Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 7
6 C MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
+
IÞROTTIR
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ1994 C 7
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA
Höfum ekki enn
fundið taktinn í
sóknarieiknum
— sagði Kristinn Björnsson, þjálfari Valsmanna,
eftirjafntefiið við IBK. „Eigum eftirað leika miklu betur"
„EG er ekki yfir mig ánægður með leik okkar. Við höfum leik-
ið fáa leiki og höfum ekki náð að finna rétta taktinn í sóknar-
leiknum — áttum í erfiðleikum með að brjótast í gegnum vörn
Keflvíkinga," sagði Kristinn Björnsson, þjálfari Valsmanna,
eftir að þeir gerðu jafntefli, 1:1, við Keflvikinga að Hlíðarenda.
„Þá var varnarleikur okkar ekki nægilega öruggur. Ég er ekki
að örvænta, því að ég veit að við eigum eftir að leika miklu
betur."
Marko Tanasic
skoraði fyrsta mark
1. deildarkeppninnar á 53. mín.
— og var markið afar glæsilegt.
Knötturinn barst snöggt út á
hægri kantinn, þar sem hann
brunaði fram með knöttinn og
rétt inn í vítateig Valsmanna.
Lárus Sigurðsson, markvörður
Vals, kom út á móti honum —
flestir reiknuðu með fyrirgjöf,
en Tanasic var fljótur að hugsa
— vippaði knettinum glæsilega
yfir Lárus. Knötturinn hafnaði
í hliðametinu fjær.
4 |4| Jón Grétar Jónsson
I ■ I jafnaði fyrir Val á 68.
mín. Það var Eiður Smári Guðjo-
hnsen sem átti allan heiður af
markinu, en hann brunaði fram
með knöttinn — sendi hann síð-
an glæsilega inn til Jóns Grét-
ars, sem komst á auðan sjó inn
í vítateig og var fljótur að þakka
fyrir sig með því að renna knett-
inum framhjá Óiafi Gottskálks-
syni, markverði Keflvíkinga.
Kristinn sagði að leikurinn hafí
oft verið á rólegu nótunum.
„Ég er ánægður með hvemig við
náðum að komast
Sigmundur ó. inn í leikinn á ný,.
Steinarsson eftir að Keflvíking-
skrifar ar höfðu skorað
fljótlega í seinni
hálfleik. Það er allt-
af erfitt að leika gegn Keflvíking-
um, sem eru með líkamlega sterka
leikmenn sem gefast aldrei upp.
Keflvíkingar léku mjög skemmti-
lega knattspyrnu í fyrra, þar sem
knötturinn var látinn ganga. Nú
hafa þeir tekið upp kraftaknatt-
spyrnuna á ný — leikur þeirra
byggist á einni stuttri sendingu
og síðan langri. Þeir sleppa oft
stuttu sendingunum og leggja
áherslu á langar sendingar upp
kantana,“ sagði Kristinn.
Keflvíkingar lengi
meö yfirhöndina
Leikur liðanna að Hlíðarenda
var langt frá því að vera skemmti-
legur. Það var hart barist um
knöttinn á miðjunni, en Keflvík-
ingar voru lengi vel með yfirhönd-
ina. Þeir náðu þó aldrei að skapa
sér veruleg markækifæri — Ragn-
ar Margeirsson og Kjartan Einars-
son, markahrókarnir miklu, náðu
sér ekki á strik, en sýndu að þeg-
ar þeir komast á ferðina, eiga
þeir eftir að gera varnarmönnum
lífið leitt. Það vakti óneitanlega
athygli að Serbinn Marko Tanasic,
hinn klóki miðvailarspilari, sem
var potturinn og pannan í sókna-
raðgerðum Keflvíkurliðsins í fyrra,
lék út á hægri kantinum — náði
sér aldrei verulega á strik, en
mark hans var afar glæsilegt. Með
ákveðnari leik hefðu Keflvíkingar
átt að vera búnir að gera út um
leikinn áður en Valsmenn náðu að
jafna.
Vantaði festi í leik
Valsmanna
Það vantaði festu í leik Valsliðs-
ins — festu sem kemur öruggiega
með Guðna Bergssyni og Agústi
Gylfasyni. Eiður Smári Guðjo-
hnsen sýndi marga skemmtilega
hiuti — eins og þegar hann lék
að vörn Keflvíkinga og sendi
knöttinn til Jóns Grétars Jónsson-
ar, er hann skoraði jöfnunarmark-
ið. Þar sýndi þessi fimmtán ára
leikmaður hvers hann er megnug-
ur — hann gerði allt rétt.
Tómas Ingi með þrennu og hefur því skorað meira en leikmenn allra hinna liðanna til samans — Bett með tvö ífyrsta leiknum
Bett
Morgunblaðið/RAX
opnar markareikninginn
JAMES Bett lék mjög vel á miðjunni í fyrsta leik sínum fyrir Vesturbæjarliðið og skoraði m.a. tvö mörk. Hér fagnar hann því fyrra. Bett þrumaði í markið utan úr teig eftir mjög laglegt samspil. við Tómas Inga Tómasson.
Eiður Smári sá yngsti
í 1. deild frá upphafí
Eiður Smári Guðjohnsen er yngsti leikmaðurinn, sem hefur
leikið í 1. deildarkeppninni í knattspymu. Hann lék með Valslið-
inu gegn Keflavík á mánudagskvöldið — var 15 ára og 250 daga
gamall. Þorbjöm Atli Sveinsson átti gamla metið — var 15 ára og 270
daga gamall þegar hann lék með Fram gegn Þór í fyrra.
Eiður Smári lék mjög vel með Valsliðinu og átti jöfnunarmark Vals-
manna — sendi knöttinn glæsilega til Jóns Grétars Jónssonar, sem skor-
aði. „Eiður Smári er maður framtíðarinnar. Hann sýndi það gegn Kefla-
vík og mark okkar kom eftir einstaklingsframták hans. Þegar Eiður
Smári er búinn að átta sig á hlutunum og aðlaga sig að fýrstudeildar-
keppninni að hann hefur að gera góða hluti. Það verður skemmtilegt
að fylgjast með honum í framtíðinni," sagði Kristinn Björnsson, þjálfari
Valsmanna, sem var óhræddur við að tefla hinum unga leikmanni fram
gegn grimmum leikmönnum Keflvíkinga.
Sá yngsti lék
vel með
Valsliðinu
EIÐUR Smári Guðjohnsen, yngsti
leikmaðurinn sem hefur leikið í 1.
deild, sýndi marga góða hluti gegn
Keflvíkingum og lagði meðal annars
upp jöfnunarmarkið sem Jón Grétar
Jónsson skoraði. Hér hefur Eiður
Smári betur f viðureign við Ragnar
Steinarsson. Þess má geta að faðir
Eiðs, Arnór Guðjohnsen, var aðeins
Morgunblaðið/Kristinn 16 ára er hann l6k fyrst >' f- deildinni.
Hilmar Björnsson tök horn frá
■ | vinstri T hátt fyrir markið.
Cardaklija, markvörður, virtist hafa bolt-
ann, en missti hann klaufalega fyrir fætur
Tómasar Inga Tómassonar, sem skoraði
af öryggi af stuttu færi á 68. mín.
Oa ^iCardaklija gerði aftur mistök
■ aLsjö mínútum síðar. Hann ætlaði
að hreinsa frá, en boltinn fór út til vinstri.
Jón Þórir náði boltanum út við hornfána
— sendi beint á Heimi Guðjónsson, sem
var rétt utan vítateigs. Hann renndi inn
á miðjuna á Bett, sem sendi á Tómas
Inga sem lék inní vítateiginn og renndi
til hliðar á James Bett sem var réttur
maður á réttum stað og spymti viðstöðu-
laust og af öryggi frá vítapunkti í markið.
Oa^jEinar Páll Tómasson var að
■ ■^gaufa með boltann rétt fyrir
framan vítateig Breiðabliks á 82. mín.
Tómas Ingi Tómasson sá sér leik á borði,
stal af honum boltanum og komst á auðan
sjó og skoraði framhjá Cardaklija sem kom
út á móti.
Oa il Vítaspyrna var dæmd á Carda-
■"♦klija fyrir að brjóta á Porca sem
komst einn innfyrir vöm UBK eftir að
hafa stoiið boltanum af Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni á 85. mín. Tómas Ingi Tómas-
son tók vítaspyrnuna og skoraði af öryggi
framhjá Jóni Þóri Jónssyni, sem tók stöðu
markvarðar. Þar með var fyrsta þrenna
Tómasar Inga í 1. deild í höfn.
OafSHilmar Bjömsson hóf góða
■ 5#sókn KR-inga með því að senda
upp hægri kantinn á Tómas Inga, sem lék
upp að endamörkum og gaf út í vítateig-
inn á 90. mín. Þar var James Bett mætt-
ur og vippaði laglega yfir Jón Þóri.
Éggetekki
kvartað
- sagði Tómas Ingi Tómasson sem gerði
íyrstu þrennu sína í deildinni
„ÉG get ekki kvartað yfir þess-
um leik,“ sagði Tómas Ingi Tóm-
asson, sem gerði þrennu fyrir
KR gegn Breiðabliki á Kópavog-
svelli. „Ég hef aldrei áður gert
þrennu í fyrstu deildinni svo það
er nýtt fyrir mig,“ sagði marka-
skorarinn.
Tómas Ingi sagði að leikurinn
hafi verið erfiður. „í fyrri hálf-
leik vorum við að þreifa fyrir okkur,
en í síðari hálfleik náðum við að
stjórna leiknum og pressa á þá. Þó
ég hafi gert þessi þijú mörk, er það
allt liðið sem á heiðurinn. En það er
gott að byija svona vei,“ sagði Tóm-
as Ingi.
„Við fórum varlega í fyrri hálfleik
og þreifuðum okkur hægt og rólega
inn í leikinn. Við höfðum kraft í níu-
tíu mínútur og ég vissi að þetta
kæmi. Ég er mjög ánægður að byrja
mótið með svona góðum sigri, eins
og með ÍA í 1. umferð gegn FH í
fyrra. Við vorum með tvo leikmenn
í banni og ég held að okkur hafi
tekist að leysa það vandamál bæri-
lega, breiddin er góð,“ sagði Guðjón
Þórðarson, þjálfari KR.
Bett ánægður
James Bett var að vonum ánægð-
ur með fyrsta leikinn með KR. „Ég
get ekki annað en verið ánægður og
það skemmir ekki fyrir að skora tvö
mörk. Við vorum seinir í gang, en
fundum okkur vel í síðari hálfleik.
En við eigum eftir 17 leiki í deild-
inni og þeir verða allir erfiðir," sagði
Bett.
Ingi Björn Albertsson var óhress
með tapið. „Við gerðum bamaleg
mistök í nánast öllum mörkunum
sem við fengum á okkur. Vonandi
tókum við út öll mistökin fyrir sum-
arið í þessum leik — mistökin eru
til að læra af. Við gáfum þeim alltof
mikið pláss og lékum óagað. Við
raunum hvernig fór fyrir FH í fyrstu
umferð í fyrra gegn ÍA. Við tökum
því FH til fyrirmyndar og tökum
okkur saman í andlitinu og snúum
dæminu við. Það er engin uppgjöf í
hverbúðum okkar,“ sagði Ingi Björn.
Óskabyvjun
KR-inga
<
KR, SEM spáð er meistaratitlinum, fékk sannkallaða
óskabyrjun í deildinni, er liðið burstaði Breiðablik á
Kópavogsveili með fimm mörkum gegn engu. Öll mörk-
in voru gerð f síðari hálfleik. Tómas Ingi Tómasson
gerði þrennu fyrir KR og Skotinn James Bett byrjaði vel
í sínum fyrsta leik með liðinu og setti hin tvö. Card-
aklija, markverði Breiðabliks, var vfsað af leikvelli undir
lokin fyrir að brjóta á Porca innan vítateigs.
ValurB.
Jónatansson
skrifar
Leikurinn var frekar bragðdaufur
í fyrri hálfleik og fátt sem
gladdi augað. Leikmenn áttu erfitt
með að finna taktinn
og var hending ef
boltinn rataði á milli
samherja. Það
markverðasta sem
gerðist í fyrri hálfleik voru tvær
vítaspyrnur, sem nýttust liðunum
ekki.
Blikar fengu vítaspyrnu á 15.
mínútu er Óskar Hrafn braut á
Arnari Grétarssyni. Arnar tók
spyrnuna sjálfur en Kristjan Finn-
bogason varði meistaralega út við
stöng. Sjö mínútum síðar var dæmd
vítaspyrna hinum megin er Carda-
klija braut á Daða Dervic, sem kom-
inn var einn inn fyrir vörn Breiða-
bliks. Óskar Þorvaldsson tók spyrn-
una fyrir KR, en Cardaklija varði
laust skot hans auðveldlega.
Besta færi hálfleiksins kom í hlut
Breiðabliks á 38. mínútu. Guðmund-
ur Guðmundsson átti þá góða fyrir-
gjöf á Arnar Grétarsson frá hægri,
en Óskar Hrafn náði að bjarga í
horn á síðustu stundu. Blikar voru
síst lakara liðið í fyrri hálfleik og
voru óheppnir að vera ekki yfír.
Síðari hálfleikur var algjörlega
eign Vesturbæjarliðsins. Það setti í
annan gír og sóknirnar dundu á
marki Breiðabliks. ísinn var þó ekki
brotinn fyrr en síðari hálfleikur var
hálfnaður. „Ég vissi að markið lá í
loftinu. Ég sagði við strákana á
varamannabekknum „nú fer hann
að detta inn“ og það stóð,“ sagði
Guðjón Þórðarson þjálfari KR-inga.
Tómas Ingi gerði fyrsta markið eft-
ir homspyrnu og síðan komu þau á
færibandi og voru orðin fímm áður
en yfir lauk. Blikar geta þakkað
fyrir að leikurinn var ekki lengri
því þeir voru sprungnir. Þeir færðu
gestunum mörkin á silfurfati með
eigin mistökum og klaufaskap.
KR-ingar voru ekki sannfærandi
í fyrri hálfleik, en óx ásmegin í síð-
ari hálfleik og léku þá á öðrum hraða
en Blikar. Vörnin var sterk og eins
var Kristján traustur í markinu 5
þau fáu skipti sem reyndi á hann.
Bett naut sín vel á miðjunni í seinni
hálfleik — dreifði spilinu með snögg-
um sendingum kantanna á milli.
Hann var líka mjög ógnandi og
nýtti færin vel. Tómas Ingi var mjög
sprækur og vann vel allan leikinn
og uppskar samkvæmt því. Það er
of snemmt fyrir KR-inga að gleðj-
ast um of því Kópavogsbúar voru
alltof gjafmildir og það er ekki víst
að önnur lið í deildinni verði það.
Annar í hvítasunnu er ekki dagur
Breiðabliksmanna karlaflokki. Þeir
urðu fyrir áfalli strax á 2. mínútu
leiksins er þeir misstu Val Valsson
út af. Síðan misnotuðu þeir víta-
spyrnu og eftir það gekk allt á aft-
urfótunum og í lokin var markverði
þeirra vísað af leikvelli og var þá
fokið í flest skjól. Það var aðeins
Arnar Grétarsson sem lék vel og
var reyndar besti leikmaður vallar-
ins í fyrri hálfleik. Liðið sýndi ágæta
kafla í fyrri hálfleik, en síðari hálf-
leikur var hrein martröð og er best
gleymdur fyrir þá.
FOLK
ÞRÍR leikmenn Keflavíkur-
liðsins voru á meðal áhorfenda á
leiknum gegn Val að Hlíðarenda —
meiddir. Sigurður Björgvinsson,
Gestur Gylfason og Jóhann
Magnússon.
GEORG Birgisson, leikmaður
Keflavíkurliðsins, lék með gifs á
hægri hendi — er handarbrotinn.
ÓLI Þór Magnússon sat á
varamannabekknum hjá Keflvík-
ingum. Hann kemst ekki að, þar
sem tveir miklir markahrókar eru
í fremstu víglínu — Ragnar Mar-
geirsson og Kjartan Einarsson.
■ ÁGÚST Gylfason leikur ekki
með Valsliðinu fyrr en í júní, þar
sem hann er enn í Sviss.
U GUÐNI Bergsson er ekki orð-
inn góður eftir meiðsli og var hann
ekki í leikmannahópi Vals, en aftur
á móti var hann í liðsstjórnarhópn-
um.
■ VALUR Valsson spilaði aðeins
með Breiðabliki í tvær mínútur
gegn KR. Hann lenti í samstuði við
Hilmar Björnsson — fékk spark í
hendi og bringuna og átti erfítt
með andardrátt. Siguijón Sigurðs-
son, læknir, sagði að Valur hefði
marist og reiknaði með að hann
Írði að hvíla í eina til tvær vikur.
I HAJRUDIN Cardaklija,
markvörður Breiðabliks, verður í
leikbanni gegn IBK í 2. umferð
annað kvöld. Hann fékk rauða
spjaldið í leiknum gegn KR. Stöðu
hans tekur Gísli Þ. Einarsson.
■ JÓN Þórir Jónsson er fjölhæf-
ur íþróttamaður. Hann hefur nýlok-
ið handboltatímabilinu með Sel-
fyssingunum og nú er hann byijað-
ur á fullu í knattspymunni með
Breiðabliki. Hann virðist líka geta
spilað hvaða stöðu sem er ef marka
má leikinn gegn KR. Hann byijaði
sem vinstri bakvörður en fór í mark-
ið eftir að Cardaklikja var rekinn
útaf undir lokin. „Ég valdi Jón
Þóri því hann hefur sýnt góð mark-
manns tilþrif á æfingum," sagði
Ingi Björn Albertsson, þjálfari
Breiðabliks.
■ LAZORIK Raspislav frá Slóv-
akíu lék fyrsta leik sinn fyrir
Breiðablik á mánudaginn. Hann
kom inná sem varamaður á 77.
mínútu.
■ TVEIR leiknienn úr röðum
KR-inga tóku út leikbann í fyrsta
leik. Það eru þeir Einar Þór Dani-
elsson og Tryggvi Guðmundsson,
sem reyndar á eftir að taka út tvo
leiki í viðbót.
■ ATLI Eðvaldsson, knatt-
spyrnugarpur og nú þjálfari HK,
var ekki með liðinu í fyrstu umferð
2. deildar sl. föstudag, og segist
reyndar aðeins ætla að þjálfa liðið
í sumar, ekki spila með.