Morgunblaðið - 27.11.1993, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
Frönsk kvikmyndavika
Eldhús og
tilheyrandi
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Eldhús og tilheyrandi („Cuisine
et dépendances"). Sýnd í Há-
skólabiói. Leikstjóri: Philippe
Muyl. Aðalhlutverk: Zabou, Je-
an-Pierre Bacri.
Gamanmyndin Eldhús og til-
heyrandi er frönsk útgáfa á
bandarísku myndinni „The Big
Chill“ og bresku myndinni „Pet-
er’s Friends" en bara betri ef eitt-
hvað er; sannarlega mun betri en
sú síðarnefnda. Hún segir frá
hópi gamalla vina sem hittast aft-
ur eftir tíu ár í íbúð smáborgara-
legra hjóna þar sem fyrir er frá-
skildur vinur þeirra sem ekki á
þak yfir höfuðið og amlóðinn bróð-
ir eiginkonunnar. Heiðursgestur-
inn er frægur sjónvarpsþátta-
stjórnandi, vinur þeirra frá fornu
fari, og eiginkona hans sem einn-
ig er hluti af vinahópnum en eng-
inn veitir athygli. Hún er ekki
fræg.
Þetta er bráðfyndin mynd og
betri en ofangreindar myndir
vegna þess að hún er ekki eins
og þær upptekin af óþolandi nafla-
skoðun hinnar leiðigjörnu og
þreyttu ’68-kynslóðar þar sem
setið er á stofugólfum með rauð-
vínsglas í hendi og raktar eru
margtuggðar lífsreynslusögur
undir „Whiter Shade of Pale“.
Hún er svo skemmtileg af því hún
fjallar um daginn í dag, hvernig
fólk er tilbúið að skríða fyrir
frægðinni og blindast af ljóma
hennar, hvemig smáborgaraskap-
urinn lýsir sér í umgengni við
Atriði úr Eldhúsi og tilheyrandi
á frönsku vikunni.
frægð og hvernig í ljósi hennar
sumir gráta sína eigin tilbreyting-
arlausu og óspennandi ævi.
En hún kemur líka inná miklu
meira. Gömul ástarævintýri fá
kannski að lifna við aftur, önnur
deyja. Framhjáhald er fastur lið-
ur, vinskapurinn er tekinn fyrir,
gæði hans og misnotkun, einnig
öfundin út af velgengni og fegurð
annarra.
Allar eiga þessar tilfinningar
leið um eldhúsið í húsi hjónanna
og springa þar út. Myndin er
byggð á þekktu frönsku leikriti
og langmestur hluti atburðarásar-
innar fer fram í eldhúsinu þar sem
persónurnar koma og fara og
skiptast á orðum. Mikilvægasta
sögupersónan sést aldrei en það
er sjónvarpsmaðurinn frægi. Nær-
vera hans hefur áhrifa á alla þótt
áhorfendur fá aðeins fundið fyrir
henni.
Þessi uppsetning er áhrifarík
og snjöll þótt óneitanlega sé nokk-
ur sviðsbragur á henni í bíói.
Handritið er fyndið og höfundarn-
ir hafa greinilega tilfinningu fyrir
hinu smáa mannlega sem skapar
lifandi og skemmtilegar og fjöl-
breytilegar persónur. Eldhús og
tilheyrandi er góðgæti á franskri
kvikmyndahátíð og ættu áhuga-
menn að sjá hana á frummálinu
áður en hún breytist í enn eina
bandaríska endurgerð.
Alþjóðlegur samstöðudag-
ur með palestínsku þjóðinni
eftir Svein Rúnar
Hauksson
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu
árið 1977 að gera 29. nóvember að
alþjóðlegum samstöðudegi til stuðn-
ings óafsalanlegum réttindum pa-
lestínsku þjóðarinnar. Val á dagsetn-
ingu minnti á sérstaka ábyrgð Sam-
einuðu þjóðanna gagnvart Palestínu,
en það var einmitt þann dag, 29.
nóvember árið 1947, sem Allsheijar-
þing S.Þ. samþykkti að skipta land-
inu milli gyðinga og araba og lagði
þar með grundvöll að tveim ríkjum
í Palestínu.
Kastljós fjölmiðla hafa á síðustu
árum beinst mjög að herteknu svæð-
unum, ekki síst eftir að Intifada
hófst, uppreisnin gegn hemámi ísra-
ela. ísraelsríki hefur ekki takmarkað
sig við ákveðin landamæri og hefur
í styijöldum lagt undir sig miklu
stærri landsvæði en þeim var úthlut-
að af Sameinuðu þjóðunum árið
1947. Jafnframt hafa milljónir Pal-
estínumanna hrakist frá heimalandi
sínu. Palestínska þjóðin sem nú telur
um 6 milljónir manna er dreifð um
allan heim. Um 700 þúsund búa í
ísrael, 2,4 milljónir búa á hernumdu
svæðunum sem ísrael lágði undir sig
í stríðinu 1967, þar á meðal Jerúsal-
em. Af þeim nærri þrem milljónum
sem þá eru ótaldar hefst stór hluti
enn við í flóttamannabúðum í nær-
liggjandi löndum.
Frelsissamtök Palestínu, PLO, eru
heildarsamtök hvers kyns félaga og
flokka sem Palestínumenn hafa
myndað, og eru viðurkennd sem eini
lögmæti fulltrúi palestínsku þjóðar-
innar, jafnt þeirra sem búa á herte-
knu svæðunum, í flóttamannabúðum
og þeirra sem eru landflótta annars
staðar. Það er því margs að gæta
Sveinn Rúnar Hauksson
fyrir forystumenn palestínsku þjóð-
arinnar. En grundvöllurinn er sá sem
allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna
hefur viðurkennt og staðfest ár eftir
ár með ályktunum sínum um óað-
skiljanleg réttindi palestínsku þjóðar-
innar. Þar eru efst á blaði:
1. Réttur Palestínumanna til að
snúa aftur til heimila sinna og eigna
í Palestínu, sem þeir hafa verið
hraktir frá, og bætur til þeirra sem
ekki vilja snúa aftur.
2. Sjálfsákvörðunarréttur palest-
ínsku þjóðarinnar án utanaðkomandi
íhlutunar og réttur þjóðarinnar til
sjálfstæðis og fullveldis, þar á meðal
rétturinn til að stofnsetja eigið ríki,
Palestínu.
Samstöðudagurinn með Palestínu
í ár er mikilvægur i ljósi þeirrar yfir-
lýsingar sem undirrituð var 13. sept-
ember sl. af hálfu ísraels og Frelsis-
samtaka Palestínu um grundvallar:
atriði og tímabundna sjálfstjórn. I
kjölfar þessa eiga sér nú stað viðræð-
ur um framkvæmd sainkomulagsins.
Einn fyrsti árangur þeirra var sá að
25. október voru 617 pólitískir fang-
ar látnir lausir, en það eru tæplega
5% þeirra þrettán þúsunda Palestínu-
manna sem eru pólitískir fangar í
ísraelskum fangelsum og fangabúð-
um. Það voru einkum konur og börn,
auk veikra, sem sleppt var fyrst.
Skoðanir hafa verið mjög skiptar
um ágæti samkomulagsins. Margir
Palestínumenn eru gagnrýnir á að
yfirlýsingin skuli ekki hafa tekið af-
dráttarlaust á grundvallarréttindúm
þeirra til sjálfsákvörðunar og til að
snúa aftur til heimkynna sinna. Á
herteknu svæðunum virðist þó meiri-
hluti fólks fagna samkomulaginu
sem tækifæri til að knýja enn frekar
á um frelsi undan ánauð hernáms
og til þess að móta sína eigin fram-
tíð. Fjölmargar þjóðir hafa heitið
stuðningi við endurreisn mannlífsins
úr þeirri rúst sem hernámið skilur
eftir. Það er fagnaðarefni að íslend-
ingar hafa ákveðið að leggja fram
skerf í þessu skyni.
Nú er mikilvægara en nokkru sinni
fyrr að veita palestínsku þjóðinni
fulltingi í baráttu hennar fyrir rétti
sem engri þjóð er neitað um, réttind-
um til mannsæmandi framtíðar af
gerð sem hún velur sér sjálf. Þau
mannréttindi viðurkennir gjörvöll
heimsbyggðin og það er óásættan-
iegt, að palestínska þjóðin eigi að
vera sú eina sem ekki fær notið þess
réttar.
Höfundur er formaður félagsins
Island-Palestína.
RAÐAUGÍ YSINGAR
ísafjarðarkaupstaður
Útboð á tryggingum
Óskað er tilboða í tryggingar fyrir ísafjarðar-
kaupstað.
Um ar að ræða m.a:
Tryggingar: Skilm.: Helstu stærðir:
Húseigendatrygging alm. kr. 1,7 milljarðar.
Lausafjártrygging alm. kr. 0,3 milljarðar.
Bifreiðatrygging Slysatrygging launþega ábrt./lögb. fjöldi ökutækja 22.
skv. kjarasamningum alm. trskyld. vinnuv. 7.300.
Alm. slysa- og líftrygging alm. 43 manns.
Slysatrygging skólabarna alm. fjöldi barna 881.
Frjáls ábyrgðatrygging ábtr. útboðsskilmálar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum ísa-
fjarðarkaupstaðar, Stjórnsýsluhúsinu, Hafn-
arstræti 1, frá og með 30. nóvember 1993
gegn 3.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu fjármála-
stjóra, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1.
Tiiboðin verða opnuð kl. 11.00 föstudaginn
17. desember 1993 að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Isafirði, 26. nóvember 1993.
Isafjarðarkaupstaður.
Aðalfundur
Félags sjálfstæðismanna íHóla-
og Fellahverfi
verður haldinn í Val-
höll, Háaleitisbraut
1, laugardaginn 4.
desember og hefst
hann kl. 11.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Önnur mál.
Gestir fundarins
verða borgarfulltrú-
arnir Árni Sigfússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Stjórnin.
VEGURINN
Asgj.l7 Kristið samféiag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
■Samkoman í kvöld kl. 21.00 fyrir
ungt fólk 16 ára og eldri. Gleði,
prédikun Orðsins og lofgjörð.
Allir velkomnir.
ps
fomhjálp
Samhjálparsamkoma verður á
morgun, fyrsta sunnudag í að-
ventu, f Fíladelfíukirkjunni,
Hátúni 2, kl. 16.30.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
UTIVIST
Hallveigarstig l • simi 614330
Dagsferð sunnudaginn
27. nóvember kl. 10.30
Helgafeil - Valaból
Létt og skemmtileg ganga fyrir
ofan Hafnarfjörð. Brottför frá
BSl bensínsölu. Verð kr.
800/900. Fritt fyrir börn 15 ára
og yngri.
Mánudaginn 29. nóv.
Kl. 20.00 Tunglskinsganga
Dagsferð sunnudaginn 5.
desember kl. 10.30.
Aðventuferð í Vífilstaðahlíð.
Útivist.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Skyggnilýsingafundur verður
haldinn í Gerðubergi föstudag-
inn 3. desember kl. 20.30.
Heimsþekktir miðlar Coral Polge
og Bill Landis verða með
skyggnilýsingu og teikningar af
framliðnum. Bókanir í símum
18130 og 618130.
Stjórnin.
C >>
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Bresku miðlarnir Bill Landis og
Coral Polge starfa hjá félaginu
á naestuni. Bill er hefðbundin
sambandsmiðill sem hefur starf-
að með Coral í fjölda ára um
allan heim og tekur hann einka-
tíma. Þau munu starfa saman á
skyggnilýsingafundi 3. desem-
ber í Gerðubergi kl. 20.30. Bók-
anirísímum 18130 og 618130.
Stjórnin.
Sálarrann-
y sóknafélag
■ Suðurnesja
Víkurbraut 13
Sunnudagskvöldið 28. nóvem-
ber kl. 20.00 verða þrír lækna-
miðlar hjá félaginu með hóp-
lækningar. Eftir kaffihlé verða
skyggnilýsingar.
Aðgangseyrir kr. 500.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur: Almenn samkoma
kl. 16.30 í umsjón Samhjálpar.
Miðvikudagur: Skrefiö kl. 18.00.
Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Laugardagur:
Bænasamkoma kl. 20.30.
FERÐAFÉLAG
® ÍSIANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Laugardagur 27. nóv.
Afmælisganga og opið hús
íMörkinni6
Kl. 14: Afmælisganga um Laug-
ardal og Laugarás. Gangan tek-
ur um 1 klst. Brottför frá Feröa-
félagshúsinu í Mörkinni 6. Að
göngu lokinni, þ.e. kl. 15-16, er
opið hús að Mörkinni 6. Léttar
kaffiveitingar og meðlæti í nýja
samkomusalnum sem verið er
að gera fokheldan um þessar
mundir. Málverkasýning Gunn-
ars Hjaltasonar. Allir velkomnir
á afmælisdegi Ferðafélagsins.
Sunnudagsferð 28. nóvember
kl. 11: Aðventuganga: Flekku-
vík - Staðarborg. Gengið frá
Flekkuvík um Keilisnes-Kálfat-
jörn og Staðarborg. Verð kr.
1.100.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, og
Mörkinni 6.
Vættaferð á fullu tungli kl. 20
mánudag 29. nóvember.
Áramótaferð F.í. 30. des-2. jan.
Tryggið ykkur sæti timanlega!
Ferðafélag (slands.
Jólabasar
Hinn árlegi jólabasar KFUK verð-
ur í dag frá kl. 14.00 í Kristni-
boðssalnum, Háaleitisbraut
58-60, 3. hæð. Margt góöra
muna verður á boðstólum en
einnig kökur, smákökur og fleira
til jólanna. Kaffisala verður einn-
ig á staðnum.
Greiðlsukortaþjónsuta.
Komið og gerið góð kaup fyrir
jólin.
Basarnefndin.
Metsölublaó á hverjum degi!