Morgunblaðið - 27.11.1993, Page 28
8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
FYRSTI SUNNUDAGUR I AÐVENTU
Aðventukvöld
í Skálholts-
kirkju
KÓRAR Menntaskólans að
Laugarvatni og Menntaskólans
við Sund halda sunnudaginn 28.
nóv. sameiginlegt aðventukvöld
í Skálholtskirkju.
Einnig verðar þar sópransöng-
kona og strengjakvartett frá
Menntaskólanum við Harmahlíð.
Hugleiðingu flytur Kristinn
Kristmundsson, skólameistari.
Samkoman hefst kl. 20.30 og
eru allir velkomnir.
Orgelvígsla
í Víðistaða-
kirkju
Fyrsti sunnudagur í aðventu,
28. nóv., hefst með barnaguðs-
þjónustu kl. 11 í Víðistaðakirkju.
Við hátíðarguðsþjónustu kl.
14 verður nýtt orgel blessað til
þjónustu í kirkjunni og leikið á
það í fyrsta sinn almennri guðs-
þjónustu safnaðarins. Að guðs-
þjónustu lokinni hefst basar og
kaffisala Systrafélags Víðistaða-
kirkju. Hægt verður að fá kaffi
og meðlæti í sölum kirkjunnar
fram á kvöld.
Aðventusamkoma verður kl.
20.30. Að þessu sinni verður
nýja orgelið í aðalhlutverki.
Haukur Guðlaugsson, söngmála-
stjóri Þjóðkirkjunnar og Úlrik
Ólason, organisti Víðistaða-
kirkju, leika ýmis stutt verk á
orgelið. Kór Víðistaðakirkju
syngur. Ræðumaður kvöldsins
er Ingvar Viktorsson, bæjarsjóri.
Að aðventusamkomunni lok-
inni verður enn hægt að kaupa
kaffi og meðlæti hjá Systrafélag-
inu.
Aðventukvöld
í Lágafells-
kirkju
Fyrsta sunnudag í aðventu,
þann 28. nóvember, verður að-
ventukvöld í Lágafellskirkju kl.
20.30.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson,
rektor Skálholtsskóla, flytur
hugvekju, Margrét Bóasdóttir,
sópran, syngur einsöng, Eyjólfur
Alfreðsson, leikur á víólu,
Kirkjukór Lágafellssóknar og
Barnakór Varmárskóla syngja
undir stjóm organista kirkjunn-
ar, Guðmundar Ómars Óskars-
sonar og sóknarprestur flytur
ritningarorð og bæn.
Að lokinni stundinni í kirkj-
unni verða kaffiveitingar í safn-
aðarheimilinu að Þverholti 3.
Aðventuhátíð
í Langholts-
kirkju
Aðventuhátíð verður sunnu-
daginn 28. nóvember. Hátíðin
hefst með messu kl. 11 þar sem
félagar úr Kór Langholtskirkju
syngja og sóknarpresturinn sr.
Flóki Kristinsson messar. Lúðra-
sveitin Svanur heldur tónleika
kl. 17 undir stjórn Haraldar Á.
Haraldssonar, en frá vígslu
Langholtskirkju hefur lúðra-
sveitin haldið tónleika á þessum
degi.
Aðventukvöld hefst kl. 20 í
umsjá sóknarnefndar. Þar mun
formaður sóknarnefndar, Guð-
mundur E. Pálsson, flytja ávarp.
Nemendur Kórskóla Langholts-
kirkju flytja Lúsíuleik undir
stjórn Guðlaugar Maríu Bjarna-
dóttur, leikkonu, Helgu Bjargar
Svansdóttur, tónmenntakennara
og Signýjar Sæmundsdóttur,
óperusöngkonu. Börn úr TTT-
starfi (tíu til tólf ára) kirkjunnar
flytja leikþátt byggðan á sögu
H.C. Andersen um Litlu stúlkuna
með eldspýturnar undir stjórn
Hauks Inga Jónassonar, æsku-
lýðs- og fræðslufulltrúa safnað-
arins, en hann nýtur aðstoðar
bræðranna Árna Svans og Dav-
íðs Más Daníelssonar. Kór Lang-
holtskirkju, undir stjórn Jóns
Stefíjnssonar, flytur aðventu- og
jólalóg. Aðalræðumaður kvölds-
ins verður sr. Örn Bárður Jóns-
son, verkefnisstjóri safnaðarupp-
byggingar á biskupsstofu. Á
milli atriða verða sungin að-
ventu- og jólalög. Að lokinni
dagskrá verður Kvenfélag Lang-
holtssóknar með kaffisölu í safn-
aðarheimilinu og mun ágóði
renna í orgelsjóð kirkjunnar.
Aðventukvöld
í Kópavogs-
kirkju
Digranessöfnuður efnir til að-
ventusamkomu í Kópavogskirkju
sunnudagskvöldið 28. nóv. kl.
20.
Fermingartelpa, Rakel Guð-
björnsdóttir, tendrar fyrsta að-
ventuljósið, formaður sóknar-
nefndar, Þorbjörg Daníelsdóttir,
flytur ávarp. Kirkjukórinn syng-
ur undir stjórn Árnar Falkner,
Jónas Ingimundarson leikur ein-
leik á píanó, Jón Sigurðsson,
seðlabankastjóri, flytur ræðu,
bamakór úr Digranesskóla syng-
ur undir stjórn Kristínar Magn-
úsdóttur, Heimir Steinsson, út-
varpsstjóri, flytur eigin ljóð, Elsa
Waage syngur einsöng við undir-
leik Jónasar Ingimundarsonar
píanóleikara og að lokum verður
helgistund með söng.
Aðventusam-
koma í Breið-
holtskirkju
Hin árlega aðventusamkoma
Breiðholtssafnaðar verður haldin
í Breiðholtskirkju í Mjódd á
morgun, fyrsta sunnudag í að-
ventu kl. 20.30.
Kór Breiðholtskirkju flytur
aðventu- og jólasöngva undir
stjórn Daníels Jónassonar, Sig-
ríður Beinteinsdóttir syngur ein-
söng, barnakór Breiðholtskirkju
syngur undir stjórn Árnýjar Al-
bertsdóttur og Önnu Birgittu
Bóasdóttur. Kór Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti syngur undir
stjórn Ernu Guðmundsdóttur.
Fermingarböm flyta helgileik og
Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Miðstöðvar fólks í
atvinnuleit flytur aðventuhug-
leiðingu. Samkomunni lýkur með
suttri helgistund við kertaljós.
Að samkomunni lokinni verð-
ur kaffisala í safnaðarheimilinu
á vegum Kvenfélags Breiðholts
en þess má geta að félagið hefur
látið útbúa jólakort sem selt
verður á næstu vikum til styrkt-
ar kirkjunni. Einnig munu ferm-
ingarbörn selja friðarkerti til
ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkj-
unnar.
Aðventu-
kvöld Dóm-
kirkjunnar
Fyrsta sunnudag í aðventu,
28. nóvember, kl. 20.30 verður
aðventukvöld Dómkirkjunnar.
Heiðursgestur verður dr. Jó-
hannes Nordal fv. seðlabanka-
stjóri og flytur hann hugvekju.
Á dagskrá er söngur Kórs
Vesturbæjarskólans undir stjórn
Kristínar Valsdóttur. Kórinn
syngur nokkur lög tengd aðventu
og jólum. Sömuleiðis syngur
Dómkórinn undir stjóm Marteins
H. Friðrikssonar. Bergþóra Jó-
hannsdóttir, formaður Kirkju-
nefndar kvenna flytur ljóð og sr.
Hjalti Guðmundsson lýkur sam-
komunni með ritningarlestri og
bæn 'og nýtur aðstoðar Æsku-
lýðsfélags Dómkirkjunnar. Um-
sjá með aðventukvöldinu er í
höndum kirkjunefndar.
Aðventukvöld
í Hraun-
gerðiskirkju
Aðventukvöld verður í Hraun-
gerðiskirkju nk. sunnudagskvöld
kl. 21.
Kirkjukór Hraungerðiskirkju
leiðir söng undir stjórn Maríu
Eðvarðsdóttur og börn úr Þing-
borgarskóla flytja helgileik.
Kveikt verður á aðventukransi
og flutt hugleiðing og tónlist í
tengslum við þá táknrænu inn-
leiðingu jólaföstunnar. Ræðu
kvöldsins flytur Sigurgeir Hilm-
ar Friðþjófsson, skólastjóri.
Aðventukvöld
í Laugarnes-
kirkju
Aðventukvöld í Laugarnes-
kirkju verður sunnudaginn 28.
nóvember og hefst það kl. 20.30.
Ræðumaður kvöldsins er dr.
Björn Björnsson, prófessor.
Barnakór Laugarnesskólans
syngur nokkur lög undir stjórn
Sigrúnar Ásgeirsdóttur. Bjöllu-
sveit Laugarneskirkju kemur
fram og Kór Laugarneskirkju í
fullri stærð syngur undir stjórn
Ronalds Turner. Auk þess verður
almennur söngur.
Eftir stundina í kirkjunni verð-
ur kirkjugestum boðið að þiggja
heitt kakó og smákökur í safnað-
arheimilinu.
Aðventusam-
koma Fella-
og Hólakirkju
Hið árlega aðventukvöld í
Fella- og Hólakirkju verður hald-
ið fyrsta sunnudag í aðventu,
28. desember, um kvöldið kl.
20.30.
Kirkjukórinn syngur undir
stjórn nýja organistans sem er
Lenka Máteóvá. Þá mun nýstofn-
aður barnakór kirkjunnar syngja
undir stjórn Péturs Maté. í heim-
sókn kemur Snæfellingakórinn
sem tekur nokkur lög undir
stjórn Friðriks Kristinssonar.
Ræðu kvöldsins flytur Ragnar
Schram sem sér um æskulýðs-
starfið við kirkjuna. Einsöng
syngur Guðmundur Þ. Gíslason.
Athöfnin í kirkjunni endar á því -
að allir tendra jólaljósin og
syngja saman.
A eftir er kirkjugestum boðið
upp á veitingar.
Ljósahátíð
í Neskirkju
Fyrsti sunnudagur í aðventu
hefst í Neskirkju kl. 11 árdegis
með barnasamkomu.
Kl. 14 annast væntanleg ferm-
ingarbörn Ljósahátíð með ritn-
ingarlestri og söng við kertaljós
undir stjórn Jónu Hansen kenn-
ara og Guðmundar Karls Brynj-
ólfssonar guðfræðinema.
Kl. 17 síðdegis hefst aðventu-
stundin. Prófessor Guðmundur
Magnússon, formaður sóknar-
nefndar, flytur ávarp. Kór Mela-
skóla syngur undir stjórn Helgu
Gunnarsdóttur og kirkjukórinn
undir stjóm Reynis Jónassonar
organista. Súsúki hópurinn leik-
ur nokkur lög á fiðlu undir stjórn
Mary Campbell og Jóhanna Lin-
net syngur einsöng. Sighvatur
Björgvinsson, viðskiptaráðherra,
flytur hugleiðingu. Sr. Frank
M. Halldórsson flytur lokaorð.
Kirkjudag'ur
og aðventuhá-
tíð í Bústaða-
kirkju
Fyrsti sunnudagur í aðventu
er kirkjudagur í Bústaðakirkju
og þá er einnig minnst vígslu-
dags kirkjunnar sem var þennan
dag árið 1971.
Barnaguðsþjónusta verður kl.
11 árdegis og hátíðarguðsþjón-
usta kl. 14. Þar messar sr. Pálmi
Matthíasson og einsöngvari
verður Guðmundur Gíslason.
Bjöllukór Bústaðakirkju leikur
einnig í messunni.
Eftir guðsþjónustuna verður
kaffisala í safnaðarheimilinu og
stendur Kvenfélag Bústaða-
kirkju fyrir því. Afrakstur kaffi-
sölunnar rennur til kirkjunnar.
Aðventuhátíðin verður um
kvöldið og hefst kl. 20.30. Ræðu-
maður kvöldsins verður Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir alþingis-
maður. Vandað verður til tónlist-
arflutnings. Guðjón Jónsson og
Guðrún Edda Gunnarsdóttir
syngja einsöng. Kirkjukór,
barnakór, unglingakór og bjöllu-
kór Bústaðakirkju koma fram
ásamt hljóðfæraleikurum undir
stjórn Guðna Þ. Guðmundssonar
og Erlu Þórólfsdóttur.
Kirkjudag’ur
Arbæjarsafn-
aðar
í tuttugu og tvö ár hefur Ár-
bæjarsöfnuður fangað nýju
kirkjuári og aðventubyijun með
því að halda hátíðlegan sér-
stakan kirkjudag í sókninni.
Hefur svo verið öll árin í sögu
safnaðarins að undanskildum
þremur fyrstu en Árbæjarsöfn-
uður var stofnaður árið 1968 og
á því 25 ára afmæli á þessu ári.
Þeirra tímamóta verður minnst
á aðventuhátíð 5. desember og
á öðrum sunnudegi í aðventu.
Á sunnudaginn kemur verður
dagskrá kirkjudagsins með hefð-
bundnum hætti. Kl. 11 árdegis
verða barnaguðsþjónustur á
þremur stöðum í Árbæjarsókn, í
Árbæjarkirkju, Ártúnsskóla og í
Selásskóla. Eru foreldrar sér-
staklega boðnir velkomnir með
börnum sínum. Kl. 14 e.h. verður
síðan kirkjudagsguðsþjónusta í
Árbæjarkirkju. .Kirkjukór Árbæj-
arsóknar syngur undir stjórn
Sigrúnar Steingrímsdóttur or-
gelleikara. Helga Þórarinsdóttir
leikur á lágfiðlu og Guðlaugur
Viktorsson syngur stólvers.
Sóknarnefndarmenn lesa ritn-
ingarlestra. Væntanleg ferming-
arbörn og foreldrar þeirra eru
sérstaklega boðin velkomin til
guðsþjónustunnar.
Að guðsþjónustu lokinni hefst
síðan kaffisala Kvenfélags Ár-
bæjarsóknar í safnaðarheimili
kirkjunnar. Þar verður á borðum
veislukaffí með heimabökuðum
kökum sem kvenfélagskonur og
aðrar safnaðarkonur hafa bakað.
Jafnframt verður efnt til skyndi-
happdrættis til ágóða fyrir Líkn-
arsjóðs kvenfélags sóknarinnar
er vinnur að líknarmálum.
Kirkjudagur
Seltirninga
Kirkjudagur Seltirninga verð-
ur haldinn sunnudaginn 28. nóv.,
fyrsta sunnudag í aðventu.
Kirkjudagurinn hefst með fjöl-
skylduguðsþjónustu kl. 11 ár-
degis þar sem fermingarbörn
bera inn ljósið og kveikja á fyrsta
kertinu á aðventukransinum.
Prestur verður sr. Solvegi Lára
Guðmundsdóttir, safnaðarkór
syngur undir stjórn Hákonar
Leifssonar og barnastarfi stjórn-
ar Bára og Eirný.
Um kvöldið verður aðventu-
samkoma í kirkjunni kl. 20.30.
Vígður verður nýr flygill sem
félagasamtök á Seltjarnarnesi
ætla að gefa kirkjunni og munu
þrír nemendur úr Tónlistarskól-
anum, Karol Gunnarsdóttir,
Margrét Jóelsdóttir og Þórhallur
Bergmann leika á flygilinn.
Ræðu dagsins flytur Gunnar
Kvaran, sellóleikari, Sigrún
Gestsdóttir, sópran og Einar K.
Einarsson, gítarleikari, flytja er-
lend jólalög og Guðný Guð-
mundsdóttir, konsertmeistari,
Ieikur einleiksverk fyrir fiðlu eft-
ir J.S. Bach. Þá syngja safnaðar-
kór og barnakór kirkjunnar sál-
malög undir stjórn Hákonar
Leifssonar en einsöng með kórn-
um syngur Guðrún Edda Gunn-
arsdóttir. Að lokum samkomunn-
ar í kirkjunni fer sr. Solveig
Lára með bæn og tendruð verða
jólaljós.
Kvöldinu lýkur með kaffihlað-
borði og samveru í safnaðar-
heimili kirkjunnar en sóknar-
nefndarmenn og velunnarar
leggja til allar veitingar sem
seldar verða við vægu verði til
styrktar orgelkaupum.