Morgunblaðið - 21.05.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAI 1994
C 11
Lúðra-
sveita-
tónleikar
DAGANA 24., 26. og 28. maí
halda Lindo Concert Band frá
Odense Danmörku og Lúðra-
sveit verkalýðsins tónleika í
Kópavogi, Reykjavík og á Þor-
láksvöku í Þorlákshöfn.
Þriðjudaginn 24. maí í Lista-
safni Kópavogs kl. 20 leika
Lindo Conert Band, stjórnandi
Anders Christensen, fimmtu-
daginn 26. maí í Bústaðakirkju
kl. 20. leika Lindo Concert
Band og Lúðrasveit Verkalýðs-
ins, stjórnendur Anders Christ-
ensen og Malcolm Holloway.
Laugardaginn 28. maí kl. 13 á
Ingólfstorgi í Reykjavík leika
Lindo Concert Band og Lúðra-
sveit Verkalýðsins og þann
sama dag leika Lindo Concert
Band einnig á Þorláksvöku,
Þorlákshöfn kl. 20.
Aðgangur að öllum tónleik-
unum er ókeypis.
Morgunblaðið/Úlfar
Reynir Ingason og Reynir
Torfason
Reynir Torfa-
son með mál-
verkasýningu
ísafirði - Reynir Torfason
fyrrum skipstjóri og núverandi
starfsmaður Ísaíjarðarhafnar
opnar málverkasýningu í húsi
verkalýðsfélaganna við Pólgötu
á laugardag. Við opnunina
syngur Reynir Ingason nokkur
lög við undirleik Margrétar
Gunnarsdóttur píanóleikara.
Reynir Torfason er farinn
að leggja nokkra stund á list-
málun, eftir að hann kom alveg
í land, en hann var fram undir
fimmtugt sjómaður og lengst
af skipstjóri á eigin báti. Hann
hefur þegar haldið nokkrar sýn-
ingar og er þegar farinn að
undirbúa næstu sýningu sem
verður í Eden í Hveragerði með
haustinu.
Reynir Ingason tenór hefur
lært söng nokkur undafarin ár.
Hann hefur haldið nokkra kon-
serta auk þess sem hann er
einsöngvari með Sunnukórn-
um. málverkasýningin verður
opnuð á laugardaginn klukkan
16.
Tónleikar í
Ytri-Njarð-
víkurkirkju
Á ANNAN í Hvítasunnu 23.
maí kl. 17 mun Kór Ytri-Njarð-
víkurkirkju halda tónleika í
kirkjunni. Á efnisskránni eru
bæði trúarleg og veraldleg lög.
Með kórnum leikur lítil
hljómsveit skipuð þeim Sigurði
H. Guðmundssyni á gítar, Guð-
mundi Vigfússyni á bassa og
Ólafi Ingólfssyni á trommur,
auk organista og stjórnanda
kórsins Gróu Hreinsdóttur á
píanó. Einsöngvarar verða
Guðmundur Sigurðsson, Einar
Júlíusson og Jóhanna Harðar-
dóttir.
Miðaverð er 1.000 krónur og
verða miðar seldir hjá kórfélög-
um fyrirfram, en einnig við inn-
ganginn.
Hlj ómsveitamót
1000 tónlistar-
nemendur Norð-
urlanda og kenn-
arar sóttu mótið
DAGANA 22.-24. apríl stóðu Sam-
tök tónlistarskóla á Norðurlöndun-
um fyrir hljómsveitamóti tónlistar-
nemenda og fór mótið fram í bæn-
um Kolding í Danmörku. Tæplega
1000 nemendur og kennarar sóttu
mótið frá Finnlandi, Álandseyjum,
Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Fær-
eyjum, Grænlandi og íslandi.
íslensku þátttakendumir voru 90
talsins og mynduðu 3 hljómsveitir.
Tvær þeirra voru sinfónískar, önnur
frá Tónlistarskólanum á Akureyri
undir stjórn Guðmundar Ola Gunn-
arssonar og hin sameiginleg sin-
fóníuhljómsveit tónlistarskólanna í
Keflavík, Hafnárfirði, Garðabæ, á
Seltjarnarnesi og Akranesi undir
stjórn Bernharðar Wilkinsson. Sú
fékk nafnið „IS-KOLD sinfóníu-
hljómsveitin" (ísland og Kolding)
og vakti nafnið mikla athygli. Þriðja
íslenska hljómsveitin var Bossa
Nova bandið frá Tónlistarskólanum
á Seltjarnamesi.
Mótið fór þannig fram að hljóm-
sveitirnar léku víða um bæinn á
laugardagsmorgni s.s. í verslun-
armiðstöð bæjarins, kirkjum og víð-
ar. Um eftirmiðdaginn héldu hljóm-
sveitirnar síðan sjálfstæða tónleika
í glæsilegri menningarmiðstöð bæj-
arins, Kolding Teater. Skemmst er
frá að segja að allar íslensku hljóm-
sveitirnar stóðu sig með mikilli
prýði og höfðu íslensku þátttakend-
urnir af þessu mikla ánægju og
lærðu mikið.
Blaðamaður og ljósmyndari
Kolding Folkeblad voru staddir í
verslunarmiðstöðinni Kolding
Storcenter og birtust meðfylgjandi
myndir í blaði þeirra sunnudaginn
24. apríl sl. Þar má meðal annars
sjá Alexöndru Kjeld, fíðlunemanda
úr Garðabæ, Sturlaug Björnsson
og Láru L. Magnúsdóttur, kontra-
bassanemendur úr Keflavík.
Á sunnudeginum fóru fram há-
tíðartónleikar þar sem ein hljóm-
sveit frá hveiju landi kom fram og
lék Bossa Nova bandið fyrir íslands
hönd og slógu piltarnir frá Seltjarn-
arneskirkju þar rækilega í gegn.
Lokaverkið á efnisskránni var syrpa
sem Bud nokkur Lacey hafði sett
saman af þessu tilefni og innihélt
hún eitt þekkt lag frá hveiju Norð-
urlandanna. Sameiginleg hljómsveit
allra þátttakenda mótsins flutti
verkið, samtals um 800 manns og
var það tilkomumikill flutningur.
íslenska lagið Hani, krummi, hund-
ur, svín var notað en heldur þótti
íslensku nemendum það kraftlítið í
útsetningu Laceys. Þeir ákváðu því
að syngja það með tilheyrandi takt-
breytingum og áherslum við mikinn
fögnuð viðstaddra tónleikagesta.
Mánudeginum eyddi hluti hóps-
ins í Kaupmannahöfn og það voru
ánægðir en þreyttir ferðalangar
sem komu heim að kvöldi mánu-
dagsins.
Norrænu skólastjórasamtökin
NMR eiga miklar þakkir skildar
fyrir að hafa staðið fyrir þessu
móti, sem heppnaðist í alla staði
mjög vel og gaf þátttakendum mik-
ið. Fulltrúi Islands í NMR er for-
maður Samtaka tónlistarskóla-
stjóra, Lárus Sighvatsson skóla-
stjóri Tónlistarskólans á Akranesi.
Dægurvísa
í flutningi
„Erlendar“
LEIKHÓPURINN „Erlendur“ flyt-
ur leikþátt byggðan á skáldsögu
Jakobínu Sigurðardóttur, Dægur-
vísu, í leikstjórn Helgu E. Jónsdótt-
ur mánudagskvöldið 30. maí. Leik-
þátturinn verður fluttur í Þjóðleik-
húskjallaranum á kvöldi Lista-
klúbbsins kl. 20.30.
Stuðst er við leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur sem hún vann ásamt
höfundi fyrir Ríkisútvarpið. Verkið
var frumflutt í maí 1974. „Erlend-
ur“ samanstendur af fimm leikurum
sem nýlega hafa lokið námi í leik-
list frá Bandaríkjunum og Bretlandi
þeim; Gísla Ólasyni Kærnested,
Ragnhildi Rúriksdóttur, Rannveigu
Þorkelsdóttur, Sigrúnu Gylfadóttur
og Skúla Ragnari Skúlasyni.
LEIKHÓPURINN „Erlendur";
Skúli Ragnar Skúlason, Sigrún
Gylfadóttir, Gísli Ólason
Kærnested, Rannveig Þorkels-
dóttir og Ragnhildur Rúriks-
dóttir.
Elfar Guðni
á Stokkseyri
ELFAR Guðni opnar sýningu í sam-
komuhúsinu Gimli á Stokkseyri í dag
kl. 14.
Á sýningunni verða sýndar olíu-
myndir málaðar á masónít og sér-
stakan pappír fyrir olíuliti. Myr.defn-
ið er aðallega frá Stokkseyri, Eyrar-
bakka og Þjórsárdal. Þetta er 23.
einkasýning Elfars Guðna. Opið
verður alla daga frá kl. 14-22 nema
fimmtudaginn 26. maí þá verður lok-
að eftir kl. 18. Sýningin er til 5. júní.
Minna er meira
VORTÓNLEIKAR Drengjakórs Laugarneskirkju verða haldnir í
kirkjunni á þriðjudag.
Laugarneskirkja
Vortónleikar
Drengjakórsins
MYNPLIST
Gallcrí Bor£
MÁLVERK
JensUrup
Opið 12-18 virka daga, 14-18 um
helgar. Til 29. niaí.
Aðgangur ókeypis.
DANSKIR listamenn fara margir
hveijir sínar eigin leiðir í málverk-
inu, en eru sér þó vel með-.
vitandi um hræringar í
heimslistinni. Ég hef þekkt
þá ýmsa og stundum furðað
mig á andlegri breidd þeirra
og fordómaleysi. Þannig
var frumheiji alþýðuraun-
sæisins (sosial-realismans)
í Danmörku, náinn vinur
nokkurra hörðustu ab-
straktmálara Parísarborg-
ar á árunum eftir stríð!
Minnist þessa í sambandi við
sýningu Jens Urups í listhúsinu
Borg, vegna þess, að hann hefur
ekki bundið sig við eina stefnu í
myndlist og list hans er þannig
blessunarlega fordómalaus. Hann
hefur meira að segja skreytt kirkjur
og gert hefðbundin textíllistaverk,
en margur áhangandi abstraktmál-
verksins hafnaði alfarið kirkjulist.
Það var vísast öðru fremur pólitísk
afstaða, því í kirkjum finnst allskon-
ar list og þær eru sjálfar að utan
sem innan spegill listhræringa í
gegnum aldirnar.
Það teljast þannig engin svik við
listina, að vinna jöfnum höndum
að kirkjulist, enn síður svo til sam-
tímis í hefðbundnum og óhefð-
bundnum grunnmálum. Þeir sem
unnu þannig jöfnum höndum hlut-
lægt og óhlutlægt í málverki eins
og t.d. Jean Hélion og Francis
Picabia hafa fyrir löngu fengið upp-
reisn æru.
Jens Urup, sem sýnir nú í þriðja
skipti á Islandi, hefur kosið að
kynna að þessu sinni einungis ab-
straktverk sem hann hefur unnið
að á síðustu fimm árum, og skiptist
þetta nokkurn veginn jafnt í akrýl-
verk á dúk og pappír.
Dúkarnir eru yfirleitt
stærri og áleitnari og hér
virðist listamaðurinn ganga
út frá þeirri gömlu speki,
að minna er meira. í öllu
falli fer hann mjög sparlega
með form og línur á einlit-
um grunni, svo að á stund-
um virka myndirnar hálf
tómlegar í upphafi, en venj-
ast vel við nánari skoðun
og fleiri heimsóknir. Þó var
það svo að myndir djúpra stemmn-
ingahrifa eins og t.d. „Úmbra“ (5)
og „Rautt málverk“(8) orkuðu
sterkast á mig. í þeim er sem fram
komi skyldleiki við glermálverkið
og litræna dýpt þess.
Pappírsverkin undir gleri eru
heildstæðári þáttur sýningarinnar,
í þeim er meiri nánd og þar ber
mest á stórri blárri mynd, sem er
í fjórum einingum. Þetta er yngsta
myndin á sýningunni, gerð á þessu
ári, en er þó ein sú ferskasta. Hér
svífa ýmis ókennileg form í víðátt-
um blámans, en þau eru kyrfilega
skorðuð á myndflötinn með klass-
ískum lögmálum myndlistarinnar.
B.ragi Ásgeirsson
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju
heldur vortónleika sína í Laugar-
neskirkju þriðjudaginn 24. maí nk.
kl. 20. Tónleikar þessir eru haldn-
ir í tilefni af alþjóðlegu kóramóti
í Bandaríkjunum í apríl sl. Þar
vann kórinn fyrstu verðlaun í kóra-
keppni og tveir meðlimir kórsins
sigruðu í tvísöngskeppni.
Á tónleikunum verða flutt mörg
þeirra verka sem kórinn söng á
kóramótinu og Ólafur F. Magnús-
son og Hrafn Davíðsson munu
syngja Maiglöckchen und die
Blumelein eftir Mendelssohn, sem
færði þeim sigur í tvísöngskeppni
kóramótsins. Einnig mun Jóhann
Ari Lárusson og Laufey Geirlaugs-
dóttir sópran syngja Pie Jesu eftir
Andrew Lloyd-Webber.
Kórinn hefur undanfarið unnið
að upptökum fyrir geisladisk sem
kemur út í haust. Undirleikari
kórsins er Davíð Knowles Ját-
varðsson og stjórnandi Ronald
Vilhjálmur Turner.
Miðaverð er 500 krónur fyrir
fullorðna og 200 krónur fyrir börn.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Jens Urup