Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 2

Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 2
2 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Halldór Skjálftavirkni allt að því fimmföld Hafnardagar í Reykjavík HAFNARDÖGUM Reykja- víkurhafnar, sem hófust á föstudag, lýkur í dag. Ýms- ar uppákomur og skemmt- anir fyrir alla fjölskylduna eru í boði, m.a. verða go- kart-bílar á þaki Faxaskála og boðið verður upp á út- sýnisflug frá Faxagarði. I dag verður sigling um sundin frá Austurbakka og vagnferðir um bryggjur og bakka. Kl. 13 og kl. 15 verða kappróðrarsýningar, kl. 13.30 skemmtidagskrá og kl. 15-17.30 götuleik- hús. Á efri myndinni, sem tekin var á föstudag, opnar Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri smábáta- höfn í Suðurbugt. Fyrir neðan sjást gestir á Hafnar- dögum njóta veðurblíðunn- ar við tjaldveitingahús. Morgunblaðið/Sverrir Jakob Bjömsson sagði að á veg- um Sorpsamlags Eyjafjarðar hefði verið unnið að athugunum á því hvað fellur til af sorpi á svæðinu, meðal annars um húsasorp og hvort það hentaði til urðunar, brennslu eða jarðvegsgerðar, hvað félli til af brotajárni, spiliiefnum, rafgeym- um o.s.frv. Meðal hugmyndanna væri að safna brotajárni, þar á meðal bflhræjum, í gijótnámur við Krossanes, meðal annars vegna þess að þar yrði þægilegt að skipa því út. Fyrirhugað væri að þama yrði afgirt svæði undir gæslu og þar yrði unnið að því að hreinsa jámið og tæma það af spilliefnum, olíuefnum, geymasým og fleiru sem annars rypni út í jarðveginn. Gróður í stað hauga Jakob sagði að þegar væri hafin ákveðin sundurgreining á sorpi og yfír stæðu samningar við ýmsa að- ila um að farga og flytja burtu efni sem hættuleg teldust. Þá væri unn- Góðar heyskapar- horfur HEYSKAPARHORFUR á land- inu í heild eru góðar þetta sum- ar að sögn Jónasar Jónssonar búnaðarmálasljóra. Heyskapur var hafinn um allt land fyrir viku til 10 dögum og var hann þá í meðallagi, en síðustu dag- ana hefur verið heldur óþurrkasamt á sunnanverðu landinu. Jónas sagði að spretta hefði ekki verið snemma á ferð- inni í sumar en ágæt sprettutíð hefði verið undanfarna daga og með hlýindunum í byijun júlí tók spretta alls staðar vel við sér. Á myndinni sem tekin var á Grund í Hnappadal ný- lega sést Sigurður Helgason bóndi í Hraunholtum á kafi í heyskapnum. ið að því að fínna nýjan stað fyrir sorpförgun í stað Glerárdals, því þaðan fæm haugarnir. Ákveðin vís- bending um það væri að þegar væri byijað að vinna að því að græða upp sárin á dalnum. Þar væri ekki síst mikilvægt að rækta upp við málamámið og koma í veg fyrir það mikla moldarský sem leggst yfír Glerárhverfi þegar blæs af suðvestri. En hins vegar gæti ekki gengið að urða þarna sorp endalaust. Brenna eða grafa Þórarinn E. Sveinsson á sæti í stjóm Sorpsamlags Eyjafjarðar bs. Hann sagði að samlagið sæi um að farga sorpi úr öllu héraðinu og meginhluti þess færi nú í Glerár- dal, samlagið leigði þar haugastæði af Akureyrarbæ. Það væri afar óheppilegt svæði, ekki síst vegna þess að það lægi hátt, væri kalt og rotnun þar ótrúlega hæg. Það hefði komið í ljós þegar grafið hefði ver- AUKIN skjálftavirkni hefur verið á landinu að undanfömu og segir Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlis- fræðingur greinilegt að eitthvað sé á seyði, þótt ekki sé hægt að segja nákvæmlega fýrir hvað. Segir Steinunn að ef marka megi mæling- ar síðastliðinna ára megi greina aukna virkni, því skjálftafjöldi á mánuði samkvæmt þeim mælingum sé 160-320, en það sem af sé þess- um mánuði hafí mælst yfir þúsund skjálftar og 6-700 í síðasta mán- uði. Því geti aukningin talist að minnsta kosti þreföld og allt að því fímmföld. En Steinunn bendir á að mæling- ar séu nú nákvæmari en áður með nýjum tækjabúnaði á Suður- og Norðurlandi og því sé ekki víst að samanburðurinn sé marktækur. En 2 'h ár eru síðan svo nákvæmar mælingar hófust að hennar sögn. ið í gamlan haug, mun neðar en þar sem sorp er nú urðað Að sögn Þórarins hefur ekki fundist lausn á þvi hvort brenna eigi sorp eða grafa - og þótt brennt væri yrði ekki síður að grafa ösk- una. Þá væri ekki enn búið að finna nýjan stað tii þessa, en unnið væri að því máli. Eins væri verið að vinna að heildarúttekt á sorpmálum á öllu Norðurlandi eystra og hún gæti haft áhrif á aðferðir við að safna og farga ýmsum efnum á stærra svæði en Eyjafjarðarsvæðinu. Þórarinn sagði fyrir dyrum standa að Endurvinnslan tæki að sér móttöku á spilliefnum og í bí- gerð væri að koma fyrir sérstökum spilliefnagámum í sveitarfélögun- um. Þessi efni færu síðan til förgun- ar, trúlega til Danmerkur. Brota- jámshauginn sem yrði væntanlega við Krossanes stæði til að tæma Auk þess segir hún virknina ekki bundna við ákveðinn stað því skjálftamir geri vart við sig á ýms- um stöðum. Teljast þeir allir í minna lagi en sá stærsti mældist 3,56 á Kaldadal skömmu eftir miðnætti aðfaranótt föstudags. Líkur aukast á gosi eða skjálfta Ennfremur segir Steinunn að i slíkri hrinu séu auknar líkur á stærri skjálfta eða eldgosi þótt allt eins geti verið að fenginni reynslu, að virknin detti niður allt í einu. Eftirlit með skjálftavirkni á Veður- stofunni fer nú fram með aðstoð tölvu, sem sendir skilaboð til spá- deildar ef skjálfti fer yfír vissan styrkleika og því þurfa jarðeðlis- fræðingar ekki að standa sérstaka vakt nema mikið beri til, segir Steinunn að lokum. tvisvar á ári, en yfír stæðu samning- ar við Eimskip og Hringrás í Reykjavík um að fjarlægja brota- jámshauga á Akureyri, Grenivík og í Ólafsfírði, en þar væri um að ræða fortíðarvanda sem tengst hefði fyrirhugaðri stálverksmiðju við Hafnarfjörð. Húsasorp Um sundurgreiningu húsasorps sagði Þórarinn að þau mál væm öll á umræðustigi. Samstaða væri þó um að á meðan ekki hefðu verið fundnar lausnir á förgun og endur- nýtingu væri fráleitt að skipa fólki að aðskilja húsasorp, það væri til lítils að flokka allt í sérstakar um- búðir heima og henda því svo öllu á einn og sama hauginn. En til þessa kæmi þegar ljóst yrði hvað best væri að gera við þetta allt saman. Lög eða hnefaréttur ►Vanefndir á skilnaðarsamningi og meint slæleg embættisfærsla sýslumannsins í Keflavík olli sam- anlagt veikari málsaðila í skilnað- armáli miklu fjárhagstjóni./lO Slavneskt bandalag? ►Menningarsöguleg og herfræði- leg rök mæla með myndun banda- lags Rússlands, Úkraínu og Hvíta- Rússlands./12 Bóknám og bílavið- gerðir ►Stefnt er að því að hefja fram- kvæmdir við nýjan framhaldsskóla í Grafarvogi síðar á þessu ári./14 Stórfjölskylda eins og heima ►Ruth Snorrason frá Úganda er sest að á íslandi með fjölskyldu, sinni./16 Hótel með heimilis- brag ►Guðbjörg Guðmannsdóttir er allt í senn; hótelstjóri, kokkurogþjón- ustustúlka./18 B ► l-24 Allt í blóma á Búðum ►Nýr hótelstjóri, Victor H. Sveinsson, er kominn að Búðum og þar hefur verið tekið ærlega til hendinni./l Bíóbarn ►Friðrik Þór Friðriksson segist vera ánægður með þá gagnrýni sem Bíódagar hafa fengið í fjöl- miðlum./4 Eftirlæti allra kylfinga ►Golf er íþrótt í örum vexti og kylfingar verða sífellt kröfuharð- ari. Hveijir eru það sem starfa baki brotnu við að létta þeim högg- in?/10 Ófurhugi á norðurslóð ►Seilst í myndasmiðju Nýsjálend- ingsins James Venimores sem vann frækilegt björgunarafrek í Hvítá á dögunum./12 BÍLAR______________ ► 1-4 VW Golf tvítugur ungl- ingur ►Arftaki VW bjöllunnar, VW Golf, var fyrst settur á markað árið 1974./2 Endurbættur Subaru Legacy fyrir langferð- írnar ►Subaru Legacy í nokkuð breyttri mynd var sýndur hjá Ingvari Helgasyni um helgina./4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Skák 32 Kvikmyndir 20 Bréf til blaðsins 32 Leiðari 22 ídag 34 Helgispjall 22 Fólk í fréttum 36 Reykjavíkurbréf 22 Bló/dans 37 Skoðun 25 íþróttir 40 Minningar 26 Útvarp/sjónvarp 41 Þjónusta 30 Gárur 6b Hugvekja 30 Mannlífsstr. 6b Myndasögur 32 Kvikmyndir 8b Brids 32 Dægurtónlist 9b Stjömuspá 32 Samsafnið 22b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4 Haugarnir burt úr Glerárdal Ekki spurning hvort heldur hvenær Akureyri, Morgunblaðið. JAKOB Bjömsson bæjarstjóri á Akureyri segir stefnt að því að hætt verði að farga sorpi í Glerárdal. Ekki sé spurt um hvort það verði gert heldur hvenær. Á vegum Sorpsamlags Eyjafjarðar bs. er unnið að marg- víslegum efnum varðandi sorphirðu og sorpförgun og unnið er að heildar- úttekt á sorpmálum í Norðurlandi eystra. Þá er unnið að því að fínna nýjan stað fyrir sorpförgun í stað Glerárdals. Morgunblaðið/Bjöm Gíslason SÚ MUN koma tíð að þetta verður ekki útsýnið í Glerárdal, en þar er nú þessi haugur af bílhræjum, gömlum heimilistækjum og hvers kyns jámarusli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.