Morgunblaðið - 24.07.1994, Síða 8

Morgunblaðið - 24.07.1994, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Byltingarkennt fiskveiðistj órnunarkerfi í Nýju Suður-Wales B ireska tímaritið The Ec- onomist gerði hið nýja kvótakerfí í Nýju Suður- Wales að umræðuefni í síðasta mánuði. Sagði þar m.a.: „Hagfræðingar segja að fískimenn eigi við vandamá! að etja. Enginn þeirra á fískinn í sjónum og þvi of- sækja þeir fískimiðinn. Hvert er svarið við því? Eignaraðild. En ef það væri auðvelt að slá eign sinni á fískistofn hefði það þegar verið gert. Sú er þó ekki raunin. Michael Yo- ung, ástralskur hagfræðingur, telur sig hafa fundið betri lausn. Frekari eignaraðild, en af nýjum toga.“ Michael Yong, segir í samtali við Morgunblaðið að til þessa hafi fisk- veiðistjómun í Nýju Suður-Wales, byggst á því að veitt voru leyfi til að nota ákveðnar tegundir veiðar- færa og á nokkrum tegundum, s.s. humar voru í gildi fastir, óyfirfær- anlegir kvótar. Þetta kerfi hafí fyr- ir löngu verið úr sér gengið, jafnt að mati stjómvalda sem hagsmuna- aðila, og ekki höfðu verið gefin út ný veiðileyfi um nokkurt skeið til að koma í veg fyrir ofveiði. „Það má segja að ríkt hafi hálfgert öng- þveiti. Kerfið var ósamkvæmt sjálfu sér og óánægja með það mikil. Útgerðarmenn sem vildu skipta um veiðarfæri fengu ekki til þess leyfí, tekjur fiskveiðimanna voru ófullnægjandi og margir fiski- stofnar fóru minnkandi. Það var orðið ljóst að eitthvað yrði að gera og ráðherra sjávarútvegsmála í Nýju Suður-Wales hafði áhuga á að taka upp kvótakerfi og afhenda sjómönnum eignarréttinn að fiskimiðunum." Enga fyrri reynslu af fiski Young segir að þegar hér var komið við sögu hafí þess verið farið á leit við hann, að kanna málið. Hann er auðlindahagfræðingur og starfar hjá opinberri vísindastofnun. Hann hafði aldrei komið nálægt fiskveiðimálum áður en segir það síður en svo hafa komið að sök. Reynst hafí skynsamlegast að nálg- ast stjómunarvandann út frá sömu lögmálum og gilda um aðrar tak- markaðar auðlindir á borð við skóg. „Eftir að hafa skoðað málið þá komst ég að þeirri niðurstöðu að menn yrðu strax að viðurkenna fjögur grundvallaratriði áður en þeir hæfust handa við að smíða nýtt fiskveiðikerfi. í fyrsta lagi að enginn veit hvað það er sem ræður stærð fiskistofna. Það eru margar kenningar í gangi en enginn hefur þekkingu til að spá fyrir um fram- tíðarstærð fískistofna. í öðru lagi þá getur enginn spáð með neinni vissu um það, hvaða áhrif ákveðnar ákvarðanir munu koma til með að hafa á einhveija tiltekna atvinnu- grein. Menn geta deilt um það og velt fyrir sér ýmsum afleiðingum. En þegar upp er staðið munu fyrirtækin bregð- ast við á ófyrirsjáanleg- an hátt, þau munu taka upp nýjar aðferðir, bún- að og það munu eiga sér _ stað tæknilegar framfarir. í þriðja lagi þá verða menn að átta sig á því, að óháð því hvers konar kerfi við tökum upp, þá verðum við að geta breytt því. Og til að geta gert það þá verða menn í fjórða lagi að ákveða strax frá upphafí hvenær og hvemig menn ætli að taka kerf- ið til endurskoðunar. Það verður að vera eitt af grundvallaratriðum kerfisins." Young segir að sjávarútvegur í Nýju Suður-Wales byggi á 113 físktegundum, sem eru veiddar og seldar í atvinnuskyni. Sumar í mjög litlu magni og einungis hluta úr ári en aðrar í mjög miklu magni. „Kerfíð, sem við lögðum til er að við afmörkum ákeðna fiskflokka. Þeir eru skilgreindir að hluta til sem ákveðnir fískistofnar og að hluta til sem veiðisvæði. Við höfum síðan veitt mönnum eignarhluta í þessum fískflokkum en þeim er skipt niður á svipaðan hátt og fyrir- tæki sem byggist á ákveðnu magni hlutabréfa. Sem dæmi má nefna að öll fiskveiði í tilteknum firði gæti verið skilgreind sem einn fisk- flokkur og samanstaðið af tíu þús- und hlutum. Þá má nefna úthafs- Eignaraðild og veiðigjald lausn á vandanum í Nýju Suður-Wales í Ástralíu er verið að taka upp fiskveiðistjómunarkerfí sem gerir ráð fyrir jafnt eignarrétti útgerðarmanna á fískveiðimiðunum sem auðlindaskatti til samfélagsins. Höfundur kerfísins er ástr- alski auðlindahagfræðingurinn Michael Young. Steingrímur Signrgeirsson ræddi við hann um hugmyndafræðina á bak við þetta kerfí og hvemig því hefði verið tekið af hagsmunaaðilum í sjávarútvegi. togveiðifiskfiokk og svo framvegis. Þessir „hlutir“ veita mönnum tvenns konar réttindi. í fyrsta lagi ákveðinn hlut af því heildarmagni veiðarfæra og fiskveiðiskipa sem fær að sælq'a í ákveðinn fiskflokk. Ef einhver vildi gera út stóran tog- ara þyrfti hann ef til vill þúsund hluti til að geta það en einungis þijú hundruð ef hann léti sér nægja lítinn bát. Ef einhver vill gera út stærri bát en hann er með þarf hann að útvega sér nægilegt magn hluta til að eiga rétt á því. Að sama skapi veita þessir hlut- ir þér rétt til ákveðins hluta af kvóta þeirra fisktegunda sem eru í viðkomandi fiskflokki. Þetta er ---------- hlutfallslegt magn af Kerfið endur- kvóta en ekki fast °e Skoðað á 5 ákveður sjálfstæð nefnd ára fresti kvótana hveiju sinni.“ Einn helsta styrk ... kerfísins segir Young vera að hægt sé að ákveða kvóta fyrir einhveija tiltekna tegund í þijú ár en síðan væri hægt að hætta að gefa út kvóta á hana, ef ástæða væri til. Atvinnugreinin stæði þá eftir með sitt upphaflega magn. „Hlutimir verða gefnir út til tíu ára í senn en á fimm ára fresti verður hver fiskflokkur endurskoð- aður. Leiði sú endurskoðun til þess að gera verði breytingar eiga allir þeir, sem, eiga hlut í viðkomandi flokki, þess kost að fallast á nýtt tíu ára tímabil en þá með áorðnum breytingum. Til að mynda gæti komið upp sú staða að auka yrði þann fjölda hluta sem þarf til að gera út ákveðna bátastærð. Menn geta einnig neitað að fallast á það og unnið áfram eftir gamla kerf- inu, þar til hlutur þeirra fellur úr gildi, en þá verða menn „sektaðir" um 15% af sínum hlut. Ástæða þess að það er gert, sem útgerðarmenn hafa átt erfitt með að skilja, er að þetta setur þrýsting á stjómunaraðila kerfísins, að tryggja að sem flestir muni sam- þykkja að fylgja nýjum reglum. Ef á að fara fram á fleiri hluti fyrir bátastærð eða setja kvóta á tegund sem áður var utan kvóta, þá verður atvinnugreinin sam- kvæmt kerfínu annað hvort að fall- ast á breytinguna eða hún að koma til framkvæmda að nokkmm ámm liðnum." Young segir að ekki verði stuðst við peningasektir þar sem talið er líklegra til árangurs að útgerðar- menn gætu átt á hættu að missa hlut af sínum eignarrétti ef þeir fylgja ekki reglunum. Eitt grundvallaratriða hins nýja kerfis er að komið verður á auð- lindaskatti eða „gjaldi til sam- félagsins" (community retum) og er tillagan sú að 2,5% af hlut hvers' útgerðaraðila verði boðin --------- upp árlega. Það fé sem fæst fyrir þann hlut verður látið renna aftur til samfélagsins. Young segir að nú sé verið að ””“ ræða gagntillögu frá hagsmunaað- ilum um að helmingur fjárins eigi að renna aftur til fyrirtækisins, sem á hlutinn. „Einn helsti kostur þess að hafa gjald af þessu tagi er í fyrsta lagi að tryggt er að samfélagið fái sinn hlut og einnig að allir eiga með þessu kost á því að komast inn í kerfið og eignast hluti. Þetta er ekki síst mikilvægt ef farið er að bera á samþjöppun fískveiðiheim- ilda. Samkvæmt þessu gætu menn líka ávallt haldið sínum hlut ef þeir byðu hæsta verð eða þá náð honum aftur ef þeir misstu hann.“ Helsta einkenni eignarréttar- kerfisins, sem verið er að koma upp, er að það er tvískipt. Annars vegar eru hlutimir, sjálfur veiði- rétturinn og hins vegar hin árlega kvótaúthlutun. „Þetta er tvenns konar eign og kerfíð er þannig hannað að hægt er að veðsetja eða leigja veiðiréttinn á sama hátt og um landareign væri að ræða. Á hveiju ári fá menn á grundvelli veiðiréttarins úthlutað ákveðnu veiðimagni, sem gæti t.d. verið 30 þúsund tonn af þorski. Þennan kvóta er hægt að selja en hann er Komið í veg fyrir að afla sé hent ekki hægt að veðsetja. Þetta er því um margt áþekkt bankareikningi og má bera saman við að ákveðin peningaúpphæð sé lögð inn á reikn- ing. í hvert skipti sem afla er land- að er tekið út af reikningnum." Framseljanlegir kvótar Kvótann er einnig hægt að fram- selja öðrum líkt og þegar menn skrifa út ávísun og er kostnaði við slík viðskipti haldið í lágmarki. Ef útgerðarfyrirtæki myndi til dæmis veiða of mikið af þorski og kæmi með aflann að landi, þó að svo vildi til að það væri búið með sinn þorsk- kvóta, þá hefði það allt kvótatíma- bilið til að útvega sér aukalega aflaheimild. Ef viðkomandi tekst ekki að út- vega sér auknar aflaheimildir verð- ur hann að greiða sekt. Ekki er enn búið að ákveða endanlega hversu háar sektirnar verða en Young segir að að öllum líkindum verði miðað við 75% af markaðs- virði umframaflans, sem landað var. „Markmið okkar er að allur afli komi að landi til vinnslu í stað þess að menn hendi físki í sjóinn. Þetta er ekki síst gert vegna þess hve aukaafli hefur verið mikið vandamál við Ástralíu og þeirrar tilhneigingar sjómanna að henda smáfíski fyrir borð. Við teljum okk- ur hafa útbúið kerfí sem kemur í veg fyrir slíkt með því að láta það borga sig að koma með allan afla að landi.“ Endurskoðun kerfisins á fimm ára fresti segir Young gera kerfið sveigjanlegra en mörg önnur kerfí fískveiðistjórnunar þar sem hægur leikur sé að breyta því er nýjar upplýsingar berast. Sérstök ráðgjafanefnd verður starfandi fyrir hvern fískflokk og munu jafnt fulltrúar stjómvalda sem hagsmunaðaila (eða öllu frek- ar hluthafa) eiga sæti í henni. Full- trúar úr þeim nefndum taka þátt í endurskoðun kerfisins auk full- trúa ríkisstjómar Nýju Suður- Wales. Nefndin sem ákveður hinar árlegu aflaheimildir er hins vegar algjörlega sjálfstæð og sitja í henni fjórir menn þar á meðal óháður fiskifræðingur og auðlindahag- fræðingur. „Ástæða þess að auð- lindahagfræðingur á sæti í nefnd- inni er að við komust að þeirri nið- urstöðu að auk þess að nauðsynlegt er að gætt sé vísindalegrar ná- kvæmni verður að taka tillit til hagfræðilegra og félagslegra þátta. Svo dæmi sé tekið gæti ver- ið fyrirsjáanlegt að þorskverð verði hærra á næsta ári en þessu og því sé æskilegt að draga úr veiði nú en auka aflaheimildir á næsta ári vegna markaðsaðstæðna." Þing Nýju Suður-Wales hefur þegar samþykkt hið nýja fískveiði- stjómunarkerfí og er nú verið að ---------- vinna að því að koma kerfinu á, m.a. úthluta fiskveiðiréttindum. Er tekið mið af aflareynslu síðustu sjö ára og tekið tillit til fjögurra bestu áranna hjá útgerðaraðilum. Segir Young líklegt að á fyrri hluta næsta árs verði kerfið komið endanlega í gagnið. Jafnvel fyrr. „Það fer nokkuð eftir viðbrögðum sjávarútvegsins hversu langan tíma þetta mun taka. Menn þar voru neikvæðir í upphafi en eftir því sem á leið og þeir öðluðust betri skilning á kerfínu féll þeim hugmyndin bet- ur. Þeir eru jafnvel búnir að fallast á að þeir verði að greiða gjald til samfélagsins. Það eina sem ennþá er deilt um er hvort að það gjald beri að taka mið af lönduðum afla eða verðmæti veiðiréttarins. Munur- inn er sá að ef greitt er í samræmi við afla er greitt af rauntekjum en ef miðað er við veiðiréttinn er miðað við áætlaðar tekjur. Nú eru útgerð- armenn famir að átta sig á því, að ef þeir greiða miðað við áætlaðar tekjur, þ.e. verðmæti veiðiréttarins, verða þeir mun næmari fyrir lang- tímaástandi fískistofnana. Slíkt fyr- irkomulag myndi stuðla að því að gripið yrði í taumana fyrr frekar en síðar og það er enginn hagnaður af ofveiði. Menn eru famir að átta sig á hvaða afleiðingar þetta kerfi muni hafa í för með sér.“ ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Sveinn Hannesson bóndi að Galtalæk 2 með væna silunga við eldiskerið hjá Tangavatni. Tilbúin vötn laða að ÞAÐ HEFUR átt vaxandi vinsæld- um að fagna að bleyta færi í tilbúrí- um veiðivötnum. Hægt er að vleja sér bæði !ax- og silungsveiði í þeim efnum. Af laxveiðiám má nefna Norðlingafljót í Borgarfírði, Núpá á Snæfellsnesj og ef til vill fleiri. Hvammsvík og Reynisvatn með sína regnbogasilunga skjótast upp í hugann er staldrað er við silungs- veiði af þessu tagi, en eitt vatn enn er einnig í hópnum, með þjóð- legri tegundum, urriða og bleikju. Það er Tangavatn í Landssveit. Gott silungsvatn Tangavatn við Galtalæk í Landssveit hefur gefíð vel í allt sumar. Þetta litla vatn er reglulega fyllt af urriða og bleikju sem Sveinn Siguijónsson bóndi í Galta- læk elur og sleppir. í samtali við Morgunblaðið sagðist hann gæta þess að aldrei væm færri en 2.000 fiskar í vatninu. Allt er þetta 1-4 punda silungur og tekur vel. „Flestir fá eitthvað sem hingað koma og fiskurinn tekur allt mögu- legt, maðk, rækju, maísbaunir, flugu og spún. Hrogn em hins vegar bönnuð,“ sagði Sveinn. Hér og þar... Slök veiði hefur verið lengst af á Snæfoksstaðaveiðum í Hvítá eystri, eða þar til fyrir nokkrum dögum, að það glæddist aðeins og veiðin skrapp úr 4-5 löxum upp í 12-14 stykki á stuttum tíma. Dauft hefur einnig verið í Langholtinu síðustu daga, en þó komið skot af og til. Lax er nú farinn að veiðast i Reykjadalsá í Borgarfírði sem er að öllu jöfnu mjög sein til. Fyrir nokkm voru komnir 10 laxar 4 land og menn höfðu orðið laxa varir á nokkrum stöðum í ánni. Reykjadalsá hefur verið í nokkurri lægð síðustu ár. Hún hefur þolað illa langa þurrka, en vatnsmiðlun sem gerð hefur verið efra verður sennilega til bóta. Þá hefur verið dauft yfir nöfn- unni í Suður Þingeyjarsýslu og ekki margir laxar veiðst. Það sem komið hefur á land hefur á hinn bóginn veiðst síðustu viku-tíu dag- anna og veit vonandi á gott.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.