Morgunblaðið - 03.06.1994, Side 8
8 C FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Siötti átangi
lýðveldisgöngunnar
GANGAN hefst kl. 10.30 við Draugatjörn. Þar má velja um tvær
leiðir eftir hentugleikum og færni.
ÚTIVIST
NOKKRAR helgarferðir eru
3.-5. júní hjá Útivist og má fyrst
nefna ferð í Breiðafjarðareyjar.
Er þá siglt með Baldri í Flatey
á laugardeginum og eyjan skoð-
uð. Gist í svefnpokaplássi í
Stykkishólmi.
Þá eru að heíj'ast reglulegar
ferðir í Bása við Þórsmörk og
er farið um hverja helgi í allt sum-
í ÞESSUM mánuði verður tekið í
notkun nýtt hótel í Vík í Mýrdal.
Byggingarframkvæmdir hófust í
nóvember síðastliðnum og miðað er
við að ljúka þeim á settum tíma eða
í byrjun júní. Á hótelinu verða tuttugu
og eitt tveggja manna herbergi og
ar. Gist er í Útivistarskálanum.
Um- miðjan júní verður einnig
hægt að tjalda. Skipulagðar
gönguferðir eru laugardag og
sunnudag með fararstjóra. Brott-
för í helgarferðir eru kl. 20 á föstu-
dagskvöldum en miða þarf að
sækja áður á skrifstofu Utivistar.
Laugard. 4. júní er farið íHeið-
mörk-Lækjarbotna kl. 13. Verða
3 léttar laugardagsgöngur í sumar
hjá Útivist og er ekkert þáttöku-
gjald. Þátttakendur mæta við Ár-
bæjarsafn kl. 13 og þaðan er ekið
að upphafsgöngu hverju sinni. Á
iaúgardag er ekið í Heiðmörk og
Hólmsborgin skoðuð, gengið um
Lækjarbotna og farið í Botnahelli.
Sunnud. 5. júní kl. 10.30 er
þriðji áfangi lágijallasyrpunnar
sem hefur hlotið góðar undirtektir.
Að þessu sinni er Brennisteins-
fjöll-Kistufell, jarðfræðiferð í
fylgd sérfróðs leiðsögumanns.
Brottför frá BSÍ. ■
hægt að fá morgunverð. Að sögn
Guðmundar Elíassonar verslunar-
stjóra í Víkurskála er þegar farið að
bóka gistingu á hótelinu og upppantað
suma daga sumarsins. Nóttin í tveggja
manna herbergi kostar 6.400 krónur
og morgunverður 750 krónur. ■
A. Gengið er meðfram Húsmúla
allan sveiginn að Engidalskvísl, síðan
yfir hana og enn áfram um sléttlendi
með öll fell á hægri hönd uns komið
er á Hálsa vestan Dyradals. Mosfells-
heiði er á vinstri hönd allan þennan
hluta leiðar. Má fastlega vænta þess
að sjá og heyra til vaðfugla og mó-
fugla á þessum árstíma, spóa og jafn-
vel sólskríkju.
B. Gengið er yfir Húsmúla og nið-
ur í Engidal og eftir honum inn í
þröngt skarð sem liggur til Marar-
dals sem er sléttur og algróinn og
minnir á útiléiksvið, umkringdur fell-
um. Upp úr honum er farið eftir
hestagötu og niður á sléttlendið vest-
an Hálsa. Hópar A og B sameinast
á Hálsum vestan Dyradals og verða
samferða um Dyr og eftir gamla
Dyravegi til Rauðuflaga og niður á
Nesjavelli. Þetta er gömul leið með
hestalestir og má því sjá að hún er
létt gangandi mönnum.
Á svæðinu frá Dyradal er leiðin
ævintýraleg og tilbreytingarík vegna
íjölbreytilegs og rofins landslags.
Nesjavallavegur liggur eftir Spor-
helludal norðan undir Hengli. Spor-
hellur eru tvær, misstórar og hallar
stærri að dalnum en minni sporhellan
er með allt að hnédjúpri götu norðan
í litlum kambi þvert fyrir botni Vatns-
stæðis. En glæsileg útsýn bíður
göngufólks á austurbrún Dyrafjalla
ofan við Nesjavelli. Yfir gnæfir Heng-
ill. Hér um orti Loftur Gíslason, bóndi
á Vatnsnesi í Grímsnesi (að sögn
Guðmundar Jóhannessonar frá
Króki):
Hengil fjallakóng má kalla á
klettahnúki.
Hefur karlinn harðan skalla á
hraustum búki.
Kl. 13 er ekinn hinn nýi Nesjavalla-
vegur yfir Mosfellsheiði . austur í
Dyradal og gamla Dyravegi fylgt
þaðan til Nesjavalla. Þetta er hæfí-
lega löng gönguleið fyrir fjölskylduna
auk þess að vera ein af nýjustu
gönguleiðum í grennd Reykjavíkur.
Nýi vegurinn gerir leiðina aðgengi-
lega. Glæsileg sýn er til Hengils og
af austurbrún Dyrafjalla. ■
Sigurður Kristinsson
Nýtt hótel í Vík í Mýrdal
Álfar og ovættir
BORGARFJARÐARHREPPUR er geysilega víðfeðmur og nær frá
Héraðsflóa í norðri til Seyðisfjarðar í suðri. Innan hans búa þó
aðeins um 190 manns. Þorpið í Borgarfirðinum er í daglegu tali
er nefnt Borgarfjörður eystri, en heitir í raun Bakkagerði. Það
heiti er þó lítið notað.
Fuglalíf er fjölskrúðugt og
kannski álfarnir séu þarna líka.
Eins og svo víða annars staðar
tengjast flestir íbúarnir sjósókn á
einhvern hátt. Trillur eru uppistað-
an í bátaflotanum því höfnin, þó
glæsileg sé, tekur ekki á móti neinu
stærra. Það kemur fyrir að sægarp-
amir dragi einn og einn hákarl og
má stundum sjá þá hanga við
bryggju og bíða eftir því að vera
skornir niður. Kæstur og súr er
hann síðan étin á þorra. Mest af
þorskinum er verkað í saltfisk og
grásleppuhrogn eru verkuð á vorin.
Flest aðrir íbúar rækta sauðfé og
sinna hefðbundnum sveitastörfum.
Þjónustustig er nokkuð hátt í
þessari litlu sveit. Grunnskóli er á
staðnum, tónskóli, heilsurækt og
heilsugæsla og þangað kemur
læknir einu sinni í viku. Samgöng-
ur em mjög góðar og flogið er frá
Egilsstöðum fjórum sinnum í viku.
Landvegurinn er bæði greiður og
auðfarinn að sumarlagi þótt Vatns-
skarðið sé bæði hátt (431 m) og
hlykkjótt.
Sérstaða
Borgarfjörður hefur sérstöðu um
margt en telja verður smæð hans
þá mestu. Þar er i raun allt smátt
í sniðum, en um leið vinalegt. Nátt-
úran og fjallahringurinn umhverfis
fjörðinn er ákaflega fallegt og ber
þar hæst hin frægu Dyríjöll með
sínum þverhníptu veggjum og
„dymm“. Líparítfjöll eru að sunn-
anverðu en blágrýti að norðan-
verðu. Á sumrin er litadýrð fjallana
síbreytileg og næg ástæða til að
heimsækja staðinn.
Umhverfi hafnarinnar er sér-
stakt fyrir margra hluta sakir.
Hafnarhólmi, rétt utan lands, var
tengdur landinu með gijótgarði og
höfnin _gerð í lítilli vík er þá mynd-
aðist. I þessum hólma verpa rita,
fýll, æður og lundi í seilingarfjar-
lægð. Þarna geta ferðamenn kom-
ist í nokkurra metra fjarlægð frá
fuglinum, en umferð um varplandið
sjálft er ekki leyfð.
Fyrirtækið Álfasteinn er eitt
stærsta fyrirtækið á staðnum. Þar
SÉÐ til Bakkafjarðarþorpsins
eru unnir listmunir úr borgfirsku
gijóti og er framleiðsla Álfasteins-
manna ■ löngu landsfræg Sam-
kvæmt könnun sem gerð hefur
verið meðal ferðamanna koma 90%
þeirra við í Álfasteini. Segja má
að Álfasteinn og umhverfið sé það
sem flesta dregur að.
Álfabyggð
Óvíða á íslandi er að finna önn-
ur eins býsn af álfabyggðum og í
Borgafirði eystra. Þeir sem til
þekkja og þykjast skynja tilveru
þeirra segja mikla og líflega flóru
álfa og vætta af ýmsum gerðum
og stærðum búa í íjöllunum um-
hverfis bæinn. Þeirra frægust telj-
ast vera álfakonungurinn í Dyrfjöll-
um og drottning hans í Álfaborg.
Geistlegur fulltrúi, biskupinn, býr
í Blábjörgum. Telja verður þessa
aðila til góðra vætta en til eru þeir
sem ekki falla undir þá skilgrein-
ingu. Fer þar fremstur í flokki
Óvætturinn Naddi sem sat í Njarð-
víkurskriðum. Bóndi úr Borgarfirði
hratt honum í sjó fram á 14. öld
og reisti síðan krossmark til vernd-
ar þeim sem um Skriðurnar fara.
Góður siður er að fara með bæn
þegar ekið er framhjá krossinum.
Morgunblaðið/Benedikt Sigurðsson
Ferðamannaþjónusta
Þjónusta við ferðamenn hefur verið
að aukast á síðasliðnum árum.
Þeir eru um tíu þúsund í venjulegu
árferði og tengjast þessari starf-
semi 2-3 ársverk. Aðstaða fyrir
þá er góð í Borgarfirði. Þar er
bændagisting á Stapa sem opin er
allt árið. Samhliða henni er verið
að fullgera tjaldstæði með þjón-
ustuhúsi. Fjarðarborg hefur svefn-
pokapláss og veitingasölu. Hesta-
leiga er á bænum Bakka þaðan sem
hægt er að fara í langar og stuttar
hestaferðir. Meðal annars er mögu-
legt að fara inn í hinn rómaða
Loðmundarfjörð á hestum og gista
þar í ferðaþjónustuhúsi. í sumar
stendur einnig til að vera með báts-
ferðir um Borgarfjörð og nærliggj-
andi eyðivíkur. Þá er ótalin sú þjón-
usta sem hópar kynnu að vilja not-
færa sér, en það er leiðsögn heima*
manna um nærliggjandi umhverfi.
Um þetta allt má fá upplýsingar í
upplýsingamiðstöðinni í steina-
verksmiðjunni í Álfasteini. ■
Benedikt Sigurðsson,
Egiisstöðum
Á reiðhjðlum um Reykjanes
NÚ GETA ferðamenn
brugðið sér í skipu-
lagðar hjólaferðir um
nágrenni höfuðborg-
arinnar því sett hefur
verið á stofn fyrirtæk-
ið Hjólaferðir þar sem
ýmsir kostir eru um
ferðir um Reykjánes-
ið. Bókanir í daglegar ferðir eru
í Upplýsingamiðstöð ferðamála í
Bankastræti 2. Hópafsláttur er
gefinn fyrir 7 farþega eða fleiri.
Hámarksfjöldi í hóp er tuttugu
manns.
Eigandi Hjólaferða, Halldór
Garðarsson, sagði að bæklingur
væri kominn út á ensku um hjóla-
ferðir í Bláa lónið og aðrir fastir
áningarstaðir væru Djúpavatn, Vig-
dísarvellir, fjaran undir Festarfjalli
og Grindavíkurhöfn. Á leiðinni er
máltíð í boði, súpa, brauð og sæta-
brauð. Er maturinn borinn fram á
langborði og tjaldað yfir og hitað
upp ef þarf vegna veðurs.
Áður en hver ferð hefst útskýrir
fylgdarmaður leiðina á korti. Auka-
hjól eru með í för ef eitthvað skyldi
bila og fylgdarbíll fylgir alltaf hópn-
um. Lögð' eru til 18 gíra fjallahjól,
hjálmar, regnföt, vatnsbrúsar og
málsverðurinn.
Halldór sagði að sérstök áhersla
yrði á ferðir í Bláa lónið eins og
minnst var á. Hefst þá ferðin við
skiptistöð Almenningsvagna í
miðbæ Hafnarfjarðar. Leiðin er 51
km og áætlaður ferðatími um 6 klst.
Farin er Djúpavatnsleið og um
Grindavík. ■
ísland í sjónhendingu
QUICK Guide to Iceland heitir
handbók sem Viðskiptabókin
hefur gefið út. Þetta er fjórða
árið í röð sem hún er gefin út
og er hún á ensku. Árni Sigfús-
son, borgarsljóri skrifar nokkur
orð og býður gesti velkomna og
bendir á ýmislegt sem ferða-
menn geta gert í Reykjavík og
skoðað.
Þá eru almennar upplýsingar um
Reykjavík s.s. hótel, gistiheimili,
kort, minjagripaverslanir, söfn og
ýmsar uppákomur og sýningar. Síð-
an eru hliðstæðar upplýsingar um
alla helstu staði úti á landi. ■
Vestnorden
TlimelMaii94
14-17 Sepl., Ilarnarfjörður, Irrland
Til ferðaþjónustuaðila
Ferðakaupstefna Vestnorden 1994 verður haldin í
íþróttahúsinu Kaplakrika, Hafnarfirði, 14.-17. september.
Skráning þátttakenda lýkur 1. júlí.
Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga á skrifstofu
Ferðakaupstefnunnar í síma 18200.