Morgunblaðið - 27.11.1993, Síða 23
MORGUNBLaÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
23
Reuter
Við gröf James Bulgers
LITILL drengur við leiði James Bulgers í Kirkdale-kirkjugarðinum í Liverpool. Jafnan berst fjöldi blóma
að gröfinni og vegna nálægðar jólanna hefur jólaskreyting verið sett á trjábol við Ieiðið.
Bretar deila um orsakir morðs drengja á tveggja ára barni
Biskupar neita því að
kirkjan hafi brugðist
London. The Daily Telegraph, Reuter.
ÆÐSTU menn ensku kirkjunnar svöruðu fyrir sig í gær og sögðu
ásakanir um að kirkjan hefði brugðist siðferðishlutverki sínu
ekki eiga við rök að styðjast. í tengslum við umræðuna um orsak-
ir morðs á tveggja ára pilti í Liverpool, James Bulger, lýsti David
Maclean, aðstoðarráðherra í innanríkisráðuneytinu, því yfir að
siðferðisvitund þjóðarinnar hefði hrakað. Hefði kirkjan brugðist
því hlutverki sínu að uppfræða börn og unglinga og kenna þeim
muninn á réttu og röngu.
„Hluti vandans er sá að kirkjan
hefur einbeitt sér að umræðum um
félagsleg vandamál og látið stjórn-
mála.mönnum eftir að deila um
nauðsyn þess að kenna börnum að
greina á milli góðs og ills,“ sagði
Maclean. Kirkjan ætti að vera
kyndilberi við að efla siðgæðisvit-
und ungmenna en þar hefði hun
ekki staðið í stykkinu. „Undarleg
þögn hefur ríkt í kirkjunni í þessum
efnum,“ sagði hann.
Ásakanir Macleans voru forsíðu-
efni ailra bresku blaðanna í gær
og af þessu tilefni sagði í risafyrir-
sögn á forsíðu Daily Mail „Stólarn-
ir þagna.“ Lögreglumenn, leiðara-
höfundar blaða og geðlæknar
deildu einnig um það hvort hið
óhugnanlega morð á Bulger væri
til marks um að breskt þjóðfélag
væri í siðferðislegu tómarými eða
hvort um væri að ræða einstakan
glæp sem aldrei yrði hægt að út-
skýra.
Af hálfu kirkjunnar var því vísað
á bug að hún hefði brugðist. Tals-
maður erkibiskupsins af Kantara-
borg, æðsta manns ensku biskupa-
kirkjunnar, sem er í útlöndum,
sagði að biskupinn hefði ítrekað
lagt á það áherslu í boðskap sínum
hve nauðsynlegt væri að efla sið-
gæðisvitund barna sem fullorðinna
á grundvelli boðorðanna 10 og
kenninga Krists. Krafðist embættið
þess að aðstoðarráðherrann gerði
grein fyrir því hvað hann ætti við.
Ymsir biskupar biskupakirkjunnar
svo og kaþólsku kirkjunnar í Bret-
landi svöruðu fyrir sig í gær og
sögðu ummæli Macleans til marks
um að hann væri ilia upplýstur um
starf kirkjunnar. John Habgood
biskup af Jórvík sagði að starf
kirkjunnar væri ekki tíundað í fjöl-
miðlum og því í þagnargildi. Hann
sagði að siðferðisfræðsla yrði stöð-
ugt erfiðari því samfélagsgerðin
yrði stöðugt flóknari og einhyggjan
ágengari. „Það er erfitt að átta sig
á því hvort menn deila lengur sömu
gildum. Fólk er undir miklum
þrýstingi um að taka afstöðu og
dæma hvað sé rétt og hvað rangt
út frá eigin hagsmunum og for-
sendum sem það þarf í auknum
mæli að ákveða sjálft,“ sagði
Habgood.
Ný sending
*
Ulpur, 5 litir
Tilboðsverð kr. 7.900
Opið laugardaga frá kl. 10-16.
N#HMSIÐ
Laugavegi 21, sími 25580.
beuRMip
i BODGADRDINGLUNNI
er sérverslun jDeirra sem leggja stund á sjélfsraskt
BÆKUR Á ÍSLENSKU OG ENSKU í ÝMSUM
EFNISFLOKKUM MIKLU ÚRVALI, m.a. um
sjálfsrækt, andlega og líkamlega rækt, heilun,
heilsufæði, meðvirkni, óhefðbundnar aðferðir
til lækninga, ilmkjarnaolíunotkun (aromat-
herapy), nudd og margt fleira.
SNÆLDUR OG GEISLADISKAR MEÐ SLÖK-
UNAR- OG HUGLEIÐSLUTÓNLIST. Einnig úr-
val af leiddum hugleiðslum á íslensku og ensku.
REYKELSI I' MIKLU ÚRVALI. Ilmur hefur mikil-
væg áhrif á hugarástandið.
AlJrei aftnr
meávirkni
ur.Hú að tiV.,™, ðð tx
“'*J'Y93Í“ fyrir *jAlfv.m *ér
ák
Molody
Bcattic
★ EARTH SCIENCE SNYRTIVORURNAR - UNN-
AR ÚR NÁTTÚRULEGUM EFNUM Mikið úrval
af andlitskremum, augn-kremum, olíum hreinsi-
kremum og öðru sem snertir heilbrigði húðar- i
innar, bæði fyrir dömur og herra. Allar tegund-
ir unnar úr 100% náttúrulegum efnum, án skaðlegra aukaefna. Einnig frá-
bærar hársnyrtivörur.
HÁGÆÐAVARA Á SÉRLEGA HAGSTÆÐU VERÐI
★ ILMKJARNAOLÍUR FRÁ AURA CACIA 100% náttúrulegar og hreinar ilm-
kjarnaolíur - tæplega 50 gerðir.
★ NUDD- OG BAÐOLÍUR FRÁ AURA CACIA OG HERITAGE PRODUCTS -
blandaðar samkvæmt dálestrum Edgar Cayce.
★ YUCCA GULL - FÆÐUBÓTAEFNIÐ FRÁBÆRA SEM BÆTIR MELTING-
UNA OG EYKUR VELLÍÐAN ÞÍNA
★ VÍTAMÍN í FUÓTANDI FORMI FRÁ EARTH SCIENCE
2-5 sinnum hraðari og virkari upptaka en úr töflum.
★ ORKUSTEINAR OG KRISTALLAR í MIKLU ÚRVALI
Persónuleg þjónusta og ráðgjöf - margra ára reynsla.
★ TAROT SPIL OG ÖNNUR SPÁSPIL - MARGAR GERÐIR
SÉRKYNNING Á VÍKINGAKORTUNUM
SUNNUDAGINN 28. nóvember.
Frá kl. 14-17 á sunnudaginn verður sérkynn-
ing á VÍKINGAKORTUNUM, nýútkomnum,
rammislenskum spákortum, sem veita þér
aðstoð við úrlausn mála sem snerta persónu-
legt Iff þitt, samskipti við aðra, ástarmal,
deilumál og andlegan þroska.
Höfundurinn, Guðrún G. Bergmann, og
myndlistarmaðurinn, Ölafur G. Guðlaugsson,
árita bókina.
Verið velkomin.
VIK.INÓA
K O R T I N
- VISKA NORÐURSINS-
Við þjónum þér með gleði, kærleik og Ijósi.
Póstkröfuþjónusta
greiðslukortaþjónusta
beuR/itir
Rnrn^rkrinnhn
Borgarkringlan,
KRINGLUNNI4
•sími 811380
ER ÖLLUMÆTLAÐ
Littu við
í Borgarkringlunni
REKSTRAR- OG VIÐSKIPTANÁM
Endurmenntunarstofnunar Háskóla íslands
- þriggja missera nám með starfi - hefst á vormisseri 1994
Frá því að Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands hóf starfsemi árið
1983 hefur stöðugt betur komið í Ijós þörfin fyrir heildstætt nám í rekstri
fyrirtækja og stofnana, sem hægt er að stunda með starfi. Nám á háskóla-
stigi, þar sem gerðar eru miklar kröfur, bæði til nemenda og kennara.
Endurmenntunarstofnun hefur frá áramótum 1990 boðið upp á þriggja
missera nám fyrir aðra en viðskipta- og hagfræðinga. Nú hafa átta hópar
hafið þetta nám og fimm hópar lokið því. I náminu eru tekin fyrir helstu
undirstöðuatriði hagfræða og rekstrar og þess freistað að gera þeim
betri skil en hægt er á styttri námskeiðum. Forgang hafa þeir sem lokið
hafa háskólanámi, en einnig er tekið inn fólk með stúdentspróf eða sam-
bærilega menntun sem hefur töluverða reynslu í rekstri og stjórnun. Stjórn
námsins skipa þrír háskólakennarar, þeir Logi Jónsson, dósent, fulltrúi
Endurmenntunarstofnunar HÍ, Stefán Svavarsson, dósent, fulltrúi við-
skipta- og hagfræðideildar HÍ og Pétur Maack, prófessor, fulltrúi verkfræði-
deildar HÍ.
Helstu þættir námsins: Rekstrarhagfræði, reikningshald og skattskil, fjár-
málastjórn, stjórnun og skipulag, starfsmannastjórnun, upplýsingatækni
í rekstri og stjórnun, framleiðslustjórnun, markaðs- og sölufræði, réttar-
reglur og viðskiptaréttur, þjóðhagfræði og haglýsing og stefnumótun.
Kennarar m.a.:
Bjarni Þór Óskarsson, hdl. og adjunkt viðskiptadeild HÍ.
Gísli S. Arason, rekstrarráðgjafi og lektor Hl.
Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, stundakennari HÍ.
Magnús Pálsson, viðskiptafræðingur og rekstrarráðgjafi.
Páll Jensson, prófessor, verkfræðideild HÍ.
Stefán Svavarsson, dósent, viðskiptdeild HÍ.
Þórður S. Óskarsson, vinnusálfræðingur Sinnu hf.
IMæsti hópur hefur nám í febrúar 1994.
Kennslutími er 120 klst. á hverju misseri auk heimavinnu. Þetta samsvar-
ar 18 eininga námi á háskólastigi. Kennd er ein námsgrein í einu og henni
lokið með prófi eða verkefni áður en sú næsta hefst. í lok námsins fá
nemendur prófskírteini ervottar þátttöku og frammistöðu þeirra í náminu.
Verð fyrir hvert misseri er kr. 69.000.
Nánari upplýsingar um námið, ásamt umsóknareyðublöðum (sem sendist
inn fyrir 6. desember 1993) er hægt að fá hjá:
Endurmenntunarstofnun Háskóla islands
Tæknigarði, Dunhagaö, 107 Reykjavík, símar: 694923, 694924 og 694925. Fax 694080.