Morgunblaðið - 05.01.1994, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1994
Hagvöxtur í Evrópu nú hvergi meiri en í nýfrjálsu Póllandi
Fjölgun nýrra einkafyr-
irtækja skiptir mestu
- segir Leszek Balcerowicz, fyrrum fjármálaráðherra
HAGVÖXTUR verður á þessu ári hvergi meiri í Evrópu en í
Póllandi, að sögn Leszek Balcerowicz, fyrrum fjármálaráðherra
Póllands og þekktasta hagfræðings landsins. Balcerowicz segir
í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten að þessi umskipti í
pólsku efnahagslífi beri fyrst og fremst að þakka aukinni verð-
mætasköpun í einkageiranum en þegar kommúnisminn leið undir
lok í Austur-Evrópu hleyptu Pólverjar af stað djarfri áætlun um
einkavæðingu og fráhvarf frá miðstýringu sem nú er tekin að
skila áþreifanlegum árangri.
Balcerowicz, sem er 47 ára,
stýrir nú rannsóknarstofnun í
hagfræði í Varsjá en á árunum
1989 til 1991 var hann fjármála-
ráðherra Póllands og var áætlun
sú sem þá var gerð um snögga
markaðsvæðingu efnahagslífsins
jafnan kennd við hann. Auk rann-
sóknarstarfa sinna ritar Balc-
erowicz dálka og vikulega heldur
hann erindi í útvarpi þar sem
hann kemur sjónarmiðum sínum
á framfæri. „Það er hægt að hafa
áhrif án þess að gegna opinberu
embætti," segir hann.
Pólverjar urðu fyrstir ríkjanna
í Mið- og Austur-Evrópu til að
hrinda í framkvæmd róttækum
breytingum á efnahagsh'finu sem
bundið hafði verið á klafa
kommúnisma og miðstýringar
áratugum saman. Nú kveðst Balc-
erowicz sjá teikn á lofti um veru-
legan efnahagsbata. Gert er ráð
fyrir að Iandsframleiðsla Pólverja
hafi aukist um fjögur prósent á
nýliðnu ári; hvergi í Evrópu er
að finna sambærilegar tölur.
Balcerowiez segir að aldrei hafi
komið til álita að velja „þriðju
leiðina" svonefndu sem margir
jafnaðarmenn og fyrrum komm-
únistar boðuðu árið 1989 er
kommúnisminn hrundi. Þessi öfl
boðuðu eins konar blöndu mið-
stýringar og markaðshagkerfis;
hægfara leið sem fara átti til að
viðhalda félagskerfinu á sama
tíma og varfærin skref yrðu stig-
in í átt til opins hagkerfis.
Balcerowicz minnir á að út-
gangspunktar manna í vestri hafi
verið allt aðrir en í Póllandi. í
raun hafi aðeins snögg og algjör
umskipti verið hugsanleg þó svo
vitað hafi verið að þau myndu
krefjast fórna af pólsku þjóðinni.
„í Austur-Evrópu var ekki til þró-
að kapítalískt hagkerfi líkt og í
vestri; verkefni okkar var að
skapa ný og arðbær störf. Við
hefðum aldrei getað fjármagnað
slík umskipti. Kommúníska hag-
kerfið átti að tryggja velferðarrík-
ið, málið var hins vegar að það var
gjaldþrota."
Þrýstihópum hafnað
Fjármálaráðherrann fyrrver-
andi segir að Pólverjar hafi verið
búnir að fá sig fullsadda af til-
raunum og því hafi ein slík í nafni
„þriðju leiðarinnar" í raun aldrei
verið valkostur. „Þegar við höfð-
um tryggt okkur pólitískt frelsi
fyrir tilstilli Samstöðu taldi ég að
okkur bæri að nýta það besta úr
reynslu þjóða heims. Og þetta
þýddi að við kæmum okkur upp
kerfi sem byggði á stöðugu gengi,
einkaeign, fijálsum markaði, fullri
þátttöku í heimsviðskiptum og
sem minnstum áhrifum þrýsti-
hópa.“
Mistök Rússa
Balcerowicz kveðst þeirrar
hyggju að Rússum hafi þegar orð-
ið á afdrifarík mistök á þessum
vettvangi. Stjórnvöld hafi bilað í
trúnni er áætlun um efnahagsum-
skipti mætti mikilli mótstöðu árið
1992. Þá hafi rússnesk stjórnvöld
einungis að mjög takmörkuðu
leyti gefið verðlag í landinu fijálst.
„Það sem er sérlega athyglis-
vert við reynslu Pólveija er eink-
um tvennt. í fyrsta lagi reyndist
einkafyrirtækjum ljolga mun
hraðar en við áttum von á og í
annan stað reyndist sú þróun vega
mun þyngra en einkavæðing ríkis-
fyrirtækja,“ segir Balcerowicz.
„Fyrsta áfallið reið yfir árið 1991
er Sovétríkin hrundu og þar með
viðskipti okkar í austri. Engu að
síður jókst verðmætasköpun í
Leszek Balcerowicz.
einkageiranum þetta árið um heil
33%!“
Leszek Balcerowicz telur að
sigur vinstriaflanna í þingkosn-
ingunum í Póllandi á sl. ári feli
ekki í sér ógnun við umbótastefn-
una. „Umbæturnar munu halda
áfram vegna þess að stefnan sú
hefur skapað grundvöll til að við-
halda sjálfri sér. Seðlabankinn er
að flestu leyti óháður og honum
er gert samkvæmt lögum að
stuðla að stöðugleika í efnahags-
málum. Að minnsta kosti 60% af
öllum umsvifum í pólsku efna-
hagslífi eru nú í höndum einkafyr-
irtækja og pólitísk áhrif þessa
fólks munu fara vaxandi. Konurn-
ar hafa hagnast mest vegna þess
að biðraðirnar hurfu nánast sam-
tímis og markaðsumbæturnar
voru innleiddar 1. janúar 1990.
Húsmæðurnar eyða ekki lengur
hundruðum klukkustunda í bið-
röðurn. Við erum á góðri leið með
að verða eðlilegt ríki,“ segir Lesz-
ek Balcerowicz.
NY STUNDATAFLA
byrjar í dag hjá MÆTTI!
Við óskum landsmönnum gleöilegs árs og
þökkum samstarfiö á liðnu ári.
Ný stundatafla tekur gildi frá og meö deginum í
dag með eftirtöldum námskeiðum:
• MORGUNLEIKFIMI • PALLALEIKFIMI
• ÞOLFIMI • VAXTAMÓTUN
• KVENNALEIKFIMI • PALLAHRINGIR
• ÞREKHRINGIR • STYRKING M - R - L
Ása Fönn Gillian Jenny
Guðmundur Hlynur
Vel menntaðir kennarar, með mikla
reynslu, sjá um dagtímana.
Frí barnagæsla er á staðnum.
FAXAFENI 14, REYKJAVÍK, SÍMI 689915
Rannsóknir á hitakærum örverum
Kviknaði fyrst líf
í iðrum jarðar?
New York. Frá Huga Ólafssyni, fréttaritara Morgunblaðsins
MARGIR vísindamenn telja nú líklegt að líf kunni að finnast miklu
dýpra í jörðu niðri en áður var talið og að heildarmassi þessa neðan-
jarðarlífríkis kunni jafnvel að vera meiri en þess sem við þekkjum
á yfirborðinu. Það voru rannsóknir á hitakærum örverum í hverum
á Islandi sem fyrst sýndu vísindamönnum fram á að líf gæti þrifist
við ótrúlega erfið skilyrði og opnuðu leiðina fyrir byltingarkenndar
tilgátur um líf í iðrum jarðar.
Þetta kemur fram í fréttum
bandaríska blaðsins The New York
Times, sem segir athuganir þýska
vísindamannsins Karls 0. Stetters
árið 1981 hafa verið „tímamót" í
rannsóknum á hitakærum örverum.
Stetter og samstarfsmenn hans
fundu hveraörverur á Islandi, sem
geta þolað hita um og yfir 90 gráð-
ur á Celsíus, eða meira en áður var
talið lífvænlegt. Överurnar eru
óskyldar gerlum og teljast til sér-
staks ríkis, sem á latínu nefnist
Archea, og sumir telja þær vera
beina afkomendur fyrstu lífveranna
á jörðinni.
Á síðustu árum hafa slíkar örver-
ur fundist í eldfjallagígum, á jarð-
hitasvæðum djúpt á hafsbotni og í
olíulindum á þriggja kílómetra dýpi.
Sumar þola allt að 110 gráðu hita
að jafnaði og hugsanlega upp að
370 gráðu hita í stuttan tíma. Þetta
þykir renna stoðum undir tilgátuna
um að áður óþekkt lífhvolf þrífíst í
örsmáum holum og sprungum í
berginu niður á allt að nokkurra
kílómetra dýpi, þar sem áðúr var
aðeins talin vera dauð klöpp. Vís-
indamenn víða um heim hyggja nú
á boranir og aðrar rannsóknir til
að kanna hve djúpt niður rætur lífs-
ins ná.
Sé efri hluti jarðskorpunnar ið-
andi af öiverum eru þær væntan-
lega flestar í grennd við rekhryggi
eins og ísland er á, þar sem bergið
er gljúpt og vatnsósa og jarðhiti er
nægur.
Tilvist slíks neðanjarðarlífríkis —
sem er enn ekki fullsannað — gæti
breytt mörgum hugmyndum manna
um lífið á jörðinni og jafnvel á öðr-
um hnöttum. The New York Times
vitnar í nokkra vísindamenn sem
telja líklegt að lífið kunni að hafa
kviknað fyrst neðanjarðar, en ekki
í sjónum, þar sem skjól var frá loft-
steinahríð og hættulegri geislun.
Þetta frumlíf hafi verið óháð sólar-
orku, sem er driffjöður nær alls lífs
sem við þekkjum á láði og legi.
Þannig kynnu allt að tíu reikistjörn-
ur og tungl í okkar sólkerfi að hafa
fætt af sér frumstætt líf, sem nærð-
ist á jarðhita en ekki sólarljósi.
Windows 3.1 • PC gninnur
hk-9281
Nauðsynlegur undirbúningur fyrir alla sem þurfa að nota PC tölvur.
Vandað námskeið sem skilar þér vel á leið.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
VeiWræðlstofa Halldórs Krístjánssonar
Grensásvegl 16 • stofnuð 1. mars 1986
CDU styð-
ur Herzog
KRISTILEGIR demókratar
(CDU) hvöttu í gær Helmut
Kohl, kanslara Þýskalands, til
að útnefna Roman Herzog, for-
seta þýska stjórnlagadóms-
stólsins, sem næsta forseta-
frambjóðanda flokksins. Stef-
fen Heitmann, fyrrum fram-
bjóðandi flokksins, dró sig í hlé
í nóvember sl.
Sendiherra
Súdans vísað
úr landi
BRETAR vísuðu í gær sendi-
herra Súdans úr landi til að
svara fyrir brottvísun breska
sendiherrans frá Súdan í síð-
ustu viku. Súdanir vísuðu Bret-
anum úr landi vegna heimsókn-
ar George Carey, erkibiskups-
ins af Kantaraborg, til kristinna
svæða í suðurhluta Súdan en
þar ráða uppreisnarmenn lög-
um og lofum.
Lucy eldri en
talið var
BANDARÍSKIR vísindamenn
segjast hafa komist að því að
ein elsta beinagrind sem fund-
ist hefur af manni, sé enn eldri
en talið var. Beinagrindin, sem
nefnd hefur verið Lucy, fannst
árið 1970 í Eþíópíu. Hún var
rannsökuð með nýrri leysigei-
slatækni og komust vísinda-
mennirnir að þeirri niðurstöðu
að Lucy væri yfir 3 milljón ára
gömul.
Vopnahlé í
Afghanistan?
ÍRANSKA útvarpið sagði frá
því í gær að nokkrir þeirra
hópa sem barist hafa í Kabúl,
höfuðborg Afghanistan, hafi
fallist á vopnahlé. Var haft eft-
ir talsmanni utanríkisráðuneyt-
isins að fulltrúar Burhanuddins
Rabbanis, forseta, og Gulbudd-
ins Hekmatyars, forsætisráð-
herra, hefðu fallist á friðartil-
boð írana frá því á mánudag.
Yeo neitar að
segja af sér
TIM Yeo, aðstoðarumhverfis-
ráðherra Breta, neitaði í gær
að segja af sér, þrátt fyrir mik-
inn þrýsting flokkssystkina
sinna í íhaldsflokknum. Fyrr-
verandi hjákona Yeos fæddi
honum barn í fyrra en hann
er kvæntur.
CIA rannsaki
geislatilraunir
BANDARÍSK stjórnvöld
ákváðu í gær að Bandaríska
leyniþjónustan (CIA) skyldi
taka þátt í rannsóknum á til-
raunum sem gerðar voru á
mönnum á tímum kalda stríðs-
ins og leiða áttu í ljós hvert
geislunarþol þeirra var. Hefur
jafnvel verið talið að CIA liafi
stjómað hluta tilraunanna.
Færeyingar
vilja auk-
inn kvóta
FÆREYINGAR hafa farið
fram á við Norðmenn, að þorsk-
og ýsukvóti þeirra í Barents-
hafi, norska hlutanum, verði
aukinn um 1.400 tonn á næsta
ári en hann var samtals 2.550
tonn á þessu. Kjartan Hoydal,
sjávarútvegsráðherra Færeyja,
segir, að Færeyingar krefjist
aðeins þeirrar hlutfallslegu
aukningar, sem orðið hafi á
heildarkvóta þessara fískteg-
unda í Barentshafi.