Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 7
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ1994 C 7
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Varig lokar
skrifstofum
í Evrðpu
VARIG, ríkisflugfélag Brasilíu,
mun loka allmörgum skrifstof-
um sínum í Evrópu og er það
liður í hagræðingu og sparnað-
arstefnu félagsins að því er tals-
maður þess í Bretlandi skýrði
frá. Hann sagði að Varig hefði
verið rekið með miklu tapi síð-
ustu ár og yrði því að draga
saman seglin og finna nýjar
leiðir sem skiluðu hagnaði.
<4h
-A
Hjá flugfélaginu vinna alls 25
þúsund manns og er reiknað með
1Ö% niðurskurði. Ekki er á hreinu
hve margir af þeim sem vinna á
skrifstofum félagsins í Evrópu
missa vinnuna. Einn þáttur í þessu
er að skrifstofur á Norðurlöndum
verða lagðar niður og færast verk-
efni þeirra á hendur skrifstofunnar
í Bretlandi sem að líkindum verður
miðstöð Varig í Evrópu að endur-
skoðuninni lokinni. Meðal ástæðna
fyrir óhagstæðri stöðu er að ýms
Evrópuflugfélög hafa bætt mjög
samgöngur til Brasilíu og Varig
hefur setið eftir í því að bæta þjón-
ustu við farþega í flugi.
Filippseyingar
eta mest
af banöniim
ÞAÐ eru engin takmörk fyrir
því á hveiju er gerð könnun í
heimi nútímamannsins. Hið
merka vikurit Asiaweek hefur
nú gert könnun á því hvaða
þjóðir borða mest/minnst af
banönum og var ekki seinna
vænna að athuga það. Niður-
stöður fara hér á eftir.
land.fjöldi banana etinn árlega
Filippseyjar.................184
Thailand.....................126
Malasía......................111
Víetnam.......................79
Þýskaland.....................75
Nýja Sjáland..................70
Indónesía.....................58
Bandaríkin................... 54
Ástralía......................54
Bretland......................39
Þá kemur að sjálfsögðu fram
hveijir eta fæstu bananana og það
reynast vera Kínveijar en hver
Kínveiji borðar aðeins 7 banana á
ári, Pakistanar borða 8, Brunei-
menn 15 og þeir í Singapore 16
stk.
SAS-flugfélagið flýgur í beinu flugi frá Kaupmannahöfn til Pek-
ing og tekur ferðin um 9 klst. en tíu þegar haldið er sömu leið
frá Peking til Kaupmannahafnar. Brottför frá Höfn er síðdegis
og geta farþegar frá íslandi hæglega náð þeirri vél og haldið
ferðinn áfram í einum áfanga.
Brosandi flugþjónar tóku á
móti farþegum og á 1. farrými
voru sex flugliðar, sem sáu um
að uppfylla óskir ferðalanganna.
Sætin eru einstaklega þægileg og
stillanleg eftir óskum hvers og
undir er stillanlegur fótskemill til
að auka enn á vellíðanina. í poka
við sætin voru sokkar, augnhlífar,
eyrnatappar, tannkrem, tann-
bursti, skóáburður og bijóstsykur.
Skömmu eftir flugtak þegar
stólbakinu hafði verið hallað aftur
og sokkar eru komnir á fæturna,
birtust flugþjónar og buðu hress-
ingu. Af skjá mátti fylgjast með
flugi okkar. Hve löng leið var að
baki, hvað margar mílur eftir,
flughæð, hraða og hitastig innan
vélar og utan. Frá Höfn var stefn-
an tekin á Riga og síðan sunnan
við Moskvu í beinni stefnu yfir
Kákásusfjöll, Síberíu og loks Mon-
gólíu.
Fljótlega var borinn fram pinna-
matur og síðan fjórréttuð máltíð,
þar sem valið stóð um önd, rauð-
sprettu eða súrsætan kjúkling
osta, kökur og kaffi. Með matnum
var vín eða svaladrykkur. Allt rann
þetta ljúflega niður og að lokinni
máltíð var sýnd kvikmyndin „Fyr-
irtækið", eftir metsölubók John
Grisham. Þeir sem þess óskuðu
gátu valið úr fjölda myndbanda
og fengið tæki með skjá fyrir sig.
og taka við á ný. Nú tók við röð
þar sem sýnd var kvittun fyrir
flugvallaskatti, farseðill og vega-
bréf, þá var komið að afgreiðslu-
borðum flugfélaga og enn allt
merkt á kínversku.
Við tók ein röðin enn og við
urðum þess vísari að farþegar með
SAS höfðu þegar verið afgreiddir.
Það var því ekki laust við óróleika
þegar loks tókst að fá afgreiðslu
en þá tók við önnur röð og enn
þurfti að fylla út skýrslu. Loks
með þijár skýrslur og nokkur af-
rit auk passans var komið að síð-
ust röðinni, tollskoðun og stimpl-
un.
I fríhöfninni voru engar merk-
ingar um hvert farþegar ættu að
fara. Evrópubúar stóðu í ráðleysi
og svipuðust um og fyrir hreina
tilviljun fannst gangur út að flug-
vélunum og þar lítið skilti þar sem
skrifað var með kúlupenna SAS.
Farþegar voru því að vonum fegn-
ir þegar þeir voru komnir um borð
og fannst sem væru þeir þegar
komnir heim.
Kristín Gunnarsdóttir
Þegar leið á nótt sótti svefninn
að og með augnhlífar og eyrna-
tappa leið ekki á löngu þar til
svefninn tók öll völd. Undir morg-
unn þegar klukkan nálgaðist sex
að staðartíma tók að birta og flug-
þjónar báru fram morgunverð,
rúnstykki, ost, marmelaði, eggja-
köku með tómötum og beikoni og
sveppum, kaffi og te.
Er vélin lækkaði flugið sást
varla til jarðar vegna misturs en
sólin bræddi er líða tók á morgun-
inn. Við flug-
brautina var unnið
að viðgerðum og
voru menn með
haka og skóflu
upp á gamla mát-
ann. Einu flugvél-
arnar sem sáust
voru frá China air
og frá N- Kóreu.
Flughöfnin í
Peking ber þess
merki að til
skamms tíma voru
ekki margir sem
áttu þess kost að
ferðast með flugi
í Kína. Flughöfnin
er mjöglítil, þegar
haft er í huga að
þetta er höfuðborg
fjölmennasta ríkis
í heimi. Lítið fer
fyrir merkingum á ensku eða öðru
máli en kínversku sem skapar óör-
yggi útlendinga. Að vísu var leiðin
að tollskoðun vörðuð svipbrigða-
lausum hermönnum sem hefðu þó
eflaust gripið til sinna ráða ef röng
stefna hefði verið tekin.
Öllu verra var þegar kom að
heimferð. Brott-
fararsalur var
yfírfullur en sjá
mátti raðir eða
þyrpingar við
þröng hlið og ekki
auðvelt að átta sig
á hvert maður,
ólæs á kínversku,
átti að snúa sér.
Fyrsta röð var við
afgreiðsluborð þar
sem greiddur var
flugvallarskattur,
næst röð eða
lirúga við mynd-
sjá, þar sem ferða-
töskur voru skoð-
aðar. Engir vagn-
ar sáust á lausu
og varð hver og
einn að lyfta sinni
tösku upp í tækið
ffl/StS
Flughöfnin i
Peking ber
þess merki
að til
skamms
tíma voru
ekki margir
sem óttu
þess kost að
ferðast með
flugi í Kína
Staður
Acapulco
Aden
Addis Abeba
Anchorage
Auckland
Aþena
Bagdad
Bangkok
Beirút
Bilbao
Bogota
Boston
Blantyre
Caracas
Casablanca
Dar Es Salam
Dhaka
Feneyjar
Genf
Harare
Havana
Istanbul
Jakarta
Kalkútta
Kúveitborg
Libreville
Lima
Maputo
Montreal
Osaka
Panamaborg
Rio de Janeiro
Riyad
Sao Paulo
Seoul
Seychelles
Shanghai
Taipei
Tel Aviv
Vínarborg
°c
32
37
23
17
15
30
41
33
29
23
19
24
24
27
24
29
32
25
23
21
31
26
31
34
37
29
19
25
23
27
30
25
42
22
27
28
28
31
29
22
Skipt um segl.
Fótspor ferðamanna
5,6 milljónir ferðamanna fara til
Mallorca á ári. Flestir þeirra eru
Bretar og Þjóðveijar. Fyrsta þýska
pakkaferðin var farin með skipi árið
1934. Þeir fóru að flykkjast þangað
fyrir alvöru eftir stríð og hafa skilið
eftir sín spor. Matstaðurinn „Haus
des Fisches“ í Cala Ratjada á norð-
austurströndinni var til dæmis þétt-
setinn íjóðveijum og auglýsingar á
þýsku blöstu við í flestum gluggum
í þorpinu. Bretar voru meira áber-
andi í Ciudadela á vesturströnd Mi-
norca. Það fannst mér skemmtilegur
Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir.
Það er takmarkað pláss um borð í 11,7 metra
seglbát.
staður. Aðsiglingin stórfengleg,
höfnin full af matstöðum og bærinn
mun stærri en hann virtist vera við
fyrstu sýn.
Við sigldum aftur til Mallorca um
nótt. Það var öldugangur en samt
of mikið logn til að láta berast fyrir
seglum. Mótorinn gekk alla nóttina.
Ég vaknaði við uppköst einnar stúlk-
unnar og flúði úr þröngri og dimmri
eldhús- setustofunni út undir bert
loft. Þar var annar að æla út yfir
borðstokkinn. Ég hlakkaði til að sjá
birta af degi, en varð fyrir vonbrigð-
um. Himinninn varð bara smátt og
smátt bjartari, engin rauð og róm-
antísk sólaruppkoma þann daginn.
Það var ekki nógu gott veður til
að fara í sund og sólbað í Cala Pi,
mjög fagurri vík rétt utan við flóann
við Palma, svo við héldum beint til
E1 Arenal. Bátaklúbburinn þar stend-
ur fyrir sínu. Sturturnar heitar, sal-
emin snyrtileg og sundlaugin frátek-
in fyrir meðlimi. Við leituðum að
matstað með almennilegri steik, vor-
um búin að fá meira en nóg af fiski
og ég hlakkaði til að losna við sjórið-
una heima í björtum og rúmgóðum
húsakynnum.
Anna Bjamadóttir
HVERNIG VAR
FLUGIÐ?
Með SAS til Feking