Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 4
4 C FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Læddist niður á
nærbuxunum um miðja
nótt til að fylgjast með sveppunum
HANN Ragnar Flúðasveppur, eins og hann er kall
aður meðal starfsbræðra sinna, segist alla tíð
hafa haft löngun til að takast á við eitthvað
óvenjulegt. „Það var ljóst að svepparækt á Is-
landi yrði erfitt viðfangsefni en gæti átt fyrir
sér bjarta framtíð. Þessvegna dreif ég mig
í svepparæktina," segir Ragnar Kristinn
Kristjánsson sveppabóndi á Flúðum en
hann og kona hans, Mildrid Stein-
berg, reka þar mjög tæknilega full-
komið sveppabú.
Um tíma voru íslenskir sveppa-
framleiðendur sex talsins en þeir
hættu einn af öðrum og Ragnar stóð
eftir sem eini sveppabóndinn á Is-
landi. Núna hefur annar innlendur
ræktandi bæst við en óhætt að segja
að Ragnar sé sveppakóngur landsins
þar sem hann sér landsmönnum fyr-
ir þorra þeirra sveppa sem þeir láta
ofan í sig.
Framleiðir 4 tonn af
sveppum á viku
Fyrir mörgum árum heimsótti ég
Flúðasveppi og þá voru þau hjónin
að byija með svepparæktina. Heim-
ilið og fyrirtækið var í sama húsi og
allt snérist um sveppina. Fyrirtækið
var þrír ræktunarklefar og markmið-
ið var að rækta um 500 kíló af svepp-
um á viku. Ragnar var bjartsýnn,
nýkominn frá Danmörku þar sem
hann hafði kynnt sér málið. Starfs-
mennimir voru þrír en Ragnar vann
dag og nótt við að koma búinu upp.
Hann var meira að segja á ferðinni
á nóttunni, reis úr rekkju um miðja
nótt og læddist niður á nærbuxunum
til að athuga hitastigið á sveppunum.
Fyrirtæki Ragnars er orðið tíu ára
og núna átta árum eftir að Daglegt
líf heimsótti Ragnar síðast hefur
margt breyst.
Flúðasveppir er myndarlegt fyr-
irtæki, allt mjög snyrtilegt og miklu
stærra og tæknilega fullkomnara en
þá. Starfsmenn em um tuttugu og
nú í vor flutti fjölskyldan af loftinu
hjá Flúðasveppum í nýtt hús sem þau
hjón vom að reisa skammt frá fyrir-
tækinu. Ragnar getur samt ekki sof-
ið vært allar nætur því hann lét
tengja tölvukerfi ræktunarklefanna
inn á símboða sem læt-
ur hann vita um leið
og eitthvað fer úrskeið-
is.
Fyrirtækið hefur
verið í ömm vexti þessi
tíu ár en þróuninni er
engan vegið lokið. „Ég
á eftir að gera fram-
leiðsluna enn hag-
kvæmari og er alltaf
að vinna að því að finna
út nýjar leiðir í ræktun-
inni. I upphafi var
markmiðið að rækta
500 kíló á viku en nú
em klefarnir orðnir ell-
efu og meðalfram-
leiðsla um 4 tonn á
viku.
Markmiðið að nota íslenskt
hráefni
Ragnar Kristinn hefur frá upphafi
haft að markmiði að rækta sveppina
úr alíslensku hráefni. Hann kaupir
ekki rotmassa a’ utan heldur er sjálf-
ur með rotmassavinnslu. í rotmassan
fer íslenskur bygghálmur, hey og
áburður af kjúklingum. Ræktunar-
gróin er það eina sem kemur erlend-
is frá. Það tekur þijár vikur að und-
irbúa massann og til að anna þörf-
inni framleiðir Ragnar um 22 tonn
á viku.
Moldin er íslensk
líka en moldin, hálmur-
inn og heyið em gmnd-
vallarefni í framleiðsl-
unni. Umbúðirnar fær
Ragnar erlendis frá því
enn hefur hann ekki
fundið íslenskan aðila
sem getur framleitt
kassa eins og hann
þarf fyrir sveppina.
Svepparæktunin er
mjög tæknivædd á
Flúðum enda segist
Ragnar vera með einn
starfsmann í því að sjá
um viðhald á tækjum.
Hann hefur líka þurft
að láta breyta mörgum
tækjum, aðlaga þau að
íslenskum aðstæðum. Ræktunarklef-
ar em tölvustýrðir og tölva sér um
að halda aðstæðum stöðugum í klefa.
Samspil lofts, hita og raka þarf að
vera rétt á hveiju ræktunarstigi og
loftræstikerfin geta hermt eftir öllum
árstíðum.
í upphafi var
markmiðið að
framleióa 500
kíló af sveppum
ó viku. Núna
framleiöum við
að meðaltali 4
tonn ó viku
Sveppaverð hefur lœkkað!
- Hvað með að framleiða fleiri
sveppategundir?
„Eg hef hugleitt það en komist
að þeirri niðurstöðu að markaðurinn
sé ekki nægilega stór til að fara út
í það. Það er ekki mögulegt að nýta
þetta húsnæði í framleiðsluna, aðrar
sveppategundir þurfa ólík vaxtarskil-
yrði og ég veit ekki hvort ég hefði
orku í að sinna annarri framleiðslu
en þessari.
- Nú kvarta margir neytendur
yfir háu söluverði og segja þig okra
í skjóli einokunar?
„Sveppaverð hefur lækkað. Fyrir
fímm ámm kostaði eitt kíló af Flúða-
sveppum 833 krónur. Það lækkaði
með aukinni framleiðslu og kílóið
núna er yfirleitt á 599 krónur. Það
hefur staðið í stað í langan tíma. Á
meðan ég var eini sveppaframleið-
andinn á landinu þá hækkaði ég
ekki verðið.
Mitt markmið er að fyrirtækið beri
sig og ég vil auðvitað ná sem bestum
uppskemárangri til að verðið haldist
óbreytt eða geti lækkað enn meira.“
Það er aldrei hægt að stóla á fjög-
urra tonna uppskeru. Á hveijum
degi segir Ragnar Kristinn að starfs-
mennirnir séu að fást við ný vanda-
mál og reyna að finna út hagkvæm-
ari leiðir í ræktuninni.
Hollenskir svepparæktendur
eru 900 talsins
Þegar vikið er að því hvort hann
kvíði því að landið opnist fyrir inn-
flutningi á landbúnaðarvömm þá
jánkar hann því.
„Hollenskir svepparæktendur vom
600 talsins þegar ég byijaði með
Flúðasveppi fyrir 10 ámm. í dag eru
þeir 900 talsins. Hollenska ríkið hef-
ur stutt við bakið á hollenskum
bændum að undanförnu og hvatt til
tækjakaupa, stækkunar og uppbygg-
ingar. Stuðning sinn hefur það sýnt
með því að greiða allt að 60% af því
verði sem bændur hafa þurft að
greiða fyrir ný tæki,“ segir Ragnar.
Hann bendir líka á að í Hollandi
gangi sveppabúskapur mjög illa og
standi varla undir sér þrátt fyrir
mikinn stuðning frá yfirvöldum.
„í tíu ár hef ég verið að byggja
þetta fyrirtæki upp og reyna að gera
rekstuimn sem hagkvæmastan. Auð-
vitað hef ég í og með verið að búa
mig undir þessa holskeflu þegar hún
ríður yfir og er ákveðinn að reyna
að takast á við hana þegar þar að
kemur. En hvort að ég hef bolmagn
til að keppa við t.a.m. 900 hollenska
sveppaframleiðendur sem rækta við
allt önnur skilyrði en ég verður að
koma á daginn." ■
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Leiðbeinir Norðmönnum
hvernig þeir geti losnað við þreytu og vanlíðan
UPPSKRIFTIN að betra lífi var fyrirsögn á opnugrein í norska viku-
blaðinu KK fyrir skömmu. Konan sem er að gefa lesendum þessa upp-
skrift að betra Iífi er íslensk, Elsa Kirstin Kaldalóns Jónsdóttir en hún
rekur nokkurskonar heilsumiðstöð í húsinu sínu i Risor í Noregi. Hús-
ið sitt vill hún kalla „Hús með sál“.
„Ég er búin að reka nuddstofu
hérna í Risor í ein tíu ár en eftir að
ég skildi fyrir nokkrum árum þá
varð ég að finna leið til að halda
húsinu og ákvað að byrja með að-
stöðu fyrir fólk sem vildi hvíld, ró
og betri líðan."
Elsa segir að til hennar komi fólk
sem vinnur mikið og vilji taka sér
hvíld frá amstri daganna. Einnig
hefur starfsemin þróast þannig að
hún er farin að sinna ráðgjafarstörf-
um, jafnvel hjúskaparráðgjöf fyrir
bæjarbúa og út fyrir landsteina. Elsa
hefur haldið fyrirlestra um andlega
líðan og hún hefur verið með útvarps-
þætti þar sem hlustendur hringja inn
með spumingar. Um árin hefur Elsa
hjálpað unglinum sem eru á villigöt-
um, látið þá vinna og aðstoðað við
að ná tökum á fíkninni. Hún hefur
núna snúið sér að rekstri heimilisins.
Þar er hvorki sjónvarp né útvarp en
boðið upp á ýmiskonar nudd og sauna
og síðan kennir hún fólki hvernig
það á að borða, sérstaklega ef það
er undir álagi og kennir því að hugsa
jákvætt.
Fólk þarf að læra aó taka
ábyrgð á sér
Elsa segir að þeir sem séu undir
álagi í vinnu eða einkalífi þurfi að
borða réttan mat til að ná burt þreyt-
unni. Borði fólk þungan mat og sæt-
indi þá verður það ennþá þreyttara
Elsa Kirstin Kaldalóns Jónsdóttir
og á erfitt með að leysa nokkur
mál. Sé fæðan létt og borðuð á rétt-
an hátt finnur fólk strax mun að
tveimur eða þremur dögum liðnum.
Samsetning fæðu skiptir líka miklu
máli.“
Sjálf segist hún búa
sér til grænmetis-
súpu í stóran pott
og borða síðan súpuna og ávexti í
nokkra daga á meðan hún sé að
hreinsa sig og létta. „Þetta er létt-
hreinsandi matur og þyngdin í líkam-
anum hverfur og mér fínnst ég geta
hvað sem er.
íslendingar með Elsu til
Sikileyjar?
Hún er að athuga núna'
l