Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C 166. TBL. 82. ÁRG. SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ungir málarar í höfuðborginni Morgunblaðið/Golli Hermenn loka landa- mærunum að Rúanda Goma. Reuter. STARFSMENN Flóttamannahjálpar Sam- einuðu þjóðanna reyndu í gær að fá rúand- íska flóttafólkið í Zaire til að snúa aftur til heimalandsins en hermenn Zaire lokuðu landamærunum. Þúsundir manna hafa látið lífið af völdum matar- og vatnsskorts, kóleru og fleiri sjúk- dóma í flóttamannabúðunum í Zaire. Mikil reiði og vonleysi ríkir nú á meðal flótta- fólksins vegna hörmulegra aðstæðna í búð- unum. „Við erum að deyja vegna sjúkdóma og hungurs. Ég kom hingað með tólf manna fjölskyldu og tvö hafa dáið vegna blóð- kreppusóttar," sagði einn flóttamannanna. „Hér vilja allir snúa heim.“ Ekki er vitað hversu margir flóttamann- anna vilja fara yfir landamærin til Rúanda. Flestir þeirra eru hútúar, af ættbálki sem er sekur um ijöldamorð á tútsum, minni- hlutaættbálki í Rúanda, og þeir óttast hefndaraðgerðir af hálfu nýju valdhafanna í heimalandinu. Ray Wilkinson sagði að ráðamenn í Rúanda hefðu lofað því að ekki yrði gripið til hefndaraðgerða gegn flótta- fólkinu. Wilkinson kvaðst ekki vita hvers vegna hermenn Zaire hefðu lokað landa- mærunum. Grunur leikur á að hermenn hútú-stjórnarinnar fyrrverandi, sem flúðu yfir landamærin, séu að reyna að semja við yfirvöld í Zaire um að halda landamær- unum lokuðum til að styrkja stöðu sína gagnvart nýju valdhöfunum. Uppreisn í Gambíu Dakar. Reuter. HERMENN í Vestur-Afríkuríkinu Gambíu, sem gerðu uppreisn í höfuðborginni, Banj- ul, hafa tilkynnt að þeir hafi tekið völdin í sínar hendur. Herforingi sagði að ekki hefði komið til blóðsúthellinga í valdaráninu. Hann sagði að forsetinn, Dawda Jawara, hefði flúið land og menn sínir hefðu handtekið varaforsetann og nokkra ráðherra. Uppreisnin hófst vegna kröfu hermanna um greiðslu fyrir friðar- gæslu í Líberiu. Breska utanríkisráðuneytið fordæmdi uppreisnina i gær og hvatti hermennina til að virða þjóðkjörna stjórn landsins. Ráðu- neytið hafði ekki nákvæmar upplýsingar um ástandið í Gambíu. Alþjóðlegi flugvöllurinn í Banjul var lok- aður og hermennirnir höfðu nokkrar opin- berar byggingar á sínu valdi. Her Gambíu er skipaður 800 hermönnum og er undir stjórn höfuðsmanns frá Nígeríu, samkvæmt samningi ríkjanna. Sérviskan er heilsusamleg SÉRVISKA gerir menn hamingjusam- ari, heilbrigðari og langlífari, sam- kvæmt viðamikilli könnun á fyrirbær- inu. Breski sálfræðingurinn David Weeks hefur eytt síðustu tíu árunum í að hitta 1.500 sérvitringa frá ýmsum löndum og kanna venjur þeirra. „Dæmigerði sérvitringurinn fer ótroðnar slóðir, er hugvitssamur, hel- tekinn af einhverri ástríðu, gáfaður og knúinn áfram af öfgakenndri forvitni," segir Weeks, sem fjármagnaði könnun- ina sjálfur. A meðal þeirra sem sálfræð- ingurinn hitti er kaþólskur prestur á Spáni sem hefur verið að reisa dóm- kirkju í grennd við Madrid upp á eigin spýtur undanfarin ellefu ár. Ennfrem- ur má nefna Englending, sem hefur sérstaka unun af því að síga niður af þökum háhýsa í bleikum fílabúningi. Hann hefur einnig eytt nokkrum mán- uðum í að smíða eins sætis bifreið úr brotajárni. Margir sérvitringar fá útrás fyrir sköpunargleðina og forvitnina sem listamenn, vísindamenn, uppfinn- ingamenn og fræðimenn. Einn af kyn- legustu kvistunum er enskur bóndi sem klifrar á hveijum degi upp á þak bæjar- ins, stendur þar á ræðupúlti og flytur fyrirlestra yfir sauðfénu. Weeks segir engin tengsl milli sérvisku og geð- veiki; sérvitringarnir hafi reynst sér- lega heilbrigðir, bæði andlega og lík- amlega. „Reyndar eru þeir yfirleitt langlífari. Ég álít að það sé vegna þess að þeir eru mjög hamingjusamir og lausir við streitu.“ Ohefðbundin skoðunarferð ALAIN Robert, 32 ára franskur ferða- maður, var handtekinn á dögunum fyr- ir að klifra niður 40 hæða skýjakljúf í Chicago. Robert kvaðst hafa orðið hundleiður á hefðbundnum ferða- mannastöðum og viljað fá skemmti- legra útsýni yfir borgina. Hann notaði aðeins hanska við klifrið og fór eftir skorum á veggnum sem gerðar voru til að auðvelda gluggaþvott. Hausastækkun NOKKRIR ungir Japanar hafa farið í stækkunaraðgerðir, sem felast í því að silíkon er sett undir höfuðleðrið, í því skyni að ná tilskilinni hæð, 1,73 sm, til að fá inngöngu í samband súmó-glímu- manna. Höfuð eins þeirra hækkaði um 15 sm og hann fékk inngöngu í súmó- sambandið, sem hefur nú bannað slíkar aðgerðir. • • LOG EÐfl HNEFARÉTTUR? 10 Bóknám og bílaviðgerðir HÓTEL MEÐ HEIMHÆBRAG VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍr Á SUIMNUDEGI B ALLT í BLÓMA ABÍIBUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.