
lendingar þýða úr ensku eða
styðjast við enska texta.
Hið rétta er að orðið er sam-
heiti um hjartardýr. Krónhjörtur
heitir til dæmis á ensku red de-
er, rádýr roe deer, moskushjört-
ur musk deer og dádýr fallow
deer. Ekki skulum við gleyma
því að hreindýr heitir á ensku
reindeer, og dytti víst engum
íslendingi í hug að telja það til
dádýra. Og fáir myndu leggja
„Deerhunter“ út dádýrabani!
í ágætri grein í Morgunblað-
inu laugardaginn 9. október um
þjóðarsál Japana standa_ þessi
orð til skýringar mynd: „I aug-
um fjölda Japana eru dádýr heil-
agar skepnur og það er fáheyrð-
ur glæpur í Japan að leggja þau
sér til munns.“
Þann glæp gátu Japanar ekki
framið á heimavelli meðan helg-
isiðir þeirra voru í mótun því
dádýr voru flutt þangað fremur
seint frá Evrópu og þrífast að-
eins hálfvillt í skemmtigörðum.
Hins vegar hefur annað og
áþekkt hjartardýr lifað í Japan
frá aldaöðli, síkahjörtur, Cervus
nippon, og er trúlegt að helgin
hafi í upphafi tengst honum.
Lifðu heill.“
★
Ætli umsjónarmaður hafi
ekki oft sagt söguna af Þorleifi
á Háeyri og mismuninum á að
og af? Þorleifur sagði eitthvað
á þessa leið um tengdason sinn:
Á honum og guði almáttugum
er svo sem enginn munur. Mun-
ar bara einum staf. Og þegar
menn litu á hann undrunaraug-
um og spurnar, bætti hann við:
Guð almáttugur gerði allt af
engu, Guðmundur gerir allt að
engu. Erfitt hefur löngum reynst
að aðgreina þessi tvö litlu og
líku orð. En ég tek fáein dæmi:
Menn hafa gaman af einhveiju,
en þeim þykir gaman að ein-
hveiju, og þeir eru vísir til að
henda gaman að náunga sínum.
Það er vandratað á þessum slóð-
um. Þá segir í Islensku málfari
eftir Árna Böðvarsson:
„að — af: Þessi orð eru ekki
sömu merkingar, sem sést vel
þegar þau eiga við stað, að
staðnum, af staðnum. í ýmsum
samböndum verður að læra sér-
staklega hvort orðið er notað.
Rétt er að segja að þessu leyti,
að gefnu tilefni, af þessari
ástæðu, það sem af er þessum
vetri, en „af þessu leyti, af gefnu
tilefni“ er rangt.“
Þetta setur umsjónarmaður á
blað eftir ábendingu frá Guð-
rúnu Kristínu Magnúsdóttur í
Reykjavík. Hún hafði fleira til
málanna að leggja, vitnaði t.d.
í fréttagrein hér í blaðinu ekki
fyrir löngu:
„Hún [Michelle Pfeiffer] seg-
ist ekki vera afundin karlmönn-
um, heldur vilji einfaldlega ekki
vera bundin einum slíkum.“
Fyrrnefnd kona virðist sem
sagt vera til í lauslæti, en þá
ætti fremur að standa í textan-
um afhuga en „afundin11. I
Orðabók Menningarsjóðs
(OM) undir afhuga segir: „hætt-
ur að leggja hug á eitthvað;
verða einhverju afhuga = missa
áhuga á einhveiju, hætta að
vonast eftir eða muria eftir ein-
hveiju.“ En undir afundinn er
„önugur, hvefsinn; fráhverfur.1
Málfarið í greininni um M.P. er
því veijandi með góðvilja.
★
Hlymrekur handan kvað:
Nú er Lénharður lagstur í böð
til að lauga af sér brennivínskvöð
átján ár hér í bæ
frá apríl til mæ
kringum árið í öfugri röð.
★
„Enginn maður kann til nokk-
urrar hlítar íslenska tungu, nje
þekkir sögu íslensku þjóðarinnar,
nema hann hafi lesið rækilega
íslendingasögurnar fornu. Því líst
mjer vera meinleg eyða í mentun
hvers íslendings,. sem ekki hefir
lesið þær.“
(Sr. Magnús Helgason 1857-1940)
★
Guði sé lof fyrir fegurðina:
Hljótt er úti.
Allir laufvindar famir hjá.
í tjamarsefi
situr döpur álfastúlka
með hvítan tunglsgeisla
á hné sér, eins og dáið bam.
(Hannes Pétursson:
Nótt í vetrarbyrjun.)