Morgunblaðið - 05.01.1994, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1994
9
UTSALAN
HEFSTí DAG
VANDAÐAR VÖRUR Á GÚÐU VERÐI
20-80% AFSLATTUR
r
benellon
v J
Laugavegi 97
164 kr.
á da§ koma
sparnabinum
í lag!
Það þarf aðeins 164 kr. á dag til að
spara 5.000 kr. á mánuði með áskrift
að spariskírteinum ríkissjóðs. Ef þú
bíður með að spara þangað til þú
heldur að þú hafir „efni" á því
byrjar þú aldrei. Líttu á sparnað sem
hluta af reglulegum útgjöldum
þínum, þannig verður sparnaðurinn
auðveldari en þú heldur.
Ert þú búin(n) ab spara
164 kr. í dag?
Hringdu í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og byrjaðu
reglulegan sparnað með áskrift
að spariskírteinum ríkissjóðs.
1994
Allir eru ekki fullir bjartsýni, nú þegar
nýtt ár er gengið í garð. í grein í breska
dagblaðinu Daily Telegraph dregur
blaðamaðurinn Robert Fox upp mjög
dökka mynd af þeirri framtíð, sem Evrópa
á í vændum. Segir hann ýmis hættu-
merki vera á lofti og þá ekki síst í kringum
Miðjarðarhafið.
Framtíðarsýn
Orwells
I greininni segir: „Það
var rangt af George
Orwell að láta hina
drungalegu draumsýn
sína af evrópsku alrœðis-
ríki gerast árið 1984. Það
hefði verið miklu meira
viðeigandi að nota árið
1994 sem það ár er Evr-
ópa byrjar að sökkva of-
an í svaðið og leysast upp
félagslega. Orwell hafði
einnig rangt fyrir sér er
hann spáði því að við
yrðum þegnar í einhvers
konar marxísk-lenínísku
lögregluríki. Þvert á
móti bera margir af nýj-
ustu og öflugustu hug-
myndaf ræðistraumunum
í Evrópu þessa stundina
sterk einkenni fasisma.
Nýfasistarnir hafa skotið
upp kollinum ótrúlega
hratt. Fyrir nokkrum
vikum tókst fasistahreyf-
ingu Úkrainu að smala
saman þrjú þúsund
manns, klæddum nýjum
búningum og með borða,
sem fói-u blysför um
Kiev. I fyrrverandi Júgó-
slavíu einkennast stefna
og verk allra stríðandi
fylkinga af fasisma með
mikilli áherslu á kyn-
þáttahatur, grófri hem-
aðarlegri þjóðernis-
hyggju, sögufölsun og
byssutrú.
I árslok hörðnuðu
átökin enn og markmið
Serba að mynda Stór-
Serbíu varð æ skýrara.
Friðaráætlun Sameinuðu
þjóðanna er í tætlum og
sjálfboðaliðar hjálpar-
stofnana em rændir,
þeim er rænt, á þá er
skotið og það litla af
birgðasendingum þeirra
sem kemst á leiðarenda
rennur að stórum hluta
til hinna stríðándi heija.
Nú í vor verður stríðið i
Bosníu komið inn á sitt
þriðja ár og ekkert bend-
ir til að því sé að Ijúka.
Serbar, sem ráða yfir
vopnabirgðum Júgó-
slavíuhers, hafa næg
skotfæri til að beijast
áfram af jafn miklum
krafti og nú í tólf ár til
viðbótar."
Uppgjöf í
Bosníu
Áfram segir: „Við-
brögð Breta, Frakka,
Kanadamanna, Hollend-
inga og Belga verða lik-
lega fiótti — þeir munu
draga herlið sitt til baka
og leyfa íbúum Bosníu,
Króatiu og Serbíu að
kála hveijir öðmm. Það
verður til marks um upp-
gjöf og ósigur og mun
sanna það, að Evrópa og
hinir vestrænu banda-
menn hafa hvorki viljaim
né tækin til að tryggja
öryggi og stöðugleika í
nánasta umhverfi sínu.
Mönnum verður því
fijálst að ákveða hvort
þeir fari eftir grundvall-
arreglum evrópskrar
samvinnu, sem er að
finna í Helsinkisáttmál-
anum frá 1975, ekki síst
þeirri að ekki megi
breyta landamærum með
ofbeldi. Enginn hefur
vilja til að framfylgja
þessum reglum. Samein-
uðu þjóðirnar hafa sýnt
fram á gífurlegan veik-
leika í fyrstu aðgerð sinni
innan Evrópu og komið
hefur í Ijós að NATO
skiptir litlu sem engu
máli eftir að kalda stríð-
inu lauk.
Hemaðarlegt mikil-
vægi Adríahafs hefur
aukist til muna í kjölfar
þess að uppflosnaðar
þjóðir Króatíu, Bosníu og
Albaniu reyna að fiýja
yfir það til Italíu. En ítal-
ii- munu eiga meira en
nóg með að ráða fram
úr eigin vandamálum á
árinu 1994. Aldrei áður
hafa stjórnmálaflokkar
og ríkið verið jafn rúnir
trausti og jafnvel aðskiln-
aðarsinnamir í Norður-
bandalaginu em nú sak-
aðir um spillingu. Niður-
stöður nýlegra sveitar-
stjórnarkosninga þýða
ekki bara endalok miðju-
flokkanna, sem stjómuðu
hinu spillta stjómkerfi
áratugum saman, heldur
einnig að nú er enginn
einn flokkur fær um að
sjá um stjórn landsins.
Italir em orðnir tauga-
strekktir og þjóðin mið-
aldra og þreytt. Fyrir
þremur mánuðum benti
[dagblaðið] Corriere
della Sera á að nú þegar
þiggja fleiri Italir lífeyr-
isgreiðslur en greiða í líf-
eyrissjóði."
Zhírínovskíj
ekki mesta
ógnin
Loks segir: „Tískufyr-
irtæki, sem stóðu að
mestu leyti undir upp-
sveiflunum á sjöunda og
níunda áratugnum, hafa
í auknum mæli fært
framleiðslu sína til aust-
urhluta Evrópu og lækka
þamiig framleiðslukostn-
að sinn um allt að þriðj-
ung eða fjórðung. Borg-
imai- í norðurhluta
landsins ganga nú í gegn-
um mesta fólksfækkun-
arskeið frá þvi á lokadög-
um Rómaveldis og svipuð
þróun á sér nú stað um
mest allt Grikkland,
hluta Spánar og suður-
hluta Frakklands. Það
ójafnvægi sem ríkir hjá
þjóðunum í kringum Evr-
ópu mun leiða til aukinn-
ar spennu nær heima-
slóðum okkar. í Alsír
hóta ofsatrúarmenn að
koma á ógnarstjórn og
er hætta á að herferð
þeirra gegn útlendingum
og trúleysingjum breiðist
ÚL Þegar hefur mátt sjá
merki þess að morðingj-
ar þeirra séu í tengslum
við mujahedin og hina
múslímsku fasista i Bosn-
íu líkt og morðin á tólf
kröatískum og bosnisk-
um byggjngaverkamönn-
um í síðasta mánuði
benda til.
Og hvað með Zhir-
ínovskíj og hina rúss-
nesku Disneyland-þjóð-
emisstefnu hans og hin
veikburða hagkerfi Aust-
ur-Evrópu? Þó að þeir
hlutir séu nú mjög áber-
andi í fréttum tel ég að
þeir muni ekki verða það
sem mestum usla valdi
árið 1994. Það verður
það sem er að gerast við
strendur Miðjarðarhafs-
ins.
Árið 1571 sigraði
spánska heimsveldið
flota Tyrkja við Lepanto
og tryggði þar með að
Miðjarðarhafið yrði
áfram „evrópskt haf“. A
síðustu tíu árum hefur
það breyst fyrir fullt og
allt. Flest bendir til að
þjóðir Júgóslavíu, Italir,
Alsírbúar, Egyptar og
nágrannaþjóðir þeirra
muni á þessu ári vekja
upp grundvallarspum-
ingar, sem himi sið-
menntaði heimur verður
að takast á við.
Gildi þjóðríkisins er nú
dregið i efa. Og hið
ástæðulausa og hugsun-
arlausa ofbeldi bosnísku
þjóðflokkanna bendir til
þess að grundvallaratriði
hins siðmenntaða þjóðfé-
lags séu þar orðin að
engu, sem þýðir að þær
venjur og þeir eiginleik-
ar, sem við höfum öðlast
í gegnum félagslega þró-
un undanfarinna 50 þús-
und ára, geti glatast að
eilífu. Það em skilaboðin
frá Saiajevo og Algeirs-
borg.“
Ef öryggi sparifjár skiptir þig máli
hefur þú ekki efni á að líta framhjá
erlendum verðbréfum
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
Um áramótin var hömlum með viðskipti
erlendra verðbréfa aflétt hér á landi.
Islendingar geta því fjárfest í erlendum
verðbréfum án fjárhæðatakmarkana.
VIB hefur nú til sölu erlenda verðbréfasjóði
sem stjórnað er af James Capel Unit Trust
Management Ltd. í Bretlandi. James Capel
rekur 18 verðbréfasjóði, þar af 7 vísitölusjóði,
en fyrirtækið hefur einbeitt sér að rekstri
þeirra og náð hvað bestum árangri í
heiminum á því sviði.
Þrátt fyrir miklar verðsveiflur geta erlend
verðbréf gefið góða ávöxtun og eru því
heppileg til áhættudreifingar. Kaupendur geta
valið um sjóði sem fjárfesta í verðbréfum í
Bretlandi, Evrópu, Bandaríkjunum, Japan eða
Asíu. Verðbréfasjóðir James Capel eru ætlaðir
til langtímaávöxtunar og hefur ávöxtun þeirra
að jafnaði verið góð.
Ráðgjafar VIB veita frekari uppljsingar um
verðbréfasjóði James Capel og einnig er hægt ab fá
sendar uppljsingar í pósti.
Verið velkomin í VÍB!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aöili aö Verðbréfaþingi íslands •
L Ármúla 13a, 155 Reykjavlk. Sími: 68 15 30. Myndsendir: 68 15 26.