Morgunblaðið - 27.11.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NOVEMBER 1993
21
Opi& frá kl. 9-21 alla daga
Næg bílastæbi (bílastæ&ahúsi& Bergstaðir)
Ekkert stööumælagjald um helgar
Sjón er sögu ríkari
P.s. í tilefni dagsins: Jólaöl og piparkökur
blomaverkstæði
□
INNA
□
SKOLAV ORÐUSTIG
12
BERGSTAÐASTRÆTISMEGIN
SIMI19090
Jólastjörnutilboð
utn þessa helgi Q/
1. flokks kr. 790/- /0
Valdar kr. 490,- afsláttur
Einblóma kr. 250,- af jólatréskúlum
Háskólabíó sýnir
Ungu Anieríkanana
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga spennumyndina Ungu Amerík-
anarnir eða „The Young Arnericans" með Harvey Keitel og Craig
Kelly. Titillag myndarinnar „Play Dead“ er sungið af Björk Guð-
mundsdóttur en hún naut aðstoðar David Arnolds við hljóðritun lags-
ins. Laginu hefur vegnað vel á vinsældalistum í Englandi undanfarn-
ar vikur.
í myndinni Ungu Ameríkanarnir
segir frá lögregluforingjanum John
Harris (Keitel) sem kemur frá New
York sem ráðgjafi hjá Lundúnarlög-
reglunni. í London standa menn
ráðþrota gagnvart röð af hrottaleg-
um morðum og eiturlyfjasölu sem
enginn veit hver stendur á bak við,
jafnvel ekki mafíósarnir í London.
Harris kannst fljótt við handbragð
fíkniefnakóngsins Frasers, sem er
ungur Ameríkani, en hann beitir
gjarnan fyrir sig ungum óþekktum
strákum sem heillast af ofbeldi,
peningum og tískubylgjum undir-
heimanna. Christian, ungur piltur
sem hangir oft á börum og diskótek-
um, dregst inn í hrottafengna at-
burðarás og stendur frammi fyrir
því að þurfa að hjálpa lögreglunni,
vitandi það hvaða örlög bíða upp-
ljóstrara. Einnig togast á ást hans
á stúlku einni. Þegar faðir hans er
myrtur kemst hann ekki hjá því að
taka ákvörðun.
Harvey Keitel í hlutverki Harris lögregluforingja í myndinni Ungu
Ameríkanamir.
Tommy Lee Jones í hlutverki í myndinni Spilaborginni.
Regnboginn sýnir
myndina Spilaborgina
Biblía, sem
börnin geta
lesið sjálf.
Fæst í næstu bókaverslun.
! Bráðumkoma
I blessuðjólin...
>
VELJUM (SLENSKT!
kókosmjöí
REGNBOGINN hefur hafið sýningar á myndinni Spilaborginni eða
„The House of Cards“. Með aðalhlutverk fara Tommy Lee Jones
og Kathleen Turner.
caUfomui rusrnur
Ucslinneíur
. ••
Heslihneíur
Hnkkagar
©ÍU* lmv H
hesUhneíur *
jlögiir ■4-+.
„löndlur
"mröhýði
mönÆur
hakkaðar
Myndin fjallar um unga konu sem
missir eiginmann sinn í voveiflegu
slysi þegar þau eru að rannsaka
rústir hinna fornu Mæja í Mexíkó.
Börn þeirra, drengur og sex ára
gömul stúlka, eru með í förinni.
Eftir þennan hörmulega atburð snýr
íjölskyldan aftur til Bandaríkjanna.
Þegar þangað er komið gerist undar-
legur atburður, litla stúlkan hættir
að tala án nokkurra skýringa. Móðir-
in sendir hana í sérstakan einka-
skóla en án bata, læknirinn tjáir
henni að barnið sé veikt og vill láta
setja það í sjúkrahús. Móðirin þráast
við og tekur stúlkuna heim og ætlar
að lækna hana sjálf. Nótt eina vakn-
ar hún við mikil læti og hleypur til
herbergis dóttur sinnar. Þar blasir
við henni ótrúleg sjón, barnið hefur
byggt stórfenglega spilaborg og
fleiri dularfullir atburðir fylgja í kjöl-
farið. Eftir þetta telur móðirin að
dóttirin sé gædd sérstökum gáfum
og hæfileikum. Eitthvað dularfullt
er á seyði og það tengist rústum
Mæja-þjóðflokksins.