Morgunblaðið - 23.12.1993, Page 4
4 C dagskró
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1993
JÓLADAGUR
Sjónvarpið
10.30 ►Morgunsjónvarp barnanna
Kynnir er Rannveig Jóhannsdóttir.
Heims um ból Börn syngja í Sjónvarps-
sal. Teikningar: Olöf Knudsen.
Jóli og Jóla Jólasveinafjölskylda kemur í
bæinn. Leikendur: Helga Thorberg,
Jón Jútíusson, Kolfínna Baldvinsdótt-
ir og Halldór Helgason.
Snæfinnur snjókarl Ævintýrið um snjó-
karlinn sem var gæddur lífi. Þýð-
andi: Edda Kristjánsdóttir. Sögu-
menn: Vilborg Gunnarsdóttir og Þór-
hallur Sigurðsson.
Litla, bogna jólatréð Bogna jólatréð lang-
aði til að vera ljósum prýtt inni í
stofu? Þýðandi: Hallgrímur Helga-
son. Sögumaður: Jóhannes Ágúst
Stefánsson.
Tuskudúkkurnar Þessar geðþekku persón-
ur fara nú á kreik. Þýðandi: Eva
Hallvarðsdóttir. Leikraddir: Sigrún
Edda Bjömsdóttir. (1:13)
Jóli og Jóla Jólasveinaíjölskyldan kemur í
Sjónvarpssal og hittir Bryndísi
Schram og krakkafans.
12.00 ►Hlé
12.50 I CltfpiT ►ÓteHó Leikrit Will-
LLInlll I jams Shakespeares í
uppfærslu BBC. í þessum harmleik
segir frá því hvernig öfund, afbrýði
og hefndarþorsti ráða örlögum Ótell-
ós, márans frá Feneyjum. Leikstjóri:
Jonathan Miller. Aðalhlutverk: Anth-
ony Hopkins og Bob Hoskins. Skjá-
textar: Veturliði Guðnason.
16,15 KVIIfMYIIIl ►Jólafákurinn
nvlnnllnU (Jf]c Christmas
Stallion) Bandarísk fjölskyldumynd.
Ung stúlka nýtur lífsins við hrossa-
rækt. Leikstjóri: Peter Edwards.
Aðalhlutverk: Daniel J. Travanti.
Þýðandi; Guðni Kolbeinsson.
17.50 Þ-Táknmálsfréttir
18.00
RADNAFFNI ►Jó|astundin
DHHIIHCrill okkar Það verður
íjör á jólaballi Stundarinnar okkar.
Þar verða meðal annarra Galdri,
Bóla og Gáttaþefur og Páll Óskar
Hjálmtýsson sem syngur með Þvotta-
bandinu. Bjöllukór Laugameskirkju
leikur og sýnt verður leikrit um spari-
föt jólasveinanna. Þá lesa Mosi og
Lilla sögu sem heitir Jóladraumur
og sýnt verður atriði úr leikritinu
Skilaboðaskjóðunni. Umsjón: Helga
Steffensen.
19.00 rnjrnQI ■ ►Jólastjarnan (The
rllfLUOLH Christmas Star)
Bresk heimildarmynd um jólastjöm-
una sem vísaði forðum vitringunum
þremur á fæðingarstað Krists. Þýð-
andi: Jón 0. Edwald. Þulur: Halldór
Björnsson.
20.00 ►Fréttir
20.20 ►Veður
20.25 k JCTTID ►Stjörnur vísa veginn
rfLl IIH (By Way of the Stars)
Fyrsti þáttur af flórum í myndaflokki
sem sýndur verður nú um jólin. Sag-
an hefst í Prússlandi á síðustu öld.
Aðalhlutverk: Zachary Bennett,
Gema Zamprogna, Dietmar Schön-
herr og Christian Kohlund. Þýðandi:
Reynir Harðarson. (1:4)
21.15 ►Stillt vakir Ijósið Þáttur um Jón
úr Vör og skáldskap hans. Nokkur
kvæða Jóns eru myndskreytt og
heimsóttir staðirnir þar sem fæddist
og ólst upp, Patreksíjörður og Flat-
eyri. Ólöf Rún Skúladóttir ræðir við
Jón og spyr fólk á götum úti hvort
það þekki til Jóns og skáldskapar
hans. Umsjónarmaður þáttarins er
Eyvindur Erlendsson, Einar Melax
samdi tónlistina.
22.15
VVIVMYNn ►Dansinn (Ðansen
n ¥ Inltl 11111 medRegitze) Dönsk
bíómynd frá 1989. Þetta er ástarsaga
um gleði og sorgir, sigra og ósigra
og ævarandi ást fólks í farsælu
hjónabandi. Myndin var tilnefnd til
Óskarsverðlauna sem besta erlenda
myndin. Leikstjóri: Kaspar Rostrup.
Aðalhlutverk: Ghita Norby og Frits
Helmuth. Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir.
23.45 Tf|k|| |QT ►Jos® Carreras syng-
I URLIu I ur jólalög (Silent Night
With José Carreras) Spænski óperu-
söngvarinn José Carreras syngur
þekkt jólalög.
0.15 ►Dagskrárlok
STÖÐ tvö
■I4.00 ninUMrryi ►Bangsimon og
DHItnflLrnl jólin Tvær teikni-
myndir með íslensku tali um Bang-
simon og vini hans. í fýrri myndinni
se'gir frá því þegar Bangsimon skrif-
ar bréf til jólasveinsins, en gleymir
alveg að óska sér einhvers í jólagjöf.
Á síðustu stundu tekst honum þó að
næla í bréfíð og endurskrifa það.
14.45 ►Mikki mús og jólin Jólateikni-
mynd með Mikka mús og félögum.
15.20
ifviifuvun ►Allt sem ®9vi| >
AYIIVmlllU jólagjöf (All I Want
For Christmas) Gamansöm kvikmynd
fyrir alla ijölskylduna um tvo krakka
í New York sem eiga sér aðeins eina
ósk fyrir jólin. Þau þrá að sameina
fjölskylduna þegar hátíð gengur í
garð. Mamma þeirra og pabbi eru
skilin en systkinin beita sniðugum
brögðum og útsjónarsemi til að geta
verið með þeim báðum og ömmu sinni
um jólin. Aðalhlutverk: Harley Jane
Kozak, Jamey Sheridan, Ethan
Randall, Kevin Nealon, Thora Birch
og Lauren Bacall. Leikstjóri: Robert
Lieberman. 1991. Maltin gefur 'h
16.50 ►Coppelía Uppfærsla hins heims-
fræga rússneska Kirov ballets á
ævintýrinu um Coppelíu. Sagan ger-
ist í pólsku þorpi og fjallar um brúðu-
smiðinn Coppelíus og brúðuna hans
Coppelíu. Dansarar: Mikhail Za-
vialov, Irina Shapchits, Petr Rusl-
anov og Elvira Tarasova. Leikstjóri:
Oleg Vinogradov.
18.20 TfÍUI IQT ►Jolatonar (Send ’Ro-
I URLIu I und the Song) Þáttur
þar sem Placido Domingo, Jose
Carreras og Luciano Pavarotti syngja
nokkur gullfalleg jólalög. Þátturinn
er einnig sendur út á Bylgjunni.
19.19 ► Hátíðafréttir Stuttar fréttir frá
fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
19.45 ►Heims um ból íslenskir kórar
flytja falleg jólalög.
20.30 IfUllf IIVUniD ►Krókur (Hook)
nVUVIYIIRUIn Kvikmynd Spiel-
bergs byggir á leikriti J.M. Barries
um hetjuna Pétur Pan og aðrar fræg-
ar persónur. Pétur er nú loksins vax-
inn úr grasi en kann ekki lengur að
fljúga. Hann hefur í raun gleymt því
hver hann er en verður að horfast í
augu við sjálfan sig til að geta bjarg-
að börnunum úr klóm Króksins
hræðilega. Hann heldur aftur til
Ævintýralandsins ásamt bjölludísinni
Gling-gló og saman mæta þau Króki
kapteini án þess að blikna. Aðalhlut-
verk: Dustin Hoffman, Robin Will-
iams, Julia Roberts, Bob Hoskins og
Maggie Smith. Leikstjóri: Steven
Spielberg. 1991. Maltin gefur ★ ★
22.55 ►Wall Street Bud Fox á sér stóra
drauma en honum gengur illa að
fóta sig í kauphallarbraskinu á Wall
Street. Hann kynnist stórlaxinum
Gordon Gekko og er staðráðinn í að
grípa gæsina á meðan hún gefst.
En til þess að þóknast Gekko verður
hann að selja mammoni sálu sína og
temja sér algjört siðleysi. Michael
Douglas hlaut Óskarsverðlaunin fyrir
leik sinn í þessaridæmisögu um pen-
ingahyggju og græðgi. Aðalhlutverk:
Michael Douglas, Charlie Sheen,
Daryl Hannah og Martin Sheen.
Leikstjóri: Oliver Stone. 1987. Maltin
gefur ★ ★ ★Kvikmyndahandbókin
gefur ★★★
0.55 ►Hudson Hawk Bruce Willis leikur
Eddie Hawkins, afburða snjallan inn-
brotsþjóf, í þessari gamanmynd.
Eddie er nýbúinn að afplána tíu ára
fangelsisdóm og hefur ekki hugsað
sér að heimsækja betrunarhúsið aft-
ur. Það eina sem Eddie þráir er smá
friður og sæmilegt cappuchino-kaffi
en þá gera glæpamenn meistara-
þjófnum tilboð sem hann getur ekki
hafnað: Annað hvort rænir Eddie
þremur gripum sem Leonard da Vinci
bjó til eða þeir drepa besta vin hans,
Tommy. Aðalhlutverk: Bruce Willis,
Danny Aiello, Andie MacDowell, Ja-
mes Coburn og Richard E. Grant.
Handrit: BrQce Willis og Robert
Kraft. Leikstjóri: Michael Lehmann.
1991. Bönnuö börnum. Maltin gefur
★ ★
2.30 ►Dagskrárlok
Stjömur vísa
Lúkasi veginn
Lúkas býr í
Prússlandi en
skyndileg
breyting
verður á lífi
hans þegar
móðir hans
deyr og faðir
hans er
ranglega
sakaðurum
glæp
SJÓNVARPIÐ KL. 20.25 Frá
laugardegi til þriðjudags verður
sýndur nýr framhaldsmyndaflokk-
ur í fjórum hlutum sem ber heitið
Stjörnur vísa veginn. Þar er sagt
frá ungum dreng, Lúkasi, sem elst
upp í Prússlandi um miðja 19. öld-
ina. Það verða skyndilegar breyt-
ingar á lífi hans þegar mamma
hans fellur frá og faðir hans er
ranglega sakaður um glæp. Faðir
Lúkasar flýr Astur um haf til
Kanada þar sem
móðurafi drengsins
býr. Lúkas ákveður
að fara á eftir hon-
um og gerist
laumufarþegi á
stóru farþegaskipi.
í Kanada - Lúkas eltir föður
sinn til Kanada.
Þar kynnist hann
ungri barónessu,
Úrsúlu, og saman
lenda þau í margvís-
legum ævintýrum og
háska. Þetta er
myndaflokkur fyrir
alla fjölskylduna.
í Prússlandí - Þættirnir gerast um miðja
19. öld.
Fyrstu upptökur
Hauks Morthens
Leikar verða
lakkplötuupp-
tökur frá
árunum
1947-1958
sem margar
hverjar hafa
ekki heyrst
opinberlega í
40 ár
RÁS 2 KL. 13.00 í þættinum um
Hauk Morthens verða leiknar lakk-
plötuupptökur frá
árunum 1947-
1958. Engin þeirra
var gefin út á sín-
um tíma og flestar
hafa ekki heyrst
opinberlega í 40
ár. Með Hauki
ieika þekktar
hljómsveitir frá
þessum tíma, m.a.
danshljómsveit Bjarna Böðvarsson-
ar, hljómsveit Björns R. Einarsson-
ar, bæði sextett sem og stórband
undir stjóm Kristjáns Kristjánsson-
ar og einnig hljómsveit Gunnars
Ormslevs í einu lagi. Upptökurnar
gefa góða mynd af því sem um var
að vera í dægurlagageiranum á ís-
landi um 1950. Umsjón með þættin-
um hefur Trausti Jónsson.
Rættvið
Jón úr Vör
Jón vakti athygli
með bók sinni
Þorpinu
SJÓNVARPIÐ KL. 21.15
Skáldið Jón úr Vör fæddist
árið 1917 og vakti þjóðarat-
hygli árið 1946 með bók sinni
Þorpinu þar sem segir frá upp-
vexti ljóðmælandans í sjávar-
þorpi á kreppuárunum. I bók-
inni þótti kveða við nýjan tón
í íslenskri ljóðagerð og allar
götur síðan hefur Jón haft
áhrif á íslensk skáld. Eyvindur
Erlendsson leikstjóri hefur nú
gert þátt um Jón úr Vör og
skáldskap hans. Þar eru nokk-
ur kvæða Jóns myndskreytt
og heimsóttir staðirnir þar sem
hann fæddist og ólst upp.
Krókur á móti bragði - Það er Charlie Sheen sem leikur nýgræðinginn á Wall Street en
Dustin Hoffman fer með hlutverk Króks.
Mammon á Wall Street og
Pétur Pan berst við Krók
Pétur Banning
breytist í Pétur
Pan til að
bjarga börnum
sínum tveim en
Bud Fox
neyðist til að
ganga
peningaguðin-
um á hönd
STÖÐ 2 KL. 20.30 OG 22.55 í
kvöld eru á dagskrá kvikmyndirnar
Krókur og Wall Street. Ævintýra-
myndin Krókur, eða „Hook“ er gerð
af Steven Spielberg og fjallar um
um lögmanninn Pétur Banning sem
er hamingjusamlega giftur tveggja
barna faðir. Honum gengur allt í
haginn en hann hefur þó gleymt
barninu í sjálfum sér. Þegar fornir
fjendur ræna börnum hans og
hverfa með þau til Ævintýralands-
ins neyðist hann til að horfast í
augu við sjalfan sig og veita þeim
eftirför. í Ævintýralandinu kemur
síðan í ljós að hann er Pétur Pan
og þar mætir hann erkióvini sínum
Króki. Með aðalhlutverk fara Dust-
in Hoffman og Robin Williams.
Kvikmyndin Wall Street hefst svo
kl. 22.55 en Michael Douglas hlaut
Oskarsverðlaunin fyrir túlkun sína
á Gordon Gekko í myndinni. Mynd-
in fjaliar um Bud Fox sem leikinn
er af Charlie Sheen. Hann er ungur
og lítt reyndur kauphallarmiðlari
og kynni hans af klækjarefnum
Gekko. Miðlarinn ungi vinnur traust
fjármálakóngsins, en verður um leið
að brjóta odd af oflæti sínu og
ganga peningaguðinum mammoni
á hönd. Leikstjóri er Oliver Stone.