Morgunblaðið - 03.06.1994, Page 1
FOSTUDAGUR
3.JÚNÍ 1994
<]
Kappsamlega hefur verið
unnið við endurnýjun hús-
næðis á Búðuni.
\ l ’
mi
Morgunblaðið/RAX
I hvalaskoðun fiá Búðum
í SUMAR býðst ferðamönnum að fara
í hvalaskoðunarferðir frá Búðum á Snæ-
fellsnesi. Hótel Búðir og Hafrannsókna-
stofnunin hafa samvinnu um þetta. Vikt-
or Sveinsson á Hótel Búðum sagði, að
hvergi á Islandi væri jafn stutt að fara
til að sjá hvali og samkvæmt talningu
Hafrannsóknastofnunarinnar er þetta
eini staðurinn þar sem steypireyður
lætur sjá sig svo nærri auk smáhvela
ýmissa og búrhvala. Þessar ferðir hefj-
ast um miðjan mánuðinn.
Nýir eigendur tóku við Hótel Búðum nú
í ár og Viktor sagði, að unnið hefði verið
að því í allt vor að endurnýja hótelið sem
honum skildist að væri annað elsta hótel
á íslandi á eftir Hótel Borg og hefur verið
starfrækt frá árinu 1947. Húsið hefur ver-
ið málað utan, inngangi breytt en reynt
■er að halda upprunalegum stíl hússins í
hvívetna. Herbergi í nýjustu álmu og mið-
álmu hússins hafa verið tekin í gegn, rúm
endurnýjuð og lúin húsgögn fengið hvíld.
Aðalmatreiðslumaður Hótels Búða erHaf-
þór Ólafsson, söngvari í Súkkat. Hann
hefur séð um að kokka fyrir hótelgesti frá
1987.
Þá hefur vegum og bílastæðum við hót-
elið verið breytt og færðir til betra horfs,
bryggjan löguð og höfnin dýpkuð, einkum
og sér í lagi vegna áðurnefndra hvalaskoð-
unarferða. Viktor sagði, að einnig yrði
rekin hestaleigan Gobbedígobb á Búðum í
sumar. ■
Tæplega 3.000 eru skráðir
atvinnulausir og sumir missa bætur
af því þeir hafna starfi sem þeim er boðið
FÆRST hefur í vöxt að atvinnuleysisbætur séu teknar af fólki
því það hafnar vinnu sem í boði er. Sumir vinnuveitendur kvarta
undan áhugaleysi á störfum og því að erfitt sé að finna vinnu-
afl. Nú eru 2.850 manns skráðir atvinnulausir í Reykjavík.
Halldór Helgason eigandi
rakarastofunnar á Hótel Sögu
segist hafa orðið var við áhuga-
leysi meðal atvinnulausra hár-
greiðslu-og hárskerasveina, en
hann auglýsti nýlega lausa stöðu
fyrir svein. „Þótt yfir 20 manns
í greininni séu skráðir atvinnu-
lausir, svaraði enginn auglýsing-
unni. Því leitaði ég til ráðninga-
skrifstofu borgarinnar.“ Halldór
segir að þeir sem ráðningaskrif-
stofa hafi sent í viðtal hafi skilað
sér seint og illa.
í vinnuviðtölum segist Halldór
hafa sannfærst um að enginn
viðmælenda hafi haft raunveru-
legan áhuga á að vinna. „Enginn
spurði um laun, en þau eru um
100 þús. kr. á mánuði. Einn vildi
vinna 5-10 klst. í viku, annar
vildi aðeins vinna með eldri borg-
urum, sá þriðji hugðist vera í fríi
í 2 mánuði í sumar, sumir báru
við ofnæmi, æðaþrengslum eða
vöðvabólgu og margir höfðu orð
á að þeir hefðu ekki gæslu fyrir
börn sín.“
í kjölfar þessa voru atvinnu-
leysisbætur teknar af einhveijum
viðmælenda Halldórs, sem hann
segir að hafi haft samband við
sig og kvartað yfir því að vera
nú bótalausir hans vegna.“
Borgar slg ekki að vinna
Eigandi bakarís í Reykjavík,
sem ekki vill að nafn
sitt komi fram, hefur
margoft auglýst eftir
starfskrafti í afgreiðslu.
Þeir fáu sem hafi sýnt
átarfinu áhuga, hafi sagt
að miðað við launin
borgaði sig ekki að
vinna. „Launin eru skv.
taxta V.R. og nokkrum
þúsund krónum hærri
en atvinnuleysisbætur.
Langflestir voru áhuga-
lausir með öllu og kváð-
ust ekki nenna að vinna
fyrir svo lág laun.“
Oddrún Kristjáns-
dóttir hjá ráðningaskrifstofu
Reykjavíkur segir að nú séu 2.850
manns á atvinnuleysisskrá. „Sam-
kvæmt könnun sem við gerðum
og náði yfir sex vikna tímabil,
hafa 10% atvinnulausra hafnað
starfi sem þeim hefur verið boðið.
Þessum tilfellum fer fjölgandi."
Oddrún segir að stundum kvarti
atvinnuveitendur undan því að
„Samkvæmt
könnun sem
við gerðum og
nóði yffir sex
vikna tímabil,
hafa 10%
atvinnulausra
hafnað starfi
sem þeim
hefur verið
boðið."
fólk dragi lengi að mæta í viðtal
vegna starfs og rætt hafi verið
um að setja reglur um að ekki
skuli líða meira en 7 dagar frá
því fólk er boðað í viðtal þar til
það mæti.
Margrét Tómasdóttir hjá at-
vinnuleysistryggingarsjóði segir
að undanfarið hafí farið fjölgandi
þeim tilvikum að fólki sé sagt upp
starfi að hluta til. „Mig
granar að stundum sé
um að ræða samkomu-
lag vinnuveitanda og
starfsmann um að not-
færa sér atvinnuleysis-
tryggingakerfið." Hún
tekur dæmi um starfs-
mann sem sagt er upp
50% starfi en heldur
áfram að vinna í hálfu
starfi kl. 10-14. „Slíkur
vinnutími gerir ómögu-
legt að finna annað 50%
starf fyrir viðkomandi.
Ef bætur eru þegnar á
þeim forsendum að við-
komandi vilji vinna fullan vinnu-
dag, ber honum að taka fullu
starfi sem honum er boðið hjá
öðru fyrirtæki, eða hætta að taka
Yið atvinnuleysisbótum." Margrét
kveðst vita af áhugaleysi hjá sum-
um þeirra sem skráðir era at-
vinnulausir. „Þegar átaksverkefni
fara af stað kemur í ljós hveijir
vilja vinna og hveijir ekki.“ ■
Evrópubanda-
lagið mun m.a.
styrkja ffyrir-
tæki, einstakl-
inga og stofn-
arnir til
ýmissa verk-
efna tengdum
ferðamálum.
fsland getu sótt um
feröaþjónustustyrk EB
FRÁ síðustu áramótum hefur ísland ásamt öðrum
EFTA-þjóðum tekið þátt í framkvæmdaáætlun Evr-
ópusambandsins á sviði ferðamála. Miðast hún við
að efla evrópska samvinnu á sviði ferðaþjónustu og
stuðla að eflingu atvinnugreinarinnar almennt.
Henni er ætlað að kynna ferðaþjónustu meðal neyt-
enda og styrkja frumkvæði ferðaþjónustunn-
ar að evrópskri samvinnu í hveiju landi fyrir
sig. Um þetta er fjallað í framkvæmdaáætlun
Evrópusambandsins á sviði ferðaþjónustu og
Stjórnunartíðindum EB.
Islendingar eiga í sumar möguleika á þvi í fyrsta
sinn að sækja um styrk til þessara samstarfsverk-
efna. Evrópubandalagið mun m.a. styrkja fyrir-
tæki, einstaklinga og stofnarnir til ýmissa verkefna
tengdum ferðamálum. Áhersla verður lögð á sam-
ræmingu starfsemi sem fyrir er; að skipst verði á
upplýsingum eða þær veittar, með betri þjónustu
og landkynningu fyrir ferðamenn að meginsjón-
armiði.
Stefnt er að því að útbúa handhægar upplýs-
ingar fyrir ferðamenn í þægilegri handbók og í tölvuv-
æddri upplýsingatækni. Það á að veita ferðamönnum nauð-
synlegar upplýsingar og greiða fyrir ferðalögum þeirra á
evrópska efnahagssvæðinu. Betri upplýsingar fyrir ferða-
menn era hagkvæmar í þróun ferðaþjónustunnar.
Keppt verður að menningarlegri ferðamannaþjónustu,
þ.e. að efla þekkingu á menningu, hefðum og lífsháttum
Evrópubúa. Miða á við fjölbreytni og efla gæði í ferðaþjón-
ustu í Evrópu.
Áhersla verður lögð á bætta og fjölbreytta ferðaþjón-
ustu fyrir ungt fólk. Er m.a. áætlað að skapa skiptinema-
kerfi vegna „Evrópubekkja" sem eru skólaferðir fyrir
nemendur frá ýmsum aðildarríkjum bandalagsins. Góð
reynsla ungs fólks af ferðaþjónustu mun hafa áhrif á
ferðavenjur þess síðar á ævinni. ■
Morgunblaðið/Kristinn
Japanskii ferða-
skiilstofumenn á íslandi
SÍÐUSTU daga hafa verið hér-
lendis um 15 japanskir ferðaskrif-
stofumenn og komu þeir hingað
fyrir meðalgöngu kynningarskrif-
stofu íslands í Tókýó. í hópnum
eru einnig tveir blaðamenn sem
skrifa um ferðamál. Japanirnir
hafa ferðast um Suðurlandsundir-
lendi, farið norður á Akureyri og
einnig til Vestmannaeyja.
Japanarnir fóru í Bláa lónið í
gærmorgun og síðan var hádegis-
verður og námstefna með fulltrú-
um frá íslenskum ferðaskrifstof-
um á Holiday Inn, þar sem mynd-
in var tekin. Þeir halda heimleiðis
í dag, föstudag. ■