Morgunblaðið - 05.01.1994, Síða 16

Morgunblaðið - 05.01.1994, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR ö. JANUAR 1994 Börnin á gnla ljósinu eftir Auði Guðjónsdóttur i í desember sl. voru 19 ára gam- alli stúlku, Málfríði Þorleifsdóttur, dæmdar í Héraðsdómi Reykjavíkur slysaskaðabætur að upphæð 8,7 millj. króna ásamt vöxtum frá sept- ember 1988, en Málfríður mun vera 80% öryrki eftir dráttarvéla- slys er hún varð fyrir 13 ára gömul. Bæturnar skiptust að vanda í tvo megin þætti, þ.e. bætur fyrir þá tekjuskerðingu er áætluð er að Málfríður muni verða fyrir vegna örorkunnar til 67 ára aldurs og nam sú upphæð 6,2 millj. króna og svo miskabætur, en sú upphæð nam 2,5 millj. króna. Hér er á ferðinni merkilegt mál sem hafa mun fordæmisgifdi og á þeim forsendum hefur tryggingafé- lag það, er dæmt var skaðabóta- skylt í héraði, áfrýjað málinu til Hæstaréttar og mun réttinum vera ætlað að skera úr um það hvort ábyrgðartrygging ökutækja nái yfir dráttarvél sem er kyrrstæð og notuð sem vinnuvél. Komist Hæsti- réttur að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki, fær Málfríður að sjálfsögðu engar bætur, en komist rétturinn að hinu gagnstæða, þá mun það verða vandi hans að ákveða hvort Málfríði verði bætt allt það tekjutap er hún mun verða fyrir til 67 ára aldurs, en sú mun vera grundvallar- regla skaðabótaréttar, eða hluti af tekjutapinu. Heildarskaðabóta- krafa Máifríðar hljóðaði upp á lið- lega 35 millj. króna auk vaxta, en dómur héraðsdóms með vöxtum hljóðaði upp á liðlega 12 millj. króna. Þegar slysaskaðabætur eru gerðar upp er lögð til grundvallar skattaskýrsla og örorkumat og eft- ir því fer tryggingastærðfræðingur er hann reiknar út tekjutap viðkom- andi til 67 ára aldurs. Þegar ung- menni eiga í hlut er að sjálfsögðu ekki skattaskýrslu til að dreifa og hefur því í áranna rás myndast sú dómvenja að reikna ungmennum bætur sem samsvara meðallaunum iðnaðarmanna í 7 ár og hafa dreng- ir fengið 100% en stúlkur 75% af upphæðinni. Órorkutjónsmat Málfríðar er miðað við 75% af uppgefnum tekj- um iðnaðarmanna og margfaldað með 7. Málfríði eru því ætlaðar ævitekjur frá 13 ára aldri til 67 ára aldurs fyrrnefndar 12 millj. króna, liðlega 6 millj. króna í öror- kulífeyri, sem greiðast með jöfnum mánaðargreiðslum frá Trygginga- stofnun ríkisins til 67 ára aldurs, auk þess sem hún hefur 20% vinnu- getu. Til samanburðar má benda á að meðal ævitekjur opinberra starfsmanna eru í kringum 70 millj. króna. Geti Málfríður eitthvað unn- ið þannig að laun hennar fari yfir visst mark sér Tryggingastofnun fyrir því að draga af örorkulífeyris- greiðslum til hennar, þannig að hún hefur aldrei möguleika á að hækka laun sín. Málfríður hefur því verið dæmd láglaunamanneskja frá unga aldri, og sá réttur að sá duglegi megi njóta dugnaðar síns hefur verið dæmdur af henni. Það er dýrt að vera fatlaður og ekki er allt eins og heimurinn sér í þeim málum. Enginn veit nema sá er reynir við hvaða erfiðleika er tekist á við á bak við luktar dyr þegar veruleg fötlun á í hlut. Með tilkomu skaðabótalaga var tekið sérstaklega á bótamálum ung- menna. II Á árinu 1993 voru sett á alþingi fyrstu íslensku skaðabótalögin, og hefur það varla farið fram hjá nokkrum manni, að ekki eru allir á eitt sáttir um réttmæti þeirra. I því sambandi hafa fimm valinkunn- ir lögmenn sent bréf til allsheijar- nefndar alþingis — en sú nefnd hafði frumvarpið til meðferðar á sínum tíma — þar sem þeir benda á með rökum að samkvæmt nýjum skaðabótalögum muni fólk er slas- ast eftir 1. júií 1993, þ.e.a.s. eftir gildistökutíma laganna, aðeins fá bætt 60-65% af tekjutapi sínu, og eiga þeir þá væntanlega við það fólk er nýtt hefur vinnugetu sína á almennum launamarkaði fyrir slys. Óska þeir eftir að gerð verði lagabreyting, þannig að tjónþolar fái að fullu bætt tjón sitt og benda á í því sambandi hver sé grund- vallarregla skaðabótaréttar. Það er gott mál að löglærðir menn skuli nú sjá ástæðu til að berjast fyrir réttindum tjónþola framtíðarinnar og hefðu þeir betur gert það fyrr og er ég viss um að ekkert liggur þar að baki nema hrein hjarta- gæska. Hins vegar hefur löglært fólk látið það viðgangast í áratugi að skaðabótaréttur ungmenna hefur verið fyrir borð borinn og greinilegt er að Iögmönnum og dómurum hefur ekki þótt það næg ástæða til að æðrast yfir. Ungmenni, er slösuðust fyrir gildistöku skaða- bótaiaga og fengið hafa tjón sitt bætt samkvæmt skaðabótarétti, hafa ekki einu sinni fengið bætt 60-65% af raunverulegu íjárhags- tjóni sínu. Hefði Málfríður Þorleifs- dóttir verið 13 ára í dag, slasast og átt kláran skaðabótarétt, hefði hún fengið greidd umyrðalaust 80% af 16 millj. króna fyrir fjárhagslegt tjón og 80% af 4 millj. króna í miskabætur. Að sjálfsögðu mundu bætur stúlkunnar verða fjármagn- aðar þar til hún færi að sjá fyrir sér sjálf. Þarf því ekki neina æðri stærðfræðiþekkingu til að sjá að dómur héraðsdóms í máli Málfríðar hljóðaði ekki upp á bætur fyrir allt tjónið, því Málfríður var eignalaust barn er 80% af vinnnugetu hennar voru teknar frá henni, og tekur héraðsdómur ekki mið af því þjóð- félagsmynstri sem hérlendis við- gengst, en það er að stærsti hluti þjóðarinnar býr í eigin húsnæði, á bíl og innbú og á samt peninga til að lifa fyrir og leika sér. Ekki er því ástæða til að ætla að Málfríður hefði skorið sig mikið úr þjóðfélags- mynstrinu hefði hún ekki hlotið örorkuna. Samt sem áður er það augljóst að dómari sá er dæmdi mál Málfríðar í héraði hefur reynt að teygja sig eins langt í átt til nýrra skaðabótalaga og möguleiki var án þess að skapa öngþveiti. III Sagt er að skaðabótalög nr. 50/1993 séu fyrst og fremst til- komin vegna þrýstings frá trygg- ingafélögum, en ekki vegná þiýst- ings frá þeim er menntaðir eru til að gæta hagsmuna fólks í skaða- bótamáluhi. Með tilkomu lögleið- ingu bílbeltanotkunar hér á landi Ijölgaði mjög minniháttar sköðum, s.s. hálshnykkjum, sem metnir hafa verið til örorku á bilinu 10-20%. Tryggingafélögunum leiddist að vera stanslaust að greiða fólki út skaðabætur vegna tekjutaps sem það hafði í fæstum tilfellum orðið fyrir, ársuppgjör tryggingafélag- anna urðu óhagstæð og einhver ráð varð að finna til að rétta hlut þeirra. Það ráð var fundið að veðja á börn- in. Bent var á að þeir sem ekki gætu lagt skattaskýrslu til grund- vallar útreikninga á skaðabótum væru alltof illa bættir. Um það gátu allir verið sammála, en það varð að gerast á kostnað smærri skaðanna. Tryggingafélögunum í landinu hefur alltaf verið nákvæmlega sama um það hvort svindlað hafi verið á ungmennum og þau vöktu ekki athygli á óréttlætinu fyrr en þau sjálf gátu haft gott af því. í byijun haustþings 1993 fór ég að dæmi lögmannanna fimm og sendi bréf til allsheijarnefndar þar sem ég benti á þá mismunun sem Auður Guðjónsdóttir „Óskaði ég því eftir að lögin yrðu endurskoðuð og að lagt yrði fram frumvarp til laga þar sem bætt yrði við 8. grein nefndra laga 5. mgr.“ skaðabótalögin búa þeim ung- mennum er slösuðust fyrir og eftir gildistöku laganna. Ungmenni, er lamast hefur upp að bijósti í skaða- bótaskyldu slysi fyrir 1. júlí 1993, getur fengið allt að því 13 millj. króna lægri skaðabætur en ung- menni er lamast sambærilega eftir 1. júlí 1993. Tel ég að sú einstreng- ingslega dagsetning 1. júlí 1993 gefi ekkert svigrúm og að brotin hafi verið jafnræðisregla sú er haía ber í huga við setningu almennra laga þar sem þeir er slösuðust fyr- ir 1. júlí 1993 eiga verulegra hags- muna að gæta. Oskaði ég því eftir að lögin yrðu endurskoðuð og að lagt yrði fram frumvarp til laga þar sem bætt yrði við 8. grein nefndra laga 5. mgr. svohljóðandi: „Þau börn og ungmenni er hlotið hafa meira en 50% örorku vegna slysa og slösuðust fyrir 1. júlí 1993 og áttu óuppgerðar skaðabætur við gildistöku laga þessara, fái skaða- bætur uppgerðar samkvæmt þeim.“ Fjölmörg dæmi eru um aft- urvirkni laga í íslenskri löggjöf og verður það ekki talið ósamþýðan- legt stjórnarskrá. Með setningu skaðabótalaganna viðurkenndi löggjafinn að viðhorf dómstóla til skaðabóta ungmenna væri fyrir löngu úrelt og hefði átt að rétta hlut þeirra miklu fyrr. Einhvern veginn virðist sem sú stefna, sem lengi hefur verið ofar- lega á blaði heilbrigðisyfirvalda, að hjálpa fólki og þá sérstaklega ungu fólki til sjálfsbjargar eftir slys, hafi farið fram hjá dómurum. í dag býr ungt fatlað fólk út um allan bæ sem dómstólar hafa dæmt af réttinn til mannsæmandi lífs. Fróð- legt verður að fylgjast með þegar að því kemur að hæstiréttur tekur til meðferðar mál Málfríðar Þor- leifsdóttur. Komi í ljós að stúlkan eigi skaðabótaréttinn, tel ég víst að hæstaréttardómarar líti í eigin barm og hækki ævitekjur hennar eins og sínar eigin. IV Fari svo að alþingi sjái enga leið færa til lagabreytinga í þá átt að flytja þau ungmenni,. er festust á gula ljósinu 1. júlí 1993, yfir á það græna, verður það mál dómstóla. Af og til í tvö ár hef ég brugðið mér undir feld og reynt að hugsa upp lausn á málum barnanna á gula ljósinu, þannig að flestir megi við una. Mitt álit er að auðveldasta leiðin til að hreinsa upp gatnamót- in sé sú að landsfeður óski eftir því við tryggingafélögin að þau taki þau örfáu ungmenni, sem eiga kláran skaðabótarétt, slösuðust al- varlega fyrir 1. júlí 1993 og áttu þá óuppgerðar skaðabætur, undir sinn verndai'væng og greiði þeim skaðabætur samkvæmt nýju lögun- um. í staðinn mætti bjóða trygg- ingafélögunum skattafríðindi, ná- kvæmlega á sama hátt og þeim fyrirtækjum hefur verið boðið sem vilja styrkja stjórnmálaflokkana. Fari svo þyrfti hvorki allsheijar- nefnd né dómstólar að velta sér upp úr vandanum og tryggingafé- lögin yxu kannski í áliti meðal þjóð- arinnar. Það er sálarstríð að vaka daga og nætur yfir barni sínu sem allt í einu er orðið örkumla og heyir jafnvel harða baráttu við dauðann. Stórslys er hfstíðardómur, það er aldrei búið. í miðri slíkri hríð eru engir foreldrar tilbúnir til erfiðra málaferla en neyðast samt til að leggjaá brattann til að tryggja fjár- hagslega afkomu bæklaðs barns síns til framtíðar. Má ég því vin- samlegast biðja ráðamenn dóms- mála, allsheijarnefnd og trygg- ingafélög eina ferðina enn að skoða tillögur mínar gaumgæfilega, því öll erum við foreldrar í þessu landi að bjástra við það sama, en það er að koma börnum okkar til manns. Reynum því að vera skyn- söm og leysum vandamálin á þann hátt að það verði okkur til sóma. Dagshríðarspor geta sviðið svo sárt að undan blæðir, það vitum við öll sem komin eru til vits og ára. Höfundur er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum. BREFABINDI OG MÖPPUR fæst f öllum betri ritfangaverslunum Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson Gunnar Örn og Karl Eggertsson í söludeild Pósts og síma. Hvammstangi Ný birgðastöð Pósts og síma Hvammstanga. PÓSTUR og sími á Hvamms- tanga tók í notkun nýtt hús fyrir birgðastöð. Húsið er einingahús á einni hæð, 86 fermetrar. Gunnar Öm Jakobsson, síma- flokksstjóri, sagði húsið byggt fyrir umsvif Pósts og síma í Vestur- Húnavatnssýslu en þjónustusvæðið næði einnig yfir Bæjarhrepp í Strandasýslu. í húsinu er aðstaða til viðgerða, geymslurými og starfs- mannahald. Tveir menn annast þessa starfsemi í héraðinu. í tilefni dagsins hafði Póstur og sími á Hvammstanga opið hús og sýndi söludeildin nýjasta tæknibún- að og símtæki í birgðastöðinni. - Karl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.