Morgunblaðið - 05.01.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1994
19
Fjármálaráðuneytið um skattabreytingar um áramótin
*
Alagning skatta lækkar
um 1,1 milljarð kr. á ári
FJARMALARAÐUNEYTIÐ
áætlar að skattabreytingar sem
samþykktar voru á Alþingi fyrir
jól leiði til þess að álagning
skatta minnki um rúmlega 1,4
milljarða kr. á árinu 1994 og sem
svarar til 1,8 milljarða króna
árlega eftir það. Munar þar mest
um lækkun virðisaukaskatts á
matvöru. Á árinu kemur síðan
fram skerðing á vaxtabótum og
virðisaukaskattur á gistingu,
sem Alþingi lögfesti á síðasta ári
og skilar ríkissjóði 650-700 millj-
ónum króna, þannig að fjármála-
ráðuneytið metur skattalækkun-
ina 1,1 milljarð króna á ári, sem
svari til 0,5% kaupmáttaraukn-
ingar.
Samkvæmt útreikningum efna-
hagsskrifstofu fj ármálaráðuneytis-
ins lækka tekjur ríkisins um 2.600
milljónir á næsta ári og um 3.100
milljónir á heilu ári við lækkyn virð-
isaukaskattsins á matvæli úr 24,5%
í 14%.
Virðisaukaskattur lækkar ekki á
gosdrykkjum og sælgæti en vöru-
gjöld af þessum vörum lækka nokk-
uð. Jafnframt verða lögð vörugjöld
á nokkrar vörur sem virðisauka-
skattur lækkar á, svo sem kaffi og
te, ís, kartöfluflögur, saltstangir,
salthnetur, kryddkex, saltkex og
þess háttar og ýmis sykruð mat-
væli. Auk þess lækka vörugjöld á
málningu, steinull og einangrunar-
bandi en hækka á öðrum bygging-
arvörum. Samtals þýðir þetta 175
milljóna króna lækkun skatttekna
ríkisins á næsta ári en 165 milljóna
króna lækkun á heilu ári.
Kjarnfóðurgjald lækkar um 40
milljónir í heild og með því að rýmka
afskriftarheimildir fyrirtækja verð-
ur ríkið af 50 milljóna króna tekj-
um. Loks var lögum um virðisauka-
skatt á fargjöld og ferðaþjónustu,
aðra en gistingu, breytt þannig að
14% virðisaukaskattur leggst ekki
á þessar greinar um áramótin og
tryggingagjald á þessar greinar
lækkar ekki. Lög þessa efnis voru
samþykkt á Alþingi fyrir síðustu
áramót en þau komu ekki til fram-
kvæmda og má því deila um hvort
um er að ræða skattalækkun. Fjár-
málaráðuneytið metur þetta þó sem
85 milljóna króna skattalækkun á
næsta ári og 105 milljóna króna
lækkun á heilu ári. Samtals lækka
því tekjur ríkisins um 2.950 milljón-
ir á næsta ári og 3.460 milljónir á
heilu ári.
Tekjuskattshækkun
Á móti eru aðrir skattar hækkað-
ir. Tekjuskattur einstaklinga er
hækkaður um 0,35% til að mæta
lækkun á virðisaukaskattinum og á
það að skila ríkinu 585 milljónum
á næsta ári og 685 milljónum á
heilu ári. Tryggingagjald á atvinnu-
rekendur er hækkað um 0,35% og
skilar það 500 milljónum á næsta
ári og 560 milljónum á heilu ári.
Þá er bifreiðagjald hækkað um 35%
og skilar það 450 milljónum á ári.
Sérstakt bensíngjald, sem tekið
var upp í fyrra og er 4,50 krónur
á lítra, hækkar einnig um 5%, eða
rúma 20 aura, sem á að skila ríkis-
sjóði 285 milljóna viðbótartekjum.
Skattabreytingar ánæstaári Áhril m.v. heilt ár Áhrif 1994
Lækkun virðisaukaskatts af matvælum -3.100 -2.600
0,35% hækkun tryggingagjalds á atvinnurekendur 560 500
0,35% hækkun á tekjuskatti einstaklinga 685 585
35% hækkun á bifreiðagjaldi 450 450
Skerðing á vaxtabótum (samþykkt 1992) 400 400
Lækkun vörugjalds -370 -310
Breikkun á vörugjaldsstofni o.fl. 205 135
Virðisaukaskattur á gistingu (samþykktur 1992) 250 250
Fallið frá álagningu 14% VSK á fólksflutninga o.fl. -310 -265
Fallið frá lækkun tryggingagjalds á ferðaþjónustu, þó ekki gistingu 205 180
Lækkun kjarnfóðurgjalds -40 -40
Tekjuskattur fyrirtækja - rýmri afskriftarheímildir -50 -50
HEILDARÁHRIF -1.115 -765
Samkvæmt skilgreiningu ijármála-
ráðuneytisins er þar um að ræða
verðuppfærslu vegna verðlags-
breytinga en ekki beina skatta-
hækkun.
Á árinu kemur til framkvæmda
skerðing á vaxtabótum um 400
milljónir, sem lögfest var á síðasta
ári. Einnig leggst 14% virðisauka-
skattur á gistingu en trygginga-
gjald á þá starfsemi lækkar á móti.
Þær breytingar eiga að skila ríkis-
sjóði 250 milljónum króna. Samtals
er þetta 2.185 milljóna króna
skattahækkun á árinu 1994 og
2.340 milljónir á heilu ári.
Hækkun og lækkun
Inni í þessum tölum eru ekki þær
skattatilfærslur sem verða vegna
brejdinga á tekjustofnum sveitarfé-
laga þar sem þær eiga hvorki að
hafa hækkun né lækkun á sköttum
í för með sér að mati fjármálaráðu-
neytisins.
Um áramótin 92-93 var sú breyt-
ing gerð á tekjustofnalögum sveit-
arfélaga að aðstöðugjald var fellt
niður en sveitarfélögin fengu á
móti framlag frá ríkinu sem fjár-
magnað var að mestu með .1,5%
hækkun á tekjuskatti. Á árinu fell-
ur framlag ríkisins niður og því
lækkar tekjuskatturinn aftur um
1,5% en sveitarfélögin hafa heimild
til að hækka útsvar sitt á móti.
Sveitarfélögin höfðu mismiklar
tekjur af aðstöðugjaldi og verður
Reykjavíkurborg einna harðast úti
við tilfærsluna úr aðstöðugjaldi í
útsvar. í ljósi þessa lögfesti Álþingi
fyrir jól, að hámarksútsvar verði
hækkað úr 7,5% í 9,2% eða um
1,7%. Jafnframt var lögfest 8,4%
lágmarksútsvar. Það þýðir að í þeim
sveitarfélögum þar sem útsvar er
nú 6,9% eða minna hækkar útsvar-
ið um meira en 1,5%. Þetta á með-
al annars við um Reykjavík, Kópa-
vog og Vestmannaeyjar þar sem
útsvar er nú 6,7%.
Sveitarfélög verða að ákveða út-
svarsprósentu sína fyrir 15. janúar
en meðalútsvar í staðgreiðslu
hækkar um 1,5% og verður 8,54%.
Heildarskatthlutfallið í staðgreiðslu
verður því 41,69%.
Þá er skattur á verslunar- og
vgla
bréfabindi
Þið hringið - við sendum
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS • Hátún 10c
Símar. 688476 og 688459 • Fax: 28819
skrifstofuhúsnæði felldur niður sem
tekjustofn ríkisins en sveitarfélögin
hafa fengið heimild til að leggja á
samsvarandi fasteignaskatt. Einnig
hefur nú verið fellt niður landsút-
svar sem lagt var á olíufélög og
samsvaraði _ aðstöðugjaldi á önnur
fyrirtæki. Á móti er vörugjald á
bensíni hækkað úr 90% í 97%.
Skrifstofutækni
Við leggjum áherslu á vandað nám sem sniðið er að
kröfum vinnumarkaðarins og nýtist þér í atvinnuleit.
Bókfærsla
Ritvinnsla
Tölvubókhald
Töflureiknir
Verslunarreikningur
Gagnagrunnur
Tollskýrslugerð
Windows og stýrikerfi
Fyrir aðeins kr. 5000 á mánuði
Tölvuskóli íslands
sími 67 14 66 • opið til kl. 22
fr ' * - i
E* Metsölublad á hvetjum degi!
NY
INNHRINGI-
NÚMER
—° 0164 °—
o
0166
0168
Nú um áramótin tóku gildi
ný innhringi-númer fyrir Gagnahólf og
Gagnanetið. Þau verða 0164, 0166 og 0168.
Gömlu númerin 004, 006 og 008 verða notuð
samhliða þar til ný símaskrá tekur gildi.
BYRJUM NÝJA ÁRIÐ MEÐ NÝJUM NÚMERUM
á; ■
GAGNAHÓLF
PÓSTS OG SÍMA
GAGNANET
PÓSTS OG SÍMA
PÓSTUR OG SÍMI