Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994 LEIKLIST, DANS OG BÓKMENNTIR Á LISTAHÁTÍÐ Krókódilavegurinn. Breskt farandleikhús meó verk eftir Pólverjann Bruno Schulz. Heift, vonska — en lika mildara andrúm MENNING/LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Norræna húsið Myndskreytingar eftir Hákon Bleken í anddyrinu. Kjarvalsstaðir Skúlptúr - ísl. samtímalist til 24. júlí. Listasafn ASÍ Trygvi Ólafsson sýnir til 23. maí. Ásmundarsafn Samsýn. Ásmundar Sveinssonar og Kristins E. Hrafnssonar Listhúsið Laugardal Sýn. á verkum Guðmundar frá Miðdal til 22. maí. Snegla listhús Sýning á slæðum til 20. júní. Gallerí Fold Ingibjörg Styrgerður sýnir til 5. júní. Nýlistasafnið Sonný Þorbjömsd. og Haraldur Jónsson til 5. júní. Gallerí Greip Hrafnhildur Amard. sýnir til 1 •júní. Perlan Vilhjáimur G. Vilhjálmsson sýnir til 5. júní. Gallerí 11 Ella Magg sýnir til 22. maí. Mokka kaff! Sýn. Hugarheimur bamanna - 31. maí. Gallerí Borg Sýn. á verkum e. Jens Urap til 29. maí. Listasafn Kópavogs - Gerðar- safn Sýn. á verkum Gerðar Helgad. og úrval verka í eigu safnsins. Fram í júní. Stöðlakot Hlíf Ásgrímsdóttir sýnir til 29. maí. Gallerí Onnur hæð Richard Tuttle sýnir út maí. Gerðuberg Hannes Lárusson sýnir til 29. maí. Gallerí Sólon íslandus Sigurður Örlygsson sýnir til 23. maí. SPRON, Álfabakka Þorbjörg Þórðard. sýnir til 26. ágúst. Gimli Stokkseyri Elfar Guðni sýnir til 5. júní. Eden Hveragerði Bjami Jónsson sýnir til 29. maí. TONLIST Sunnudagur 22. maí Jazztónleikar í Listasafni ASÍ kl. 16. Mánudagur 23. maí Tónleikar Kórs Ytri-Njarðvíkur- kirkju í kirkjunni kl. 17. Þriðjudagur 24. maí Vortónleikar Drengjakórs Laug- arneskirkju í kirkjunni kl. 20. Lúðrasveitatónl. í Listasafni Kópavogs kl. 20. Fimmtudagur 26. maí Svava Bemharðsd., Elín Guð- mundsd. og Matej Sarc á tón- leikum í Norræna húsinu kl. 20.30. Lúðrasveitatónl. í Bú- staðakirkju kl. 20. Laugardagur 28. maí Lúðraveitatónl. á Ingólfstorgi kl. 13. Lúðrasveitatónl. í Þorlákshöfn, Þorláksvaka kl. 20. LEIKLIST Borgarleikhúsið Gleðigjafarnir kl. 20; fim. 26. maí, lau. Þjóðleikhúsið Gauragangur kl. 20; lau. 28. maí., fös. Kæra Jelena kl. 20.30; Þri. 31. maí. Leikfélag Akureyrar Óperudraugurinn kl. 20.30; lau. 21. maí, fös. Bar Par kl. 20.30; mán. 23. maí. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa bor- ist bréflega fyrir kl. 16 á mið- vikudögum merktar: Morgun- blaðið, menning/ listir, Kringl- unni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 91-691181. EINS OG fram hefur komið er lögð mikil áhersla á tónlist á Listahátíð í Reykjavík 1994 og líka myndlist s’em sækir á. Þar er einnig að finna leiklist og listdans og er boðið upp á Macbeth, Theatre de Complicité, bamaleikrit og lýðveldisdansa Is- lenska dansflokksins auk annars. Bókmenntir koma lítillega við sögu. ^flL-öal þess sem hlýtur að vekja athygli er alþjóðlegt farandleikhús sem menn hafa hrifist mjög af. Theatre de Complicité Sýning Theatre de Complicité á Listahátíð nefnist The Street of Crocodiles eða Krókódílavegurinn og er byggt á sögum eftir Bruno Schulz. Bruno Sehulz var pólskur gyðingur, fæddur 1892 í Dro- hobycz, sem þá tilheyrði austurrísk- ungverska keisaradæminu. Þjóð- verjar hertóku Drohobycz 1940. Þeir fólu Schulz, sem hafði fengist við kennslu, að flokka bókmenntir í því skyni að senda þær sem væru þóknanjegar nasistum til Þýska- lands. Átök milli þýskra yfirmanna ollu því að Schulz var skotinn til bana. Fimmtán árum síðar voru sögur hans endurútgefnar í Póllandi og þýddar á þýsku og frönsku. Krókódílavegurinn er leikrit í súr- realískum anda. Hlutir öðlast líf, fólk breytist í fugla. Samband föður og sonar er dregið fram og skoðað í draumkenndu Ijósi. Sýningar verða í Borgarleikhús- inu 25., 26. og 27. júní. Barnaleikhúshátíð í Möguleikhúsinu við Hlemm verður efnt til bamaleikhúshátíðar. Möguleikhúsið er atvinnuleikhópur sem hefur starfað í fjögur ár sem ferðaleikhús, en hefur nú fengið fast aðsetur. Leikhúsið sýnir á Lista- hátíð Mókoll umferðarálf, sem er kennsluleikrit fyrir börn á aldrinum þríggja til átta ára. Gunnar Helga- son leikur Mókoll, handrit og söng- texta samdi Pétur Eggerz, sönglög eru eftir Bjama Ingvarsson, Stefán Sturla Siguijónsson leikstýrir og Hlín Gunnarsdóttir er höfundur leik- myndar. Litla nomin (Den lille heks) fjallar um stríð og frið og er ætluð þriggja til átta ára bömum. Leikhópurinn Mariehonen frá Randers í Danmörku kemur með nomina til íslands. Hóp- urinn hefur starfað um árabil og fékk nýlega viðurkenningu sem besta bamaleikhús í Danmörku. íslenska brúðuleikhúsið undir stjóm frumkvöðulsins Jóns E. Guð- mundssonar efnir til kabarettsýning- ar með ýmsum kunnum persónum brúðuleiksýninga, eingöngu strengjabrúðum. Kerling, sem leikin er af Sigríði Hannesdóttur, segir sögur af Snæfellsnesi. Helga Amalds stofnaði brúðuleik- húsið Tíu fingur síðastliðinn vetur. Hún hefur unnið handrit, brúður og leikmynd Englaspils, sem greinir frá telpu sem finnur kjól sem breytist í engilinn Gabríel. Meðal annarra í sýningunni éru púkinn Lúsifer og gólftuskan Grámygla. Helga leikur sjálf öll hlutverkin. Leikstjóri er Ása Hlín Svavarsdóttir. Ævintýri Trítils er framlag Frú Emilíu til þessarar bamaleikhúshá- tíðar. I því kynnast áhorfendur Trítli, sem er ekki stærri en litli fingur, en getur talað og lendir í ýmsum ævintýrum. Ása Hlín Svavarsdóttir sér um leikstjóm og handritsgerð, Guðrún S. Haraldsdóttir um leik- mynd og grímur era eftir Ólaf Engil- bertsson. Félagið Augnablik kemur með Dimmalimm á Bamaleikhúshátíð- ina. Sýningin er unnin upp úr sögu Muggs og tónlist er eftir Atla Heimi Sveinsson. Sýningamar verða í Möguleikhús- inu við Hlemm 1. júní til 5. júní. BarPar I BarPar, sem er eins konar ka- barett fyrir tvo leikara, segir frá pari sem rekur bar og gestum þeirra. Höfundur verksins er ungt breskt leikskáld, Jim Cartwright. Sunna Borg og Þráinn Karlsson em í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Há- var Siguijónsson, höfundur leik- myndar Helga I. Stefánsdóttir og Ingvar Bjömsson annaðist lýsingu. Þýðandi er Guðrún J. Bachmann. BarPar er gestaleiksýning Leik- félags Akureyrar á Listahátíð. Leik- ið verður í Lindarbæ 6., 7., 8. og 9.júní. Macbeth Macbeth Williams Shakespeares, í þýðingu Matthíasar Jochumssonar og leikgerð Hafliða Amgrímssonar, Guðjóns Pedersens og Grétars Reynissonar, verður leikinn á Lista- hátíð. Macbeth er eitt kunnasta leikrit Shakespeares og af ýmsum talið hið besta og áhrifamesta. („Blóðugu banaráðin, sem bruggast öðrum, ganga einatt aftur og sækja heim sinn höfund.") Skilningur á verkinu liggur ekki í augum uppi heldur era túlkunarleiðir þess margar. Meðal leikara eru Þröstur Guðbjartsson, sem leikur Duncan Skotakonung, Þór Tulinius í hlut- verki Macbeths og Edda Heiðrún Backman sem er frú Macbeth. Það er leikhúsið Frú Emilía sem stendur að sýningunni og verður frumsýnt í Héðinshúsinu við Selja- veg 7. júní. Sálarlíf systra Sannar sögur af sálarlífi systra er leiktexti sem unninn er upp úr skáldsögum eftir Guðberg Bergsson af Viðari Eggertssyni. Það eru hin- ar svokölluðu Tangasögur Guð- bergs sem efnið er sótt í og er lof- að íslenskum veruleika „í öllum sín- um grodda og slori“ og hann sagð- ur „fyndinn, furðulegur, fáránlegur, fjarstæðukenndur — og fársjúkur". Forsýning verður í Þjóðleikhús- inu 2. júní. Lýðveldisdansar íslenski dansflokkurinn frumflyt- ur á Listahátíð ný verk eftir Hlíf Svavarsdóttur, Maríu Gísladóttur og Nönnu Ólafsdóttur. Þá koma gestir frá San Francisco-ballettin- um, þau Anthony Randazzo og EI- isabeth Loscavio, og sýna tvídans úr Þymirósu eftir Helga Tómasson. Dansamir eftir þær Maríu, Hlíf og Nönnu eru allir samdir sérstak- lega fyrir dansara íslenska dans- flokksins. Hlíf Svavarsdóttir nefnir sitt verk Fram, aftur til hliðar — og heim og er það samið við tónlist eftir Snorra Sigfús Birgisson og Jón Leifs. Verk Nönnu Ólafsdóttur er samið við ljóðaflokkinn Tímann og vatnið eftir Stein Steinarr. Þar flétt- ast saman dans og upplestur Hjalta Rögnvaldssonar á Ijóðinu. María Gísladóttir er höfundur Sumar- mynda við tónlist eftir sænska tón- skáldið Lars Erik Larsson. Sýningar verða í Borgarleikhús- inu 11. og 12. júní. Bókmenntir Ýmislegt á Listahátíð má flokka undir bókmenntir, þótt ekki sé lík- legt að það heyri beinlínis undir bókmenntasköpun dagsins í dag. Stofnun Áma Magnússonar sýnir íslensk handrit sem Richard Wagn- er leitaði til við samningu Niflunga- hringsins og málþing verður um Tilraunina ísland í 50 ár. í tengslum við Wagner-daga í Reykjavík 23. maí til 4. júní verða haldin mál- þing, í senn innlend og alþjóðlegj og fyrirlestrar eru á dagskrá. I þeim verður m.a. grafíst fyrir um rætur Niflungahringsins í islensk- um fombókmenntum. Böm í Grunnskólum Reykjavíkur kynna Ijóð og stuðla þannig að ljóðahátíð barna og fullorðinna með því að flytja ljóð á götum úti. Samantekt/J.H.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.