Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 16

Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 16
16 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Stórfjölskylda eins og heima eftir Elínu Pnlmadóttur ÍSLENDINGAR fara víða og munu um 15 þúsund vera við nám og störf um allan heim. Sumir setjast að ánnars staðar, en aðrir koma heim með fjölskyldu af fjarlægum slóð- um. I ærslafullum krakkaskaranum á rúmgóðu svæði milli fjölbýlishúsa í Breiðholti eru tveir strákar, Pétur Örn og Gunnar, nýkomnir í hópinn. Móðir þeirra, Ruth Nanyanzi Snorrason, segir mér þegar inn á heimili þeirra er komið að þeir uni vel frelsinu, að geta hlaupið í leikinn og verið úti á björtum sumarkvöld- um, í stað þess að verða alltaf að vera á lokuðu leiksvæði sem gætt er, eins þurfti að vera öryggisins vegna í Nairobí í Kenýa þar sem þau hafa búið. En þar starfaði faðir þeirra, Gunnar Snorrason af ís- landi. Móðir þeirra var líka aðflutt þangað, komin frá nágrannalandinu Úganda. Hún er hönnuður og hefur nýlega hlotið verðlaun í alþjóðlegri samkeppni. Ekki verða margir á vegi okkar frá þvísa landi og því forvitnilegt að fá að spjalla við hana. RUTH Nanyanzi Snorrason frá Úganda. Morgunbiaðið/Kristinn Verðlaunakjóll Ruthar í hönn- unarkeppni Smirnoffs. Hann er úr silki, sem hún litaði sjálf og greina má fíngerðan perlu- sauminn. Myndin er tekin á tískusýningunni í Nairobí. Ruth Snorrason frá Úganda er sest að á Islandi með fjölskyldu sinni. Hún er hönnuður og vann til verð- launa í Smirnoff- keppninni í Kenýa1993 Morgunblaðið/Kristinn HJÓNIN Gunnar og Ruth og á milli þeirra synirnir Pétur Örn 7 ára og Gunnar 4 ára. Gunnar Snorrason, sem er læknissonur úr Reykja- vík, hélt utan 1981 vegna svonefnds Sam- norræns þróunarverk- efnisins, sem stjómað var af Danida í Kenýa. Hann fór til starfa við ís- lenska hlutann, ISIDA, í bæ að nafni Kakamega. Verkefnið fólst í því að aðstoða við að koma upp litl- um samvinnufélögum. Mikill áhugi var á að bæta menntun í landinu og komið upp iðnskólum með ýms- um greinum. Þegar iðnnemamir höfðu lokið námi þurfti að aðstoða þá við að koma upp verkstæðum. Þótt áhugann vantaði ekki, sagði Gunnar, þá vantaði þá allt til að komast af stað og þekkinguna til að koma undir sig fótunum. Við- fangsefnið var því að ná þeim sam- an í hópa og hjálpa þeim til að koma sér fyrir undir sama þaki, klæðsker- anum, rafvirkjanum, trésmiðnum o.s.frv. og þjálfa þá í að reka verk- stæðin. Gunnar starfaði við þetta í Vesturhéruðunum. Það gekk mis- jafnlega, sums staðar ágætlega, segir hann. Hefði þó helst þurft lengri aðlögunartíma. Til þessa þurfti að stofna samvinnufélög, sem hentaði ágætlega. En í þessu landi er sérstakt samvinnuráðuneyti, sem slíkt heyrir undir. „Þá var ríkið með puttana í því og við það verður allt svifaseinna," eins og Gunnar orðaði það. Skriffínnskan verður svo mikil. Þetta var áður en leiðir þeirra Ruth lágu saman. Hann ílentist svo í Kenýa við önnur verkefni, sá m.a. um rekstur flutningafyrirtækis, sem er í eigu íslendings, Inga Þorsteins- sonar, og flytur vörur um Austur- og Mið-Afríku. Fór þá til Úganda, Zambíu og víðar. Síðustu árin var hann tæknilegur framkvæmdastjóri stórs þjófavarnarfyrirtækis í Na- irobí í Kenýu, sem hefur 450 manns í vinnu. Vegna atvinnuleysis og gíf- urlegs fólksfjölda er töluvert um innbrot og glæpi í Nairobí og hann starfaði við að setja upp þjófavarn- arkerfi. Var yfír tæknideildinni, þar sem starfa 25 manns. Fjölskyldan í flóttamannabúðum Þau Gunnar og Ruth hittust í Nairobí 1985. Ruth hafði farið frá heimalandi sínu Úganda 1978, var heppin að hafa sloppið út. Þá ríkti þar harðstjórinn illræmdi Idi Amin með tilheyrandi harðræði og ofsókn- um á hendur fólkinu. Fyrirtækið Trans Ocean setti upp skrifstofur í Port Said í Egyptalandi og Mom- basa í Kenýu og hún var send til Egyptalands, þar sem hún vann í þijú ár. „Þegar ég kom til baka var stríð og fjölskylda mín var öll í flóttamannabúðum Rauða krossins, móðir mín og faðir, systkini mín, frænkur og frændur, og öll sitt á hvorum staðnum, alls um 15 manns. Ég þurfti að byija á því að leita þau uppi. Ég fór frá einum stað á annan og stundum var erfítt að þekkja þau. Ég hafði lesið nafnið í skrá Rauða krossins, en þegar einhver kom þá þekkti ég hann oft ekki, því hann leit svo skelfílega út, líkast- ur beinagrind. í búðunum var skort- ur á fæði og fatnaði. Ég fann þau öll á lífí, en flestir höfðu misst allt. Þurftu að byija á því að fá sér eitt- hvert þak yfir höfuðið og eitthvað að lifa á. Það var erfitt." Allt var í kalda koli. „Þótt engir peningar séu til neins, þá eru alltaf til peningar fyrir vopnum. Og fólkið berst við að lifa af,“ segir Ruth og lítur á mig döprum augum. Menntun hafði engin verið í landinu í 10 ár. Menntað fólk flúði til betri landa. Þama var ekkert að hafa og Ruth fór til Kenýa til að reyna að fá starf. Það var á árinu 1981. Ruth fékk vinnu sem hlaðfreyja á flugvellinum í Nairobí. „En það var erfítt að fá vinnuleyfí í Kenýa. Fólk streymdi að úr öllum áttum. Erlend fyrirtæki urðu að gera grein fyrir því af hvetju þau þyrftu endilega að hafa útlending í vinnu og greiða fyr- ir það. Og maður varð að borga fyr- ir vinnuleyfið. Launin vom lág og dugðu oft varla fyrir leyfínu," segir Ruth. í árslok 1986 ákvað hún því að hætta að vinna úti og fara að eiga böm. Þá var hún komin í sam- búð með Gunnari Snorrasyni og þau komin með heimili. Hlaut hönnunarverðlaun Eftir fjögur ár ákvað Ruth að fara i skóla og læra hönnun. Í Na- irobí er tveggja ára hönnunarskóli, tengdur Iðnhönnunarskólanum í London og lokaverkefnin fara líka fram þar. Prófskírteinið hennar kemur því líka frá London. Eftir að námi lauk fór Ruth að hanna og sérsauma fatnað, mest kvöldkjóla, en líka bamafatnað og annað. Við- skipavinir hennar vom mikið frá sendiráðunum, sem em mörg í Na- irobí. Slíka sérhannaða kvöldkjóla þykir henni gaman að fá að vinna og sér þá alveg um saumaskapinn og ísauminn, ef einhver er. í fyrra tók hún svo þátt í og hlaut 2. verðlaun í hinni alþjóðlegu Smirn- off hönnunarsamkeppni, sem þá var haldin í Nairobí. Mörg hundmð manns sóttu um og þurftu að gera grein fyrir viðfangsefni sínu. Úr þeim vom fyrst valdir 250 til að taka þátt í keppninni. Af þeim kom- ust þrír í úrslit. Keppt var í tveimur flokkum og Ruth Snorrason hlaut önnur verðlaun í flokki ungra hönn- uða fyrir glæsilegan perlusaumaðan samkvæmiskjól úr handlituðu silki. Hún segir mér að þetta hafí ver- ið ákaflega strangt. I fyrsta lagi varð að hafa allt úr náttúrulegum efnum og hún valdi silkið. Auk aðal- kjólsins þurfti að leggja fram teikn- ingar og áætlun um tvær aðrar flík- ur. Hafa með prufur af öllu efni. Hún teiknaði glæsilega batikdragt og kjól með handgerðri blúndu. Lit- aða mynstrið í silkið í verðlauna- kjólnum vann Ruth allt sjálf, sem er vandasöm sérgrein. Þá bindur hún í efnið steina, flöskutappa og hvað eina sem nöfnum tjáir að nefna og dýfir því svo í litinn til að fá rétta litamynstrið. Hvernig þetta er hægt er erfitt að skilja, en fallegt er það. Ætlar Ruth að reyna að gera eitt- hvað slíkt hér? „Mig langar til þess, segir hún, en það er erfítt. Yona bara að eitthvað komi upp á, svo ég geti haldið áfram með það sem ég var byijuð á. Á meðan held ég bara áfram að vinna á saumastof- unni Tinnu, sem er auðvitað mjög ólíkt. En ég læri þá eitthvað sem er öðruvísi en ég þekkti áðúr. Og mér finnst gott að vinna með fólk- inu þar. Við erum eins og fjöl- skylda. Þótt ég geti ekki enn talað við fólkið, þá skemmtum við okkur vel.“ En hvernig var að koma til og setjast að í landi, sem er svo ólíkt hennar eigin? „Gunnar hafði sagt mér mikið frá landinu. Það var enn snjór þegar við komum og strákarn- ir voru svo spenntir fyrir því að leika sér í snjónum. Sá yngri gat ekki skilið að það væri kalt úti og ég varð alltaf að fara fyrst með honum út svo hann fengist til að klæða sig í utanyfirföt. Hann leit út um gluggann og sagði: „En sólin skín úti, mamma“. Við vorum svo lánsöm að maðurinn minn á stóra fjöl- skyldu, sem hafði m.a. safnað sam- an hlýjum fatnaði á strákana. Gunn- ar á tvær systur og tvo bræður, sem öll eiga fjögur börn, stórfjölskylda alveg eins og heima. Þau höfðu undirbúið allt fyrir okkur, fundið íbúð og safnað nauðsynlegustu hús- gögnum. Þegar ég fór að vinna og hafði ekki gæslu fyrir strákana þá skiptu þau þeim bara á sig þar til ég fékk stelpu til að vera hér. Við eigum hér góða, stóra fjölskyldu og mér finnst ég eiga hér heima. Það er líka gott að börnin komi til ís- lands og finni rætur sínar. Verst að amma þeirra og afi eru bæði dáin og þeir gátu aldrei kynnst þeim. í Úganda eiga drengirnir afa og ömmu og stóra, stóra fjölskyldu og í mínu landi umgangast fjölskyld- urnar mikið og safnast oft saman. Þessvegna þykir mér svo vænt um að svona stór og góð fjölskylda tek- ur svo vel á móti mér,“ segir Ruth þegar ég kveð hana. 8 i ' ! ‘i « L Í « c « I « « a « « l €

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.