Morgunblaðið - 05.01.1994, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994
Kjartan Jóhannsson sendiherra á fundi Alþjóða verslunarráðsins
Nýfrjáls ríki sækjast
eftir aðild að EFTA
ÍSLENDINGAR gætu fyrirvaralítið staðið frammi fyrir því að taka
afstöðu til áhuga nýfrjálsra ríkja í Mið- og Austur-Evrópu á EFTA-
aðild, að sögn Kjartans Jóhannssonar sendiherra í Genf á hádegis-
verðarfundi landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins í gær. Hann
benti á að EFTA-ríki á leið í EB væru líkleg til að sýna þessu vax-
andi áhuga eftir því sem aðild nálgaðist vegna þess að með því drægi
úr þrýstingi á aðild þessara landa að EB.
Kjartan benti á að yfirlýst þróun
í átt til markaðsbúskapar væri mis-
vel á veg komin í Mið- og Austur-
Evrópu. Lýðræði hefði náð að þró-
ast og stæðu vonir til að það efld-
ist og festist í sessi. Ríkin teldu
stöðu sína hins vegar að ýmsu leyti
ótrygga. Þróunin hjá grannanum
stóra í austri væri kenjótt og ein-
kenndist af óvissu. „Svonefndar
austur- og mið-evrópskar þjóðir
sækja því mjög á um efnahagslegar
og pólitískar tengingar við Vestur-
Evrópu sem veiti þeim vernd og
öryggi gegn óhagstæðri þróun í
Rússlandi eða fyrrum Sovétríkjun-
um. Þær sækjast því eftir aðild að
EB og aðild að NATO. Sá hængur
er á að efnahagslega er ástandið í
þessum löndum þannig að aðild að
EB er óframkvæmanleg og pólitísk-
ar aðstæður gera einkar erfitt um
vik með aðild að NATO,“ sagði
Kjartan.
Afstaða EB lykilatriði
Kjartan sagði að aðrir valkostir,
þ.e.a.s. þeir sem rúmuðust innan
EFTA með eða án hluta af EES,
ættu að vera til athugunar fyrir
umrædd ríki. Eins og sakir stæðu
væri hins vegar ekki ólíklegt að það
sem helst þætti standa í veginum
fyrir EFTA-biðtíma væri óttinn við
að það tefði fyrir aðild að EB.
Hann varpaði næst fram þeirri
spurningu hvort EFTA myndi veita
einhvetju þessara ianda aðiid og
taldi ekki ólíklegt að EFTA-lönd á
leið í EB sýndu þessu vaxandi
áhuga eftir því sem aðild nálgaðist
vegna þess að með því drægi úr
þrýstingi á EB-aðild þessara ríkja.
„íslendingar þurfa að fara að velta
þessu fyrir sér því að ákvörðunar-
efnið gæti komið upp fyrirvaralít-
ið,“ sagði Kjartan.
Hann sagði síðar að í vangavelt-
um um þetta efni væri vert að hafa
hugfast að EFTA snerist fremur
um samband EFTA-ríkja við EB
en innbyrðis viðskipti EFTA-ríkj-
anna. Þess vegna væri lykilatriði
hvort EB teldi að þessi skipan
myndi gefast vel í framtíðinni.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 5. JANUAR
YFIRLIT: Við vesturströnd Skotlands er 980 mb lægð og önnur álika
um 300 km vestar, báðar á austurleið. Yfir Norðaustur-Grænlandi er
JdlÍivosí? norðaustanátt á landinu. Hvassast norðan- og austan-
lands. Bjart verður sunnanlands en él í öðrum landshlutum.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Suður- og Suðvesturdjúpi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Hæg austan- og norðaustan-
átt og frost 4-14 stig. Él norðaustanlands en annars víðast þurrt. Létt-
skýjað um sunnan- og vestanvert landið.
HORFUR Á LAUGARDAG: Allhvöss eða hvöss sunnan- og suðaustan-
átt og hlýnandi veður. Slydda eða rigning um sunnan- og vestanvert
landið en þurrt að mestu norðanlands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600.
Heiðskirt
r / r
/ /
/ / /
Rigning
Léttskýjað
* / *
/
/ * /
Slydda
Hálfskýjað
* * '*
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað
V ý
Skúrir Slydduél
Alskýjað
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnlr vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrir,
heil fjöður er 2 vindstig.,
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
riig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Góð færð er yfirleitt á þjóðvegum iandsins, þó er á Vestfjörðum þung-
fæ,t um Klettsháls og Breiðadalsheiði, en ófært um Dynjandis-, Hrafns-
eyrar- og Botnsheiðar. Austanlands er þungfært á Möðrudalsöræfum
og Vopnafjarðarheiði, en ófært um Breiðdalsheiði.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
á grænni línu, 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 ígær
Akureyri
Reykjavfk
hiti
*3
+2
UM HEIM
að fsl. tíma
veður
alskýjað
skýjaö
Bergen
Helsinki
Kaupmannahöfn
Narssarssuaq
Nuuk
Óeló
Stokkhólmur
Þórshöfn
+10
+1
+2
+1
+6
+2
léttskýjað
skýjað
vantar
skafrenningur
skafrenningur
alskýjað
skýjað
vantar
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madrki
Malaga
Mallorca
Montreal
NewYork
Orlando
París
Madelra
Róm
Vín
Washington
Wlnnipeg
15 lóttakýjað
7 skýjað
15 ekýjað
7 léttskýjaö
+3 snjókoma
þokumóða
jkwað
mistur
6 skýjað
6 rigning
12 skýjað
6 skýjað
9 léttskýjað
13 skýjað
17 skýjað
+15 snjókoma
+1 ískorn
11 heiöskfrt
8 skýjað
15 skýjað
16 hálfskýjað
rigning
rigning
+26 heiðskírt
/ DAG kl. 12.00
Morgunblaðið/RAX
Hádegisverðarfundur
KJARTAN Jóhannsson á fundi landsnefndar Alþjóða verslunarráðs-
ins í hádeginu í gær.
Borgarstj órnarkosningarnar í vor
Magnús L. Sveinsson
gefur ekki kost á sér
MAGNÚS L. Sveinsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hef-
ur ákveðið að gefa ekki kost á sér
til borgarstjómarkosninga í vor.
Magnús segir tíma til kominn að
hvíla sig og gefa öðrum möguleika
á að komast að. Hann hafi verið í
borgarstjóm í 20 ár og átta ár þar
á undan sem varamaður. Hann hafi
lengst af verið í borgarráði og síð-
ustu níu ár forseti borgarstjórnar þar
að auki. „Ég tók ákvörðun um að
hvíla mig. Þetta hefur verið gífurlega
mikil vinna með mínu starfi sem for-
maður í svo stóru stéttarfélagi sem
VR er. Ég hafði ekki hugsað mér
að verða elliær í starfí, vildi hafa
fulla skynjun á því sjálfur hvenær
rétt væri að hætta. Eg hef lengst
af verið í forystusveit sjálfstæðis-
manna í borgarstjóm og tel rétt að
ég fari nú að hafa fleiri stundir fyrir
sjálfan mig en um þær hefur verið
ansi lítið fram að þessu,“ sagði
Magnús.
Bllll
m
FasteianatfBid á liöfuðborgarsvæðinu
DðBÍTlÍ 1"
Fasteignamat íbúðar og lóðar 7 milljónir kr.
Fasteigna- Vatns- Holræsa- Sorphirðu- Lóðar-
skattur skattur gjald gjald leiga ALLS
Kópavogur 26.250 13.300 9.100 6.300 1.563 56.513
Garðabær 26.250 10.500 4.900 6.200 3.750 51.600
Hafnarfjörður 26.250 14.000 7.000 2.800 9 50.059
Mosfellsbær 26.250 10.500 7.000 3.000 435 47.185
Seltjarnarnes 26.250 10.500 - 6.800 - 43.550
Reykjavík 29.470 9.100 - 1.000 435 40.005
ru Dæmi 2: Fasteignamat íbúðar og lóðar 18 milljónir kr. Fasteigna- Vatns- Holræsa- Sorphirðu- Lóðar- skattur skattur gjald gjald leiga ALLS
Kópavogur 67.500 34.200 23.400 6.300 3.647 135.047
Garðabær 67.500 36.000 18.000 2.800 21 124.321
Hafnarfjörður 67.500 27.000 12.600 6.200 8.750 122.050
Mosfellsbær 67.500 27.000 18.000 3.000 1.015 116.515
Seltjarnarnes 67.500 27.000 6.800 - 101.300
Reykjavík 75.780 23.400 - 1.000 1.015 101.195
Fasteignagjöld á höfuðborgarsvæðinu
Lægst gjöld í Reykjavík
SAMANBURÐUR á fasteignagjöldum, sem lögð era á íbúðarhús-
næði í sex stærstu sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, sýnir
að þau eru lægst í Reykjavík samkvæmt útreikningum sem lagðir
hafa verið fram í borgarráði. Auk Reykjavíkur nær samanburður-
inn til Kópavogs, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Seltjarnarness og
Mosfellsbæjar.
Tekið er dæmi af fasteignum
sem metnar em á 7 millj. og þ'ar
af er fasteignamat lóðar 300 þús.
en ióðarstærð er 300 fermetrár. í
Reykjavík erú fasteignagjöld kr.
40.005 fyrir eignina. A Seltjamar-
nesi eru gjöldin næst lægst eða kr.
43.550 fyrir sömu eign, í Mos-
fellsbæ eru þau kr. 47.185, í Hafn-
arfirði kr. 50.059, í Garðabæ kr.
51.600 og í Kópavogi eru þau
hæst eða kr. 56.513.
Fyrir fasteign sem metin er á
18 millj. og þar af er fasteignamat
lóðar 700 þús. en lóðarstærð er 700
fermetrar, eru fasteignagjöldin i
Reykjavík kr. 101.195. Á Seltjarn-
amesi eru gjöidin kr. 101.300 fyrír
sömu eign, í Mosfellsbæ eru þau
kr. 116.515, í Hafnarfírði kr.
124.321 og í Kópavogi kr. 135.047
en þar eru þau hæst.
Gjalddagar
Gjalddagar fasteignagjalda eru
mismargir eftir bæjarfélögum eða
tíu í Kópavogi, fimm í Garðabæ
og Mosfellssveit, fjórir í Hafnar-
fírði og þrír í Reykjavík og á Sel-
tjarnarnesi. Rétt er að taka fram
að lóðaleiga er ekki reiknuð á Sel-
tjamamesi en flestar lóðir utan
Eiðistorgs eru eignarlóðir.
Fram kemur að samanburðurinn
er miðaður við upplýsingar frá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga.