Morgunblaðið - 24.07.1994, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 24.07.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 13 ust undir stjórn Mongóla, sem höfðu gífurlega mikil áhrif á rúss- neska menningu og þjóðskipulag, og tvívegis hefur Rússland sætt stórfelldum innrásum úr vestri, í tíð Napóleons keisara, sem Tsja- íkovskíj, lýsir svo snilldarlega í 1812-forleiknum, og síðar nasista. Því hefur verið haldið fram að utanríkisstefna Rússa/Sovét- manna hafi ævinlega mótast af eins konar ofsóknarbijálæði. Þeg- ar horft er til þess hvílíkar fórnir þessi þjóð hefur þurft að færa er lýsing i þá veru ósanngjörn og Samband Rúss- lands og hinna fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna verður þegar til lengri tíma er litið stærsta ágrein- ingsefnið á vett- vangi rússneskra stjórnmála röng. Á hinn bóginn hefur þessi reynsla getið af sér ákveðna drottnunarhyggju og það ber einn- ig að hafa í huga að kenningin um að Rússar séu útverðir hinnar sönnu trúar hefur löngum rist djúpt, raunar allt frá því að Byz- anska-ríkið leið undir lok um miðja 15. öld. Með þessu móti má færa rök fyrir því að menningarsagan og herfræðilegir hagsmunir móti af- stöðu rússneskra ráðamanna nú um stundir. Vera kann á bóginn að efna- hagsleg rök vegi nú þyngra en nokkru sinni fyrr í sögu Rúss- lands. Teikn eru á lofti um að það versta sé afstaðið á vettvangi þeirra róttæku efnahagsumskipta sem þar hafa átt sér stað. Hagtöl- ur gefa það alltjent til kynna, þótt því fari að vísu fjarri að festu hafi verið komið á í þjóðfélaginu á nýjan leik. Þær raddir heyrast, einkum úr röðum svonefndra „rót- tækra umbótasinna“, sem í raun eru miklu fremur byltingarmenn, að það geti beinlínis verið hættu- legt langtímahagsmunum Rússa að leitast við að mynda slavneskt bandalag. Þessir menn segja að ógerlegt sé með öllu að tengjast þessum ríkjum nánari efnahags- legum böndum. Hagkerfi þeirra hafi engum breytingum tekið og nánara samstarf geti aðeins bitnað á efnahag Rússlands, til að mynda með óðaverðbólgu. Þeir hinir sömu eru og þeirrar hyggju að innan skamms tíma yrði viðhorfið orðið annað innan þessara ríkja. Úkra- ínumenn og Hvít-Rússar kynnu að freistast til að kenna Rússum um allt það sem afvega hefur far- ið og sú óánægja gæti aftur orðið til þess að blása nýu lífi í glæður þjóðemishyggju í löndum þessum. Þar með sætu rússnesk stjórnvöld uppi með tvíþættan vanda; stjóm- lausa föðurlandshyggju með til- heyrandi þjóðfélagsspennu og gjaldþrota milljónaríki í efnahags- legri gjörgæslu. Samband Rússlands og hinna fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna verður þegar tii lengri tíma er lit- ið stærsta ágreiningsefnið á vett- vangi rússneskra stjórnmála. Nú þegar liggur fyrir hversu snögg umskiptin geta orðið og skal í því viðfangi vísað til þess kuldahrolls sem setti að heimsbyggðinni eftir sigur þjóðernissinna í þingkosn- ingunum í Rússlandi. Þau pólitísku átök sem fyrirsjáanleg eru á þess- um vettvangi munu í senn verða hörð og flókin því tekist verður á um grundvallarhugmyndir og hagsmuni sem í senn taka til menningarsögu, öryggismála og efnahagsþróunar. Leiðtogar gjaldþrota milljónaríkja LEONÍD Kútsjma sver embættis- eið forseta Úkraínu og leggur hægri hönd sína á Biblíuna. Kútsjma sljórnaði áður eld- flaugaverksmiðju og er fyrst og fremst málsvari rússnesku iðn- héraðanna í austurhluta landsins. Alexander Lúkasjenko, hinn ný- kjörni forseti Hvíta-Rússlands (til hægri), lýsti yfir því í kosninga- baráttunni að hann hygðist uppr- æta spillingu í landinu og kvaðst hafa sérstakt dálæti á Felix Dzersinskíj, Pólveijanum ill- ræmda sem stofnaði öryggislög- reglu sovéskra kommúnista. boöiö Philips smátækin á mun betra veröi en áöur. Verðlækkunin er á bilinu 9-26%! á Philips smátækjum Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SlMI 69 15 OO Utnboðsmenn um land allt. Samlokugrill ÁÐUR: ÁÐUR: Gufustraujárn ÁÐUR: Matvinnsluvél Handþevtari ÁÐUR: Hraðsuðukanna ÁÐUR: Ryksuga áður: 13.990 Kaffivél AÐUR: ÁÐUR: ÁÐUR: Tannbursti ÁDUR: .6,000 4.990 NU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.