Morgunblaðið - 23.12.1993, Blaðsíða 12
12 C dagskrq
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1993
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
DRÝSILDJÖFL-
AR DREPA
ÁDYR
HROLLVEKJA
Drýsildjöflar - Tommyknockers
kVi
Leikstjóri John Power. Handrit
Lawrebce D. Cohen, byggt á
samnefndri skáldsögu Stephens
Kings. Aðalleikendur Jimmy
Smits, Marg Helgenberger, Jo-
anna Cassidy, Traci Lord, John
Astin, Cliff De Young, E.G.
Marshall. Bandarísk stuttþátta-
röð. Koningsberg/Sanitsky
1993. Warner myndir 1993.
U.þ.b. 145 mín. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Myndin
Tommyknoc-
kers reynist
sannkallaður
langhundur,
rétt eins og bók-
in sem hún er
gerð eftir og
talsvert lengri
en þær 115 mín.
sem gefnar eru
upp á kápu.
Annars segir
hér (sem oftar í sögum Stephens
Kings) af friðsælum smábæ í
Maine. En svo gerast undrin. Rit-
höfundurinn Helgenberger rekst
á torkennilegan hlut, grafinn í
jörð rétt utan við bæjarmörkin.
Meira að segja indíánar til forna
litu á staðinn sem „óhreinan".
Helgenberger hefur rannsóknir og
uppgröft og hlýtur einkennilegan
styrk og útsjónarsemi í umbun.
Smám saman dragast flestallir
þorpsbúar inní atburðarásina og
ganga í gegnum furðulegar, and-
legar breytingar sem fljótlega fara
að taka sinn toll. Einn er þó sá
sem ekkert bítur á, Jimmy Smits,
hinn drykkfelldi sambýlismaður
(og skáld) Helgenbergers. Aðrir
sjá ekki hættuna sem er yfirvof-
andi.
Alltof löng, einsog áður er get-
ið og Smits er afar ósannfærandi
í hlutverki blauta skáldsins, svo
ekki sé meira sagt. Sagan, sem
minnir nokkuð á Innrás líkams-
þjófanna og fleiri vísindaskáldsög-
ur, er ekki sem verst en það er
teygt og aftur teygt á atburðarás-
inni svo spennan dettur niður
langtímum saman. Margar auka-
persónur koma að litlu gagni og
næsta óþarfar. Ekki verða slakir
leikarar eins og Cliff De Young
og Jimmy Smits til að bæta upp
á sakirnar. Vonbrigði, líkt og sag-
an, þó finnur þolinmóður áhorf-
andi örfáa, þokkalega spretti.
EIIMA NÓTT
MEÐ ÞÉR...
SPENNUMYND
Stay the Night ★ ★
Leikstjóri Harry Winer. Aðal-
leikendur Barbara Hershey,
Jane Alexander, Morgan Wiss-
er, Fred Dalton Thomson, Dor-
an Clark, Heather Fairfield,
Melissa Slayton, Matthew Pos-
ey. Bandarísk sjónarpsmynd.
New World International. Bíó-
myndir 1993. 143 mín. Bönnuð
yngri en 12 ára.
Afar löng
sakamálamynd
um sakleysingja
sem lendir í afar
vondum félags-
skap. Morgan
Weisser leikur
nema sem er á
síðasta ári í
framhaldsskóla
er hann kynnist
giftri og kyn-
þokkafullri, sér mun eldri konu
(Barbara Hershey). Hún vefur
drengnum um fingur sér, sem
gerir allt til að fá að þóknast
henni. Og þar að kemur að hún
tælir piltinn til voðaverka, hann
myrðir bónda hennar og útlitið
svart uns móðir hans (Alexander)
kemur til skjalanna.
Stay the Night er ein margra
mynda sem byggð eru á sönnum
glæpamálum og verða forvitni-
legri fyrir. Prýðisleikkonan Bar-
bara Hershey leikur hið munaðar-
fulla háskakvendi af innlifun og
gerir þann hluta trúverðugan.
Sama er að segja um Jane Alex-
ander, aðrir leikarar eru reynslu-
litlir og það sést. Myndin er sóma-
samlega gerð í flesta staði og á
leikstjórinn a.m.k. eina kvikmynd
að baki, Spacecamp, sem var
ágætlega lukkuð gamanmynd, vel
að merkja. Auðgleymd en í góðu
meðallagi.
ÁSTIN VAKNAR
DRAMA
Karlinn í tunglinu - Man in the
Moon it-kit
Leikstjóri Robert Mulligan.
Handrit Jenny Wingfield. Kvik-
myndatökusljóri Freddie
Francis. Tónlist James Newton
Howard. Aðalleikendur Sam
Waterston, Tess Harper, Jason
London, Emily Warfield, Reese
Witherspoon, Gail Strickland.
Bandarísk. MGM 1991. SAM-
myndbönd 1993.
Sögusviðið er
dreifbýlishérað í
Louisianafylki
rétt eftir miðj-
an, sjötta ára-
tugin. Nánar til-
tekið heimili
Sam Waterston,
konu hans Tess
Harper og dætr-
anna tveggja;
hinnar 14 ára
Witherspoon og
17 ára gömlu Warfield. Litla syst-
ir er fyrir alvöru farin að velta
fyrir sér ráðgátum lífsins og leitar
gjarnan til hinnar eldri með spurn-
ingar sínar um'leyndardóma nátt-
úrunnar. Og svo flyst hinn 17 ára
London á næsta bæ. Og brjóstið
springur af ást á hinni saklausu
Witherspoon. En eins og við mátti
búast verður hann hinsvegar stóra
ástin í lífi eldri systurinnar.
Hér er afburða vel farið með
viðkvæmt efni. Mulligan, sem hér
er með sína bestu mynd um langt
árabil, sneiðir faglega hjá væmni
og velluskap og það er erfitt að
varast slíkt því sagan er hádrama-
tísk. Hún krefst líka góðra leikara
og hér sprettur fram eitt besta
leikkonuefni síðan Emily Lloyd
kom fram á sjónarsviðið. Það er
Reese Witherspoon, sem tekst á
eftirminnilegan hátt að laða fram
stórleik og túlkar ekki síst afburða
vel hugarangur fjórtán ára telpu-
hnokka sem veit að hún á við
ofurefli að etja í ástarmálum, þar
sem er hin þroskaða stóra systir.
Þetta er mynd um mikla lífs-
reynslu sem lætur engan ósnort-
inn.
BÍÓMYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
Við árbakkann ■k-k'kir
Tvímælalaust ein besta mynd
ársins um tvo bræður í Montana
á þriðja áratugnum og strangt
uppeldi þeirra en fluguveiði sam-
einar feðgana. Það breytir þó engu
um að sá færasti á árbakkanum
má sín minnst í lífsbaráttunni.
Afar vel leikstýrð af Robert Red-
ford og leikin af Brad Pitt, Craig
Shaffer og Tom Skerritt.
Grænir tómatar
í Suðurríkjunum
Veitinga-
húsiö
Whistle
Stop Cafe
var fyrst
búiðtil fyrir
kvikmynd-
ina Steiktir,
grænir
tómatar. Nú
er hins
vegar búið
að opna
alvöru
Whistle
Stop Cafe í
bænum
Juliette í
Georgíu-ríki
LITLA veitingahúsið Whistle Stop Cafe, sem
er þungamiðja kvikmyndarinnar Steiktir,
grænir tómatar, en myndin verður -sýnd í Sjón-
varpinu á annan í jólum, lifir enn í Suðurríkjum
Bandaríkjanna og nýlega birti bandaríska tíma-
ritið People grein um staðinn.
Myndin var tekin upp í smábænum Juliette í
Georgíu þar sem um 550 manns búa. Hún á hins
vegar að gerast í bænum Whistle Stop í Alabama-
ríki og segir frá miðaldra húsmóður sem kynnist
aldraðri konu á elliheimili bæjarins og kemst að
því að gamla konan býr yfir hræðilegu leyndarmáli.
Flutningalestin gerði útslagið
Þegar verið var að leita að hentugum stað til
að taka myndina upp árið 1990, komu menn frá
Hollywood við í Juliette og litu inn í fornmunaversl-
un bæjarins. Á meðan þeir voru staddir þar fór
flutningalest framhjá bænum með tilheyrandi lát-
um. Mennirnir urðu yfir sig hrifnir og ákváðu þá
á stundinni að taka myndina upp í bænum.
Sviðsmyndin fyrir veitingahúsið var svo sett upp
í fornmunabúðinni. Þegar upptökum lauk fóru eig-
endur búðarinnar, þau Jerie Lynn Williams og
Robert Williams að athuga hvort ekki væri hægt
að búa til alvöru veitingahús í húsnæðinu, enda
vantaði aðfinnanlega einhvern slíkan stað þar sem
eina veitingahús bæjarins var nýfarið á hausinn.
í fyrstu fannst íbúum í Juliette hugmyndin vera
hin mesta fjarstæða og jafnvel heilbrigðisfulltrúinn
lýsti undrun sinni og vantrú að dæmið myndin
ganga upp.
Whistle Stop Cafe opnaði í apríl síðastliðnum
og hefur verið fullt út úr dyrum síðan og segir í
People að fólk komi víða að úr veröldinni til að
borða þar, jafnvel alla leið frá íslandi!
Matseðillinn samanstendur af grillmat ýmiskon-
ar, sætum kartöflum, ferskjutertu og svo er auðvit-
að boðið upp á steikta, græna tómata sem mat-
reiddir eru samkvæmt uppskrift ömmu Jerie Lynn.
Eigendurnir — Jerie Lynn Williams matar meðeigenda sinn, Robert
Williams, á steiktum, græmum tómötum. I baksýn sést veitingastaður-
inn.
BÍÓIN í BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Skytturnar 3 ★ ★ 'h
Dæmigerð Hollywoodútgáfa á sögu
Dumas með þekktum leikurum af
yngri kynslóðinni. Ungu skyttumar
eru aldrei leiðinlegar enda góður hasar
í frásögninni.
Aftur á vaktinni ★ ★ Vi
Um flest lík fyrri myndinni um lögg-
urnar seinheppnu. Engu að síður fram-
bærileg afþreying.
Fanturinn ★ ★ 'h Hið illa og góða
togast á í tveimur drengjum með vof-
eifilegum afleiðingum. Góð afþreying
þótt hún risti grunnt.
BÍÓHÖLLIN
Rísandi sól ★ ★ Vi
Philip Kaufman breytir metsölubók
Michaels Criehtons í of veigamiklum
atriðum til að myndin hans verði
spennandi en ekkert er til sparað og
hún er ágætlega kvikmynduð og leik-
urinn er góður.
Dave ★★★
Tvífari forsetans gerist umsvifamikill
í Hvita húsinu. Lengst af vel skrifuð,
bráðfyndin gamanmynd með ádeilu-
broddi. Kevin Kline og Frank Langella
í toppformi.
Nýliði ársins ★ ★ Vi
Lítil og notaleg fjölskyldumynd um
dáðadreng í hafnarbolta.
Flóttamaðurinn ★★★
Dr. Kimble, flóttamaðurinn frægi frá
árdögum sjónvarpsins, mættur til leiks
í nýjum búningi. Tekst enn á ný eink-
ar vel að hafa ofanaf fyrir áhorfend-
um.
Strákapör ★ ★ Vi
Skemmtileg drengjamynd um stráka
sem leika hornabolta allan liðlangan
daginn og lenda í ævintýrum þegar
boltinn fer inn í garð nágrannanns.
Einu sinni var skógur ★ ★
Falleg teiknimynd með umhverfis-
vænu yfirbragði um lítil skógardýr
sem takast á hendur langt ferðalag.
Skógarlíf ★ ★ ★
Ein af gömlu Disneyperlunum segir
frá ævintýraferð drengsins Mógla úr
frumskóginum til mannabyggða.
Gamansemi og fjör allan tímann.
Skytturnar 3 Sjá Bíóborgina
HÁSKÓLABÍÓ
Krummarnir ★★
Ósköp snotur en tilþrifalítil dönsk
barna- og unglingamynd. Leikurinn
skammlaus en íslenska talsetningin
upp og ofan.
Addamsfjölskyldugildin ★ ★ ★
Addamsfjölskyldan er engri lík. Frum-
leg, kolrugluð en umfram allt bráð-
skemmtileg. Framhaldið er betra en
fyrri myndin.
Ungu ameríkanarnir ★★
Nýir og verri tímar í undirheimaveröld
Lundúna aðallega vegna áhrifa frá
Bandaríkjunum. Einfeldingsleg heims-
mynd í stílfærðri breskri hasarmynd
með lagi Bjarkar Guðmundsdóttur.
Hetjan ★ Vi
Basinger misráðin í bankaræningja-
hlutverk í linkulegri hasar- og spennu-
mynd. Terence Stamp og Val Kilmer
bjarga engu.
Indókína ★ ★ ★
Falleg, hádramatísk, frönsk stórmynd
um miklar ástir og umbrot í Indókína
undir Frökkum. Catherine Deneuve
ógleymanleg.
Rauði lampinn ★ ★ ★
Fínleg, döpur en minnisstæð mynd um
tilgangslitla jafnréttisbaráttu kvenna
gegn karlaveldinu í Kína.
Jurassic Park ★ ★ ★ ‘A
Ein af eftirminnilegu myndunum hans
Stevens Spielbergs hefur átt geysileg-
um vinsældum að fagna erlendis og
byijaði með látum hér heima. Stór-
kostleg ævintýramynd og ein af fáum
í seinni tíð sem er virkilega nauðsyn-
legt að sjá.
LAUGARÁSBÍÓ
Fullkomin áætlun ★★
Ef ekki hefði verið fyrir margumtalað-
„hraðbrautaratriði“ hefði þessi meðal-
unglingamynd um félaga í háskólaliði
í ruðningi fljótlega fallið í gleymskunn-
ar dá. Þriðji þátturinn ágætur og Caan
er góður sem þjálfarinn.
Launráð ★★
Heldur daufleg frönsk mynd um tvo
leigumorðingja með tveimur af þekkt-
ustu leikurum Frakka í aðalhlutverk-
um. Philippe Noiret ber ægishjálm
yfir Christopher Lambert.
Hættulegt skotmark ★ ★ Vi
Ofbeldið er sett ofar öllu í andstyggi-
legri en spennandi drápsmynd.
REGNBOGINN
Til vesturs ★ ★
Mjög misjofn mynd á mörkum ævin-
týris og veruleika um frelsi og ánauð
á írlandi. Börn og dýr leika best.
Spilaborg ★★
Ung stúlka bregst undarlega við ári
eftir að hún missir föður sinn. Athygl-
isvert efni fær alvöruþungna með-
höndlun en máttlitla.
Svik ★
Áströlsk della um tryggingarsvik og
vafasama kraktera. Myndin er nánast
svik við kröfuharða áhorfendur.
Hin helgu vé ★ ★ Vi
Lítil og ljúf mynd um fyrstu reynslu
sjö ára drengs af ástinni og afbrýð-
inni. Yngstu leikararnir fara á kostum.
Óvenjuleg mynd frá Hrafni.
Píanóið ★★★
Einkar vel gerð og leikin nýsjálensk
verðlaunamynd um mállausa konu
sem kynnist ástinni í óbyggðum og
píanóið sem verður örlagavaldurinn í
lífí hennar. Gott mál.
SAGABÍÓ
Addamsfjölskyldugildin ★ ★ ★
Addamsfjölskyldan er engri lík. Frum-
leg, kolrugluð en umfram allt bráð-
skemmtileg. Framhaldið er betra en
fyrri myndin.
Aftur á vaktinni ★★’A
Um flest lík fyrri myndinni um lögg-
umar seinheppnu. Engu að síður fram-
bærileg afþreying.
STJÖRNUBÍÓ
Old sakleysisins ★★★★
Stórkostleg bíómynd eftir Martin
Scorsese um ást í meinum á meðal
broddborgara New York á síðustu öld.
Leikurinn frábær. Nú hlýtur Scorsese
að vinna til Óskarsins, það er löngu
orðið tímabært.
Hrói höttur: Karlmenn í sokkabux-
um ★★
Mel Brooks virðist fallinn fyrir ofur-
borð meðalmennskunnar en hér tekur
hann á goðsögninni um Hróa hött, sem
vissulega á það skilið.
Svefnlaus í Seattle ★ ★ ★
Einkar aðlaðandi rómantísk gaman-
mynd um samdrátt manns og konu
sem teygir sig þvert yfir Bandaríkin.
Full af húmor og skemmtilegheitum
varðandi ástina og hjónalífið.