Morgunblaðið - 05.01.1994, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994
*
Sinfóníuhljómsveit Islands
Fyrstu tónleik-
arnir á nýju ári
FYRSTU tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands á nýju ári verða
í Háskólabíói á morgun, fimmtudaginn 6. janúar, kl. 20. A efnis-
skránni verður Píanókonsert nr. 3 eftir Sergej Rakhmanínov og
Sinfónía nr. 3 eftir Anton Bruckner.
Nú að afloknum annasömum
jólamánuði hjá SÍ þar sem hljóð-
færaleikarar hljómsveitarinnar
léku m.a. á 27 sjúkrahúsum og
stofnunum er komið að fyrstu
áskriftartónleikum ársins 1994 og
eru þeir í gulri áskriftarröð. Það
er aðalhljómsveitarstjóri hljóm-
sveitarinnar Osmo Vánská sem
leiðir hana að þessu sinni. Vánská
hefur getið sér frægðarorð fyrir
geislaplötuupptökur, m.a. var
frumgerð fiðlukonserts Sibeliusar
sem hann stjórnaði valin besta
plata ársins 1991 af tónlistartíma-
ritinu Grammophone og á síðasta
ári hlaut hann Grand Prix du
Disque verðlaunin fyrir hljóðritun
á Storminum eftir Sibelius.
Pianóleikarinn Alexej Lubímov
sem ráðgert var að léki á þessum
tónleikum forfallaðist á síðustu
stundu en Iánið lék við SÍ og hing-
að fékkst finnski píanóleikarinn
Oili Mustonen. Mustonen þykir
með allra áhugaverðustu píanólei-
kurum sem uppi eru. Frábær
tækni og sérstæð túlkun hefur
heillað tónleikagesti um heim all-
an. Mustonen hefur leikið með
mörgum þekktustu hljómsveitum
og meðal annars undir stjórn
hljómsveitarstjóra eins og As-
hkenazy og Barrenboim. Samhliða
píanóleik er Mustonen afkastamik-
ið tónskáld.
Sú breyting er á áður auglýstri
efnisskrá að í stað píanókonserts
nr. 27 eftir Mozart verður fluttur
3. píanókonsert Rakhmanínovs.
Píanókonsertinn hóf Rakhmanínov
að semja árið 1909 en þá um
haustið var honum boðið í tón-
leikaferð til Bandaríkjanna. Lauk
hann við konsertinn af því tilefni
og frumflutti hann ásamt Sinfón-
íuhljómsveit New York borgar 28.
desember það ár.
Bruckner var ákaflega mikill
aðdáandi Wagners og er þeir hitt-
ust árið 1873 bað Bruckner tón-
skáldið mikla um leyfi til að til-
einka honum annaðhvort 2. eða
3. sinfóníu sína, en sú síðarnefnda
var þá enn í smíðum. Wagner valdi
þá nr. 3 vegna þess að í henni
voru nokkrar tilvitnanir í verk
hans. Frumflutningur verksins í
desember 1877 undir stjórn höf-
undar mistókst hrapallega.
Bruckner þótti viðvaningslegur
hljómsveitarstjóri, hljómsveitin var
ósamvinnuþýð og áheyrendur yf-
irgáfu salinn í stríðum straumum.
Sinfónían var endurskoðuð árið
1889 og það er sú útgáfa sem
verður leikin á tónleikunum 6. jan.
Þetta er í þriðja sinn sem sinfónían
er flutt hér á landi en hún var
síðast leikin árið 1969 undir stjórn
Alfreds Walters, þess sama og
mun nú á vordögum stjórna upp-
færslu á atriðum úr Niflungahring
Wagners á vegum Listahétíðar.
Morgunblaðið/Kristinn
Japanskir menningardagar
Japanskir menningardagar í
Reykjavík hófust um áramótin og
standa til næstu viku. Verðlauna-
Ijósmyndir frá Japan verða til sýnis
í ráðhúsinu til sunnudags og tvær
japanskar kvikmyndir verða sýndar
í Háskólabíói til 10. janúar. Ljós-
myndari Morgunblaðsins fylgdist
með japönskum tesiðameisturum í
ráðhúsinu á mánudaginn.
Fyrirtæki - sala - kaup
Eins og öll undanfarin ár þá endurnýjum við
spjaldskrána okkar í janúar. Vinsamlega hafið
samband hvort heldur um lítið eða stórt fyrir-
tæki er að ræða - því fyrr - því betra.
Höfum örugga kaupendur að öllum stærðum
og gerðum fyrirtækja, jafnvel uppí 70,0 millj.
staðgreítt ef fyrirtækin eru álitleg.
Allar uppfýsingar í fullum trúnaði.
[xnmmnLSŒm
SUÐURVERI
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Kaffi með Kristi nefnist sýning sem stendur yfir á Mokka við Skólavörðustíg.
Krossar og helgitákn
List og hönnun
Bragi Ásgeirsson
Kaffi með Krísti nefnist sýning
sem uppi hefur verið á Mokka
við Skólavörðustíg undanfarið og
stendur til 6. janúar.
Það er Hannes Sigurðsson list-
sagnfræðingur í New York sem
stendur að sýningunni, og kom
hann hingað gagngert til að
fylgja henni úr hlaði. í fréttatil-
kynningu stendur, að þetta sé
óvenjuleg sýning á Mokka, sem
telst þó algjör óþarfi því að hún
mælir með sér sjálf og hér á landi
virkar slíkur framsláttur manna
með listrænum athöfnum sínum
og annarra allt í senn hæpinn,
útjaskaður og marklítill. Kemur
rýninum í varnarstöðu og stillir
upp við vegg.
Þar stendur einnig, „að sýning-
in eigi sér ekkert fordæmi svo
vitað sé, hvorki utan lands né
innan“. Það mun og rétt vera,
því að ekki veit ég um slíkar sýn-
ingar á krossum og helgitáknum
frá öllum helstu kirkjufélögum í
Reykjavík hvorki innan lands né
utan. Hins vegar þætti mér hæp-
ið, að ekki hafi verið haldin sýn-
ing á krossum erlendis hvoru
tveggja samtíningur sem og í
sögulegu samhengi. í kirkjum er
svo iðulega ótölulegur fjöldi
margvíslegra krossa í glerskrín-
um, þótt vitskuld sé ekki um sér-
sýningar að ræða.
Tilgangur sýningarinnar er
sagður margþættur. „Henni er
meðal annars ætlað að fá fólk til
að hugleiða sambandið, eða öllu
heldur sambandsleysið, á milli
boðskapar jólanna annars vegar
og hins vegar hvernig þessi boð-
skapur er nýttur til að selja nán-
ast allt á milli himins og jarðar.
Til að fjalla betur um þessa hluti,
afdrif kristinna kenninga á hinu
hugmyndafræðilega „markaðs-
torgi guðanna", hefur verið leitað
til aðila úr ýmsum stéttum þjóðfé-
lagsins - bæði Jnnan og utan
kirkjunnar, trúaðra jafnt sem
„ótrúaðra" - í þeirri viðleitni að
varpa sem fjölbreyttustu Ijósi á
þetta- viðfangsefni. Þessi þanka-
brot mynda sýningarskrána sem
hægt er að fá á staðnum."
Jafnframt er mönnum bent á
að öllum er heimilt að lána krossa
á sýninguna, og verða þeir hengd-
ir upp á þriggja daga fresti á
meðan hún stendur yfir.
það er prýðileg hugmynd að
vekja athygli á boðskap jólahátíð-
arinnar, en hann telst nú ekki
einungis trúarlegur á þann hátt
sem við þekkjum til, þótt kirkjan
hafí eignað sér hann, heldur er
hér um ævafornan sið að ræða
er tefigist sólstöðum - hjá okkur
vetrarsólhvörfum. Sjálft jólahald-
ið mótaðist sem sé innan róm-
verska heimsveldisins og tengdist
í fyrstu ekki fæðingu frelsarans.
Kirkjan er sjálfsagt í fullum
rétti, því að hún er að halda upp
á fæðingu mannssonarins, en hins
vegar hafa þessi tímahvörf fyllt
manninn fögnuði og andakt frá
örófi alda. - Krossinn er í einfald-
leika sínum og sterku andstæðum
heimstákn. Og krossum við tvær
jafn langar línur, eina lóðrétta
sem sameinar og tengir hið efra
og neðra í heimi hér, og er um
leið ljósgeisli án upphafs og endis
- og eina lárétta, sem er tákn
yfirborðs jarðar og vatnsbrúnar-
innar, er komin einfaldasta tákn-
mynd heimsins.
Hin upprétta, lóðrétta lína
markar reisn og framkvæmda-
vilja og er þannig manndóms-
tákn, en hin liggjandi lárétta lína
markar grómögn alls heimsins,
og er hið ævaforna tákn sjón-
deildarhringsins og yfirborðs
jarðar. Hún táknar einnig hlut-
leysið, að leggja niður vopn, jafna
deijur og umbera hlutina.
í krossinum eru líka tákn frum-
efnanna fjögurra og í frumkristni
var hann ímynd þjáningarinnar
og þess raunveruleika sem menn
vildu helst ekki sætta sig við.
í hinni bysantísku rússnesku
austurkirkju og mörgum aðal-
geirum hennar forðuðust menn
myndlíkinguna af Jesú á krossin-
um, vegna þess að hann hafði
sjálfur vísað veginn til gleðinnar
og að sigrast á kvölum efnisins.
Krossinn er einnig táknmynd
þeirrar þjáningar sem er upphaf
allrar sköpunar, og í alþýðulist
og dulspeki hneigðust menn til
að klæða krossinn blómum sem
tákn hinna eilífu vaxtarmagna.
Krossinn er þannig í sjálfu sér
ekki tákn jólaboðskaparins, þótt
hann sé helgi- og sigurtákn kirkj-
unnar, og hefði sennilega verið
frekar við hæfi að setja þessa
sýningu upp á dymbilviku í tilefni
páskanna, til að minna á pínu
Krists.
Jólin eru vel að merkja tákn
gleðinnar og ferskra upphafinna
ljósbrigða á himnafestingunni.
En burtséð frá þessu er hér á
ferð mjög athyglisvert framtak,
sem vert er allrar athygli og sjálf
framkvæmdin hlýtur að vera
óvenjuleg ef ekki einsdæmi í
heiminum. Sýningunni er þannig
fylgt úr hlaði með viðamikilli sýn-
ingarskrá, sem ein sér ætti að
ýta við fólki og vafalítið kemur
heilasellunum á hreyfíngu hjá
mörgum sem lesa hana upp til
agna. í þessu borgarsamfélagi
síbyljusýninga, sem veita gestum
og gangandi takmarkaðri upplýs-
ingar um sýnandann og það sem
sýnt er, en nokkurs staðar á
byggðu bóli er þetta líkast hress-
andi vatnsgusu á skrokkinn í
miklum sumarhitum og logn-
mollu.
Og auðvitað er það lærdóms-
ríkt, að standa frammi fyrir sam-
safni þessa mikla heimstákns,
sem framkallar svo margræðar
hugrenningar um veröld sem var
og er, hina hreinu virkt og nekt
lífsins mitt í þessari glyshátíð
yfírborðsins.
En við getum víst ekki að því
gert, að hversu fáránlegt sem
þetta allt er fyllumst við andakt
og gleði yfir sjálfu sköpunarverk-
inu, og bræðralagshugsjónin er
aldrei jafn áþreifanleg og einmitt
í kringum vetrarsólhvörf og jóla-
hátíðina.
A sýningunni ber að sjálfsögðu
mest á krossum og tilfæringum
í kringum þá, en sitthvað fleira
getur þar að líta eins og t.d. hök-
ul frá kirkjunni á Stóranúpi sem
séra Valdimar Briem sálmaskáld
notaði frá því u.þ.b. 1885, og er
sniðið sagt vera í stíl við það sem
tíðkaðist fyrir siðaskipti. Þá er
þar gamall legsteinn erlendrar
gerðar, kannski 150 ára gamall
og á hann er greypt fangamarkið
IHS, Jesús Kristur frelsari mann-
anna. Frá kaþólsku kirkjunni er
m.a. „dauðakrossinn" - og eiga
tveir munkar að hafa dáið með
hann á sér. Hinn dularfulla blæ
sem krossakraðakið setur á veit-
ingasalinn kóróna svo tvö duftker
á hillu við enda hans, sem Kirkju-
garðar Reykjavíkur hafa vafalítið
lánað, sem eru notaðar til að
geyma ösku framliðinna (Urn).
Trúlega til að hnippa í fólk og
minna það á fallvaltleika lífsins
mitt í glaumi hátíðarinnar. „Af
jörð ert þú kominn og að jörðu
munt þú aftur verða“.
Islenzkir myndlistarmenn og
listhönnuðir hafa lagt hönd á og
gert verk í tilefni sýningarinnar,
eða lánað eldri verk sín, og setur
það sitt mark á hana og ekki allt-
af sársaukaþrunginn. Þannig er
verk Magnúsar Kjartanssonar
blanda af undurfurðulegri kímni
og trúspeki, og kross Asdísar Sig-
urþórsdóttur er ekki par rauna-
mæddur, — frekar tákn lífsmagna
og gleði. Sennilega er það sjálf
stemmningin á Mokka sem er
einstæð og mun hún virka mis-
jafnlega á fólk, sumir eru alveg
uppnumdir en aðrir eru minna
með á nótunum ogenn aðrir skilja
ekki hvert Hannes er að fara.
Trúlega er það einmitt megin-
veigurinn í gjörninginum, og
hvernig sem á allt er litið er hann
verður fyllstu athygli.