Morgunblaðið - 06.01.1994, Blaðsíða 12
12 C dagskrá
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1994
Ferill Eastwoods spannar 40 ár
og hann lætur ekki deigan síga
ÞRÁTT fyrir að ferill Clints Eastwoods spanni meira en 40 ár og
eftir hann liggi meira en 50 kvikmyndir er kappinn ekkert á þeim
buxunum að hætta, en hann stendur nú á hátindi ferils síns. Síðastlið-
ið sumar fékk myndin í Skotlinu, þar sem hann lék aðalhlutverkið,
góða aðsókn og nú nýverið lauk hann við gerð myndarinnar „A Perfect
WorId“, þar sem hann leikur aðalhlutverkið á móti stórstjörnunni
Kevin Costner, auk þess sem hann
Þessa dagana
stendur
leikarinn og
leikstjórinn
Clint Eastwood
á hátindi ferils
síns og eftir
hann liggja
meira en 50
kvimyndir.
Hann hafði
ætlað að hætta
I kvikmyndum
eftir gerð
myndarinnar
„Unforgiven“
en snerist
hugur og hefur
nýlega sent f rá
sér enn eina
myndina
leikstýrir myndmni.
Eastwood er nú orðinn 63 ára
gamall. Þegar hann !auk við gerð
kúrekamyndarinnar „Unforgiven"
árið 1992 ætlaði hann að hætta í
kvikmyndum og snúa sér að því að
verða gamall í ró og næði. Honum
að óvörum fékk myndin metaðsókn
og hlaut hin eftirsóttu Óskarsverð-
laun. Þá snerist honum hugur og
ákvað að halda áfram kvikmynda-
gerð og -leik. Eftir hann liggja marg-
ar metaðsóknarmyndir og nú undan-
farin ár hefur honum tekist að kom-
ast í hóp eftirsóttustu leikstjóra í
Hollywood.
Þegar hann er spurður hvemig
honum hafi verið innanbrjósts þegar
hann tók við Óskarsverðlaununum
fyrir bestu leikstjórnina segist hann
einfaldlega hafa verið mjög ánægð-
ur. „Ég bauð móður minni að vera
viðstödd athöfnina og í tilefni þess
keypti hún sér nýjan kjól og gerði
sér ferð til Los Angeles frá Carmel
í Kaliforníu, en hún var þá 84 ára
gömul. Ég var þess vegna mjög feg-
inn að fara ekki út tómhentur," seg-
ir hann.
Hann segir að það hafi verið rétt
að „Unforgiven" hafí átt að vera
hans síðasta mynd. „En ég ákvað
að halda ótrauður áfram þegar ég
var búinn að hugsa málið betur,“
segir Eastwood. „Á meðan fólk kem-
ur að horfa á myndirnar mínar mun
ég halda áfram.“
Og Eastwood hefur ákveðnar
skoðanir á því að setjast í helgan
stein. „Sumt fólk er heltekið af þeirri
hugsun að setjast í helgan stein og
þegar það svo gerist missir það áhug-
ann á öllu og veslast upp,“ segir
hann. „Ég held að ánægjan og orkan
sem maður fær út úr því að vinna
sé mikilvæg. Mannskepnan er ekki
sköpuð til þess að sitja og gera ekki
neitt.“
Ofbeldi mannskemmandi
Nýja myndin, „A Perfect World“,
fjallar um mannrán og hefur hún
fengið lofsamlega dóma gagnrýn-
enda sem telja hana eina bestu mynd
Eastwoods_ á leikstjórnarferlinum
hingað til. Áhorfendur hafa hins veg-
ar ekki verið eins áhugasamir og
gagnrýnendurnir, því fystu helgina
sem myndin var sýnd í Bandaríkjun-
um halaði hún einungis inn um 11
milljónir dollara, eða um 770 milljón-
ir króna, sem þykir ekki mikið í
Hollywood.
Þessar tvær síðustu myndir sem
Eastwood leikstýrði, „Á Perfect
World" og „Unforgiven", íjalla báðar
um ofbeldi á einn eða annan hátt
og þá sérstaklega hversu mann-
skemmandi það er. Þannig kveður
Veiöimaðurinn - Eastwood í hlutverki kvik-
myndaleikstjórans Johns Hustons í kvikmyndinni
„White Hunte, Black Heart“ en henni leikstýrði
hann einnig.
Einkalífið - Eastwood býr með leikkonunni Franc-
is Fisher og á með henni nokkurra mánaða gamla
dóttur.
Við leikstjórn - Eastwood Ieikstýrir Kevin Costner í myndinni „A
Perfect World“ sem nýlega var frumsýnd í Bandaríkjunum.
við nýjan tón hjá manninnum sem
er líklega þekktastur fyrir að leika
hörkutól á borð við Dirty Harry, sem
láta vondu mennina fá það óþvegið.
Ofbeldi er honum hugleikið og þá
sérstakleg afleiðingar þess fyrir
mannssálina og hann er ekki alls
kostar sáttur við hvernig fjölmiðlum
er ætíð kennt um ofbeldi í þjóðfélag-
inu.
„Þegar einhver stjórnmálamaður
þarf að vekja athygli á sjálfum sér
þá hefur hann baráttu gegn ofbeldi
í sjónvarpi," segir hann. „Sjónvarp
og skemmtiiðnaðurinn er svo auðvelt
skotmark því þar er aldrei borin hönd
fyrir höfuð. Auðvitað liggja rætur
ofbeldis dýpra en afþreyingariðnað-
urinn.“
Sem dæmi tekur hann þegar Janet
Reno, dómsmálaráðherra Bandaríkj-
anna, hóf baráttu sína gegn ofbeldi
í fjölmiðlum á síðasta ári. Hann seg-
ir að þær yfirlýsingar hafi misst
marks þegar áhorfendur horfðu upp
á harmleikinn í Waco í Texas þegar
Alríkislögreglan réðist til atögu við
sértrúarsöfnuð að skipan Reno.
„Þetta var líklega versta ofbeldið sem
sést hefur í sjónvarpi," segir hann.
Hefur leikstýrt 17 myndum
á ferlinum
Eins og áður segir liggja meira
en 50 kvikmyndir eftir Eastwood,
misgóðar og vinsælar eins og gerist
og gengur. Þeirra á meðal eru 17
myndir sem hann hefur leikstýrt
sjálfur. Fyrir utan Charles Chaplin,
Buster Keaton og Woody Allen hefur
enginn leikari leikstýrt sjálfum sér í
jafnmörgum myndum. Meðal helstu
myndanna sem hann hefur leikstýrt
má nefna „Play Misty for Me“
(1971), „The Outlaw Josey Wales"
(1976), „Broncho Billy" (1980),
„Sudden Impact" (1983), „White
Hunter, Black Heart“ (1990) og
„Unforgiven" (1992).
Auk þess að leika og leikstýra á
Eastwood sitt eigið kvikmyndafyr-
irtæki og þar hefur hann getað fram-
leitt og leikstýrt þeim myndum sem
hann hefur áhuga á. Hann segir
þetta hafa gengið vel og meðal ann-
ars leitt til þess að hann hafi getað
leikið margbreytilegri hlutverk en
annars. „Samt er það nú einu sinni
svo,“ segir hann, „að áhorfendur vilja
helst sjá mig í hlutverki hörkutóls-
ins“.
Eastwood er ímynd hörkutólsins
en þrátt fyrir það segist hann vera
meyr maður inn við beinið og iðulega
tárfella þegar hann horfi á hugljúfar
kvikmyndir. „Ég er tilfinningavera,"
segir hann. „Þegar ég horfí á mynd-
ir á borð við ET tárfelli ég eins og
margir aðrir.“
Og þó hann sé núna á hátindi fer-
ils síns kýs hann að hafa hægt um
sig í einkalífinu og eyðir Eastwood
mestum tíma sínum með fjölskyldu
sinni í Carmel. Hann er í sambúð
með leikkonunni Francis Fisher og
nýlega eignuðust þau saman dóttur.
Hann ferðast með þyrlu til Los Ang-
eles, þar sem skrifstofa kvikmynda-
fyrirtækis hans er til húsa, þegar
hann á þangað erindi. Fyrir á
Eastwood tvö börn, Kyle, 25 ára, og
Alison, sem er 21 árs.
BÍÓIN í BORGIIMIMI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIIM
Demolition Man ★ ★ Vi
Mikil keyrsla á köflum gera framtíðar-
sýnina „Demolition Man“ að skínandi
afþreyingu þó að hún sé ekki par
merkileg að öðru leyti.
Aladdín ★ ★ ★ Vi
Gamla góða ævintýrið leiftrar af frá-
sagnargleði og íslenska talsetningin
með Ladda í broddi fylkingar óað-
finnanleg. Fyrirtaks fjölskyldu-
skemmtun.
Skytturnar 3 ★ ★ Vi
Dæmigerð Hollywoodútgáfa á sögu
Dumas með þekktum leikurum af
yngri kynslóðinni. Ungu skytturnar
eru aldrei leiðinlegar enda góður hasar
í frásögninni.
Aftur á vaktinni ★ ★ Vi
Um flest lík fyrri myndinni um lögg-
urnar seinheppnu. Engu að síður fram-
bærileg afþreying.
Einu sinni var skógur ★ ★
Falleg teiknimynd með umhverfís-
vænu yfírbragði um lítil skógardýr
sem takast á hendur langt ferðalag.
BÍÓHÖLLIIM
Demolition Man (sjá Bíóborgina)
Aladdin (sjá Bíóborgina)
Addamsfjölskyldugildin ★ ★ ★
Addamsfjölskyldan er engri lík. Frum-
leg, kolrugluð en umfram allt bráð-
skemmtileg. Framhaldið er betra en
fyrri myndin.
Rísandi sól ★ ★ Vi
Philip Kaufman breytir metsölubók
Michaels Crichtons í of veigamiklum
atriðum til að myndin hans verði
spennandi en ekkert er til sparað og
hún er ágætlega kvikmynduð og leik-
urinn er góður.
Flóttamaðurinn ★ ★ ★
Dr. Kimble, flóttamaðurinn frægi frá
árdögum sjónvarpsins, mættur til leiks
í nýjum búningi. Tekst enn á ný eink-
ar vel að hafa ofanaf fyrir áhorfend-
um.
Skógarlíf ★ ★ ★
Eiri af gömlu Disneyperlunum segir
frá ævintýraferð drengsins Mógla úr
frumskóginum til mannabyggða.
Gamansemi og fjör allan tímann.
HÁSKÓLABÍÓ
Sönn ást ★ ★ ★
Nýjasta mynd Tony Scotts uppúr
handriti Quentins Tarantinos er ek.
sambland af „The Getaway“ og „Wild
at Heart“. Ofbeldisfull í meira lagi en
kómísk líka og leikaraliðið er frábært.
Ys og þys út af engu ★ ★ ★
Ærslafull, fjörug, fyndin og skemmti-
leg útgáfa Kenneths Branaghs á gam-
anleik Shakespeares. Góður leikur hjá
bragðgóðum leikhópi. Skáldið lifír
góðu lífi í höndum Branaghs.
Krummarnir ★ ★
Ósköp snofur en tjlþrifalítil dönsk
barna- og unglingamynd. Leikurinn
skammlaus en íslenska talsetningin
upp og ofan.
Addamsfjölskyldugildin ★ ★ ★
Addamsfjölskyldan er engri lík. Frum-
leg, kolrugluð en umfram allt bráð-
skemmtileg. Framhaldið er betra en
fyrri myndin.
Ungu ameríkanarnir ★ ★
Nýir og verri tímar í undirheimaveröld
Lundúnaborgar aðallega vegna áhrifa
frá Bandaríkjunum. Einfeldingsleg
heimsmynd í stílfærðri breskri hasar-
mynd með lagi Bjarkar Guðmunds-
dóttur.
Indókina ★ ★ ★
Falleg, hádramatísk, frönsk stórmynd
um miklar ástir og umbrot í Indókína
undir Frökkum. Catherine Deneuve
ógleymanleg.
Rauði lampinn ★★★
Fínleg, döpur en minnisstæð mynd um
tilgangslitla jafnréttisbaráttu kvenna
gegn karlaveldinu í Kína.
Jurassic Park ★ ★ ★ 'A
Ein af eftirminnilegu myndunum hans
Stevens Spielbergs hefur átt geysileg-
um vinsældum að fagna erlendis og
byijaði með látum hér heima. Stór-
kostleg ævintýramynd og ein af fáum
í seinni tíð sem er virkilega nauðsyn-
legt að sjá.
LAUGARÁSBÍÓ
.Geimverurnar ★ 'h
Gamanmynd um samskipti geimvera
og jarðarbúa er hvorki fugl né fískur.
Fullkomin áætlun ★ ★
Ef ekki hefði verið fyrir margumtalað
„hraðbrautaratriði" hefði þessi meðal-
unglingamynd um félaga í háskólaliði
í ruðningi fljótlega fallið í gleymskunn-
ar dá. Þriðji þátturinn ágætur og Caan
er góður sem þjálfarinn.
Hættulegt skotmark ★ ★ Vi
Ofbeldið er sett ofar öllu í andstyggi-
legri en spennandi drápsmynd.
REGIMBOGIIMIM
Maður án andlits ★ ★ ★
Ágætlega heppnuð frumraun Mel Gib-
sons á leikstjórasviðinu segir ljúfsára
sögu af brothættri vináttu manns sem
lent hefur utangátta í samfélaginu og
drengs sem tekst að opna leið að hon-
um.
Til vesturs ★ ★
Mjög misjöfn mynd á mörkum ævin-
týris og veruleika um frelsi og ánauð
á írlandi. Börn og dýr leika best.
Hin helgu vé ★ ★ 'h
Lítil og ljúf mynd um fyrstu reynslu
sjö ára drengs af ástinni og afbrýð-
inni. Yngstu leikararnir fara á kostum.
Óvenjuleg mynd frá Hrafni.
Píanóið ★ ★ ★
Einkar vel gerð og leikin nýsjálensk
verðlaunamynd um mállausa konu
sem kynnist ástinni í óbyggðum og
píanóið sem verður örlagavaldurinn í
lífí hennar. Gott mál.
SAGABÍÓ
Skytturnar 3 ★ ★ Vi
Dæmigerð Holiywoodútgáfa á sögu
Dumas með þekktum leikurum af
yngri kynslóðinni. Ungu skytturnar
eru aldrei leiðinlegar enda góður hasar
í frásögninni.
Aftur á vaktinni ★ ★ Vi
Um flest Iík fyrri myndinni um lögg-
urnar seinheppnu. Engu að síður fram-
bærileg afþreying.
STJÖRIMUBÍÓ
Old sakleysisins ★ ★ ★ ★
Stórkostleg bíómynd eftir Martin
Scorsese um ást i meinum á meðal
broddborgara New York á síðustu öld.
Leikurinn frábær. Nú hlýtur Scorsese
að vinna til Óskarsins, það er löngu
orðið tímabært.
Hrói höttur: Karlmenn í sokkabux-
um ★★
Mel Brooks virðist fallinn fyrir ofur-
borð meðalmennskunnar en hér tekur
hann á goðsögninni um Hróa hött, sem
vissulega á það skilið.
Svefnlaus í Seattle ★ ★ ★
Einkar aðlaðandi rómantísk gaman-
mynd um samdrátt manns og konu
sem teygir sig þvert yfir Bandaríkin.
Full af húmor og skemmtilegheitum
varðandi ástina og hjónalífíð.