Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.05.1994, Blaðsíða 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAI 1994 MYNPLIST Listasafn Akurcyrar LJÓSMYNDIR Klaus Pieter Franche. Opið 14-18, lokað mánudaga. Til 31 maí. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ er einstakt samsafn ljós- mynda sem prýðir austursal Lista- safns Akureyrar um þessar mundir. Er um að ræða þverskurð af mynd- um sem hinn þekkti ljósmyndari Klaus Pieter Franche, frá Hamborg, hefur tekið úr lofti og þá aðallega af hálendi og óbyggðum íslands, þó stundum glitti í mannabyggð. Þeir sem flogið hafa yfir landið hafa fengið ríkuleg tækifæri til að virða fyrir sér stórbrotna eldíjallanáttúru landsins, og einkum er hún sýnileg í hinum minni tegundum flugvéla, þegar menn hafa.allt landið í beinu sjónmáli svo og til beggja hliða, en ekki einungis mjög þrönga sjónvídd eins og í hinum stærri farþegaflug- vélum. Myndefnið er ótakmarkað og ætti að vera mikill lærdómur fólginn í því fyrir myndlistarmann, að rann- saka form og litbrigði landsins úr lofti, því þau eru snökktum önnur en á jörðu niðri. Utlendir tóku snemma eftir þess- ari sérkennilegu fegurð og er skemmst að minnast ágætrar sýn- ingar á loftmyndum eftir Franz- Karl Freiherr von Linden í Norræna húsinu fyrir tveimur árum. Von Linden heimsótti ísland mörgum sinnum og fýrst 1959. 0g auðvitað hafa Islendingar uppgötvað þessa fegurð og hefur t.d. Bjöm Rúriksson sérhæft sig í töku mynda úr lofti. Klaus Pieter Franche staðfestir svo þann grun margra, að myndefn- ið sé ótæmandi náma fyrir hugvit- sama ljósmyndara og hinar Qölþættu og frábæm myndir á sýningunni vekja upp áleitnar spumingar um algjöra sérstöðu landsins í heimslist- inni. Á ég hér við að landið sjálft sé náma viðfangsefna fyrir hugmynda- ríka listamenn af öllum stærðum og gerðum, og kannski lærðu myndlist- amemar eins mikið og jafnvel meira af því að fljúga yfir landið en að sækja söfn heimsborganna. Maður spyr sjálfan sig að því hvort mikið annað sé hægt að gera á slíkri sýningu, en að dást að mynd- unum og taka þátt í teik ljósmyndar- ans ipeð linsuopið. En uppgötvar svo að hægt væri að skrifa heilu bæk- umar um fjölbreytileikann sem við blasir. Fyrir skömmu festi ég mér bók nokkra sem tekur til meðferðar litina í Rómarborg, en hvar er jafn skil- virkar upplýsingar að fínna um litina á Islandi? Og er til rannsóknarrit um form og liti óbyggða íslands? Það þarf næmt auga til að miðla slíkri fegurð og ekki uppgötvar maður hana nema leggja eitthvað á sig, og slíkar sýningar em liður í þeím mikilsverða lærdómi. Og það þarf að kenna íslendingum að lesa landið, en slíkur sjónrænn lestur lyft- ir undir anda mannsins ekki síður en lestur góðra bókmennta. Að vissu marki má segja að myndir Klaus Pieter Franche séu sjónrænar heims- bókmenntir. Á leiðinni heim tók ég enn betur en áður eftir landslaginu fyrir neðan og í tærri sólbirtu vorkvöldsins vom formanir landsins svo skýrar og fjöl- þættar að engu er við að jafna, en um leið var þetta sem viðbót og framlenging sýningarinnar. Og hví- lík framlenging! TONLIST Bústaöakirkja BÁSÚNULEIKUR OG SÖNGUR Einleikur á básúnu; Carsten Svan- berg orgelleikari, Guðni Þ. Guð- mundsson, kór- og einsöngvarar kirkjunnar. 19. maí 1994. DANSKI básúnuleikarinn, Carst- en Svanberg, kom fram á tónleikum við undirleik orgelleikara kirkjunnar, Guðna Þ. Guðmundssonar. Kór kirkjunnar og einsöngvarar kórsins, Erla Þórólfsdóttir, Guðrún Jónsdótt- ir og Kristín Sigtryggsdóttir sungu og í Lautade Dominum, eftir Moz- art, lék Laufey Sigurðardóttir á fiðlu. Tónleikamir hófust á Sónötu í g-moll, eftir J.B. Loeillet de Gant f. 1688, sem var nafni og frændi hins fræga Loeillet (1680-1730). Hann samdi nokkrar sónötur fyrir blokkflautu og þverflautu og mun þessi í g-moll vera umrituð fyrir alta- básúnu, sem fór verkinu vel, enda mjög vel flutt af Svanberg, sem er frábær básúnuleikari. Romansa, eftir Weber, er líklega einnig umritun en tvö verk eftir hann em nefnd rómönsur og er annað þeirra fyrir hljómsveit og alt- flautu. Hvort sem hér er um að ræða nefnda umritun eða þátt úr öðm verki, þá hefði mátt geta þess í efnisskrá ásamt ópusnúmeri verks- verð umferð fólks er og helst fara sem víðast og þá einnig á höfuð- borgarsvæðið. Innkaup safnsins I MIÐSAL eru sýnishorn verka í eigu safnsins, en rýmið leyfír hér ekki mikil umsvif og pyngjan ber- sýnilega enn minni. Jafnframt ligg- ur frammi á einblöðungi skýrsla um innkaup safnsins á árunum 1990- 1994, sem gæti svo að sjálfsögðu orðið vísir að árbók í framtíðinni. Kennir ýmissa grasa og fer ég ekki í neina samanburðarfræði, en helst vekja tvö stór málverk eftir þau Kristínu Gunnlaugsdóttur (1991) og Sigurð Áma Sigurðsson (1994) athygli. Ekki fyrir stærð þeirra heldur tæknilega útfærslu, því að auðséð er að hér eru á ferð einstakl- ingar sem hafa getað helgað sig málverkinu óskiptu um árabil og notað tímann vel. Þetta er góða hliðin á námslánum að segja má, því að þau gefa metnaðargjörnum tækifæri sem menn dreymdi ekki einu sinni um í gamla daga. Jafn hnitmiðuð vinnubrögð nást ekki með íhlaupum, og svo er grunn- menntun þeirra líka meiri og skipu- legri en gerðist hér áður fyrr. Má óska Akureyringum til hamingju með þessa „alvörumálara" sem þeir hafa eignast í þessu fólki og von- andi fær það tækifæri til að halda sem lengst áfram á markaðri braut. Um sjálf innkaupin er ekki margt að segja, en þau hafa þó full mikinn svip af innansveitarkróniku, eins og það nefnist, en síður af lista- safni á landsvísu. Mætti minna á að listasöfn eru ekki alfarið byggða- söfn eins og einhverjir virðast halda. Þarf ekki annað en að fara til borga á Norðurlöndum, annarra en höfuð- borganna, til að ganga úr skugga um það, og mæli ég með að hinum unga forstöðumanni safnsins og innkaupanefndinni, verði véittur ríf- legur styrkur til að kynna sér sem flest slík söfn. Bragi Ásgeirsson ins. Hvað sem þessu líður var leikur Svanbergs glæsilega útfærður, þar sem saman fer fullkomið vald á tón- myndun og mótun tónsins, svo unun var á að hlýða. Eins konar sálmforleikur, eftir Gunnar Hahn, þar sem básúnan flyt- ur sálminn nær ávallt eins, með breytilegum samleik á orgelið, ásamt einleiksverki eftir Erland von Koch, voru einu norrænu verkin sem Svanberg lék.- Bæði verkin eru lát- laus í gerð, en frábær flutningur Svanbergs nægði samt ekki til að gera þessi verk áhugaverð. Síðasta viðfangsefni Svanbergs, var Marce- au Symphonique op. 88, eftir Alex- andre Guilmant (1837-1911), sem var víðsfrægur orgelleikari og sam- starfsmaður d’Indy við Schola Cant- orum. Verkið er hárómantískt og var snilldar vel flutt af Svanberg og þar gat að heyra þann silfur- mjúka tón, sem er aðal básúnunnar, ekki síður en kraftmikill hjómur hennar. Kór og einsöngvarar kirkjunnar fluttu nokkur verk. Kvennakórinn ásamt Erlu Þórólfsdóttur flutti ágætt lag eftir Axel Madsen, við Davíðssálm nr. 121 og mátti heyra að kvenraddir kórsins eru skipaðar vel lærðum söngkonum. Tvær ítalsk- ár cansónettur eftir E.T.A. Hoff- mann, voru ágætlega sungnar af Guðrúnu Jónsdóttur og karlakór. Hér er um að ræða verk eftir tón- skáldið og rithöfundinn Emst Theo- dor Amadeus Hoffmann, sem m.a. lagði til efnið í óperuna Ævintýri Hoffmanns og Offenbach tónsetti. Kórinn lauk sínum þætti með þokka- legum flutningi á Laudate Dominum eftir Mozart og komu þar fram, auk kórsins, Kristín Sigtryggsdóttir og Laufey Sigurðardóttir. Kórinn var auðvitað undir stjórn Guðna Þ. Guð- mundssonar orgelleikara kirkjunnar, sem lék og með Svanberg og fórst það vel úr hendi. Jón Ásgeirsson Ljósmyndað úr lofti Hringferð í óbyggðum KVIKMYNPIR Iláskólabíó UPP Á LÍF OG DAUÐA - „ARTIC BLUE“ ★ Leikstjóri: Peter Masterson. Hand- rit: Ross LaManna. Kvikmynda- taka: Tom Burstyn. Aðalhlutverk: Rutger Hauer, Dylan Walsh og Rya Kihlstedt. ÓBYGGÐATRYLLIRINN er vanmetin kvikmyndategund og hefur hin seinni ár verið í höndum kvikmyndagerðarmanna af B- mynda sortinni með einni undan- tekningu þó; „Cliffhanger" eftir Renny Harlin. Einn frægasti óbyggðatryllirinn er „Deliverance" og hefur hann verið eftirapaður í ófá skipti af minni spámönnum. Upp á líf og dauða eða „Artic Blue“, bein þýðing heitisins er skammdegisþunglyndi, sem sýnd er í Háskólabíó, er einn af þessum ómerkilegu B-tryllum, sem fær persónumar og kringumstæðumar lánaðar héðan og þaðan en lendir í villum þegar hann á að standa á eigin fótum. Leikstjórinn, Peter Masterson, á í mestum brösum með að útbúa einhverja spennu í sögu úr óbyggð- um Alaska er segir frá veiðimanni sem handtekinn er fyrir morð. Fé- lagar hans em ekki á því að hann verði færður til yfirvalda í næsta bæjarfélagi en ungur vísindamaður og kona hans verður þeim Þrándur í Götu. Vandamálið sem leikstjór- inn stendur frammi fyrir þegar hann ætlar að búa til spennu úr sögunni er að hann hefur engan raunverulegan óvin eða illvirkja og handritið þvælir persónunum fram og til baka í óvissum tilgangi. Myndin virðist gefa sér það að veiðimenn í Alaska séu morðhund- ar upp til hópa um leið og hún reynir að vekja athygli á að þeir séu að deyja út vegna umhverfis- vemdarsinna. Einhvem veginn eykst ekki samúðin með þeim vegna þess. Rutger Hauer leikur handtekna veiðimanninn og er býsna illvígur til að byija með en svo er eins og brái af honum án þess maður verði var við neina sérstaka ástæðu fyrir því og áður en lýkur er hann farinn að hlaupa undir bagga með hugprúðu vísinda- hjónunum, sem reyna hvað þau geta að koma honum undir lás og slá. Á meðan falla vinir hans einn af öðrum á alveg sérstaklega óspennandi hátt. Myndin tekur langt hliðarhopp uppi á flöllum þegar vísindamað- urinn reynir að koma Hauer í manna hendur á flugvél sinni en Hauer lætur hana brotlenda. Þeir göslast um dögum saman á Qöllum áður en þeir lenda aftur á byrjunar- reit í sama þorpinu og þeir lögðu upp frá búnir að fara í hring. Til hvers? Alvöru B-myndir eru fullar af svona gátum en það er ekki ólík- legt að kvikmyndagerðarmennimir hafí fengið einhvem snert af skammdegisþunglyndi þarna í Al- askarökkrinu. LJÓSMYND eftir Klaus D. Franche; „ Mælifell og Mýrdalsjökull". Hin mannlega mósaik- mynd í VESTURSAL safnsins er sýn- ing er byggist á þeirri hugmynda- fræði; að fegurð mósaikmyndar í heild sinni sé mörgum sinnum meiri en fegurð hvers og eins hluta henn- ar. Samlíkingin getur síðan opnað leið inn í heim þar sem allir kunna að meta hin einstæðu sérkenni ná- granna sinna og mynda í samein- ingu friðsama íjölskyldu mann- kynsins. Hin mannlega mósaik- mynd er sú fjölskylda. Uppruni hugmyndarinnar var að borgarstjóri New York borgar lýsti eitt sinn íbúum hennar sem „litfag- urri mannlegri mósaikmynd“. Myndlistarkennari einn við gagn- fræðaskóla í Harlem notaði þessa samlíkingu til að forma myndlistar- verkefni. Þetta verkefni sem var í upphafí eingöngu bundið við skól- ann hefur síðan þróast og breiðst út um Bandaríkin og til margra annarra landa. Nú einnig til ís- lands, því allir grunnskólar á Eyja- íjarðarsvæðinu tóku þátt í hinu markaða verkefni. „Þótt við séum öll einstök og frábær, þá jafnast það ekkert á við heildina. Ef við leggjum öll saman þá erum við stór- kostleg!" Flestir nemendurnir gerðu fleiri en eina mynd, sjálfsmyndir, myndir af vinum og félögum eða bara myndir af einhveijum krökkum. Myndirnar voru teiknaðar með svörtum penna og litaðar með túss- litum. Þessar upplýsingar eru sóttar í einblöðung á sýningunni, og útkom- an er sannast sagna skemmtileg. Er ég gekk inn í austursalinn og leit sem snöggvast í átt til vestursal- arins hélt ég að myndin sem við blasti á endavegg væri heljarfleki eftir Erró, og það var ekki fyrr en ég seinna kom í salinn að ég upp- götvaði að svo var ekki! Svona getur ein snjöll samlíking, sem kveikir í heilabúi opins og hug- myndaríks myndmenntakennara haft farsælar afleiðingar, því að verkefnið er ekki einungis stórbrot- ið frá myndrænum sjónarhóli heldur líka hreint mannlegum. Mynd- menntakennarar grunnskólanna á Eyjarfjarðarsvæðinu eiga skilið rós í hnappagatið og krakkamir aðdáun fyrir íjölbreitt safn andlitsmynda. Myndverkin þyrftu á næstu miss- erum að hanga uppi þar sem tölu- GUÐRÚN Jónsdóttir, Kristín Sigtryggsdóttir, Erla Þórólfsdóttir, Guðni Þ. Guðmundsson og Carsten Svanberg.. Silfurmjúkur básúnulilj ónnir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.