Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994 C 5
DAGLEGT LÍF
Einkenni um skort
östrogen-hormóna algeng á
breytingaskeiði, en úr því má bæta
ÆSKILEGT ER að konur taki
hormóna í fimm ár í kringum
tíðahvörf. Það getur komið í
veg fyrir bráð einkenni og haft
fyrirbyggjandi áhrif á beinrýrn-
un og hjarta- og æðasjúkdóma,
segir í fræðsluriti Félags ís-
lenskra kvensjúkdómalækna,
sem gefið hefur út samálit fé-
lagsins um hormónameðferð
fyrir og eftir tíðahvörf.
Tvær tegundir náttúrulegra
östrogena eru skráðar á íslandi
og þijár tegundir tilbúinna östrog-
ena. Á síðustu árum hafa verið
þróaðir hormónaplástrar og eru
þrjár tegundir skráðar á íslandi,
að sögn Björns G. Aðalsteinssonar
hjúkrunarfræðings sem vinnur hjá
lyfjainnflutningsfyrirtækinu Stef-
áni Thorarensen.
Breytingaskeið er tímabilið í
kringum síðustu blæðingar konu,
sem eru yfirleitt í kringum fimm-
tugsaldur. Líffræðileg orsök þessa
er að eggjastokkar hætta smám
saman að framleiða kynhormón.
Blæðingar verða óreglulegar og
smám saman hætta þær alveg.
Hitl, sviti og grátur
Flestar konur finna fyrir ein-
hveijum óþægindum á breytinga-
skeiðinu og er talið að um helming-
ur allra kvenna finni það mikil
óþægindi að þær þurfi aðstoð.
„Það er mjög mismunandi hversu
lengi þessi óþægindi standa, en
algengt er að þau óþægindi sem
beint má rekja til truflunar á
hormónaframleiðslunni, til dæmis
svitakóf, standi í nokkur ár, en
önnur einkenni, svo sem þurrkur
í slímhúð legganga og þvagrásar
verða meira áberandi með hækk-
andi aldri.“
Hita-og svitakóf á nóttunni
valda oft svefntruflunum, en einn-
ig geta geðsveiflur valdið erfiðleik-
um með svefn. Sumar konur verða
grátgjarnar, pirraðar eða þungar
í skapi á breytingaskeiðinu. Aðrar
finna fyrir óþægindum í liðamót-
um og vöðvum og er að hluta til
hægt að skýra þau með breyting-
um í bandveíjum kringum liðamót-
in.
Hormónaplástrar
njóta vaxandi
vinsælda. Að
sögn Björns Að-
alsteinssonar
hjúkrunarfræð-
ings er hægt að
gefa minni horm-
ónaskammta en
með pillum.
Hormónaflæði úr
plástri er stjórn-
að af sérstakri
stýrihimnu
Notaðir gegn beinþynningu og
kransæðasjúkdómum
Svo virðist sem langtímanotkun
á östrogen-hormónum geti minnk-
að hættu ' á beinþynningu. Jens
A. Guðmundsson sérfræðingur á
kvennadeild Landspítala greinir
frá þessu í Lyfjatíðindum. Þar seg-
ir hann jafnframt að mikið sé
rætt um að östrogen-hormónar
dragi úr hættu á kransæðasjúk-
dómum. Hann segir að flestir séu
sammála um að hormónameðferð
á breytingarskeiði hafi fleiri kosti
en galla.
Helstu niðurstöður starfshóps
Félags kvensjúkdómalækna eru
að ákaflega fátt mælir á móti því
að læknar veiti hormónameðferð.
Þó er talið að líkur á bijósta-
krabbameini geti aukist hjá konum
sem taka hormóna lengur en í tíu
ár. „Hormónameðferð í fimm ár
eða skemur eykur ekki á tíðni
bijóstakrabbameins,“ segir í
greininni.
í upplýsingariti Félags kvenn-
sjúkdómalækna kemur fram að á
breytingaskeiði fá allt að 80%
kvenna bráð einkenni um hormón-
askort sem standa í meira en eitt
ár. Hjá fjórðungi kvenna standa
þau lengur en fímm ár og hjá
15-20% vara einkennin í allt að
15 ár. Hormóna er hægt að fá
með ýmsu móti, til dæmis með
plástrum, pillum og forðaspraut-
um. í ritinu kemur fram að lítill
munur virðist vera á árangri eftir
því hvaða lyfjaform er notað, en
þó virðist hormónaplástrar síður
hafa áhrif á starfsemi lifrar.
Líkt eftir tíðahring
Gestagen-hormón er gefið til
mótvægis við östrogen og er það
til að koma í veg fyrir ofvöxt slím-
himnu legsins. Hér á landi eru til
nokkrar tegundir gestagena, en í
upplýsingariti kvensjúkdóma-
lækna kemur fram að gestagen
þurfi að nota í 10-12 daga í hveij-
um mánuði til að ná fullum
árangri. Með því móti er líka líkt
eftir tíðahring, og fá flestar konur
létta blæðingu í lok gestagen-með-
ferðar. ■
Brynja Tomer
Hluti hópsins er stendur að rekstri Grænu smiðjunnar.
Berum virðingu
fyrir plöntum og nýtum
náttúruna á skynsamlegan hátt
ÞETTA eru einkunnarorð Grænu smiðjunnar, fyrirtækis er tíu
framtakssamar athafnakonur af Suðurlandi hafa stofnað í Hvera-
gerði. Græna smiðjan er sölu- og fræðslumiðstöð um plöntur og
plöntunytjar.
í kjölfar mikillar umræðu um
atvinnuleysi tók hópur lista- og
athafnakvenna sig saman og stofn-
aði Grænu smiðjuna. Fyrirtækinu
var búinn staður að Breiðumörk
26, Hveragerði, í einu
elsta húsi bæjarins.
Konumar tóku við
húsnæðinu í mikilli
niðurníðslu en eftir
þrotlausa vinnu má
nú sjá árangur erfiðis
þeirra í glæsilegum
húsakynnum Grænu
smiðjunnar. Öll vinna
við að koma rekstrin-
um af stað var unnin
í sjálfboðavinnu.
Laugardaginn 14.
maí var Græna smiðj-
an opnuð með við-
höfn.
í Grænu smiðjunni verður fyrst
og fremst sala á handunnum varn-
ingi unnum úr plöntum eða hlutir
sem höfða til plantna. Dæmi um
vörur eru þurrkaðar íslenskar
krydd- og tejurtir, þurrblóma-
skreytingar, ýmsar tré- og leirvör-
ur, skarpgripir unnir úr ríki náttúr-
unnar og margt fleira. Stefnt er
að rekstri útimarkaðar á sumrin.
Á döfinni eru til dæmis nám-
skeið um körfugerð úr viðartágum,
Fjölbreytt nóm-
skeióahald
verdur fyrir al-
menning um
plöntur, ræktun
þeirra og nytjar
pappírsgerð, plöntur til manneldis,
kryddjurtir, flóru íslands og margt
fleira. Stefnt er að því að nám-
skeiðin verði stutt eða hnitmiðuð.
Gönguferðir um Hveragerði og
næsta nágrenni verða
einnig í boði þar sem
áhersla verður lögð á
að skoða sérkenni
Hveragerðis, nýtingu
jarðvarmans, gróð-
uríar í nágrenninu,
skógrækt, upp-
græðslu og fleira.
Gönguferðirnar verða
ætlaðar jafnt íslend-
ingum sem erlendum
ferðamönnum.
I fréttatilkynningu
frá Grænu smiðjunni
segir meðal annars:
„Þetta fyrirtæki mun
auka þá möguleika sem handverks-
fólk hefur til að koma handverki
sínu á framfæri, auk þess sem það
getur bæði aukið líf í bænum óg
boðið uppá nýjungar í afþreyingu
jafnt fyrir bæjarbúa sem aðkomu-
menn“.
Græna smiðjan er til húsa að
Breiðumörk 26 í Hveragerði og er
opin alla daga vikunnar frá klukk-
an 13-18. ■
Aldís Hafsteinsdóttir, Hveragerði
hvort hún geti ekki boðið Norðmönn-
um og jafnvel íslendingum upp á
nokkurskonar heilsubótar-, og
skemmtiferðir. „Oft þegar komið er
heim úr fríi er fólk þreyttara en þeg-
ar það lagði af stað. Borði það rétt
fæði í ferðinni, sofi vel, drekki áfengi
í hófi, næri líkama og sál og skemmti
sér í leiðinni kemur það heim endur-
nært og er tilbúið að fara að vinna
aftur og takast á við hversdagslega
hluti."
í þessu sambandi rennir Elsa hýru
auga til Sikileyjar og þessa dagana
er hún að athuga málið. Hún hefur
verjð að ræða við bæjaryfirvöld í
Risor og ferðaskrifstofur í Noregi
um mögulegar hópferðir til Sikileyjar
og hún spjallaði líka við forsvars-
menn hjá Urval-Útsýn hér heima.
„íslendingar hafa ekkert síður en
Norðmenn þörf á að endurnæra lík-
ama og sál i fríum sínum og mér
fannst sjálfsagt að viðra þessa hug-
mynd heima. Hvað verður úr á eftir
að koma í ljós.
Bryðja of mikið af töfium
Elsu finnst Norðmenn bryðja alltof
mikið af töflum og hún segir að állt-
of oft sé það ekki nauðsynlegt, það
sem ami að sé neikvæður hugsunar-
háttur og rangt matarræði.
„Þegar höfuðverkur gerir vart við
sig þá er gleypt pilla. Hvernig væri
að prófa stórt vatnsglas í staðinn.?
Höfuðverkur er oft merki frá líkam-
anum um að hann vanti vökva.
Aumir vöðvar? Skýringin kann að
vera mikil vinna og álag en það kann
líka að vera að líkaminn hafi ekki
náð að losa sig við úrgangsefni og
þá þarf að laga það. Þetta snýst oft
um að hlusta á líkama sinn og bregð-
ast rétt við skilaboðunum.
Lykillinn er rétt fæða og
Jákvæö hugsun
Fáirðu til þín þreytta og pirraða
manneskju, hvað gerir þú?
„Ég byija að spyqa hana hvað
hún hafi borðað og bendi henni á
að forðast það að borða fæðu sam-
setta á vissan hátt. Síðan kemur
hvíld, ró og friður og síðast en ekki
síst jákvæður hugsunarháttur.“
Elsa myndi bjóða pirraðri mann-
eskju upp á grænmeti, ávexti og
soðið vatn í nokkra daga og mæla
með miklum svefni.
Hún segist stundum fá til sín ein-
staklinga sem geti ekki hreyft sig
vegna slappleika. í ljós kemur að
ekkert amar að ennað en fólkið borð-
ar verkjatöflur á hveijum degi og
hrúgar í sig mat og eiturefnum sem
líkaminn ekki nær að senda út aft-
ur. Það kann að vera að fyrir sé það
ofnæmisgjarnt og líkaminn nái ekki
að vinna nógu vel úr fæðunni.
Hef engar töf ralausnir
Elsa talar um að fólk vilji töfra-
lausnir og helst að það geti gengið i
út eftir nokkra daga án þess að þurfa i
að hafa fyrir því að gera eitthvað f
sjálft.
„Ég lækna ekki fólk. Þetta snýst *
um að lækna sig sjálfur. Ég ráðlegg í
og aðstoða eftir getu en síðan er \
framhaldið í höndum einstakling- ,
anna sjálfra. Því miður er það alltof (
algengt að öðrum sé kennt um það
sem aflaga fer og þannig komið í
veg fyrir að einstaklingurinn sjálfur
taki ábyrgð á eigin lífi.“
Elsa flutti frá íslandi fyrir meira
en áratug. Hún. vann á sjónvarpinu
þegar hún bjó hér, lærði förðun og
snyrtifræði og var um tíma starfs-
maður á heilsuhælinu í Hveragerði.
„Risor er einn fallegasti smábærinn
á leiðinni til Kristiansand, er í þriggja
og hálfs tíma akstursfjarlægð frá
Osló og liggur við hafíð.“
Elsa segist samt fyrir löngu vera
búin að gera sér grein fyrir því að
heimurinn sé meira en ísland og
Noregur. „Ég gæti alveg hugsað
mér að prófa næst að búa á Sikiley." *
■
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
Ekki borða
saman sterkju og prótein
Eisa segir sína reynslu að rétt
samsetning fæðu skipti sköpuni
fyrir marga þegar líðan þeirra
er annarsvegar.
„Ég ráðlegg mínum gestum að
borða ekki saman fæðu sem inni-
heldur sterkju (kolvetni) og hins-
vegar prótein. Þetta er alveg á
skjön við það sem tíðkast en hef-
ur reynst mér vel.“
Samvkæmt þessu ætti því ekki
að borða saman fisk og kartöflur,
kjöt og hrísgijón og ekki pasta
og kjöt. Brauð með mjólkurmat
er á bannlista. Ástæðan segir hún
að sé sú að borði fólk saman þessi
efni sé fæðan mjög iengi að melt-
ast og líkaminn nái ekki að losa
sig við úrgangsefni. En hvað á þá
að borða með fiskinum og kjötinu?
Elsa ráðleggur grænmeti með
flestu og segir að ekkert sé á
bannlista bara ef þess sé gætt að
borða fæðuna rétt samsetta.
Áður en hún gefur sínum við-
skiptavinum þessi fyrirmæli setur
hún þá á létt fæði í nokkra daga
eða föstu til að hreinsa út líkam-
ann. ■