Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 2
2 C FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Hönnunar-
verðlaun veitt
fyrir brjóstapumpu
Svissneska fyrirtækið Ameda
fékk nýlega hönnunarverðlaun
fyrir brjóstapumpu sem hönnuð
var í samvinnu við ljósmæður
og konur sem voru með börn á
bijósti.
Rétthentar og örvhentar konur
geta notað pumpuna og hún á að
vera þannig úr garði gerð að hún
þreyti ekki þó pumpað sé í tölu-
verðan tíma. Þá er annar kostur
við pumpuna að barnið fær mjólk-
ina beint úr pumpunni því pumpan
er skrúfuð á pela. Það má frysta
mjólkina að pumpun lokinni sé
notuð plastflaska á hana.
■
Hattar
eru í tísku
Veðrið hefur verið gott á höfuð-
borgarsvæðinu að undanförnu
og því gefist tækifæri til að
klæðast ljósum og léttum
sumarfatnaði. Svokallað-
ir krumpukjólar og pils
hafa slegið í gegn, hatt-
ar eru komnir í tísku
og pijónahúfur ganga
líka. Litirnir eru ljós-
ir og beinhvítur vin-
sælastur. ■
Viðmælandi minn er Gertrudes
Vitorino, ritari Kvennasamtaka
Mósambik, og við hittumst á skrif-
stofu hennar í Maputo. Skrifstofan
er í Frelimo-húsinu eins og það
er kallað og ég gekk upp óteljandi
stiga því engin lyfta er í húsinu.
Kim II Sung og Mao götur í
Maputo
Þetta er í hverfi í Maputo sem
er langtum myndarlegra og rík-
mannlegra en miðbærinn. A leið-
inni labbaði ég um einbýlishúsa-
hverfi, þar voru m.a. ýmis erlend
sendiráð til húsa. Götur í Maputo
heita flestar eftir aðskiljanlegum
frelsishetjum Mósambik svo og
erlendum stjórnmálaskörungum
af Marx-Lenín ættbálkinum og
ein breiðgatan heitir náttúrlega
Karl Marx-gata. Einnig eiga
Mao Tse-Tung , Kim II Sung,
Julius Nyere, Ho Chi Minh og
Salvador Allende og fleiri sínar
götur. Fyrir sjálfstæðið hétu
götur Maputo eftir portúgölsk-
um sæförum og stjórnmál-
aköppum einræðisstjórnar
; Portúgals. Þær voru allar
skírðar upp eftir að landið
: losnaði undan Portúgölum
1975., Það var höfuðborgin
líka, hún hét áður Lorenzo
Marques.
Ýmsir höfðu á orði að nú væru
að vísu margir af þessum náung-
um úr sögunni eftir fall kommún-
ismans. Umræður urðu um það í
fyllstu alvöru að skíra breiðstræti
borgarinnar upp eina ferðina enn.
En mörgum finnst nær að sinna
uppbyggingarstarfinu af krafti;
vandamál Mósambikka eru slík að
mislukkuð og úrelt götunöfn
skipta ekki nokkru máli.
Okkur hefur ekki miðað langt
vegna stríðsins
Gertrudes sagði að þrátt fyrir
að kvennasamtökin hefðu verið
pólitísk framan af hefðu þau jafn-
an haft þann tilgang að stuðla að
bættri menntun kvenna. Ekki að-
eins að konur lærðu að lesa og
skrifa heldur einnig um samsetn-
ingu fæðunnar með hollustu í
huga, umhirðu barna og þess hátt-
ar.
„Allt varð erfíðara vegna stríðs-
ins. Ef við lítum á tölur núna um
ólæsi í Mósambik mætti ætla að
okkur hefði lítið miðað, það er
mjög svipað og það var þegar
Portúgalar fóru héðan. En það
liggur í augum uppi að okkur voru
settar skorður vegna ófremdará-
standsins í landinu árum saman,
konur og karlar höfðu annað við
tímann að gera en sitja við að
Gertrudes Vitorino
læra stafina þegar stríð og hryll-
ingur geisaði allt um kring.
Jafnskjótt og friðvænlegt var á
svæðum - því oft lágu bardagar
niðri - vorum við komnar á vett-
vang með okkar leiðbeinendur. En
svo þurfti kannski að pakka saman
í einum grænum hvelli. Þetta voru
mjög erfið ár.“
Árið 1990 voru gerðar breyting-
ar á stjórnarskrá landsins og fellt
úr henni það sem var í ætt við
marx-lenínisma og samtímis var
samtökunum breytt úr pólitískri
hreyfingu í almenn baráttusamtök
fyrir bættum hag kvenna.
Sjálfboöallðar samtakanna
starfa um landlð allt
„Margt í gömlum hefðum Mós-
„Leyndir gallar“
- í fasteignaviðskiptum
geta einatt verið álitamál
UM SVIK af hálfu seljanda fasteignar er að ræða þegar hann með
ólögmætum hætti og gegn betri vitund gefur rangar upplýsingar eða
leynir atriðum, sem máli skipta, með þeim ásetningi að fá kaupanda
til að gera kaupsamning. Þetta er það sem í daglegu tali eru kallaðir
„leyndir gallar“. Það getur oft reynst kaupendum erfitt að sækja rétt
sinn eftir að kaup hafa farið fram, en hafi seljandi beitt svikum á
kaupandi rétt á bótum úr hendi hans og einnig riftunarrétt. Við leituð-
um til Húseigendafélagsins til þess að fá innsýn í málið.
Að sögn Steingerðar Steinarsdótt- kaupanda varðar, skiptir það eitt
i
ur, kynningarfulltrúa, er meginregl-
an sú að hafi eigandi vitað eða haft
grun um galla telst það leyndur galli.
Sé aftur á móti um að ræða eitt-
hvað, sem seljandi fasteignar hefur
alls ekki getað vitað um, er það kaup-
andinn sem yfirleitt verður að bera
skaðann og er seljandi laus undan
ábyrgð.
Hugtakið galli hefur tvær merk-
ingar. í fyrsta lagi telst eign gölluð
ef hún hefur ekki þau einkenni, sem
hún átti að hafa/hefur einhver ein-
kenni sem hún átti ekki að hafa,
skv. samningi aðila. í öðru lagi er
eign gölluð hafi hún ekki þá kosti
eða einkenni, sem sambærilegar
eignir hafa venjulega.
Hafa skal í huga að þessar tvær
merkingar fara ekki alltaf saman.
Hvað skyldur seljanda og heimildir
máli hvort hið selda er í samræmi
við samning þeirra. Ef sú er raunin
skiptir engu máli hvort eignin yrði
almennt talin gölluð eða ekki.
Oft er miklum vandkvæðum bund-
ið að ákvarða hvort fasteign sé með
göllum, sem kaupandi getur borið
fyrir sig, og við athugun þess er
margs að gæta. Hið mikla verðmæti
fasteigna getur leitt til að minni
háttar gallar verði ekki taldir skipta
máli. Þá er fasteign margþætt verð-
mæti og byggist heildarástand henn-
ar og verðmæti á mati, þar sem horfa
verður til fjölmargra þátta. Það má
t.d. hugsa sér að léleg múrvinna sé
upphafín með vönduðu tréverki eða
góðri staðsetningu.
Ábyrgð seljanda
Seljandi kann að hafa ábyrgst í
kaupsamningi að eignin sé tilteknum
kostum búin eða laus við ákveðna
ókosti, t.d. að raki sé ekki eða þak
leki ekki. Þegar slíkar yfirlýsingar
liggja fyrir er afstaðan yfírleitt Ijós.
Þá kann seljandi að hafa gefið ýms-
ar munnlegar upplýsingar um ástand
eignarinnar við eða í tengslum við
samningsgerð sem reynast rangar.
Slíkar upplýsingar teljast almennt
jafngilda því að hann hafi ábyrgst
réttmæti þeirra. Fyrir kemur að selj-
endur gefa rangar upplýsingar um
eign í góðri trú. Þegar svo stendur
á ætti seljandi yfirleitt endurkröfu-
rétt á hendur heimildamanni og því
er eðlilegt að hann sé ábyrgur gagn-
vart kaupanda.
Forsendurkaupanda
Við ákvörðun þess hvort eign telst
gölluð, koma til álita forsendur kaup-
andans, en með forsendum er hér
átt við þær hugmyndir sem kaupandi
mátti með sanngimi gera sér um
ástand eignar og voru ákvarðandi
fyrir hann um kaupin.
Það er þó ekki einhlítt að segja
til um hvaða hugmyndir kaupandi
má gera sér um fasteign. Fasteign
Sjálfboðasveitir
kvennasamtakanna vinna
um Mósambik þvert og endilangt
„UPPHAFLEGA voru Kvennasamtök Mósambik pólitísk og mark-
mið þeirra var að leggja fram sinn skerf í frelsisbaráttunni gegn
Portúgölum. Það voru stofnaðar litlar deildir í næstum öllum
héruðum og þó við vildum auðvitað vinna að bættri stöðu kvenna,
var hugurinn bundinn við að öðlast sjálfstæði. Svo fékkst sjálfstæð-
ið 1975 en þar með er ekki sagt að öll mál hafi leyst. Nema síður
sé. Þá hófst borgarastyijöld vítt og breitt um landið með skelfileg-
um afleiðingum."
k
f