Morgunblaðið - 27.11.1993, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
Örfá orð um sósíal-
isma og nasisma
eftir Hjört Hjartarson
Þriðjudaginn 7. september birtist
á ritstjórnarsíðum Morgunblaðsins
ágæt grein eftir Ólaf Björnsson
prófessor er bar heitið „Leiðir
einkavæðing á kolkrabbaslóð". Hér
er ekki ætlunin að ræða aðalefni
greinarinnar, heldur setningu sem
hljóðar á þessa leið: „Orðið sósial-
ismi í merkingunni miðstýrð þjóð-
nýtingarstefna hefur hlotið svipuð
örlög og orðin þjóðernisstefna eða
fasismi eftir ósigur Hitlers og
kommúnismi eftir afhjúpun glæpa
Stalíns, að enginn vill bera slíkt
heiti.“
Borið hefur á því undanfarið að
heittrúaðir markaðshyggjumenn
reyni að telja sjálfum sér og öðrum
trú um að samasemmerki sé milli
sósíalisma og nasisma. Þetta er
fátæklegt innlegg þeirra í íslenska
stjórnmálaumræðu, til þess ætlað
að gera pólitíska andstæðinga tor-
tryggilega. Fleiri hafa látið til sín
taka. Á hinum hreinu og kláru tím-
um Kaldastríðsins var mikil íþrótt
að útdeila pólitískum merkimiðum,
því er þessi ósiður kærkomin til-
breyting þeim sem frusu ofan í
svellið á þeirri tíð og hafa ekki átt
að öðru að hverfa; skort kjark eða
hugmyndaflug til að bijóta sig
lausa.
Grein Ólafs er reyndar ekkert
nema prúðmennskan og ekki geng-
ur hann svo langt að setja sama-
semmerki á milli þeirra sem að-
hyllst hafa sósíalisma og nasisma,
þó er setningin sem höfð er eftir
honum hér að ofan dálítið loðin.
Burt séð frá því, er ástæða til að
ræða þetta mál, það er mikilvægt
einmitt núna.
Sósíalisminn
Sósíalisminn, eins og Ólafur
bendir á, er sprottinn af því að
„hið kapitalíska hagkerfi hafði frá
sjónarmiði sósíalista galla, sem
gerðu það að brýnu réttlætismáli
að unnið væri að því að koma á
betra þjóðskipulagi". Raunar voru
það ekki eingöngu sósíalistar sem
sáu óréttlætið, það blasti við öllum
sjáandi mönnum. Adam Smith, og
síðar Maltus og Ricardo, könnuðust
allir við að staða hins örsnauða
fjölda væri ékki góð og lítil von til
þess að hún batnaði. Þeir töldu jafn-
framt að við því væri ekkert að
gera. Samkeppnin var trúarjátning
19. aldarinnar; það mátti ekki trufla
markaðinn. Sósíalistar sættu sig
ekki við það, ekki Karl Marx, og
þótt .járnhörðu launalögin“ hafi
úrelst og hagur margra batnað var
örbirgðin hlutskipti fjöldans jafnt
sem áður og ekki sjálfgefið að það
breyttist þótt sífellt yrði meira til
skiptanna. Að þessu leyti var heim-
urinn líkur því sem hann er nú.
Baráttan fyrir réttlátari skiptingu
gæðanna og mannréttindum til
handa almúgafólki á Vesturlöndum
var - hvort sem mönnum líkar bet-
ur eða verr - háð undir merkjum
sósíalisma. í honum fólst krafa um
þjóðfélagslegt réttlæti. Þess vegna
m.a. höfðu margir samúð með þeirri
baráttu án þess þeir litu á sig sem
sósíalista fyrst og fremst eða gerðu
sér vonir um stéttlaust ríki bræðra-
lags og jafnréttis, Það breytti því
hins vegar ekki að þeir fengu merki-
miðann - kommúnistar! - og voru
þar með óalandi og ófeijandi. Það
var glæpur að vera sammála sósíal-
istum yfirhöfuð.
Herra Sigurbjöm Einarsson bisk-
up - einn vitrasti sonur þjóðarinnar
D6EROBNŒRAMICA
'-~4i
1 í
Stórhölða 17 vW Gultlnbrú, BÍral 67 4» 44
Hjörtur Hjartarson
„Sósíalisminn einfald-
lega gegnsýrir vestræn
þjóðfélög, sérstaklega
Norðurlönd, þar sem
almenn velferð og lífs-
kjör eru best.“
- fékk að kenna á því sem kunn-
ugt er. Hann leyfði sér að andmæla
því að á íslandi yrði komið upp
bandarískum herstöðvum og átti í
því máli samleið með sósíalistum -
og örugglega meirihluta þjóðarinn-
ar. Afstaða hans réðst þó fyrst og
fremst af því að hann þorði að horf-
ast í augu við þá kenningu sem
hann boðar. Herra Sigurbjörn virð-
ist reyndar ekkert hafa skánað; í
sjónvarpsviðtali sl. vor segir hann
að margt af því sem kommúnistar
hafi sagt um þjóðfélagið hafi verið
satt. Jahérna!
Ólafur nefnir í fyrrnefndri blaða-
grein að stefna þeirra fiokka á
Vesturlöndum sem kenna sig við
sósíalisma hafi tekið verulegum
breytingum. Þetta er hárrétt.
Ástæðan er ekki síst sú að gefið
var eftir og mikilvæg baráttumál
sósíalista náðu fram að ganga. Þess
vegna er það sem einu sinni taldist
hættulegur kommúnismi ekkert
róttækt lengur - áhrif sósíalískra
hugmynda komu raunar í veg fyrir
að kapítalisminn yrði endanlega
afskrifaður.
Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið urðu til í kringum marx-
ismann, þótt þeir af „taktískum"
ástæðum og aumingjaskap hafi
ekki hátt um það. Framsóknar-
flokkurinn var byggður upp í kring-
um sósíalískar hugmyndir og Sjálf-
stæðisflokkurinn smitaðist, tók
sönsum. - Sósíalisminn einfaldlega
gegnsýrir vestræn þjóðfélög, sér-
staklega Norðurlönd, þar sem al-
menn velferð og lífskjör eru best.
Kjami málsins er sá, að í hugum
milljóna manna gerðu gallar hins
kapítalíska hagkerfis baráttu sós:
íalista að „brýnu réttlætismáli“. í
því fólst aðdráttarafl sósíalískra
hreyfínga - auk þess sem fólk var
að beijast fyrir lífi sínu eða ein-
hveiju sem gæti talist mannsæm-
andi líf, sjálfu sér og öðrum til
handa.
Nasisminn
Nasisminn tvinnaði saman hót-
anir um landvinningastríð, hatur á
lýðræði, gyðingum og sðsíalistum.
Hann byggðist á kynþáttahatri og
þvælu um yfirburði einhvers kyn-
stofns sem átti að heita aríar. Hitl-
er ætlaði að sameina Þjóðveija í
álfunni, „hreinsa“ Þýskaland og
leggja undir sig lönd í austri, aðal-
lega Rússlandi. Slavar og önnur
hálfmenni áttu síðan að þjóna und-
ir herraþjóðinni.
Stjómmálaskoðanir segja yfir-
leitt ekki nokkurn skapaðan hlut
um mannkosti fólks - en hveijir
gengu til liðs við slíkan málstað?
Það var hreinasti skríll. William L.
Shirer segir í bók sinni „The rise
and fall of the Third Reich“ að í
flokkinn hafi þyrpst melludólgar,
kynferðisbrenglaðir menn, fjárkúg-
arar og morðingjar. Hitler líkaði
ágætlega og sagði - þegar hann
var minntur á þetta - að það væri
ekki hlutverk stjórnmálaleiðtoga að
siða þann „mannlega efnivið sem
hann hefði úr að moða“.
Kolkrabbaslóð?
Menn gengu ekki að því grufl-
andi hvað yrði, kæmist Hitler til
valda. Hann var búinn að boða sitt
fagnaðarerindi árum saman af mik-
illi hreinskilni áður en það varð. -
Og það varð.
Nasisminn nærðist á hinni kapít-
alísku kreppu. Flokkurinn vann sig-
ur í kosningum, ríkulega studdur
af stórfyrirtækjum og landeigend-
um - enda söng Hitler þeim fyrir-
litningu sína á sósíalistum og ást á
hinu fijálsa framtaki. Og hann
launaði þeim örlætið svikalaust;
braut niður verkalýðshreyfinguna
og slátraði „kommúnistum" á svo
stórbrotinn hátt að sennilega hittir
hann hvergi fyrir ofjarl sinn í þeim
efnum, nema ef vera skyldi í Stal-
ín. Einkaframtakið naut sín prýði-
lega í sambúð við ógnarstjóniina
og neitaði sér ekki um ódýrt vinnu-
afl; gyðingar, slavar og annað úr-
þvætti fékkst fyrir slikk. Lýðræði
og kapítalismi eru nefnilega sitt
hvað og tuggan um „lýðræði og
markaðsumbætur" má ekki villa um
fyrir fólki.
Af nógu er að taka vilji menn
halda á lofti glæpum þeirra sem
kennt hafa sig við sósíalisma -
þeir glæpir eru reyndar tíundaðir
undanbragðalaust, þótt sorglega oft
skíni í gegn sá hundingjaháttur að
mestu máli skiptir hver drepur
hvern og með hvaða formerkjum -
en nú kunna þeir tímar að fara í
hönd að hægrimenn sem ást hafa
á lýðræði ættu að forðast að af-
greiða nasismann, fasismann, með
því að þetta hafi í rauninni bara
verið einhveijir „helvítis kommún-
istar“.
Höfundur er rafeindavirki.
Nýar sendingar
Leðursófasett og leðurhornsófar
frá NATUZZI, Ítalíu.
Frábært verð - Margir litir.
r ••
Ármúla 8, símar 812275 og 685357.
YfSA
OFBELDI, VAXANDIVANDAMAL?
Foreldrasamtökin, Heimdallur f.u.s. og Æskulýössamband kirkj-
unnar f Reykjavíkurprófastdæmum boða til ráðstefnu um of-
beldi í íslensku þjóðfélagi.
Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um þá aukningu, sem
hefur orðið á alvarlegum ofbeldisverkum að undanförnu og þá
sérstaklega meðal ungs fólks. Rætt verður um leiðir til úrbóta
og hlut einstakra hópa eða stofnana í því skyni. Sérstaklega verð-
ur rætt um ábyrgð og hlutverk foreldra, lögreglu, borgaryfirvalda
og félagsmálastofnana. Þá verður einnig greint frá umfangi og
þróun þeirra ofbeldisverka, sem slysadeild Borgarspítalans í
Reykjavík hefur fengið til meðferðar á síðustu árum.
Ráðstefnan verður haldin kl. 13.30 tii 15.30 í safnaðarheimili
Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14a (Iðnóhúsið, gengið inn á horni
Vonarstrætis og Lækjargötu) laugardaginn 27. nóvember 1993.
Aðgangseyrir er enginn og eru allir velkomnir.
Framsögumenn verða:
Eirfkur Ingólfsson, formaður Foreldrasamtakanna,
Gunnar Jóhann Birgisson, héraðsdómslögmaður,
Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
og yfirmaður forvarnadeildar lögreglunnar og
Kristfn Þórunn Tómasdóttir, formaður stjórnar Æskulýðs-
sambands kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum og formaður
Félags guðfræðinema í Háskóla íslands.
Á eftir framsöguerindum verða pallborðsumræður og fyrirspurnir.
I pallborðinu taka þátt auk framsögumanna:
Ólöf Helga Þór, forstöðumaður Rauðakrosshússins og
Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir og forstöðumaður slysa- og
bæklunarlækningadeildar Borgarspítalans.
Foreldrasamtökin, Heimdallur f.u.s eg
Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum.
FRAMLAG ÞITT ER MIKILS VIRÐI.
<SlT hjálparstofnun
hr/ KIRKJUNNAR
^ ^ - mcft þinni hjálp
íslandsmeistarakeppni
í suður-amerískum og standard-dönsum
með frjálsri aðferð verður haldin sunnudaginn 28. nóv.
í Laugardalshöllinni.
Einnig verður einsdanskeppni í gmnnsporum fyrir
10 ára og eldri.
Við viljum hvetja dansáhugafólk til að koma og horfa á spennandi
og skemmtilega keppni.