Morgunblaðið - 05.01.1994, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1994
Stutt pils og síð í ís-
lenskri hrossarækt
Reykur frá Hoftúnum fékk aðeins tvær hryssur annað gangmálið í
sumar vegna lélegra sæðisgæða sem nú eru komin í lag að sögn.
Hver vill nota Reyk á næsta ári?
Segja má að útför Þengils frá Hóli hafi farið fram á Kaldármelum
1992.
Sauðárkróki. Það má kannski segja
um þá Goða og Þengil að þar sann-
ist máltækið að svo bregðist kross-
tré sem aðrir raftar því báðir eru
þeir stórættaðir. Því ekki voru síður
bundnar vonir við Goða en Þengil.
Goði fór eins og Þengill á stóðhesta-
stöðina og biðu margir með öndina
í hálsinum eftir að beija hann aug-
um á sinni fyrstu sýningu fjögra
vetra gamlan. En til að gera langa
sögu stutta þá varð Goði aldrei fugl
né fiskur í þeim sýningum sem
hann kom fram í og náði aldrei
neinum vinsældum. Hér mætti einn-
ig nefna til sögunnar þá Höð frá
Hvoli sem stóð efstur fjögra vetra
stóðhesta á landsmóti ’82 og Topp
frá Eyjólfsstöðum sem glansaði svo
flott í gegnum tvær stóðhestastöðv-
arsýningar en fékk svo hormónasj-
okk á landsmóti 1990 að mati
hrossaræktarráðunauts. Síðar kom
fram að hann var síðubrotinn en
ekkert sannað hvort það væri
ástæða slakrar frammistöðu þrátt
Hestar
Valdimar Kristinsson
TÍSKUSVEIFLUR hafa öðru
fremur sett mark sitt á íslenska
hrossarækt síðustu árin sem
komið hefur fram í snarlega
breyttu áliti fjöldans á einstökum
stóðhestum. Hrossaræktarsam-
böndin hafa ekki farið varhluta
af þessum sveiflum og sum hver
tapað miklum fjármunum vegna
þeirra. í seinni tíð hafa stjórnar-
menn sambandanna reynt að
fara eftir breytilegum vilja aðild-
arfélaga um val á hestum til
kaups eða með öðrum orðum
eftir tískusveiflunni hveiju sinni.
Það má því segja að ekki sé leng-
ur eftirsóknarvert að fá sæti í
stjórn í hrossaræktarsambands
þar sem ríkir oft hálfgert „haltu
mér slepptu mér“ ástand.
Goði frá Sauðárkróki með sterka ætt að baki er föngulegur hestur
á velli en í framgöngu ekki eins og vonir stóðu til, er hann lítils-
virði fyrir hrossaræktina?
Telja má upp marga stóðhesta
sem komið hafa fram síðustu árin
og risið snögglega sem skærar
stjömur en hrapað jafn hratt niður
í ystu myrkur skömmu seinna. Flest
samböndin hafa fengið að upplifa
slíkt stjörnuhrap hests í sinni eigu
en sér í lagi á það þó við um stærri
samböndin þar sem helst í hendur
meiri kaupgeta og stífari kröfur
félagsmanna og jafnvel annarra.
Það kann að vera viðkvæmt mál
að fara að telja upp þessar fölnuðu
stjörnur en réttlætanlegt vilji menn
halda sig við raunveruleikann. Fyr-
ir nokkrum árum keypti Hrossa-
ræktarsamband Suðurlands Kára
frá Grund sem vakið hafði athygli
fyrir góðan fótaburð, tölt og klár-
gang sér í lagi. Varla hefur blekið
á ávísun sambandsins verið þomað
þegar vaskleg framganga Kára á
sýningu stóðhestastöðvarinnar eitt
árið fór að fölna í hugum manna
og ári seinna þótti hesturinn bæði
óalandi og óferjandi. Eðall frá Hól-
um skipaði þriðja sætið í flokki
fimm vetra stóðhesta á Landsmót-
inu á Vindheimamelum 1990 með
góðri umsögn, vel ættaður og allt
það, en tveimur árum seinna var
hann orðinn hálfgerður vandræða-
gripur hjá Hrossaræktarsambandi
Suðurlands. Skagfírðingar töldu sig
hafa himin höndum tekið þegar
þeir höfðu klófest Sikil frá Stóra
Hofi fyrir framan nefið á Sunnlend-
ingum og töldu sig þar með hafa
framlengt erfðir föður hans Sörla
frá Sauðárkróki. Sunnlendingar
sátu eftir með sárt ennið því mikill
áhugi var meðal þeirra að fá hest-
inn á Suðurlandið til kynbóta. En
ekki leið á löngu þar til Skagfirðing-
ar uppgötvuðu að Sikill frá Stóra
Hofi væri lítils nýtur og engan veg-
inn föðurbetrungur. Sunnlendingar
tóku við honum fegins hendi og
töldu Skagfirðinga hafa hlaupið á
sig en nú er Sikill í pragtuglegheit-
um suður á Ítalíu og spurningin
stendur um það hver græddi og
hver tapaði. Líklega hafa ítalir
grætt mest eða þá tapað minnst
því hesturinn fór þangað á mjög
vægu verði í samanburði við það
verð sem hafði verið greitt fyrir
þennan fyrrum kostagrip.
Góðir eða slæmir erfðavísar
Atakanlegast er þó dæmið um
Þengil frá Hólum sem af mörgum
var talinn best ættaði stóðhestur
landsins. Framan af var hljótt um
gæði hans þegar hann var taminn
á ijórða vetur á Hólum en Norðlend-
ingar höfðu fengið þá tilfinningu að
stóðhestar hlytu best brautargengi
á stóðhestastöðinni í Gunnarsholti
og var hesturinn því sendur þangað.
Ekki sló hann þar í gegn þótt margir
teldu hann mjög vænlegan til
kynbóta, hann þyrfti bara eitt ár enn
til að sanna sig, öfugt við móður
sína sem hlaut himinháar einkunnir
strax fjögra vetra gömul og stóð
alveg undir þeim að því er heyra
mátti á hestaunnendum árið ’82.
En eitthvað fór þetta úrskeiðis með
Þengil því segja má að útför hans
sem kynbótahests hafi farið fram á
fjórðungsmóti á Kaldármelum 1992
þar sem hesturinn steig vart hreint
töltspor allt mótið. Varð af því mikið
stjörnuhrap og klárinn sem var í
eigu þriggja hrossaræktarsambanda
var umsvifalaust settur á söluskrá.
Einhver útlendingur hreifst af
þessum ættfræðilega gullklumpi en
dýralæknisskoðun fyrir útflutning
leiddi í ljós spatt á báðum afturfótum
og er þar líklega komin skýring á
slæmri frammistöðu á áðumefndu
íjórðungsmóti. Eftir stendur
spurningin hver sé ástæðan fyrir
spattinu og í framhaldi hvort þama
sé hætta á erfanlegum veikleika.
Spumingunni verður svarað á næstu
flórum árum á að giska. En nú er
Þengill kominn í eigu norðlensks
bónda sem mun spila úr þeim góðu
eða slæmu erfðavísum sem Þengill
hefur að geyma.
Krosstré og aðrir raftar
En ekki er öll sagan sögð hjá
þessum þremur hrossaræktarsam-
böndum því þau keyptu tvo aðra
stóðhesta í pakka með Þengli og
virðist annar þeirra lofa góðu og
ætla að sigla veg vinsælda og far-
sælda en hið sama verður ekki sagt
um þann þriðja sem er Goði frá
BALLETT
Kennsla hefst
áný 10. janúar
Nemendur mæti á
sömu tímum og áður
Endurnýjun skír-
teina fer fram í skól-
anum laugardaginn
8. janúar kl. 12-14
BALLE TTSKÓLI
Guðbjargar Björgvins,
Iþróttahúsinu, Selljarnarnesi.
Ath.
Kennsla fyrir
eldri nemendur
byrjendur og
lengra komna.
Innritun og allar
upplýsingar í síma
620091 kl. 10.00-
16.00 daglega.
Félag ísl. listdansara.
MUSIKHIKFIMI
Við hjá íþróttafélagi kvenna viljum
bjóða stelpur á öllum aldri velkomnar
í músíkleikfimi okkar í Austurbæjar-
skólanum. Kennsla hefst fimmtudag-
inn 6. janúar og fer fram mánudaga
og fimmtudaga ki. 18-19.
Nánari upplýsingar í símum 870253 og 666736.
Hef opnað lækningastofu
i Domus Medica.
Tímapantanirdaglega ísíma 631051.
Stefán Dalberg,
sérgrein bæklunarskurðlækningar
4.