Morgunblaðið - 27.11.1993, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.11.1993, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 í L- f Útgefandi Árvakur h.f., Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Fáninn og kynning þess sem íslenzkt er Ifánalögum frá 1944 er kveð- ið á um meðferð og notkun þjóðfánans, sem skylt ety að sýna virðingu í hvívetna. I 4. málsgrein segir: „Enginn má óvirða þjóðfánann, hvorki í orði né verki.“ í framhaldi af þeim orðum segir: 1) „óheimilt er að nota þjóðfánann sem einka- merki einstaklinga, félaga eða stofnana ...“, 2) „óheimilt er einstökum stjórnmálaflokkum að nota þjóðfánann í áróðurs- skyni. . og 3) „óheimilt er að nota fánann í firmamerki, vörumerki eða á söluvarning, umbúðir eða auglýsingu á vör- um“. Það er þetta síðasttalda bann á notkun fánans, sem varð til- efni þess að Guðmundur Hall- varðsson og Árni R. Árnason fljdja þingsályktunartillögu um endurskoðun fánalaganna. í greinargerð segir: „Flutningsmenn telja að ákvæði þetta eigi ekki lengur við nein rök að styðjast og að gæðavörur íslenzkrar fram- leiðslu, sem til útflutnings séu ætlaðar, geti og eigi að bera glögg einkenni Islands. Því eigi ekkert að vera því til fyrirstöðu að heimilt verði að nota is- lenzka þjóðfánann t.d. á um- búðir varnings sem framleiddur er hér á landi, enda gæti slík merking haft áhrif til land- kynningar." Flutningsmenn telja það í hæsta máta eðlilegt og við hæfi að t.d. bæklingar til kynningar á landi og þjóð og til upplýsingar fyrir ferða- menn séu áprentaðir með í$- lenzka þjóðfánanum. Fram kom í máli þeirra, sem mæltu með þessari tillögu, að ýmsar grannþjóðir nota fána sína í kynningu á framleiðslu og ferðaþjónustu. Flutnings- menn leggja og áherzlu á að fulltrúar útflutningsráðs og ; ferðamála eigi aðild að þeirri nefnd, sem þeir leggja til að forsætisráðherra skipi til end- urskoðunar á lögunum. Það er ekki óeðlilegt að fána- lögin, sem eru jafngömul lýð- veldinu, verði endurskoðuð á fimmtíu ára afmæli þess. Eðli- legt er, að leyft verði að nota þjóðfánann til að einkenna ís- lenzka gæðavöru. Hér verður hins vegar að fara með gát; ganga ekki lengra en góðu hófí gegnir. Notkun þjóðfánans, innan ramma laganna, mætti og ætti að vera almennari og meiri en nú er. Það þarf að innræta fólki, þegar á grunnskólaaldri, virðingu fyrir þjóðfánanum; hvenær á að nota hann og hvernig. Þann kjarna máls má hafa í huga, með og ásamt éfn- isatriðum í rökstuðningi flutn- ingsmanna umræddrar þings- ályktunartillögu, þegar fána- lögin verða tekin til endurskoð- unar. Höfugar afurðir Virðing borgaranna fyrir lögum er mikilvæg í rétt- arríki, því án þess heldur Iaus- ung innreið sína og þá er stjórn- leysi á næstu grösum. Alþingi og stjórnvöld þurfa því að gæta þess að fella brott gömul og úrelt lög og reglugerðir, sem stangast á við viðteknar venjur og siðferði hvers tíma. Engum er greiði gerður með lögum og reglum, sem eru hafðar að háði og spotti í þjóðfélaginu. Gott dæmi um þetta er reglugerð um bann við áfengisauglýsing- um frá ársbyrjun 1989. Þar segir m.a.: „Hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengis- tegundum eru bannaðar. Enn- fremur er bannað að sýna neyzlu eða hvers konar aðra meðferð áfengis í auglýsingum eða upplýsingum um annars konar vöru eða þjónustu.“ Hnykkt er á þessu með nánari útlistun í reglugerðinni, því „átt er við hvers konar tilkynn- ingar til almennings þar sem sýndar eru í máli og myndum áfengistegundir eða atriði tengd áfengisneyzlu, áfengis- vöruheiti eða auðkenni, eftirlík- ingar á áfengisvarningi, spjöld eða annar svipaður búnaður, útstillingar, dreifing prentaðs máls og vörusýnishorna o.þ.h.“. Reglugerðin er að sjálfsögðu algerlega á skjön við raunveru- leikann í þjóðfélaginu nú um stundir. Vínkynningar eru orðnar algengar á veitingahús- um, mikið er skrifað um vin í blöð og tímarit. Svonefndar bjórhátíðir hafa haldið innreið sína. Samt halda stjórnvöld áfram að setja kíkinn fyrir blinda augað. Áfleiðingin er sú, að eitt þekktasta veitingahús landsins neyddist til að auglýsa franska vínkynningu með þess- um hætti: „í kvöld bjóðum við rauðleita og höfuga landbúnaðarafurð frá Medoc-héraði...“ Landsmönnum er að sjálf- sögðu skemmt. Er ekki kominn tími til að sníða bann við áfeng- isauglýsingum að nútímanum? Þing Farmanna- og fiskimannasambands íslands ítrekar andstöðu við kvótakerfið Tilbúnir til að henda þessu kerfi norður í Dumbshaf ÞING Farmanna- og fiskimannasambands íslands ítrekaði andstöðu sína við kvótakerfið samhljóða á fundi sínum í gær. Jafnframt lýsti þingið yfir fullum stuðningi við baráttu sjómannasamtakanna gegn núverandi kvótabraski og því að sambandið myndi beita sér fyrir afnámi núverandi útfærslu stjórnkerfis fiskveiða, nema verulegar endurbætur á því næðust. „Fyrst er að snúa sér að þeim stórkost- legu brotalömum, sem á kvótakerfinu eru, og reyna að lagfæra þær. Það er ljóst, eftir þessa samþykkt þingsins, að menn eru tilbún- ir til að henda þessu kerfi norður í Dumbshaf náist ekki einhverjar lagfæringar á því. Það er algjört frumskilyrði að kvótabraskið verði stöðvað og aðrir vankantar sniðnir af kerfinu áður en við segjum nokkuð um það hvort við getum hugsað okkur að búa við þetta kerfi einhvern tíma, en við höfnum kerfinu eins og fram kemur í ályktun þingsins," segir Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSI. Þingið hvatti jafnframt öll aðild- arfélög fiskimanna innan FFSÍ til að afla sér verkfallsheímildar svo fljótt sem verða má og búa sig undir átök í lok ársins. Kjarasamn- ingar yfirmanna á fiskiskipum runnu út 1. marz á þessu ári og lögðu fulltrúar FFSI fram sameig- inlega kröfugerð á samningafundi með LÍÚ hálfum mánuði síðar. Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað síðan og þótti þingfulltrú- um nú kominn tími til aðgerða. Ótvíræð krafa um breytingu Allar tillögur nefndar um kjara- mál fiskimanna og fiskveiðistefnu, sem lutu að stjórn fiskveiða og kjaramálum, voru samþykktar sam- hljóða á þinginu, enda höfðu þær áður verið ræddar í nefndinni fram á nótt af rúmum helmingi þingfull- trúa. „Það sem hér hefur verið sam- þykkt samhljóða er auðvitað ótví- ræð krafa um breytingu á núver- andi fyrirkomulagi eins og það er í framkvæmd. Menn eru tilbúnir í átök í þeim aðgerðum. Við skorum á aðildarfélögin að afla sér verk- fallsheimildar sem allra fyst svo við getum, í samvinnu við önnur stétt- arfélög sjómanna, staðið að aðgerð- um, sem duga til að koma kjara- samningum saman og koma þeim vandræðagangi og erfiðleikum, sem nú eru samfara kvótakerfinu og kvótabraskinu, í burtu,“ segir Guð- jón A. Kristjánsson. Hvatt til öflunar verkfallsheimildar Ályktun þingsins um kvóta- og kjaramál fiskimanna var í fjórum liðum og voru allir liðir hennar sam- þykktir samhljóða: 36. þing FFSÍ ítrekar fyrri and- stöðu sína við núverandi kvótakerfi og minnir á að allir þeir vankantar og brotalamir sem FFSí benti á í ályktun sinni í upphafi árs 1990, þegar núverandi lög voru til með- ferðar á Alþingi í frumvarpsformi, eru nú fram komin. Það er ákveðin afstaða 36. þings FFSÍ að núverandi framkvæmd stjórnkerfis í fiskveiðum muni ekki leggja grunninn að sátt um skipt- ingu á aðgangi að auðlindinni. Þar Morgunblaðið/Árni Sæberg Málin skeggrædd Þingfulltrúar ræða málin á þingi FFSÍ í gær, en þinginu lauk í gær- kvöldi. til verulegar endurbætur hafa náðzt fram, sem fela í sér afnám á sölu kvóta innan hvers árs og sanngjarn- an aðgang þeirra, sem raunveru- lega geta veitt þann afla sem .nú er á leigumarkaði ásamt frelsi til þess að veiða fisktegundir, sem ekki eru fullnýttar, mun FFSI vinna að afnámi núverandi útfærslu stjómkerfis fiskveiða. 36. þing FFSÍ lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu sjómanna- samtakanna gegn núverandi kvóta- braski og krefst þess að hvergi verði gefið eftir í því að kjarasamn- ingar sjómanna séu grundvöllur hlutaskipta sjómanna úr því heild- arverði sem fæst fyrir aflann. Lögfesta þarf nú þegar að allur landaður afli hérlendis verði' seldur á löggiltum fiskmarkaði. Þá var eftirfarandi tillaga um öflun verkfallsheimildar samþykkt samhljóða: 36. þing FFSÍ hvetur öll aðildarfélög fiskimanna innan sambandsins til að afla sér verk- fallsheimildar svo fljótt sem verða má og búa sig undir átök í lok árs- ins. Það er álit 36. þings FFSÍ að kjarasamningum og réttlátum við- skiptum með fiskafla verði ekki komið á án samstilltra aðgerða allra stéttarsambanda sjómanna, sem vinni saman að hagsmunum sinna félagsmanna. Störfum farmanna hefur fækkað um 197 á 4 árum FFSÍ lýsir þungum áhyggjum yfir þessari þróun og hvetur til aðgerða ANNAÐ af meginmálunum á 36. þingi Farmanna- og fiskimanna- sambandsins voru kjaramái far- manna en í ályktun sem þingið samþykkti samhljóða um þetta efni er lýst yfir þungum áhyggj- um af þeirri þróun sem orðið hef- ur undanfarin ár og hvatt til að- gerða gegn henni. Fram kemur í greinargerð með ályktuninni að ársstörfum farmanna hefur fækk- að úr 563 niður í 366 á fjórum árum eða um 197 ársstörf. í upphafi ályktunarinnar segir svo: „FFSI lýsir yfir þungum áhyggjum vegna hinnar alvarlegu þróunar í at- vinnumálum farmannastéttarinnar á síðustu árum og er ákveðið þeirrar skoðunar að verði ekkert að gert sé stórhætta á að sama óheillaþróunin muni halda áfram með ófyrirséðum afleiðingum fyrir farmannastéttina og íslenskt þjóðfélag." Opinber gjöld felld niður Aðgerðir þær sem FFSÍ vill að gripið verði til fela m.a. í sér að skoð- aðar verði allar leiðir sem nágranna- þjóðir okkar hafa farið til verndar á atvinnutækifærum farmanna sinna. Er þá sérstaklega skírskotað til þeirra ráðstafana sem Danir hafa gripið til þar sem skattpeningar sjómanna og launatengd gjöld eru notuð sem stjórntæki í þeirri viðleitni að auka hlutdeild danskra sjómanna í störfum á dönskum kaupskipum. Einnig er lagt til að FFSÍ beiti sér fyrir því að útgerðum kaupskipa verði auðveldað að skrá skip sín hérlendis með því að felldar verði niður opinberar gjald- tökur svo sem stimpilgjöld o.fl. og að FFSI láti gera athugun á sam- keppnisstöðu íslenskra skipa annars- Samstarfsverkefnið verður rekið í tvö ár til að byrja með en að þeim tíma loknum verður árangurinn met- inn og ákvörðun tekin um framhaldið. Leitað verður fjármögnunar á hverju verkefni fyrir sig, og veittir styrkir til rannsókna og vöruþróunar í inn- lendum og alþjóðlégum samstarfs- verkefnum. Sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneyti leggja fram hvort um sig allt að 7 vegar og skipa nágrannaþjóðanna t.d. danskra og norskra. I ályktuninni segir ennfremur: „Fylgi FFSÍ við því að alþjóðleg skráning fyrir kaupskip verði lögfest á íslandi sé háð því að íslensk stjórn- völd geri ráðstafanir sem að mati FFSÍ hvetji íslenskar útgerðir til að milljónum króna hvort ár til einstakra verkefna og einnig verður leitað eftir styrkjum og áhættulánum hjá Rann- sóknasjóði, sjóðum iðnaðar og sjávar- útvegs og Norrænum sjóðum og rann- sóknasjóðum Evrópubandalagsins en með samningnum um Evrópska efna- hagssvæðið fá íslensk fyrirtæki að- gang að rannsókna og þróunaráætlun EB. Skipuð hefur verið stjórnarnefnd ráða fremur íslenska farmenn en út- lenda til starfa á skip sem skráð yrðu í hinni alþjóðlegu skipaskrá. Jafn- framt gerir FFSI þá kröfu að íslensk- um stéttarfélögum verði tryggður réttur til að gera kjarasamninga fyrir skipveija sem á skipunum starfa af hvaða þjóðerni sem þeir eru.“ sem skipuð er fulltrúum frá stofnend- um verkefnisins. í nefndinni sitja Árni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri sjávarút- vegsráðuneytis, Þorkell Helgason ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytis, Guðríður Sigurðardóttir ráðuneytis- stjóri menntamálaráðuneytis, Amar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðvanna, Haraldur Sum- arliðason formaður Samtaka iðnaðar- ins, Sveinn Hannesson framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins og Kristján Ragnarsson formaður Landssam- bands íslenskra útvegsmanna. Samstarfsverkefni sjávarútvegs og iðnaðar hafið A að stuðla að tækniþró- un í útgerð og fiskvinnslu STOFNAÐUR hefur verið samstarfsvettvangur sjávarútvegs og iðnað- ar sem hefur það markmið að stuðla að tækniþróun og auknu vinnslu- virði fyrir útgerð og fiskvinnslu. Að þessu standa samtök sjávarútvegs og iðnaðar, Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök iðnaðar- ins ásamt ráðuneytum sjávarútvegs, iðnaðar og menntamála. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 25 Morgunblaðið/Ingvar Þakfok BJÖRGUNARSVEITARMENN af Kjalarnesi og úr Mosfellsbæ brugðust skjótt við þegar þak fauk af hundageymslu í Dalsmynni á Kjalarnesi í gær. Hundahótel í Dalsmynni á Kjalamesi Þak fauk á haf út I ÓVEÐRINU í gær fauk 200 fermetra þak af hundahóteli í Dals- mynni á _Kjalarnesi. Björgunarsveitarmenn af Kjalarnesi og úr Mosfellsbæ komu á vettvang og komu í veg fyrir frekara tjón. Fimm hundar voru í geymslu í Dalsmynni og sakaði þá ekki. „Það var snælduvitlaust veður, svo kom rosa hvellur, eins og hvirfilvindur, hér niður Blikdalinn í Esjunni," sagði Guðríður Gunn- arsdóttir húsfreyja um veðraham- inn þegar þakið fauk. Nýlega var búið að rígnegla þakið, en allt kom fyrir ekki, bárujárnsplöturnar tóku flugið út í Hvalfjarðannynni. Bæði hjónin voru heima en treystu sér ekki út meðan lætin voru sem mest. Þau hringdu eftir aðstoð og tíu björgunarsveitar- menn af Kjalarnesi og úr Mos- fellsbæ komu til hjálpar. Vörubíll með krana var notaður til að lyfta fjórum heyrúllum upp á þakið og varnaði það frekara foki. „Björg- unarmennirnir stóðu sig frábær- lega og kunnum við þeim bestu þakkir,“ sagði Guðríður. Húsin í Dalsmynni eru tryggð fyrir foki og fæst tjónið því væntanlega bætt. Kröpp lægð var milli tveggja hæða LÆGÐIN, sem gekk yfir landið í gær og í nótt, var vörðuð á báða bóga af hæðum fyrir austan og vestan. Vindhraði náði m.a. 11 vind- stigum á Keflavíkurflugvelli, á Stórhöfða og 12 vindstigum á Hvera- völlum. Reiknað var með að veðrið gengi niður í nótt. Að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings á Veðurstofunni myndaðist óveðurslægðin á mörk- um kalds og hlýs lofts út af Ný- fundnalandi. Ríkjandi hálofta- vindar ráku hana norðaustur á bóginn. Skip úti fyrir Straumsvík gaf upp 12 vindstig, 65 til 75 hnúta meðalvind kl. 15.00 í gær og 98 hnúta í hviðum. Kl. 21.00 í gær- kvöldi var 64 hnúta vindhraði á Hveravöllum. „Þegar við fáum þetta kalda loft, sem steypist vestur af Græn- landi suður á Atlantshafið ætti fólk, sem eitthvað á undir veðri, að fylgjast vel með veðurspám,“ sagði Einar veðurfræðingur. „Ef kalda loftið nær einhveijum tengslum við hlýrra loft, sem gjarnan er vestur af Spáni, getur myndast afar skeinuhætt lægð, sömu ættar og sú sem kom hér 3. febrúar 1991.“ Fjöldi útkalla í óveðr- inu en flest smávægileg BJÖRGUNARSVEITIR og lögregla sinntu fjölda útkalla á Suð- vestur- og Vesturlandi í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær. Flest voru þau vegna þakplatna sem losnuðu og annars laus- legs. Veðrið náði hámarki á höfuðborgarsvæðinu um kl. 20 í gærkvöldi. Innanlandsflug lagðist alveg niður eftir hádegi og í millilandaflugi seinkaði ölluin vélum. Morgunblaðið/Júlíus Þakkar fyrir óstundvísina BILLINN hans Hjalta Þorsteinssonar í köku, eins og sagt er, undir gáminum. „Ég átti að vera farinn af stað að sækja konuna í skólann en nú þakka ég mínum sæla fyrir að vera óstundvís af og til.“ Ef hann hefði verið sestur inn hefði hann liklega ekki kembt hærurnar. „ Allt ónýtt nema tj ónaskýr slan ‘ ‘ GÁMUR fauk á bíl sem stóð fyrir utan Smiðjuveg 2 í Kópavogi um sexleytið í gær. Billinn, sem er tvennra dyra Mercedes Benz, lagðist saman og að sögn eiganda hans, Hjalla Þorsteinssonar, var allt ónýtt sem inni var. Lögregla og hjálparsveitir í Reykjavík sinntu 30 útköllum milli kl. 14 og 19 og var aðgerðum þeirra stjórnað frá aðgerðastöð sem opnuð var í lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Svæði stöðvar- innar náði frá Seltjarnarnesi og upp á Kjalarnes og tóku 6 björg- unarsveitir þátt í aðgerðunum. Þak losnaði á bílskúr við rússn- eska sendiráðið við Túngötu og víða í Austurborginni fuku þak- plötur og annað lauslegt. 12 útköil í Njarðvík Björgunarsveitin í Njarðvík hafði í nógu að snúast, sinnti 12 útköllum á tveimur bílum og voru um 15 manns að störfum frá kl. 13.30 og fram á kvöld. Þar varð mest tjón á húsi skipaafgreiðslu Eimskips þar sem þakkantur losn- aði. Á húsinu við Bakkastíg 16 losnuðu þakplötur en björgunar- sveitarmenn komust ekki upp á þakið til að festa þær. Þá aðstoð- uðu björgunarsveitarmenn báta- eigendur við að festa báta sína við bryggjuna. Dofri Örn Guð- laugsson hafði það eftir starfs- manni á Keflavíkurflugvelli að vindmælir á þaki gamla flugturns- ins þar hefði farið í 78 hnúta en hann er í nokkuð meiri hæð en viðurkenndir vindmælar. Snælduvitlaust í Borgarnesi Rúta á suðurleið fór með fram- endann út af á veginum undir Hafnarfjalli og komu lögreglu- og björgunarsveitarmenn úr Borgar- nesi farþegum til aðstoðar og feij- uðu þá til Borgarness þar sem þeir biðu af sér veðrið. Að sögn lögi'eglu í Borgarnesi var veðrið snælduvitlaust og alls ekkert ferðaveður. Björgunarsveitin var til taks í gær en foktjón varð ekki teljandi í bænum. í Kópavogi losnaði klæðning af íbúðarhúsi í Vesturbæ og þak- plötur losnuðu á húsinu við Smiðjuveg 2. Að sögn lögreglu stífluðust niðurföll víða, vatns- flaumur hafi verið gífurlegur. Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu lögreglu og bæjarstarfsmenn dyggilega en tjón varð hvergi stór- kostlegt. I Hafnarfírði og Garðabæ voru björgunarsveitir í viðbragðsstöðu en tjón varð hvergi teljandi. Flugsamgöngur úr skorðum Óveðrið setti strik í áætlanir fjögurra millilandavéla Flugleiða í gær. Að sögn Kolbeins Jóhannes- sonar aðstoðarstöðvarstjóra í Keflavík voru vélamar látnar bíða af sér veðrið í flughöfnum erlend- is og lentu þær í Keflavík á tíunda tímanum í gærkvöldi með 371 farþega um borð. Töf á flugi frá Luxemburg í gær hefur þau áhrif að flugi FI-614, sem átti að fara 7.40 í morgun til Luxemburgar, seinkar líklega til um kl. 11.00 að sögn Kolbeins. Hjalti vinnur í Dælum hf. sem eru til húsa að Smiðjuvegi 2 en auk þess eru Bónus og Vátryggingafé- lag íslands í húsinu. Hann var að ganga út í bíl sinn að vinnudegi loknum þegar hann sá gáminn fjúka á bílinn. „Ég kom fyi'ir hornið og var að seilast eftir lyklunum þegar ég sá gáminn falla. Það er verið að gera við þakið á húsinu hjá okkur og Vátryggingafélaginu og vegna þess hafa þrír gámar staðið við húsið, hver ofan á öðrum. Þeir voru tryggilega festir saman og stóðu t.d. af sér óveðrið um síðustu helgi. Núna féllu þeir hins vegar allir sam- an og sá efsti lenti ofan á bílnum hjá mér. Ég fór inn um glugga á bílnum og komst að því að það er allt ónýtt. Allt nema tjónaskýrslan — og kannski dekkin,“ sagði Hjalti. Húkkaðir saman Guðmundur Þórðarson, verktaki við húsið, sagði í samtali við blaðið að gámarnir þrír hefðu verið húkk- aðir saman, en þeir hefðu engu að síður ekki staðist veðurofsann. í gámunum var steinull, einn var full- ur og tveir hálftómir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.