Morgunblaðið - 08.05.1994, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 08.05.1994, Qupperneq 12
12 B SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ eftir Huldu Valtýsdóttur, formann menningar- mólefndar Reykjavíkurborgar. MENNINGARMÁL verða sífellt fyrirferðarmeiri í daglegu lífi nútímafólks og því mikilvægt að borgaryfirvöld hlúi vel að þeim málaflokki. Reykjavík gegnir for- ystuhlutverki í menningarmálum á Islandi, enda hefur stuðningur borgarinnar við fjölþættar grein- ar menningar aukist stórlega á undanförnum árum. Sú aukning birtist m.a. í því að fjárframlag úr borgarsjóði til listrænnar starfsemi á vegum borgarinnar hefur þrefaldast á undanförnum árum og fjárframlag til listaver- kakaupa hefur tvöfaldast. Lista- verkasafn Reylqavíkur er nú hið umfangsmesta á Iandinu. Hulda Valtýsdóttir Fró Arbæjarsofni. Morgunblaðið/Emelía í Gerðubergi er rekin f jölþætt starfsemi sem tengist ýmsum hliðum menning- ar og félagslífs. Safn Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara hefur verið aukið að stærð og húsa- kynnin endur- bætt. Aðalsafn Borgar- bókasaf nsins mun innan skamms flytja í nýtt hús- næði við Aðal- stræti. Helstu menningarstofnanir sem reknar eru á vegum Reykjavíkurborgar eru: Kjarvalsstaðir, Borgar- bókasafn, Arbæjarsafn, Gerðuberg og Ásmundarsafn. Málefni þessara stofnana eru tekin fyrir á fundum * menningarmálanefndar ásamt öðr- um sem snerta lista og menningar- mál. Auk þessara fyrrnefndu stofn- ana er Borgarleikhús rekið að lang- mestu leyti með framlagi frá borg- arsjóði. Starfsemin á Kjarvalsstöðum hefur tekið nokkrum breytingum á síðustu árum. Útleigu sýningarsala hefur verið hætt en tekinn upp sá háttur að listamönnum er boðið til sýningarhalds sér að kostnaðar- lausu. Hefur sú breyting mælst vel fyrir enda aukið framboð á sýning- arsölum til leigu í borginni. í tengslum við sýningar á Kjarv- alsstöðum eru gefnar út vandaðar listaverkabækur, efnt er þar til tón- leika og staðið að kynningu á ljóð- um. Þá hefur og verið stofnað til safns um íslenskan arkitektúr sem ætlað er að safna heimildum um síðari tíma húsagerðarlist. Til nýjunga telst að tekið hefur verið upp samstarf milli Kjarvals- staða og Endurmenntunarstofnun- ar Háskóla íslands um námskeið þar sem íjallað er um sögu nútíma- listar og arkitektúr. Vegna mikillar aðsóknar er ákveðið að endurtaka námskeiðið á hausti komanda. Aðalsafn Borgarbókasafnsins mun flytja í nýtt húsnæði við Aðal- stræti innan skamms. Með stað- setningu þess við Ingólfstorg í hjarta borgarinnar og hagræðingu húsnæðis má gera ráð fyrir að starfsemi þess muni eflast til muna og hægt verði að fitja upp á ýmsum nýjungum, sem gera það enn virk- ara í borgarlífinu. Útibú frá Borgarbókasafni eru 5 talsins á víð og dreif um borgina. Auk þess rek- ur Borgarbókasafn 2 bókabíla, þjónustu, sem heitir Bókin heim, og sérstaka þjónustu við ýmsar stofnanir borgarinnar. Nú er verið að ljúka við hönnun á 6. útibúinu í Grafarvogshverfi. Árbæjarsafn hefur mjög fært út kvíarnar á undanförnum árum og notið vaxandi vinsælda borgarbúa. Þaðan er haldið úti uppgreftri forn- minja og rannsóknum á sögu og varðveislu gamalla muna. Safnið hefur húsavernd á sinni könnu og þar hefur verið skrásett mikið ljós- myndasafn. Staðið er að útgáfu þar sem fjallað er um efni sem tengj- ast safninu og þar eru haldnar sýn- ingar um ákveðið þema á hverju ári. Á sumrin er boðið upp á sér- staka dagskrá fyrir alla aldurs- hópa. I Gerðubergi er rekin fjölþætt starfsemi sem tengist ýmsum hlið- um menningar og félagslífs. Hæst ber tónleikahald sem einsöngvarar og einleikarar setja svip á. Tónleik- arnir hafa verið haldnir í samvinnu við Ríkisútvarpið og efni þerira síð- an gefið út á geisladiski. Safn Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara hefur verið aukið að stærð og húsakynnin endur- bætt. Mörg verka hans, stór og smá, hafa verið steypt í varanlegt efni og afsteypur gerðar af minni verkum. Sala á afsteypum hefur létt mjög undir með rekstur safns- ins. Þar eru settar upp nýjar sýn- ingar árlega á verkum Ásmundar. í sumar verður gengið frá lóðinni í kringum húsið. Stofnað hefur verið til víðtæks samstarfs við samtök listafólks í öllum listgreinum og haldinn hefur verið fyrsti kynningarfundur með fulltrúum þeirra. Akveðið var að halda slíkum fundum áfram með reglubundnum hætti. Á gjaldalið borgarsjóðs eru veitt um 5% til menningarmála að jafn- aði en það hlutfall er álíka og í öðrum höfuðborgum á Norðurlönd- um. Árið 1994 eru áætlaðar tæp- lega 560 milljónir af heildarútgjöld- unum sem eru alls um 13 milljarð- ar. Ástæða er til að fagna því að tillaga Sjálfstæðisflokksins í borg- arráði um að Reykjavíkurborg skuli sækja um útnefningu sem menn- ingarborg Evrópu árið 2000 var samþykkt samhljóða. í framhaldi þess er nauðsyn að gera nánari grein fyrir hvað í slíkri útnefningu felst og hvílíkur ávinningur það væri fyrir ísland og íslendinga að hljóta það hnoss. En frekari útlist- anir verða að bíða betri tíma. Hlutverk þeirra menningarstofn- ana sem reknar er af Reykjavíkur- borg er í höfuðatriðum þetta: 1. söfnun, 2. varðveisla, 3. úrvinnsla, 4. rannsóknir, 5. útgáfustarfsemi. Þess utan er í verkahring þeirra að halda skrá yfir listaverk og safn- gripi í eigu borgarinnar — viðhalda safngripum, halda uppi safn- kennslu fyrir yngri borgara sem eldri, standa að tónleikahaldi, fyrir- lestrum, námskeiðum, skipuleggja og samræma sýningar á vegum borgarinnar og efla samskipti við erlend söfn og menningarstofnanir. Sú starfsemi hefur aukist til muna á undanförnum árum og markvisst hefur verið unnið að því að kynna íslenska list erlendis, bæði nútíma- list og list frá fyrri tímum. Ráð- gerðar eru sýningar á verkum ein- stakra listamanna á næstunni sem og samsýningar á íslenskri sam- tímalist í ýmsum löndum Evrópu . Mjög hefur verið til umræðu hvernig koma megi til móts við íslenska listhönnun og listiðn í víð- tækum skilningi og skapa þeim greinum rými í reykvískum lista- söfnum. Lausn á þeim málum er í augsýn. Þá er og hvatt til þess að hvers konar sköpunarstarf fái meira svig- rúm í skólum borgarinnar í mynd- list, tónlist, söngmennt og Ieiklist. Reykjavíkurborg veitir tvenn starfslaun á hveiju ári, önnur til eins árs, hin til þriggja ára. Þá má geta þess að Reykjavíkur- borg á og rekur tvær gestavinnu- stofur fyrir erlenda listamenn í Reykjavík. Aðsókn hefur verið afar mikil og voru umsóknir á síðsta ári um 500 talsins. Þess utan er Reykjavíkurborg aðili að gesta- vinnustofu fyrir íslenska listamenn í París þar sem húsnæði er úthlut- að til nokkurra mánaða í senn. Reykjavíkurborg rekur sérstakt ljósmyndasafn sem er gríðarmikið að umfangi en þar er unnið að skrásetningu mynda og Reykja- víkurborg er aðili að rekstri Sinfó- níuhljómsveitar íslands. Korpúlfsstaðir Árið 1989 var samþykkt sam- hljóða í borgarstjórn að á Korpúlfs- stöðum skyldi rísa alhliða menning- armiðstöð og sérstök nefnd skipuð til að íjalla um undirbúning. Nefnd- inni til aðstoðar voru embættis- menn og fulltrúar frá bygginga- deild borgarverkfræðings. Verkefnið er tvíþætt: Varðveisla og endurbygging hússins að Korp- úlfsstöðum og hönnun og skipulag alhliða menningarstarfsemi innan- húss. Unnið var jöfnum höndum að könnun og úttekt á steypu og burð- arþoli af þar til kvöddum sérfræð- ingum og fyrirkomulagi starfsem- innar innanhúss. Hönnunarvinnu er nú að mestu lokið og hefur kostnaður við hana staðist ágætlega. Hins vegar hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um hvernig að endurbyggingu skuli staðið. Frekari ákvörðun um fram- hald hefur verið frestað um sinn með tilliti til alvarlegs ástands í atvinnumálum í borginni og því eðlilegt að íjármagni borgarsjóðs sé fyrst og fremst varið til að bæta úr á þeim vettvangi. Að lokum: Þeir sem nokkur kynni hafa af því fjölþætta menn- ingarstarfi sem rekið er á vegum Reykjavíkurborgar geta varla ann- að en glaðst yfir auknum áhuga almennings á þessum málaflokki. Það er mikilvægt að við sinnum menningarhlutverki okkar af reisn — bæði hérlendis og í samfélagi þjóðanna — enda viljum við tengja tilveru okkar menningararfinum. Mér fínnst ástæða til þess í til- efni þessara skrifa að benda á það öfluga starf sem nú er rekið í menn- ingarstofnunum borgarinnar og að það er fyrst og fremst að þakka þeim embættismönnum sem þar eru í forsvari og starfsmönnum þeirra, enda hefur aðsókn aukist jafnt og þétt. Þar eru fólgnir lyklarnir að far- sælu menningarlífi í Reykjavík samhliða vaxandi áhuga borgar- stjórnarmeirihlutans á þeim mála- flokki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.