Morgunblaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 27
26 SUNNUDAGUR 15. MAÍ1994 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 27 2K*v0iiiiÞIðfrtfe STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, iþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. Lappað upp á kvótakerfið ví hefur verið haldið fram, að með þeim breytingum, sem Alþingi samþykkti á lögum um fiskveiðistjórnun og samþykkt laga um Þróunarsjóð hafi núver- andi kvótakerfi verið fest endan- lega í sessi. Þetta er mikill mis- skilningur. Alþingi samþykkti að lappa upp á það kvótakerfi, sem fyrir var í sjávarútvegi. Þær við- bætur breyta engu um þann grundvallarágreining, sem til staðar er í sjávarútvegsmálum. Það er eins með kvótakerfið í sjávarútvegi og haftakerfið fyrr á árum; alþingismenn hamast við að stoppa upp í alls konar göt á kerfinu en það springur að lokum vegna þess, að það er einfaldlega ekki hægt að binda heila atvinnu- grein í slíka fjötra margvislegra reglna. Sem dæmi um það hvers konar miðstýrt regluflóð er verið að búa til í kringum sjávarútveginn skal birtur hér kafli úr frétt í Morgun- blaðinu í gær, þar sem leitast er við að útskýra fyrir lesendum blaðsins, hvað Alþingi samþykkti. Þar segir m.a.: „Auk þess er lagt tímabundið bann við því að flytja aflamark tii skips, ef meira en 15% aflamarks af sömu tegund hafa verið flutt af skipinu á fiskveiðiár- inu og öfugt. Samkvæmt því er óheimilt að flytja áflamark af ein- hverri fisktegund til skips, hafi me'ira en 15% aflamarks af sömu fisktegund verið flutt frá skipinu til skipa í eigu annarra útgerða. Á sama hátt er óheimilt að flytja aflamark frá skipi, þegar meira en 15% af upphaflegu aflamarki skipsins af viðkomandi fisktegund hefur verið flutt til skipsins frá skipum í eigu annarra útgerða. Þetta ákvæði, sem átti upphaf- lega að vera ótímabundið, var gagnrýnt mjög af ýmsum aðilum. Samkomulag varð þá um að setja sólarlagsákvæði á 15% regluna, þannig að hún falli úr gildi í árs- lok 1995. í stað þess kemur til framkvæmda nýtt ákvæði. . .“!!! Morgunblaðið hefur að undan- förnu hvatt til þeirrar málamiðlun- ar í deilunum um sjávarútvegs- stefnuna, að stjórnvöld ákveði ein- ungis tvær tölur, sem sjávarútveg- urinn þurfi að taka mið af: annars vegar hámark þess afla, sem taka má af hverri fisktegund á fisk- veiðiárinu. Hins vegar gjald fyrir aðgang að fiskimiðunum. Að öðru leyti ákveði útgerðarmenn og sjó- menn sjálfir, hvernig þeir haga þessum veiðum án afskipta Al- þingis, ráðherra og embættis- manna. Það má orða þetta á annan veg; sjávarútvegsfyrirtæki óg sjómenn taki fiskimiðin á leigu af þjóðinni og skuldbindi sig til þess að hlíta ákvæðum stjórnvalda um há- marksafla og jafnframt til þess að greiða þjóðinni leigu á hverju ári fyrir afnotin af fiskimiðunum. Leigutakarnir ákveði síðan sjálfir, hvernig þeir nýta þá auðlind, sem þeir hafa tekið á leigu. Með þessum hætti er öllu rétt- læti fullnægt: atvinnugreinin sjálf fær frelsi til þess að stunda sína atvinnustarfsemi án þess að „15% reglur" og „sólarlagsákvæði" blasi við hvert sem litið er. Eigandi auðlindarinnar fær sitt og leigj- andinn skuldbindur sig til að fara vel með eignina með því að nýta hana ekki umfram ákveðið há- mark. Borges 1899-1986 ÍSLAND ÁTTI'SPÖL í landi þarsem þeir voru Auden og Borges. Þeir voru um sína daga höfuðljóðskáld á enska og spænska tungu og einatt talað um þá sem væntanlega Nóbels- höfunda en sænsku akademíunni þóknaðist að ganga framhjá báðum. Borges skrifaði óviðjafnanlegar smá- sögur, en hann var ekki hrifínn af skáldsögum, sagði að íslendinga sög- umar væru samdar uppúr smásögum (Samtöl - M, II, 219). Guð er í smá- atriðunum, sagði Flaubert. Og Hegel sagði skáldsögur væru söguljóð borg- arastéttarinnar í óbundnu máli. Joyce sannaði það endanlega. Þegar ekkja Borges, Maria Kod- ama Borges var hér á ferð sagði hún mér frá því að skáldið hefði einungis brosað að þessu tali um Nóbelsverð- laun og sagðist fá svo mikla samúð vegna þess að framhjá honum væri gengið að hann hefði ekki við að veita allskyns heiðri viðtöku, En ef ég fengi Nóbelsverðlaun, sagði hann, þá myndu allir hætta að vorkenna mér og ég yrði af allri þessari viður- kenningu! Borges sagði við mig á sínum tíma að hann gæti ekki fengið Nóbelsverðlaun því hann væri ekki fulitrúi fyrir neitt - nema bókmenntir. Maria giftist skáldinu nokkrum misserum áðuren hann dó, 87 ára gamall, en þá var hún enn í blóma lífsins og ég gizka á hún hafi verið innan við fimmtugt. Áður var ást hennar bundin persónu hans, nú elsk- ar hún minningu hans. Það leiddi huga minn að því sem Borges sagði eitt sinn við mig þegar við vorum staddir i námunda við Miklatorg og hann greip í handlegginn á mér og sagði allt í einu, Viltu kaupa af mér minningu Shakespeares? Hann sagð- ist geta selt minningu Shakespeares og vildi fá fyrir hana nokkurra daga dvöl á íslandi. Það var ótrúlegt hvem- ig hugur þessa mikla skálds gat snú- izt um land okkar og arfleifð. Maria sagði mér að á legsteini hans stæði setning úr Völsunga sögu og hún fór með fyrri hluta hennar á íslenzku, Þá tók Sigurðr sverðit Gram ok kastar eftir honum... Þegar þau giftu sig fluttust þau til Genfar þar- sem Borges stundaði ungur nám. Og HELGI spjall þar er hann grafinn. Maria upplifði skiln- að foreldra sinna eins- og kemur fram í sam- tali Súsönnu Svavars- dóttur við hana í menn- ingarblaði Morgun- blaðsins (14. maí 1994) ogþess vegna tengdi hún ávallt sársauka við hjóna- bönd og vildi ekki giftast þegar Borg- es hafði orð á því fyrir mörgum árum. En þau voru tengd óijúfandi böndum og hún sagði við hann hún skyldi giftast honum ef dauðinn væri á næstu grösum. Og það gerði hún þegar hann fékk krabbamein í lifr- ina. Móðir hennar, sem býr í New York, snerist öndverð gegn gifting- unni og hefur ekki talað við einka- dóttur sína frá því hún tók þessa ákvörðun, Hún er sterk kona og merkileg, segir María, en hún getur ekki fyrirgefið mér því hún ætlaði mér annað. Þau Borges bjuggju nokkum tíma á hóteli í Genf og einsog hann vildi selja mér minningu Shakespeares þá vildi hann selja hótelstjóranum dauða sinn. Maria segir að hann hafí kennt sér. flest — og þá ekkisízt að deyja. Hann gekk á fund hótelstjórans og sagði, Eg er tilbúinn til að selja þér dauða minn og það borgar sig fyrir þig að kaupa hann. Við fáum að dvelj- ast hér í hótelinu þangaðtil ég dey en þá getur þú sett plötu á hótelið þarsem stendur Jorge Luis Borges lézt í þessu hóteli. Hótelstjórinn varð undrandi og sagðist ekki skilja þetta grín, en þá sagði Borges, Mér er fullkomin alvara, og vísaði til Mariu sem staðfesti hann ætti stutt eftir. Skáldið reyndi að sannfæra hótel- stjórann um að það borgaði sig fyrir hann að taka þessu tilboði því það yrðu margir sem vildu sjá hótelið þarsem Borges hefði dáið. í París, sagði hann, auglýsa þeir hótelið þar- sem Oscar Wilde lézt og þeir græða mikið á herberginu þarsern hann bjó síðustu dagana sem hann lifði. En hótelstjórinn í Genf lét ekki segjast. Hann vildi ekki skáldið dæi — og allra sízt í sínu hóteli. Hann varð því af auglýsingunni og þau Maria fluttust í íbúð sem forleggjari skáldsins útvegaði þeim í Genf. Borges þjáðist ekki. Og hann tók dauða sínum með stóískri ró. Hann hafði sagt mér hann hefði lítinn sem engan áhuga á dauðanum en því skemmtilegra þótti honum að lifa. Hann var einsog Steinn, efasemdar- maður, og vonaði það bezta. Við Borges töluðum mikið saman þegar hann var hér á ferð. Ég hélt Maria væri ritarinn hans og þegar ég nefndi það við hana brosti hún og sagði, Ég hef aldrei verið ritari hans! En ást okkar var dýrkeyp. Fjöl- skyldan reis öndverð gegn gifting- unni og það var reynt að búa til hneyksli úr sambandi okkar. Líf okk- ar hefur verið einsog íslendinga saga, en nú er þessum átökum lokið. Og ég einbeiti mér í friði að Borges-safn- inu í Buenos Aires. Borges langaði að fara á Þingvöll og við fórum þangað saman. Hann var svo gagntekinn af stað og stund að það var engu líkara en hann hyrfi inní umhverfíð. Samt sá hann það ekki vegna blindu. Við gengum inní Almannagjá, hann hlustaði á niðinn í Öxará og heyrði hrafna Óðins krunka í kyrrðinni. Það var svalt en skaplegt veður. Við gengum uppá Lögberg og þá sagði hann, Þetta er helgur staður — og ég fann hann átti við að Þingvellir voru ekki ein- ungis helgur staður fyrir okkur fs- lendinga heldur var Lögberg honum einnig heilög jörð. Hann strauk hraunið og hann strauk mosann og blómfléttumar. Og hann horfði yfír vatnið og hann hlustaði á nið aldanna og við rifjuðum upp sögu og bók- menntir. Veruleikinn leystist upp í tímalausri eilífð. Við gengum aftur inní Almannagjá og hann klappaði berginu og hlustaði á fuglana og hann sagði við mig, Væri þér sama þótt þið gengjuð útúr gjánni og skilduð mig eftir einan. Já, sagði ég, að sjálfsögðu. Ég ætla að fara upphátt með spænskt kvæði, sagði hann, og skilja það eftir þarsem bergmálið er einsog þögnin. Hann gekk aftur inní gjána en við að bíln- um. Ég veit ekki hvaða kvæði hann skildi eftir i Almannagjá því ég spurði einskis. Hann hafði kippt í handlegg- inn á mér og sagt fagnandi, Ég sé svarta hamraveggina og himininn. Kannski muna þessir veggir og þessi himinn eftir skáldinu og ljóðinu sem hann flutti inní þessa sögulegu þögn og ég hef látið mér detta í hug að huldan hafi gengið útúr fossinum og hlustað. M (meira næsta sunnudag) MORGUNBLAÐIÐ REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 14. maí ■hmh wjmm OSNINGABARÁTTAN, sem nú stendur yfir vegna borgarstjórnar- kosninganna, sem fram fara eftir tvær vikur, vekur athygli fyrst og fremst fyrir þá sök, að enn sem komið er snýst hún ekki um málefni. Þetta er í fyrsta skipti í áratugi, sem engin stór mál eru til umræðu af hálfu frambjóðenda til borgarstjórnar Reykjavíkur þannig að tekizt sé á um þau og borgarbúum gert ljóst um hvað er að velja. Þetta er þeim mun undarlegra, þar sem ýmis brýn úr- lausnarefni blasa við. Það á ekki sízt við um atvinnumálin. Hvers vegna eru engin átök um málefni í kosningabaráttunni? Skýringin getur ekki verið önnur en sú, að sá framboðslisti, sem sækir á í því skyni að fella meirihluta sjálf- stæðismanna í borgarstjórn, hefur ekki fundið neina málefnalega fótfestu í kosn- ingabaráttunni. Frambjóðendur R-listans hafa ekki fundið þá veiku bletti á meiri- hlutastjórn sjálfstæðismanna í Reykjavík, að það hafi gert þeim kleift að hefja harða málefnalega sókn á hendur Sjálfstæðis- flokknum í borgarstjórn. Vandamál frambjóðenda R-listans að þessu leyti er auðvitað það, að í öllum megindráttum hefur Reykjavíkurborg ver- ið vel stjómað. Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið sig vel í borgarmálum. Niðurlæging- artími Reykjavíkur var óneitanlega á árun- um 1978 til 1982, þegar þeir flokkar, sem nú skipa R-listann, höfðu meirihluta í borg- arstjórn. Frambjóðendur R-listans geta ekki fundið nokkurn höggstað, sem máli skipt- ir, á Sjálfstæðisflokknum í sambandi við verklegar framkvæmdir í borginni. Borg- aryfirvöld standa með mikilli prýði að gatnagerð, lóðaframkvæmdum og öðru því er lýtur að uppbyggingu borgarinnar. Það er heldur ekki auðvelt að gagnrýna meiri- hlutastjórn Sjálfstæðisflokksins á öðrum sviðum. Öll uppbygging aðstöðu til íþrótta og útivistar hefur verið til fyrirmyndar. Reykjavíkurborg hefur unnið stórvirki í því að skapa rismikla umgjörð um menn- ingarlíf borgarbúa, bæði með byggingu Borgarleikhúss og Kjarvalsstaða, svo að dæmi séu nefnd. Ætla hefði mátt miðað við fyrri mál- flutning, að frambjóðendur R-listans hefðu mikla sókn gegn sjálfstæðismönnum vegna biðlista eftir plássi á dagvistarstofnunum. Það hefur heldur ekki gerzt, væntanlega vegna þess, að frambjóðendum R-listans er ljóst, að einnig á þessu sviði hefur Reykjavíkurborg staðið fyrir miklum fram- kvæmdum. Eitt helzta úrlausnarefni sveit- arfélaga nú um stundir er aðbúnaður aldr- aðra. Þar hefur heldur ekkert heyrzt í frambjóðendum R-listans, væntanlega vegna þess, að hér hefur líka verið staðið vel að verki. Við og við hafa frambjóðendur R-listans haldið því fram, að fjárhagur borgarinnar hafí versnað mjög á undanförnum árum. En þeim hefur heldur ekki tekizt að gera það að kosningamáli vegna þess, að fjár- hagur Reykjavíkurborgar stendur traust- um fótum, þótt fjárráð borgaryfírvalda hafí auðvitað minnkað í kreppunni, eins og allra annarra. Hvar eru málin, sem frambjóðendur R-listans ætla að byggja kosningabaráttu sína á? Hver eru málefna- leg rök þeirra fyrir því, að ástæða sé til að skipta um stjórn í borginni og leiða þar vinstri stjórn til valda? Þau málefnalegu rök hafa a.m.k. ekki enn séð dagsins ljós. En hvers vegna þá að skipta? ÚR ÞVÍ AÐ frambjóðendur R listans hafa ekki fundið, nú þegar tvær vikur eru til kosninga, þá veiku bletti á meirihluta- stjórn sjálfstæðis- manna, sem réttlæti breytingar á stjóm borgarinnar, má spyija, hvort eitthvað í Borg-ar- rekstur í at- vinnumál- um? stefnumörkun R-listans gefi borgarbúum tilefni til að ætla, að Reykjavíkurborg sé betur komin undir vinstri stjóm en stjórn Sjálfstæðisflokksins. Brýnustu vandamálin í Reykjavík eins og annars staðar eru auðvitað atvinnumál- in. í Morgunblaðinu í dag, laugardag, er birt greinargott yfírlit um stefnu fram- boðslistanna tveggja í atvinnumálum, þær tillögur, sem listarnir hafa lagt fram til úrbóta í atvinnumálum Reykvíkinga. Hug- myndir beggja listanna bera þess merki, að það er fátt, sem sveitarstjóm getur gert til þess að draga úr atvinnuleysi. Það er auðvitað hið almenna ástand í efna- hags- og atvinnumálum þjóðarinnar, sem hér ræður ferðinni og eins og vikið var að á þessum vettvangi fyrir viku, getur borg- arstjóm Reykjavíkur ekki ráðið við ástand þorskstofnsins eða aðra þá þætti, sem valdið hafa sex ára kreppu í landinu. En engu að síður gefa þessar tillögur og hugmyndir nokkra innsýn í grundvallar- sjónarmið og lífsviðhorf þeirra, sem standa að þessum tveimur framboðslistum. Vinstri menn ætla að útvega litlum iðnfyrirtækjum húsnæði. Ef þessi tillaga hefði verið sett fram fyrir fjórum áratugum, þ.e. fyrir árið 1960, hefði hún verið skiljanleg vegna þess, að þá var skortur á atvinnuhúsnæði fyrir lítil fyrirtæki og stór. Nú er hins vegar enginn skortur á húsnæði fyrir lítil iðnfyrirtæki. Þvert á móti er offramboð á atvinnuhúsnæði og hægt er að fá slíkt húsnæði ýmist leigt eða keypt fyrir litla peninga, miðað við það, sem áður var. Hvað í ósköpunum ætla vinstri menn að gera á þessu sviði, sem forráðamenn lítilla iðnfyrirtækja geta ekki gert sjálfír? Ætla þeir kannski að niðurgreiða húsaleiguna? Ef svo er fer bezt á því, að þeir upplýsi það berum orðum. Annars er þessi þáttur í atvinnumálatillögum þeirra illskiljanleg- ur. Vinstri menn ætla að kanna hag- kvæmni fyrirtækis, sem útbúi matarbakka fyrir skólabörn. Hvað er að þessu fólki? Hér eru fyrirtæki út um allt í borginni, með fjölda fólks í sinni þjónustu, sem útbúa matarbakka fyrir vinnustaði. Þetta er orð- in töluverð atvinnugrein. Það er nánast fráleitt að halda, að þessi fýrirtæki geti ekki útbúið matarbakka fyrir skólabörn. Ætla vinstri menn að hefja rekstur fyrir- tækis á vegum borgarinnar til þess að keppa við þessi blómlegu fyrirtæki, sem veita fjölda manns atvinnu? Er það tilgang- ur og markmið R-listans að hefja opinber- an rekstur á vegum borgarinnar í smáu sem stóru? Hér hafa verið nefnd tvö lítil dæmi úr atvinnumálatillögum R-listans, sem lýsa þeim hugsunarhætti, sem býr að baki hjá frambjóðendum R-listans. Það er gamal- dagshugsunarháttur, sem menn kannast við frá fyrri tíð. Á blaðamannafundi í síð- ustu viku upplýsti Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, að R-listinn ætlaði að koma upp „útungunarstöð“ fyrir ný smáfyrirtæki. Heldur Ingibjörg Sólrún virkilega, að borg- arfulltrúar og embættismenn Reykjavíkur- borgar séu betur til þess fallnir að unga út nýjum smáfyrirtækjum en ungir og kraftmiklir athafnamenn? Vinstri menn líta alltaf svo á, að opinberir aðilar geti gert betur en einkaaðilar. En fyrir nokkr- um árum hrundi heilt þjóðfélagskerfí í Austur-Evrópu, sem hafði verið byggt upp á þeirri hugsun. Allt önnur afstaða kemur hins vegar fram í atvinnumálatillögum sjálfstæðis- manna, þar sem þeir leggja til, að fyrir- tækjum og einstaklingum verði gert kleift með skattkerfisbreytingum að leggja fé í þróunarverkefni og atvinnuuppbyggingu. Með flýtifymingum sé hægt að ýta undir fjárfestingar fyrirtækja. Þetta er auðvitað alveg rétt og þetta er hin rétta hugsun að skapa eðlilegar aðstæður fyrir einstak- linga og fyrirtæki til þess að byggja upp og efla atvinnurekstur í stað þess, að sveit- arfélagið sjálft blandi sér í atvinnustarf- semina t.d. með framleiðslu matarbakka! Vandi sjálfstæðismanna í borgarstjórn er hins vegar sá, að þeir koma slíkum skatt- Morgunblaðið/RAX kerfisbreytingum ekki fram nema með atbeina ríkisstjómar og ijármálaráðherra. Atvinnulífíð í Reykjavík verður ekki eflt með beinni þátttöku Reykjavíkurborgar í atvinnurekstri, en sú afstaða sýnist skjóta upp kollinum í tillögugerð vinstri manna. Það bezta, sem Reykjavíkurborg og raunar önnur sveitarfélög geta gert í atvinnumál- um, er að lækka gjöld á atvinnufyrirtækj- um og einstaklingum og örva með þeim hætti atvinnustarfsemi og ýmsan kostnað þessara aðila. Er ekki orðið tímabært að lækka hitaveitugjöld á Reykvíkingum, þar sem Hitaveita Reykjavíkur græðir á tá og fíngri? Hið hefðbundna svar þeirra, sem stjóma, er, að það þurfí tekjur til þess að standa undir hinum og þessum sameigin- legu þörfum. En þær tekjur skila sér aftur í sveitarsjóði með vaxandi atvinnustarf- semi og almennri skattheimtu af henni. Báðum framboðslistunum verður tíðrætt um Reykjavíkurhöfn. Sjálfstæðismenn vilja byggja höfnina upp, sem þjónustu- höfn í Norður-Atlantshafí. Þeir vilja, að skipum bjóðist þar olía á samkeppnishæfu verði. Þeir vilja ráðast í enduruppbyggingu skipasmíðaiðnaðarins í Reykjavík. Þeir vilja auka þjónustu Reykjavíkurhafnar fyr- ir skemmtiferðaskip og byggja upp frí- hafnarverzlun við höfnina. Þeir vilja byggja upp frísvæði í Reykjavík. Frambjóðendur R-listans vilja líka efla Reykjavíkurhöfn. Þeir vilja efla hafnar- svæðið, sem atvinnusvæði. Þeir vilja koma upp fríhöfn fyrir skemmtiferðaskip. Þeir vilja, að höfnin verði miðstöð skipavið- gerða. Þeir vilja athuga um kaup á flotkví og stofnun viðhaldsmiðstöðvar. Þeir vilja að húsnæði við gömlu höfnina fái nýtt hlutverk, svo sem fyrir Erró-safn, fiska- eða sædýrasafn svo og fyrir markað. Eins og sjá má eru þetta áþekkar hug- myndir. Mikilsverðasta framlag Reykjavík- urborgar til þess að efla Reykjavíkurhöfn og atvinnulífíð í borginni yrði hins vegar vafalaust það, að tryggt yrði með afdrátt- arlausum hætti, að önnur skipafélög en Eimskip og Samskip hefðu eðlilega starfs- aðstöðu í Reykjavíkurhöfn. Fyrir nokkrum árum hugðist danskt skipafélag heíja áætlunarsiglingar milli íslands og Evrópu en hætti við vegna þess, að það fékk hvergi viðunandi starfsaðstöðu. Forráða- menn Reykjavíkurhafnar mótmæltu því fyrr á þessu ári, að nokkuð skorti á í þess- um efnum, en sjálfsagt eru þeir dómbær- astir um það, sem íhuga að hætta fjármun- um til þess að heíja slíka starfsemi. Frambjóðendur R-listans bjóða ekki upp á neinar töfralausnir í atvinnumálum, eins og við var að búast. Það gera sjálfstæðis- menn ekki heldur. En að svo miklu leyti, sem hægt er að bera saman almennar stefnuyfírlýsingar af þessu tagi, er aug- Ijóst að sú hugsun skín í gegn í tillögum vinstri manna, að bein afskipti eða bein þátttaka borgarinnar eigi að koma til sög- unnar. Gamaldagshugsun af þessu tagi á ekkert erindi inn í nútímann. A.m.k. er ljóst, að tillögur frambjóðenda R-listans í atvinnumálum réttlæta ekki þá breytingu á meirihlutastjóm borgarinnar, sem R-list- inn berst fyrir. AUÐVITAÐ Tveir listar - breytt víg- staða breytist vígstaðan í borgarstjómar- kosningum ger- samlega við það, að vinstri menn gangi sameinaðir til leiks í fyrsta skipti í sög- unni. í Morgunblaðinu í dag, laugardag, er birt yfírlit yfír úrslit borgarstjórnarkosn- inga frá 1930 miðað við það, að vinstri flokkarnir hefðu sameinast um framboðs- lista. Samanburður af þessu tagi er náttúr- lega talnaleikur vegna þess, að ef um sam- eiginlegan framboðslista hefði verið að ræða í fyrri kosningum hefði kosningabar- áttan orðið með allt öðrum hætti og úrslit vafalaust líka. En talnaleikurinn sýnir, að ef um sameiginlegan framboðslista and- stæðinga Sjálfstæðisflokksins hefði verið að ræða, hefði Sjálfstæðisflokkurinn misst meirihluta sinn sex sinnum frá 1930. Þessar tölur sýna, að möguleikar Sjálf- stæðisflokksins til þess að halda meiri- hluta sínum í Reykjavík em miklu minni, þegar um sameiginlegt framboð er að ræða, heldur en þegar vinstri flokkarnir bjóða fram hver um sig. Það er áleitin spurning, hvort lok kalda stríðsins eigi þátt í því, að vinstri mönnum tókst að koma sér saman um einn lista. Það hefði nánast verið óhugsandi hér á ámm áður, þegar baráttan við kommúnista var hörð- ust. Hvorki alþýðuflokksmenn né fram- sóknarmenn hefðu verið tilbúnir í slíkt samstarf þá, einfaldlega vegna þess, að það hefði kallað fram sterka andstöðu meðal kjósenda þessara flokka, sem hefðu ekki verið tilbúnir til að greiða atkvæði sitt framboðslista, sem kommúnistar ættu fulltrúa á. En nú eru breyttir tímar og vel má vera, að sigur lýðræðisaflanna í kalda stríðinu eigi eftir að kalla fram frekari breytingar í íslenzkum stjómmálum eins og raunar hefur gerzt víða annars staðar, t.d. á Ítalíu. Línurnar á milli stjórnmála- flokka eru ekki eins skýrar og áður. Það er erfiðara að fínna mun á stefnumálum flokkanna eins og hér hefur raunar verið fjallað um að nokkru leyti. Og vel má vera, að þessar breytingar geri Sjálfstæðis- flokknum erfíðara um vik að halda sér- stöðu sinni, sem stór flokkur, sem starfar til skiptis með smærri flokkum. En jafnvel þótt svo kunni að vera, hafa ekki komið fram í þessari kosningabaráttu nein augljós málefnaleg rök fyrir því, að skynsamlegt sé eða tímabært fyrir Reyk- víkinga að skipta um meirihlutastjórn í höfuðborginni. Reykvíkingar vita hvað þeir hafa, þar sem er meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins. Þeir vita líka hveiju þeir geta búizt við vegna niðurlægingar- tíma vinstri stjómarinnar í Reykjavík fyrir einum og hálfum áratug. „Hvers vegna eru engin átök um málefni í kosn- ingabaráttunni? Skýringin getur ekki verið önnur en sú, að sá fram- boðslisti, sem sækir á í því skyni að fella meiri- hluta sjálfstæðis- manna í borgar- stjórn, hefur ekki fundið neina mál- efnalega fótfestu í kosningabarátt- unni. Frambjóð- endur R-listans hafa ekki fundið þá veiku bletti á meirihlutastj órn sjálfstæðismanna í Reykjavík, að það hafi gert þeim kleift að hefja harða mál- efnalega sókn á hendur Sjálfstæð- isflokknum í borgarstjórn.“ +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.