Morgunblaðið - 08.05.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.05.1994, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR8. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ SAMTOL VIÐ BRESKA STJÓRNMÁLAMENN VII eftir Jokob F. Ásgeirsson „RÁÐUNEYTI Harolds Wilsons var ungt, sjálfsöruggt og málgefið," segir Annan lávarður á einum stað. Hann bætir við að Barbara Castle hafi verið einn af þeim ráðherrum Wilsons sem hafi verið málgefinn um of. Rikisstjórnarfundir stóðu tíðum í þijár klukkustundir og ekki vegna þess að sérstaklega örðug úrlausnarefni steðjuðu að heldur sök- um þess að ráðherrunum lá svo margt á hjarta. Og eftir þriggja tíma fund í ríkisstjórninni um morguninn fóru Barbara Castle og Tony Benn iðulega á fund í framkvæmdastjórn landsnefndar Verkamanna- flokksins (NEC) til að ræða um hvort ríkisstjórnin hefði farið útaf lín- unni. En ráðherrarnir í stjórn Wilsons voru ekki aðeins málglaðari en ráðherrar flestra ríkissljórna annarra, þeir voru jafnframt ritglaðari, en það fer sjaldan saman. Þrír ráðherranna, Richard Crossman, Bar- bara Castle, og Tony Benn, hafa birt ítarlegar dagbækur frá ráðherra- tíð sinni. Frægastar eru sjálfsagt dagbækur Crossmans, en dagbækur Castle þykja áreiðanlegastar. Dick Crossman sagði jafnan sína dagbók fyrir vikulega á sunnudagsmorgnum og end- urspeglaði frásögnin tíðum hvemig lá á honum í það og það skiptið. Auk þess blundaði í hon- um fræðimaðurinn, en hann hafði kennt í Oxford á árum áður og hann langaði til að feta í fótspor Walters Bagehots sem túlkandi bresku stjórnarskrárinnar. Bagehot sýndi sem kunnugt fram á það uppúr miðri nítjándu öld að framkvæmdavaldið væri í raun í höndum ríkisstjómar- innar en ekki kóngsins. Crossman taldi að nú væri svo komið að fram- kvæmdavaldið væri í höndum forsæt- isráðherrans eins en ekki ríkisstjóm- arinnar allrar, því hann hefði hið pólitíska veitingarvald og aðrir ráð- herrar yrðu að lúta vilja hans. En „vald“ forsætisráðherrans getur aldrei orðið föst stærð, heldur breyti- leg eftir aðstæðum í tímanum og styrk og manngerð þess sem emb- ættinu gegnir. Greining Crossmans er því fyrst og fremst lýsing á mögu- leika sem í embættinu felst og átti raunar miklu fremur við stjómar- hætti Thatchers en Wilsons. í sinni dagbók er Tony Benn mjög umhugað að sýna hvemig „göfug“ áform útvatnast í höndum embættis- manna og ístöðulausra ráðherra. En hann athugaði ekki að hin „göfugu áform“ voru tíðum loftkastalasmíð og þar sem hann þóttist sjá samsæri var oft einungis um að ræða nauð- synlega aðlögun að vemleikanum. Ólíkt þeim Benn og Crossman hafði Barbara Castle engin yfirlýst markmið með sínum dagbókarfærsl- um önnur en að segja frómt frá því sem á daga hennar dreif. Hún þykir greina samviskusamlega frá því hvað gerðist og ekki gera sig seka um að skramskæla staðreyndir til að þjóna einhveijum annarlegum tilgangi. Hún þykir jafnframt mjög hreinskil- in. Hún lýsir hvað henni fannst á hveijum degi og dregur enga dul á að henni fannst, eins og gengur, eitt í dag og annað á morgun. Barbara Castle las P.P.E. (heim- speki, stjómmálafræði og hagfræði) i Oxford. Að loknu námi var hún blaðamaður, m.a. á vinstri blaðinu „Tribune" þar sem hún komst i kynni við Sir Stafford Cripps, sem seinna varð fjármálaráðherra Attlees, og Aneuran Bevan, höfund bresku heil- brigðisþjónustunnar sem varð öðrum þjóðum fyrirmynd á eftirstríðsáran- um. í seinni heimsstyijöldinni vann hún um skeið í matvælaráðuneytinu. Jafnframt tók hún mikinn þátt í stjómmálabaráttunni og var m.a. kjörin í bæjarstjórn St. Pancras í London. Hún settist á þing 1945 við hinn mikla sigur Attlees og sat þar samfleytt til 1979 fyrir kjördæmi sitt, Blackburn. í stjórnarandstöðu á sjötta áratugnum gat hún sér orð sem einn atkvæðamesti stuðnings- maður Nyes Bevans, sem leiddi hinn róttæka arm flokksins. Hún var siðan ráðherra í ríkisstjórnum Harolds Wilsons 1964-70 og 1974-76. Barbara Castle vakti þjóðarat- hygli fyrir framgöngu sína sem sam- gönguráðherra á sjöunda áratugn- um. Þá löggilti hún m.a. notkun bíl- belta, fyrirskipaði lögreglunni að hafa uppá „drukknum" ökumönnum með því að mæla alkóhólmagn í blóði þeirra, og kom á 70 mílna hámarks- hraða. Þykir víst að á þeim tíma hefði enginn karlmaður treyst sér til að gera þessar ráðstafanir. Á sínum tíma þótti þama um að ræða stór- kostlega frelsisskerðingu og var Bar- bara Castle illa þokkuð af þessum verkum sínum. Enn þann dag í dag hittir maður menn sem bölva henni. Ber þá að hafa hugfast að með Eng- lendingum ríkir sterkari frjálsræðis- kennd en með nokkurri þjóð annarri en Bandaríkjamönnum og má þar t.d. nefna þann óhug sem slær á þjóðina þegar viðraðar era hugmynd- ir um útgáfu nafnskírteina. En það var í embætti vinnu- og framleiðnimálaráðherra seni Barbara Castle vakti mestan styrrinn. Ofríki verkalýðsfélaga hjó orðið að rótum hins lýðræðislega skipulags í Bret- landi. Árið 1964 töpuðust þar 2,3 milljónir vinnudaga vegna vinnu- deilna, en 1969 voru þeir orðnir 6,8 milljónir. Ríkisstjómin gerði sér ljóst að setja þyrfti nýja vinnumálalöggjöf ef efnahagsstefna hennar átti fram að ganga. Castle birti hvítbók um málið sem hún kallaði „In Place of Strife" (í stað deilna, 1969) og vís- aði þar til frægrar bókar átrúnaðar- goðs síns, Nyes Bevans, „In Place of Fear“ (í stað ótta, 1954). Nafn- giftin var skemmtilega út í hött, því að af hvítbókinni hlutust einhveijar mestu deilur í manna minnum innan Verkamannaflokksins. Lá við klofn- ingi í flokknum og líf ríkisstjómar- innar hékk á bláþræði í hálft ár. Verkalýðshreyfingin, sem átti mjög sterk ítök innan Verkamannaflokks- ins, snerist öndverð gegn þessum áformum og á endanum varð Castle og þeir sem studdu hana innan ríkis- stjómarinnar, þ. á m. forsætisráð- herrann sjálfur, að láta undan. Beið það Thatcher-stjómarinnar tíu áram síðar að færa starfsemi verkalýðsfé- laga í nútímahorf. Castle varð félagsmálaráðherra í stjóm Wilsons 1974, en fékk pokann sinn þegar Callaghan varð forsætis- ráðherra 1976. Þau Callaghan höfðu löngum eldað grátt silfur og var Callaghan sá ráðherranna sem harð- ast barðist gegn tillögum Castles í hvítbókinni 1969. Það er því kald- hæðni örlaganna að Callaghan skyldi sjálfur verða fómarlamb ofríkis verkalýðshreyfingarinnar, en lang- vinnar vinnudeilur veturinn 1979 lögðu granninn að kosningaósigri hans haustið 1979 og upphafi Thatc- her-byltingarinnar. Árið 1979 lét Castle af þing- mennsku til að gefa yngri frambjóð- anda tækifæri. Hún bjó dagbækur sínar til prentunar, en settist síðan á þing Evrópubandalagsins fyrir stór-Manchestersvæðið. Þar varð hún brátt einn atkvæðamesti sósíal- istinn á þingi. Árið 1989 dró hún sig í hlé, settist í Lávarðadeildina og tók að skrifa endurminningar sínar „Fig- hting All the Way“ (Barist til þraut- ar, 1993). Barbara Castle er nú almennt álit- in einn af bestu ráðherram Wilson stjómanna. Hún var harðdugleg, samviskusöm, og barðist hart fyrir málstað sínum. Stjórnmál vora henni köllun. „Henni fannst mig skorta hugmyndafræði," segir Jim Callag- han í endurminningum sínum, „og mér fannst hún stundum láta hug- myndafræðina ráða jafnvel þegar skynsemi hennar og eðlisávísun hefðu átt að segja henni annað." Bemard Ingham, harðjaxlinn frá Yorkshire sem var blaðafulltrúi Mar- grétar Thatchers, var á fyrri tíð vinstri sinnaður embættismaður og á sjöunda áratugnum um skeið náinn samstarfsmaður Barböru Castle. Ingham hreifst mjög af henni og sagði í samtali við Morgunblaðið sl. sumar að ef Verkamannaflokkurinn hefði haft hugrekki, hefði Barbara Castle getað orðið fyrsti kvenforsæt- isráðherra Breta. Þessi ummæli segja þó kannski meira um Ingham sjálf- an, þ.e. hversu hann laðaðist að þess- um konum með hinar afdráttarlausu skoðanir, en um kjark Verkamanna- flokksins. Á þeim tíma var Verka- mannaflokkurinn mun betur mann- aður en íhaldsflokkurinn. Roy Jenk- ins, James Callaghan, Anthony Crossland og Denis Healey voru t.d. allir mikil leiðtogaefni og á vinstri vængnum innan flokksins, þar sem Castle hefði notið mests stuðnings, voru menn eins og Michael Foot og Tony Benn sem ávallt hefðu komið fyrr til greina sem leiðtogaefni en hún. Barbara Castle var því ekki raunhæfur valkostur í leiðtogasætið. Hún býr í Buckinghamshire, miðja vegu milii Oxford og London, á býli sem ber það dularfulla nafn „Hell Comer Farm“ (Vítishornið). Hún kann enga skýringu á nafninu, en segir að þar séu vissulega á sveimi velviljaðir draugar. Hún er smávaxin, með rautt liðað hár og blá augu. Hún er nú 83 ára, en sýnist við hestaheilsu og iðar af lífsljöri. Hún segist halda sér ungri með því að Iifa lífinu eins og ekkert hafí í skorist. Einhveiju sinni þegar hún sat á þingi Evrópubandalagsins var hún beðin um að setja á fót nefnd um ellina. „Nei, takk,“ sagði hún. „Ég hef elst um tíu ár bara við að heyra spuminguna! Ég skal heldur setja á fót nefnd um það hvemig eigi að halda sér ungum.“ Nýverið lýsti hún í blaði dæmi- gerðum degi í lífí sínu. Hún kveðst vakna klukkan hálf sjö á hveijum morgni; drekkur te í rúminu og hlust- ar á BBC World Service áður en hún fer á fætur og gerir Iíkamsæfingar. Yfir morgunmatnum hlustar hún á fréttaskýringaþáttinn „Today“ á BBC Radio 4 og les „Guardian", sem hún segir að sé það blað sem komist næst skoðunum hennar. Að loknum morgunmat fer hún með hundana sína þijá í göngutúr. Síðan lokar hún sig af í vinnustofu sinni þar sem hún undirbýr ræður, skrifar greinar og svarar bréfum. Þá daga sem hún fer ekki til Lond- on að taka þátt í störfum Lávarða- deildarinnar, tekur hún sér hvíld um hálf eitt leytið. En áður en hún fær sér hádegisverð drekkur hún jafnan glas af gini til að slaka á. Eftir há- degismat sest hún gjarnan niður fyr- ir framan sjónvarpið og fær sér lúr yfir gamalli filmu í klukkustund eða svo. Þegar hún vaknar fer hún út aftur með hundana sína á göngu eða snuddar eitthvað í garðinum, en hann var stolt mannsins hennar, sem lést 1979. Hún segir að hann sé ennþá hjá sér og að hún tali við hann sí og æ með sjálfri sér. Síðla eftirmiðdags hverfur hún svo inn í vinnustofu sína á ný og situr venjulega við uns níu-fréttir hefjast í sjónvarpinu. Hún borðar ekki kvöld- verð, en fær sér oftast eitthvert snarl yfír sjónvarpsfréttunum. Hún les síð- an jafnan í bók hálftíma eða svo, en gengur þá til náða og sofnar á auga- bragði um tíu leytið. Þannig líður dagur í lífi Barböru Castle 83 ára. Barónessa Castle er ómyrk í máli um samtíma sinn: „Ég verð svo reið þegar ég lít í kringum mig og sé þetta hirðuleysis- lega kaupahéðnaþjóðfélag sem við búum í, þorrið hugrekki og siðferðis- þreki. Verkamannaflokkurinn verður að fínna leið til þess að gera þjóðina umhyggjusama á nýjan leik og vera nógu hugrakkur til að segja að það muni kosta peninga. En ég er ekki viss um að núverandi forysta í flokknum sé fær um það. Ég dáist að raunsæi hennar, en hana skortir ástríðu og reiði, hún er of upptekin af því að sýna fram á hversu sann- gjöm hún sé.“ Þrátt fyrir þann mikla skoðana- ágreining sem er með ykkur Mar- gréti Thatcher, kemur fram í ævibók þinni að þú gladdist yfír sigri hennar í leiðtogakjöri íhaldsflokksins og þú berð lof á hugrekki hennar. „Já, ég dáist að hugrekki hennar. Ég held að hugrekki sé mjög mikil- vægt í stjórnmálum. Og hún er frá- bærlega öragg með sjálfa sig. En sjálfsþótti hennar er yfirþyrmandi. Hvenær sem skarst í odda með henni og samstarfsmönnum hennar hafði hún sjálf alltaf rétt fyrir sér og þeir rangt fyrir sér. Slíkir stjórnmála- menn verða ekki langlífír. En hún hafði heppnina með sér. Hún naut þess að fá allar tekjumar af olíunni í Norðursjó. Þar fékk hún 118 billjón- ir punda að leika sér með og fjár- magna skattalækkanir til hinna efna- meiri. Hún var líka heppin í Falk- landseyja-stríðinu. Ef t.d. eldflaug hefði grandað skipinu sem Andrew prins var um borð í, hefði hún ekki staðið uppi sem vinsæll sigurvegari að stríðinu loknu. Hún var mjög heppin á ferli sínum, en hún var sannarlega hugrökk." Á sínum tíma réttlættir þú birt- ingu dagbóka þinna með því að segja að almenningi myndi fínnast hann standa nær stjómmálabaráttunni, ef hann fengi að vita hvað gerðist á bak við tjöldin. En núna virðist jafn- vel vera breiðara bil milli stjórnmála- manna og almennings en nokkru sinni á þinni tíð. Hvers vegna held- urðu að svo sé? „Það er vegna þess að það er enn- þá alltof mikil leynd yfír stjómarat- höfnum. Ef fólki væri trúað fyrir hvað verið er að gera, en ekki alltaf reynt að setja eitthvað á svið og láta eins og hlutimir séu öðruvísi en þeir raunveralega eru, væri öðravísi ástatt. Mér finnst það eigi ávallt að halda fundi með blaðamönnum eftir ríkisstjórnarfundi þar sem greint sé frá því hvað hafí verið til umræðu, hvers vegna, hvaða rök hafi komið fram, o.s.frv. Þannig myndi fólki fínnast það vera þátttakendur í stjóm landsins. Það er í raun ekkert leynd- ardómsfullt við það sem fram fer á ríkisstjórnarfundum. Vandamálin hrúgast upp — og við sitjum og ræðum mismunandi leiðir til að reyna að greiða úr þeim.“ Finnst þér stjómmálabaráttan vera óheiðarleg? „Fólk getur gert stjómmálin óheiðarleg og gerir það tíðum. Ég álít .t.d. að núverandi ríkisstjórn sé ekki vönd að virðingu sinni og ófyrir- leitin. Hún hefur falsað staðreyndir og snúið við stefnumálum til að villa um fyrir fólki. Þar að auki vann hún síðustu kosningar á lygi. íhaldsflokk- urinn sakaði okkur um að ætla að hækka skatta um einhver reiðinnar ósköp sem engu tali náði. Þeir hengdu upp veggspjöld þar sem sagði: Ef þú kýst Verkamannaflokk- inn muntu borga 1.250 pund á ári meira í skatta. Þetta var náttúrlega út í hött. Sjálfir lofuðu þeir að lækka skatta. Samt var þeirra fyrsta verk að hækka þá og það urðu þeir að gera vegna ástandsins í efnahags-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.