Morgunblaðið - 27.11.1993, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NOVEMBER 1993
27'
KK spilar á fjölmiðlana
eftir Steinar Berg
>
Isleifsson
Á sama tíma og lægðirnar hafa
geyst hver af annarri yfir landið
hafa einnig blásið nokkrir vindar á
vettvangi íslenskrar tónlistarút-
gáfu. Þar hefur Kristján Kristjáns-
son farið hamförum með rógi, per-
sónuníði og öðrum óvönduðum
meðulum, sem hann telur sér til
framdráttar. Ekki er ætlun mín að
elta ólar við öll þau ósannindi sem
af vörum hans hafa hrotið en mér
er skilt að leiðrétta tvennt, þar sem
Krisján trúir því augsýnilega að
sífelld endurtekning á lyginni geri
hana að sannleika.
Kristján hefur ítrekað haldið því
fram að ég eða Steinar hf. hafí
gefið út hans fyrstu plötu „Lucky
One“ og að hann eigi mér grátt
að gjalda vegna þeirra viðskipta.
Sannleikurinn er hinsvegar sá að
P.S. Músík gaf þess plötu út, enda
stendur það skýrt og skilmerkilega
á plötunni. Framkvæmdastjóri P.S.
Músík, Pétur Kristjánsson, sá alfar-
ið um öll samskipti við Kristján
hvað varðar undirbúning útgáfunn-
ar, framleiðslu, rr.arkaðssetningu
og annað tilheyrandi. Ég kom þar
hvergi nærri neinum málum og
átti lítil sem engin samskipti við
Kristján á útgáfuferlinu utan þess
að drekka með honum kaffi og
spjalla um daginn og veginn þegar
hann kom í híbýli Steina hf. til að
fylgjast með sölu plötunnar, en
Steinar hf. sá um dreifingu fyrir
P.S. Músík.
Kristján hefur einnig haldið því
fram að hann hafi engar tekjur
haft vegna þessarar útgáfu. Stað-
reyndir eru aðrar. Heildarsala
„Lucky One“ frá útgáfumánuði í
nóvember 1991 til ársloka 1992
var 5.149 eintök af geislaplötum
og kassettum. Platan þurfti 3.000
eintaka sölu til þess að standa und-
ir kostnaði og reiknast ágóðahluti
KK á sölu þar á eftir. Ágóðahluti
hans af þessari sölu er kr. 403.327.
Greiðslur til hans hafa hins vegar
verið kr. 859.442. Hér er um bein-
ar peningagreiðslur að ræða að
hluta þó meirihluti greiðslnanna
séu úttektir á plötum, bæði ýmsar
plötur til eigin nota en þó fyrst og
fremst eintök af „Lueky One“ sem
hann fékk á heildsöluverði og seldi
með álagningu á þeim stöðum sem
KK band spilaði á. Honum bar að
sjálfsögðu skylda til að skjla aftur
til baka annaðhvort plötum eða
peningum til þess að jafna þá skuld
sem hann stofnaði til en hefur ekki
séð sóma sinn í því.
Ætli ástæða persónuníðs hans
um mig stafí ekki fyrst og síðast
af því að ég hef leyft mér að benda
honum á þessa staðreynd og gerst
svo djarfur að fara fram á uppgjör.
Ég vil benda sérstaklega á þátt
fjölmiðla í öllum málatilbúningi
Kristjáns. Þeir hafa meira og minna
étið upp eftir honum alla þá vit-
leysu sem uppúr honum hefur ollið.
Engin athugun hefur átt sér stað
til þess að kynna sér sannleiksgildi
óhróðursins. Þau vinnubrögð sem
viðhöfð hafa verið eru ámælisverð
og mundu örugglega ekki tíðkast
ef í hlut ættu „virðulegar" eða ríkis-
styrktar atvinnugreinar. En þetta
er bara popp. Fjölmiðlar hafa kok-
gleypt þann áróður Kristjáns um
að útgefendur séu illa innrættar
afætur sem féfletti tónlistarfólk og
fái það til að svíkja listina fyrir
gróðasjónarmið. Kristján var hepp-
inn, hann gaf út plötu sem seldist
í 14.000 eintökum, slíkt heyrir til
algjörra undantekninga og af þeim
tugum platna sem gefnar eru út á
Islandi hafa aðeins örfáar náð slík-
um árangri. Það er því blekking
sem Kristján hefur haldið fram að
allir muni gera það gott éf þeir
gefa pöturnar út sjálfir. Spurningin
er ekki hvernig gróði íslenskrar
útgáfu skiptist heldur hverjir eru
tilbúnir til þess að bera tapið. Þetta
munu langflestir þeirra aðila, sem
keypt hafa blekkingar Kristjáns,
finna út eftir jólin.
Fjölmiðlar ættu að kynna sér og
landsmönnum öllum þann raun-
veruleika, sem liggja mun fyrir inn-
an tíðar.
Sýn okkar Kristjáns hvað varðar
bestu tilhögun á framkvæmd út-
gáfumála á íslandi er gjörólík. Mín
skoðun er sú að til staðar þurfi að
vera heilbrigt og traust samband
útgefenda og flytjenda þar sem
faglegur metnaður ríki og skýr
verkaskipting eins og í al'.ri góðri
samvinnu. Mat mitt er að slíkt sé
forsenda alls árangurs bæði hér
innanlands og enn frekar ef sækja
skal fram á alþjóðlega markaði.
Þau sjónarmið sem Kristján hefur
sett fram eru í þá veru að höfund-
ur, flytjandi og útgefandi eigi að
vera einn og sami aðilinn auk þess
sem heppilegast væri að sá aðili
sæi einnig um smásölustigið. Þessu
ætlar hann nú að framfylgja sjálfur
með því að taka plötu sína úr sölu
hjá verslunum Músík og mynda og
Skífunnar og sjá sjálfur um söluna
í Kolaportinu. Hin nýja plata KK
er að fá nákvæmlega sömu með-
ferð í verslunum Músík og mynda
og metsöluplatan hans frá því i
fyrra. Upphafspöntun var 250 ein-
tök. Henni er stillt fram í rekka
sem nýrri íslenskri plötu og þess
gætt að hún sé til á öllum tímum.
Hún fær hinsvegar ekki útstillingar
á veggjum eða í gluggum. Ástæðan
er einfaldlega sú að hér er um
helstu skrautfjöður samkeppnisað-
Steinar Berg ísleifsson
„Engin athugun hefur
átt sér stað til þess að
kynna sér sannleiks-
gildi óhróðursins.“
ila í smásölu að ræða og því þykir
okkur rétt að hafa aðra áherslu í
útstillingum enda úr feikilega
miklu að velja. Ég skil hinsvegar
vel þann taugatitring sem gripið
hefur um sig í herbúðum KK. Það
er alltaf erfitt að horfa á, þegar
útgáfa manns fær ekki þær mót-
tökur hjá almenningi sem vonast
var eftir. Það er hinsvegar ómak-
legt að finna sér blóraböggul eins
og Kristján hefur nú gert. Það er
meira að segja ekki hægt að rétt-
læta slíka framkomu þó hún sé
partur af áróðursbragði til að fá
meiri umfjöllun fjölmiðla um sjálfan
sig og plötuna. Við skulum bíða
og sjá til hvort almenningur falli
fyrir bragðinu. Það er allavega ljóst
að Kristján kann að snúa fjölmiðl-
unum í kring um sig og spila á þá
eins og spiladós.
Höfundur er forstjóri Spors hf.
Aftur ný sending af
Mackintosh dósum!
Stgr.verö kr. 1.589,- per. 2 kíió (2 kr. dýrara en í Bónus)
Ný sending af leikföngum
„Ef leikföngin fengust í F&A voru þau undantekningarlaust ódýrust þar en úrvaliö var þó töluvert
meira í hinum verslununum." (DV verökönnun 18. nóv.)
□ Vöruval: Matvörur, fatnaður, búsáhöld, leikföng (þekkt merki) og m.fl.
□ Jafnlægsta verð landsins.
□ Við seljum islenskar vörur á lágmarksverði, en við verslum einungis með
vörur frá íslenskum framleiðendum sem mismuna ekki viðskiptavinum
sínum gróflega. Við sýnum þannig í verki samstöðu með „kaupmanninum
á horninuí( sem við teljum nauðsyn í íslensku samfélagi.
□ Sem betur fer eru nógu margir íslenskir framleiðendur sem sjá sóma sinn í
því að okra ekki á litla kaupmanninum og þess vegna er úrva/ið gott.
□ Sparið ykkur ferð til útlanda!
□ Sífellt bætast við nýjar vörur. Oft getum við ekki útvegað nema takmarkað
magn og er þá handagangur i öskjunni.
□ Nýir korthafar!
Verslun F&A er opin öllum landsmönnum 16 ára og eldri.
Ný kort eru eru gefin úr endurgjaldslaust.
Við erum sunnan við Ölgerðarhús Egils og norðan við Osta- og smjörsöluna.
A
Birgðaverslun F&A
Fosshálsi 27,
110 Reykjavík,
sími 683211, fax 683501
Opið alla virka daga frá
kl. 12.00-19.00.
Laugardaga kl. 12-18
og sunnudaga kl. 13-18