Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 24

Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 24
. 24 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 SKOÐUIM MORGUNBLAÐIÐ SJÁLFSKAPARVÍTI Harmleikurínn í Færeyjum er víti til vamaðar og á erindi við alla hugsandi Evrópumenn. Við enga Evrópu- þjóð á þessi hörmungarsaga þó brýnna erindi en við okkur íslendinga, því að frændum svipar saman, skrif- ar Þorvaldur Gylfason og bætir við að á efnahags- ástandinu þar og hér sé að vísu vemlegur stigsmunur, en enginn eðlismunur að ýmsu leyti. HRUN færeysks efnahagslífs , er trúlega einn mesti harmleikur í Vestur-Evrópu á síðari helmingi þessarar aldar. Sjálfstæð þjóð með eigin menningu, sögu og ^ tungu hefur farið svo herfilega að ráði sínu, áð við henni virðist nú blasa annaðhvort sjálf- stæðissvipting ellegar mun meiri fólksflótti úr eyjunum en orðinn er og skuldabasl langt fram á næstu öld, jafnvel almenn fátækt. Þess eru engin önnur dæmi úr Evrópusögu síðustu ára- tuga, að fijáls og næstum fullvalda þjóð hafí kallað þvílíka niðurlægingu yfir sjálfa sig. Landsframleiðsla Færeyinga hefur fallið um meira en þriðjung síðan 1989. Á þennan kvarða er efnahagshrun Færeyja svipað umfangs og hrun Sovétríkjanna sálugu á sama tíma. Er- lendar skuldir hafa hrannazt upp í hærra hlut- fall af landsframleiðslu en þekkist nokkurs staðar í heiminum nema í fáeinum örvasa Afríkulöndum. Hvernig gat þetta gerzt - og það á næsta bæ við ísland? Eðvarð T. Jónsson hefur skrifað aldeilis ágæta bók um það (Hlutskipti Fær- ^yja, Mál og menning, Reykjavík, 1994). Bók hans bregður upp glöggri og ljós- lifandi mynd af færeysku efna- hags- og stjómmálalífi í sam- hengi við sögu lands og þjóðar. Bókin er kunnáttusamlega, vel og skynsamlega skrifuð. Höfund- ur hennar bjó í Færeyjum um tólf ára skeið og gerþekkir því ástandið og þjóðlífið þar á eyjun- um átján, þar af eru 17 í byggð, en hann getur þó engu að síður fjallað um landið úr fjarlægð. Efnahagshnignun lýðræðis- landa eins og til dæmis Argent- ínu, írlands og Úrúgvæ er sjald- gæft og að sama skapi verðugt athugunarefni handa fræðimönn- um, fréttamönnum og rithöfund- um, og styður þá hver annan, ef vel á að vera. Eðvarð T. Jónsson nálgast viðfangsefni sitt af sjónarhóli frétta- manns, enda hefur hann flutt okkur íslending- um afar fróðlegar fréttir frá Færeyjum í út- varpi og sjónvarpi um alllangt skeið. Bók hans vitnar um næman skilning og skarpskyggni, prýðilegt vald á viðfangsefninu og -vandað verklag af því tagi, sem heimsblöð á borð við New York Times heimta af fréttariturum sínum án refja. Ég hygg, að bók Eðvarðs sé fyrsta bókin, sem birzt hefur um fjárhagshrun Fær- eyja. Þessa bók þyrfti að þýða á dönsku og -helzt einnig á ensku, svo að lesendur í öðrum löndum eigi kost á að kynnast efni hennar. Harmleikurinn í Færeyjum er víti til vamaðar og á erindi við alla hugsandi Evrópumenn. Við enga Evrópuþjóð á þessi hörmungarsaga þó biýnna erindi en við okkur íslendinga, því að frændum svipar saman. Á efnahagsástand- inu þar og hér er að vísu verulegur stigsmun- ur, en enginn eðlismunur að ýmsu leyti. I. Forsaga Færeyingar voru bændaþjóð fram á þessa öld eins og flestar aðrar Evrópuþjóðir. Þjóðfélag þeirra var frumstætt á marg- an hátt. Um margar aldir í sögu þjóðarinnar eru engar skráðar heimildir til. Eðvarð T. Jóns- son dregur upp mynd af stöðnuðu landi og ' lokuðu, steingerðu og undarlega ófijóu. Fólk fluttist ógjaman stað úr stað mann fram af manni, og þangað virðist mega rekja mikinn ■ mállýzkumun á milli staða. Einangrun landsins og einstakra landshluta innbyrðis olli því, að Færeyjar voru ekki eiginlegt samfélag öldum saman. Færeyingar leystu nánast engin verk- efni í sameiningu. Danir sáu um landsstjórn- ina. Þannig stendur að nokkru leyti á þeirri sundurþykkju, sem hefur einkennt færeyskt stjómmálalíf fram á þennan dag. Verzlunareinokun var loksins rofin um miðja síðustu öld eftir mikið hik af hálfu Færeyinga sjálfra. Eftir það urðu aldahvörf á eyjunum: þær breyttust smám saman úr bændaþjóðfé- lagi í þjóðfélag fískimanna. Fólkinu fjölgaði úr 5.000 um aldamótin 1800 upp í 46.000 nú. Það jafngildir rösklega 1% mannfjölgun á ári allan þennan tíma líkt og víða annars staðar í Evrópu. Síðari helmingur síðustu aldar var tími uppgangs og framfara. Færeyjar urðu til að mynda ekki fyrir neinum fólksmissi vestur um haf í lok aldarinnar, þótt tíundi hver Islend- Jngur og fjórði hver Svíi flýðu heimahaga sína undan hungri og hallæri. II. Samband eða sjálfsstjórn? Eðvarð T. Jónsson færir rök að því, að samstöðuleysi fyrri alda hafi staðið samfélagsþroska Færeyinga fyrir þrif- um og grafið þannig undan efnahagslífi lands- ins smám saman á þessari öld. Alla þessa öld hafa Færeyingar skipzt í tvær höfuðfylkingar í stjómmálum. Sumir vilja varðveita og treysta sambandið við Dani og telja Fær- eyinga ófæra um að ráða málum sínum sjálfir; sambandsmenn vitn- uðu iðulega til ófamaðar íslend- inga máli sínu til stuðnings allt fram á síðustu ár. Aðrir vildu sjálfsstjóm líkt og íslendingar. Sambandsmenn höfðu betur og beittu ýmsum brögðum (sjá hólf 1). Þeim tókst að gera Færeyjar að útgjaldalið á fjárlögum Dan- merkur, eins og bókarhöfundur kemst að orði, og draga svo úr sjálfsábyrgðartilfinningu Færey- inga, að fjárhagslegt skipbrot hlaut að koma í kjölfarið. Þetta er höfuðkenning Eðvarðs T. Jóns- sonar. Mér fínnst þessi kenning að mörgu leyti sennileg, þótt ekki sé hægt að færa óyggjandi sönnur á hana. Við fáum aldr- ei að vita, hvemig Færeyingum hefði vegnað á eigin vegum. Hólf 1. Svipmynd af stærsta stjórnmálaflokknum „Stóreignamennirnir sem stofnuðu Sam- bandsfiokkinn notuðu röksemdir um smæð og fátækt þjóðarinnar til að teija þeim hug- hvarf sem álitu að Færeyingar ættu að vera Dönum óháðir um alla hluti. Ljóst var hvað vakti fyrir eignamönnum. Sjálfstæði þjóðar fylgir óhjákvæmilega sú kvöð að þeir sem hafa af einhvetju að taka leggi sitt af mörkum í þágu þjóðarheiidar. Það er til marks um pólitíska seiglu og harð- fylgi sambandsmanna að þeim tókst ekki aðeins að forða því í marga áratugi að færeyskir eignamenn borguðu skatt - þeir fengu því til leiðar komið að danskur aI- menningur greiddi þessa skatta í staðinn í formi beinna og óbeinna styrkja til eyj- anna.“ (bls. 7) „Þeim tókst (ásamt jafnaðarmönnum, innskot höf.( að fá dönsk stjómvöld til að ógilda úrslit þjóðaratkvæðis (árið 1946, inn- skot höf.( þar sem meirihluti Færeyinga hafði tjáð sig fúsan til þess að slíta sam- bandinu við Danmörku." (bls. 7) „Sambandsflokkurinn er ekki aðeins elsti stjómmálaflokkur Færeyinga - sjónarmið hans nutu í marga áratugi einskonar lög- gildingar með því að Dimmalætting var hvortveggja í senn amtstíðindi og lögbirt- ingur Færeyinga. Blaðið kom því inn á nærfellt hvert heimili í landinu og studdi stefnu flokksins. Þessi stefna hefur réttilega verið nefnd pólitík hins óbreytta ástands. “ (bls 32-3) „ Williaip. Heinesen ... segir í ritdómi ... að Sambandsflokkurinn sé “nánast fullkom- lega siðlaus". “ (bls. 33) Sambandsflokkurinn er nú stærsti þing- flokkurinn í Þórshöfn að nýloknum kosning- um og hefur fjórðung þingsæta. Hann er eini flokkurinn, sem vill, að Færeyingar gangi í Evrópusambandið. III. Leikreglur og lög Efnahagshrun Færeyja þarf að skoða ekki aðeins í sögulegu samhengi, held- ur einnig í samhengi við eðli og inn- viði þjóðfélagsins. Eðvarð T. Jónsson segir ýmsar sögur af undirferli, spillingu og græðgi ýmissa helztu “máttarstólpa" þjóðfélagsins, manna, sem virtust hegða sér í samræmi við leikreglur samfélagsins, þótt lög væru bersýni- lega brotin, en fáir virtust gera sér rellu út af því (sjá hólf 2 og 3). Allir vissu allt um alla í svo litlu landi. Enginn getur þótzt ekki hafa vitað, hvernig ástandið var í raun og veru. Hólf 2. Svipmynd úr lögmannstíð Atla Dam „Aflaskipstjórinn gekk á fund flokksbróð- ur síns og góðvinar, Atla Dam, sem samdi fyrir hönd landsstjómar og bað um leyfí til að kaupa umrædidan togara. í Ijós kom að Atli vildi ekki gefa leyfí til að kaupa lítinn frystitogara sem kostaði 400 milljónir (ís- lenzkra króna, innskot höf.(. Hinsvegar var hann reiðubúinn til að útvega leyfí til kaupa á stórum kolmunnatogara sem kostaði 800 milljónir. Pólitískur vilji væri til að aðstoða við slík kaup að því tilskildu að skipið yrði smíðað í Færeyjum. Við réttarhöld og um- fjöllun í blöðum kom í Ijós að Atli ætlaði hér eins og oft áður að slá margar flugur ( einu höggi. Hefja átti nýjan iðnað, skapa atvinnutækifæri í landi og nýja útfíutnings- möguleika og bjarga skipasmíðastöðinni í Skálafírði frá yfirvofandi gjaldþroti. Finn- bogi (skipstjóri, innskot höf.( og félagar urðu að reiða fram 80 milljónir í eigin fé en það áttu þeir ekki til. Fjárins var að endingu aflað þannig að verktakar og skipa- smíðastöð lánuðu þeim féð í tvo daga. Það var Iagt inn á reikning í tveimur viðskipta- bönkum og bankarnir lögðu síðan fram vottorð um að útgerðin ætti þessa peninga inni á bók. Á grundvelli þessara vottorða veitti landsstjórnin veð og á grundvelli veðs- ins veittu danskir bankar og Skipalánasjóð- ur Dana ýmiss konar lán og fyrirgreiðslu. Svipaðar aðferðir danskra útgerðarmanna og skipasmíðastöðvar í Svendborg kostuðu hlutaðeigandi margra mánaða fangelsi og háar fjársektir. Ekki er lengur til umræðu hvort eigið fé hafí verið til eða ekki þegar togarar voru keyptir til Færeyja. Það var það yfírleitt ekki. ... Málið var fyrst rekið fyrir Færeyjarétti. Hann komst að þeirri niðurstöðu að ráðherr- um og embættismönnum hefði verið full- kunnugt um málavexti. ... í dómnum er vitnað til fíeygra orða færeysks embættis- manns ... : “Færeyjar eru ekki stærri en svo að við vitum allt sem við viljum vita hver um annan.““ (bls 94-5) Atli Dam hefur verið einn áhrifamesti stjómmálamaður í Færeyjum síðast liðin 20 ár. Hann er verkfræðingur að mennt og sonur fyrrverandi lögmanns á eyjunum. Orð hans og embættisgerðir vitna glöggt um það, að hann ber ekkert skynbragð á efnahagsmál. Færeyingar mega trúlega þakka sínum sæla fyrir að eiga ekki full- burða seðlabankastofnun, eina með öllu, því að ætli Atli Dam hefði þá ekki verið skipað- ur seðlabankastjóri? Hólf 3. Svipmynd af þinginu í Þórshöfn „í mars 1993 lagði færeyskur þingmað- ur, séra Niels Pauii Danielsen frá Khiksvík, fram gögn sem sýndu að forseti lögþings- ins, Anfinn Kallsberg, hafði dregið sér níu milljónir króna tíu árum áður þegar hann gegndi hvorutveggja í senn, embætti sjávar- útvegsráðherra í landsstjórninni og stöðu bókhaldara í litlu frystihúsi á Austurey. ... Þegar eigendur frystihússins komust á snoðir um þetta var gerður samningur við Kallsberg í viðurvist ... löggilts endurskoð- anda í Þórshöfn. Samkvæmt samningnum átti Kallsberg að endurgreiða féð með Iaxi sem bátar hans veiddu norður af Færeyjum. Kallsberg játaði að samkomulagið hefði verið gert en taldi það fyllilega lögmætt og neitaði að segja af sér. Þingmaðurinn sem lagði fram gögnin hafði sjálfur orðið uppvís að ítrekaðri misnotkun opinberra sjóða meðan hann gegndi embætti félagsmálaráð- herra 1985-1989. Hafí verið erfítt að sækja Kallsberg til saka var ennþá erfiðara að koma lögum yfír prestinn frá Klaksvík - samkvæmt stjómskipaninni bar hann ekki persónulega ábyrgð á gerðum sínum. Landsstjórnin í heild bar ábyrgðina en hana var ekki hægt að sækja til saka. Hún hafði sprungið nokkrum árum áður á andstöðu séra Nielsar og flokksbræðra hans við frum- varp sem veita átti samkynhneigðu fólki sama rétt og öðrum á færeyskum vinnu- markaði. “ (bls. 44) Ein dýpsta sprungan í innviðum færeysks efnahagslífs er kjördæmaskipan eyjanna. Skipt- ing svo lítils lands í mörg lítil kjördæmi hefur reynzt vera gróðrarstía hrepparígs á háu stigi. í þeirri stíu var ófijósemi aldeilis ekkert vanda- mál. Samsteypustjórnir voru iðulega myndaðar um málefnasamninga, þar sem hvergi örlaði á skynsamlegri efnahagsstefnu eða sjávarútvegs- stefnu, heldur snerist stjórnarsamstarf yfírleitt ekki um annað en togstreitu á milli byggðar- laga um verklegar framkvæmdir og fjármagn, aðallega frá Danmörku (sjá hólf 4). Hólf 4. Byggðastefna björt og hrein „Sandeyingar stóðu líka saman sem einn maður þegar um var að ræða samgöngur að og frá eynni. Þeir litu hinsvegar svo á að þeir byggju í a.m.k. 4 aðskildum byggð- arlögum. Hið stærsta þeirra er bærinn Sandur. Þegar byggja átti elliheimili á eynni vildu hin byggðarlögin á eynni einnig fá sinn hlut í þeim atvinnumöguleikum sem elliheimilið skapaði. Málið var leyst með því að heimilið var re.ist á Sandi, maturinn handa gamla fólkinu var eldaður í næst- stærsta byggðarlaginu, Skopun, og fötin af því þvegin í Skálavík. Þetta var þó að- eins bráðabirgðalausn á ágreiningi sem skipti Sandeyingum í margar herbúðir. Vandamálið var að endingu leyst með því að byggja tvö elliheimili til viðbótar á eyju sem telur 1700 manns. Svipaður ágreiningur varð um hafnargerð á Sandey og hann var leystur með því að byggja þrjár hafnir. ... Það að eyjan þurfti tvö frystihús útskýrðu sumir Sandeyingar þannig að þótt stutt væri að aka frá Skop- un til Sands hugsuðu Sandeyingar enn í þeim tíma þegar menn þurftu að fara fót- gangandi milli landshluta og átta kílómetrar eru löng vegalengd ef menn eiga að ganga hana. Fáir hugsuðu um eyjarnar 18 sem eina efnahagslega eða pólitíska heild. Stjórn- málamenn sögðu í einkaviðræðum að til- hugsunin ein samanjafngilti pólitísku sjálfs- morði.“ (bls. 103-4) IV. Ofurvald útgerðarinnar ið þetta allt bættist svo afar náið sam- band á milli útgerðarinnar, banka og sjóða, framkvæmdavalds og þings. Aðgreining valds til að firra almenning afleið- ingum hagsmunaárekstra virðist hafa verið framandi hugsun í Færeyjum. “Þeir sem slóg- ust um síðustu tittina í sjónum voru útgerðar- menn á löggjafarþingi þjóðarinnar," segir Eð- varð T. Jónsson (bls. 102). Bókarhöfundur hefði mátt bæta því við, hveijir stjómuðu bönk- unum og hveijir sátu í bankaráðum og sjóðs- stjórnum, til að bregða enn skýrara ljósi á orsakir og skelfilegar afleiðingar óstjórnarinn- ar í bankamálum. Hvað um það, útgerðin réði lögum og iofum í landinu, skammtaði sjálfri sér lán eftir vild að mestu og mótaði sjávarút- vegsstefnu, ef stefnu skyldi kalla, í beinu umboði stjórnmálamanna. Árangurinn blasir við (sjá hólf 5). Hólf 5. Svipmyndir úr sjávarútvegi „... væri kreppan fyrst ogfremst pólitísks og siðferðilegs eðlis. ... frá því færeyska útgerðin tók við stjórn sjávarútvegsmála hefði þjóðin ekki lifað á sjávarútvegi - sjáv- arútvegurinn hefði í vissum skilningi lifað Þorvaldur Gylfason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.