Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994
RAÐAUGi YSINGAR
Laus staða
Staða forstöðumanns Rannsóknastofnunar
uppeldis- og menntamála er laus til umsókn-
ar. Forstöðumaður er ráðinn til fimm ára í
senn. Hann skal uppfylla þær hæfniskröfur,
sem gerðar eru til prófessora við Háskóla
íslands, sbr. 5. gr. laga nr. 76/1991, um
Rannsóknastofnun uppeldis- og mennta-
mála. Hann skal hafa staðgóða þekkingu á
rannsóknaaðferðum félagsvísinda og hafa
sannað hæfni sína, m.a. með rannsóknum á
sviði uppeldis- og menntamála.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur um stöðu forstöðumanns
skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um vísindastörf þau, sem þeir hafa
unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms-
feril sinn og störf.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1994.
Umsóknir skulu sendar til menntamálaráðu-
neytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið.
Dagmamma/amma
Teigahverfi
Barngóð kona óskast til að gæta tveggja
barna virka daga frá kl. 9-17.
Annað barnanna er í leikskóla til kl. 14.00.
Upplýsingar veittar í síma 631103, Vala.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39, 108 Reykjavík, sími 678500, fax 686270
Liðsmenn óskast
Við leitum að fólki í tímavinnu, 15 til 30 klst.
á mánuði, til að taka að sér liðveislu fyrir
fatlaða, börn og fullorðna.
í liðveislu felst persónulegur stuðningur og
aðstoð, sem einkum miðar að því að rjúfa
félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta
menningar og félagslífs.
Nánari upplýsingar gefa Dísa Guðjónsdóttir
og Ellen Júlíusdóttir í síma 678500 milli
kl. 9-12 næstu daga.
Umsóknareyðublöð fást á Félagsmálastofn-
un Reykjavíkur í Síðumúla 39 og er umsókn-
arfrestur til 12. janúar nk.
ÞJÓNUSTA
Húseigendur
- húsbyggjendur
Húsgagna- og húsasmíðameistari með tré-
smíðaverkstæði getur bætt við sig húsbygg-
ingum. Vinnum alla trésmíðavinnu utanhúss
sem innan, s.s. mótasmíði, þök, utanhúss-
klæðningar, glugga, hurðir, innréttingar o.fl.
o.fl. Vönduð og ódýr vinna. Vanir fagmenn.
Sími 79923. Geymið auglýsinguna.
KENNSLA
FJÖLBRAUTASKÚUNN
BREIÐHOLTI
Innritun
Innritað verður í Kvöldskóla FB í kvöld, mið-
vikudag, kl. 16.30-19.30 og laugardaginn
8. janúar nk. kl. 10.00-13.00.
Skólameistari.
I
J[_ Hafnarfjörður
Eigendur verslunar- og
skrifstofuhúsnæðis
í Hafnarfirði
Samkvæmt 10. gr. laga nr. 90/1990 um tekju-
stofna sveitarfélaga, eins og þeim var breytt
20. desember 1993, skulu eigendur verslun-
ar- og skrifstofuhúsnæðis senda því sveitar-
félagi, sem eign er í, skrá yfir eignirnar ásamt
upplýsingum um síðasta heildarfasteigna-
matsverð þeirra eða eftir atvikum kostnaðar-
verð. Ennfremur skal skrá þar upplýsingar
um notkun eignanna, svo og upplýsingar um
rúmmál þeirra eigna, sem einnig eru notaðar
til annars en verslunarreksturs og skrifstofu-
halds.
Upplýsingar skulu hafa borist fasteigna-
skráningu Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6,
fyrir miðvikudaginn 12. janúar 1994.
Vanræki húseigandi að senda skrá yfir
greindar eignir er sveitarstjórn heimilt að
nota aðrar upplýsingar til viðmiðunar við
álagningu þar til húseigandi bætir úr.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Auglýsing
um sérstakan fasteignaskatt á
verslunar- og skrifstofuhúsnæði
á Selfossi
Samkvæmt heimild í lögum frá 20. des. 1993
um breytingar á lögum um tekjustofna sveit-
arfélaga hefur bæjarstjórn Selfoss samþykkt
að leggja á sérstakan fasteignaskatt, 1,25%
á fasteignamat, ásamt lóðarmati verslunar-
og skrifstofuhúsnæðis þeirra aðila, sem skatt-
skyldir eru samkvæmt 1. kafla laga nr.
75/1981, um tekju- og eignaskatt, eða lögum
nr. 65/1982, um skattskyldu innlánsstofnana.
Eigendum fasteigna í Selfosskaupstað ber
að leggja fram skrár yfir þær eignir, sem
falla undir ofangreind lagaákvæði, ásamt
upplýsingum um síðasta heildarfasteigna-
mat þeirra, (eða kostnaðarverð sé fasteigna-
mat ekki fyrir hendi). Ennfremur skal skrá
þar upplýsingar um notkun þeirra, svo og
upplýsingar um rúmmál eigna sem einnig
eru notaðar til annars en verslunarreksturs
og skrifstofuhalds.
Skrár þessar skulu hafa borist bæjarskrif-
stofunum, Austurvegi 10, Selfossi, fyrir
15. janúar nk.
Vanræki húseigandi að senda skrár yfir eign-
ir, sem ákvæði þessi taka til, er bæjarstjórn
heimilt að nota aðrar upplýsingar til viðmið-
unarviðálagningu þartil húseigandi bætirúr.
Selfossi, 3. janúar 1994.
Bæjarstjórinn á Selfossi.
a:;cl;a
Anglia
Aðalfundur verður haldinn í Enskuskólanum,
Túngötu 5, þriðjudaginn 11. janúar kl. 20.30.
Kaffiveitingar og almenn umræða.
Stjórnin.
3ja-4ra herb. íbúð
Fjögurra manna fjölskylda óskar eftir að
leigja 3ja-4ra herb. íbúð frá 1. febrúar nk.
Öruggar greiðslur.
Nafn og sími sendist á auglýsingadeild Mbl.,
merktur: „AB - 123“, fyrir 12. janúar.
Eigum til sölu
Þorskafskurð m/roði 65 tonn.
Þorskafskurð roðlausan 57 tonn.
Ýsuafskurð m/roði 4,6 tonn.
Ýsuafskurð roðlausan 0.6 tonn.
Ufsaafskurð m/roði 3 tonn.
Ufsaafskurð roðlausan 2,4 tonn.
Þorskklumbur >110 g 18 tonn.
Þorskklumbur <110 g 24 tonn.
Langhala, heilfrystan 6 tonn.
Gulllax, heilfrystan 0,26 tonn.
Tilboð óskast.
Nánari upplýsingar í síma 95-22690,
faxnúmer 95-22882.
Skagstrendingur hf.,
Skagaströnd.
Til sölu á Húsavík
Til sölu er blóma-, gjafa- og snyrtivöruversl-
unin Tamara, Garðarsbraut 62, Húsavík.
Upplýsingar gefur Margrét í síma 96-41149
á kvöldin.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hafnarbraut 25,
Hólmavík, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
1. Miðtún 3, Hólmavík, þinglýst eign Böðvars Hrólfssonar, eftir kröfu
Samvinnulífeyrissjóðsins, miðvikudaginn 12. janúar 1994, kl. 14.00.
2. Hafnarbraut 20, Hólmavík, þinglýst eign Sigurðar Gunnars Sveins-
sonar, eftir kröfu Skilvíss hf., (slenskrar dreifingar hf., Brunabóta-
félags Islands, Hauks Claessens, Hólmavíkurhrepps og Búnaðar-
banka íslands, miðvikudaginn 12. janúar 1994, kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Hólmavík,
4. janúar 1994.
Ríkarður Másson.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Akrar 3, Hraunhreppi, þingl. eig. Magnús Tómasson, gerðarbeið-
andi Stofnlánadeild landbúnaðarins, 12. janúar 1994 kl. 11.00.
Kollslækur, Hálsahreppi, þingl. eig. Einar Valgarð Björnsson, gerðar-
beiðendur Brunabótafélag Islands, Byggingarsjóður ríkisins og
Stofnlánadeild landbúnaðarins, 12. janúar 1994 kl. 14.00.
Melar, Leirár- og Melahreppi, þingl. eig. Eggert Guðmundsson, gerðar-
beiðendur Brunabótafélag íslands, Byggingarsjóður rikisins, Fóðurbland-
an hf.r Húsnæðisstofnun ríkisins, Stofnlánadeild landbúnaðarins og
Trygging hf., 12. janúar 1994 kl. 15.30.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
4. janúar 1993.
VJterkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamiðill!