Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 6

Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 6
6 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT BAKSVIÐ að austurhluti Þýskalands og jafn- vel önnur lönd í mið- og austur- hluta álfunnar þyrftu að vera undir jámhæl kommúnista næstu 50 árin. „Skilyrðislaus uppgjöf“ Franklin D. Roosevelt Banda- ríkjaforseti lagði grunninn að þeirri stefnu á leiðtogafundi bandamanna í Casablanca árið 1943 að krafist skyldi „skilyrðis- lausrar uppgjafar" Þýskalands. Þetta mun hafa verið rökstutt með því að ekki mætti neinn vafi leika á því að landið væri búið að tapa styrjöldinni, vopnahlé eins og gert var 1918 myndi ekki duga. Þá væri hætta á að upp risi á ný flokkur á borð við nasistaflokkinn sem fullyrti að huglausir stjóm- málamenn og undirróðursöfl hefðu rekið rýting í bakið á þýska hernum á örlagastundu með því að semja um vopnahlé. Hvað sem líður þessum bolla- leggingum er ljóst að yfirlýsing Casablanca-fundarins hentaði vel áróðursmeistara Þýskalands, Jo- sef Goebbels. Hann gat með réttu staðhæft að Þjóðverjar berðust nú örvæntingarbaráttu og ósigur myndi þýða hrun landsins. Áhrif Bandaríkjaforseta vom mikil og hann hafði sitt í gegn þótt þeir Winston Churchill, forsætisráð- herra Breta og bandarísku hers- höfingjarnir Dwight Eisenhower og George Marshall hefðu efa- semdir um þessa stefnu. Árið 1947 gekk Churchill lengra í þing- ræðu. Hann lýsti þá Stauffenberg og Canaris sem mönnum er til- heyrt hefðu „einhverri bestu og göfugustu andspyrnuhreyfingu sem nokkum tíma hefur starfað". Andúð á öllum Þjóðverjum Að sögn Flemings voru það ekki eingöngu málefnaleg rök sem réðu ferðinni hjá Roosevelt. For- setinn hefði einfaidlega ekki trúað því að til væm Þjóðveijar sem virða bæri viðlits. Á fundum hans með ráðgjöfum hefði hann marg- sinnis fordæmt alla þýsku þjóðina. Fleming telur líklegt að hefðu þeir Roosevelt og Churchill veitt andspyrnuhópnum einhvern stuðning og látið í það skína að tekið yrði vægar á Þjóðveijum ef þeir losuðu sig við nasistastjórn- ina myndu hershöfðingjamir sem stjórnuðu þýska herliðinu i Frakk- landi hafa samþykkt einhliða upp- gjöf, þótt Hitler hefði lifað tilræð- ið af. En Roosevelt tjáði sig ekk- ert um tilræðið og Churchill sagði þá að þetta hefði aðeins verið „hiksti í þýsku stríðsvélinni". Rússar studdu tilræðið Þeir einu sem studdu tilræðis- mennina voru Rússar. „Hershöfð- ingjar, liðsforingjar, hermenn!" sagði í hvatningu útvarpsins í Moskvu. „Hættið þegar að beijast og snúið vopnum ykkar gegn Hitl- er. Bregðist ekki þessum hug- rökku mönnum!“ Bandarískur stríðsfréttamaður, Louis Lochner, hafði þekkt marga af tilræðismönnunum þegar hann hafði bækistöðvar í Berlín fyrir stríð. Hann reyndi eftir tilræðið að senda frétt um andspyrnuhóp- inn frá París en ritskoðun land- hersins bandaríska tjáði honum að það væri bannað „samkvæmt sérstökum fyrirmælum forset- ans“. Byggt að mestu á International Herald Tribune Hefðu bandamenn getað stytt stríðið? GERÐAR vom margar misheppnaðar tilraun- ir til að ráða nasista- foringjann Adolf Hitl- er af dögum en sú sem var næst því að takast var sprengjutilræð- ið 20. júlí 1944. Að baki því stóð hópur nokkur hundrað háttsettra her- og embættismanna sem margir höfðu uppranalega verið dyggir stuðningsmenn Hitlers en snerust síðar gegn honum. í Þýskalandi hefur m.a. verið deilt um það hvort hermenn sem svar- ið höfðu Hitler hollustueiða fyrir stríð en snerust síðan gegn hon- um þegar halla tók undan fæti geti með réttu kallast hetjur. En Helmut Kohl kanslari var ekki í vafa og sagði tilræðismennina og aðra andstöðuhópa lýðræðis- sinna hafa bjargað æra Þjóð- veija. Rithöfundurinn Thomas Fleming ritaði nýlega grein um málið í dagblaðið Intemational Herald Tribune og segir hann að örlög andspyrnuhópsins hafi verið harmleikur fyrir Þýska- land, Evrópu alla og Bandaríkin og Vesturveldin hafi bragðist mönnunum hrapallega. 3000 létu lífið Klaus Schenk von Stauffenberg greifi, sem kom sprengjunni fyrir í úlfagreni Hitlers hinn 20. júlí 1944, var ofursti og herráðsfor- ingi 600.000 manna Hðs sem ann- aðist varnir heimalandsins. Hann var stríðshetja af austurvígstöðv- unum, hafði misst þar bæði auga og handlegg. Uppranalega var hann gallharður stuðningsmaður Hitlers en er líða tók á stríðið áttaði hann sig á því að foringinn myndi steypa landinu í glötun. Þótt sprengja ofurstans væri öflug slapp Hitler með skrámur og sprengdar hljóðhimnur en tveir menn létust og nokkrir slösuðust. Einræðisherrann lét skjóta Stauf- fenberg daginn eftir og næstu daga og vikur létu nær 3.000 manns lífið í hreinsunum, í sumum tilvikum var látið nægja ef menn vora grunaðir um svik. Vitað er að Wilhelm Canaris aðmíráll, yfirmaður leyniþjónustu þýska hersins (Abwehr), hélt hlí- fiskildi yfir andspyrnuhópnum og veitti honum upplýsingar en óljóst er hvort hann var beinlínis í for- ystunni. Nasistar granuðu hann um græsku en gekk illa að finna sannanir, þó fór svo að hann var skotinn nokkram dögum fyrir uppgjöfina 1945. Flestir félagar í hópnum féllu í áðumefndum hreinsunum. Harmleikur Vesturveldin, þ.e. Bandaríkin og Bretland, neituðu staðfastlega að svíkja Jósef Stalín og Sovétrík- in með því að þreifa fyrir sér um sérfrið á vesturvígstöðvunum. Það er því kaldhæðnislegt að fyrir Því er nú haldið fram að hefðu bandamenn stutt við bakið á andstæðingum Foringjans í þýska hemum hefði tilræðið og valdarán and- spymumanna getað heppnast og hægt hefði verið að semja um frið þegarárið 1944 Hitler nokkru fundust skjöl í Moskvu sem sanna að fulltrúar Stalíns áttu leynilegan fund með sendi- mönnum nasistastjómarinnar árið 1943 en ekki tókust samningar um vopnahlé á austurvígstöðvun- um. Er tilræðinu var hrint í fram- kvæmd höfðu bresk og bandarísk stjórnvöld, að sögn Thomas Flem- ings, í þijú ár hundsað andspyrnu- hópjnn, látið sem hann væri ekki til. ítrekaðar tilraunir sem fulltrú- ar hópsins gerðu í höfuðborgum hlutlausra ríkja, Stokkhólmi, Madrid og víðar, til að ná sam- bandi við bandamenn báru engan árangur. Bretar tortryggðu upp- lýsingar um fyrirhugað leiftur- stríð Þýskalands gegn Frakklandi og Niðurlöndum sem bárust þeim þegar árið 1940 og útsendari Canaris hafði lekið í þá. Þegar ljóst var orðið að ekki var um bleKkingar að ræða ákvað yfir- maður bresku leyniþjónustunnar að hafa framvegis óbeint samband við Canaris en gat ekkert notfært sér það vegna andstöðu utanríkis- ráðuneytisins. Fleming bendir á að semja hefði mátt um frið við nýja stjórn í Þýskalandi sem tekið hefði við ef tilræðið og valdarán hópsins hefði Stalín Stauffenberg heppnast. Megi gera ráð fyrir að tvær milljónir hermanna og þijár milljónir gyðinga, fólk sem féll þá mánuði sem eftir voru af stríðinu í Evrópu, hefðu haldið lífi. Hægt hefði verið að koma í veg fyrir ROMAN Herzog, forseti Þýskalands, leggur blómsveig við húsið þar sem þátttakendur í sprengju- tilræðinu gegn nasistaleiðtoganum Ádolf Hitler voru teknir af lífi árið 1944. Er þess var minnst að hálf öld var liðin frá hættulegasta tilræðinu gegn Adolf Hitler var deilt um það hvort heiðra ætti minningu allra þeirra sem stóðu fyrir andspyrnu gegn nasistum, einnig kommúnista sem síðar komu á svæsnu einræði í austurhluta Þýskalands. Fyrír skömmu var rifj að upp að 50 ár voru liðin frá frægasta tilræðinu gegn Adolf Hitler. Roosevelt Churchill

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.