Morgunblaðið - 24.07.1994, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.07.1994, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Eiginmaður minn, ÁGÚST BJARNASON, lést að morgni 22. júlí. Ragnheiður Eide Bjarnason. t Sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi JÓN DANÍEL JÓNSSON, Skúlagötu 76, sem lést í Borgarspítalanum 21. júlí, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 28. júlí kl. 10.30. Aðalheiður Jónatansdóttir, Kristín Anna Jónsdóttir, Jón Magnússon Arnar Jónsson, Elísabet Pétursdóttir og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐNÝ HELGADÓTTIR, Hvassaleiti 30, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 27. júlíkl. 13.30. Kristjana Brynjólfsdóttir, Bjarni Björnsson, Anna Brynjólfsdóttir, Helga Brynjólfsdóttir, Hrafn Tulinius, Birgir Brynjólfsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. + Systir okkar, HELGA GUÐVARÐARDÓTTIR, Heiðarási 20, Reykjavík, sem lést 19. júlí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudag- inn 26. júlí kl. 13.30. Sigríður Guðvarðardóttir, Sverrir Guðvarðsson, Gunnar Eyjólfsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi, langafi og langalangafi, VIGGÓ ÁGÚST LOFTSSON frá Eskifirði, Möðrufelli 7, Reykjavík, sem andaðist í Borgarspítalanum þann 15. júlí, verður jarðsunginn frá Fella- og Flólakirkju fimmtudaginn 28. júlí kl. 13.30. Kristín Þorsteinsdóttir, Marteinn Þór Viggósson, Perla Guðmundsdóttir, Þorsteinn Viggósson, Gitte Mortensen, Kristin Á. Viggósdóttir, Birgir Dýrfjörð, Siguröur L. Viggósson, Bryndís Sigurjónsdóttir, Sigvaldi Viggósson, Þórunn Guðmundsdóttir, Unnur Rósa Viggósdóttir, Eiríkur Þorsteinsson, Sigfús S. Viggósson, Mari'a Jóhannsdóttir, Haukur Viggósson, Sigríður Sigurðardóttir, Anton Viggó Viggósson, og aðrir afkomendur. + Kveðjuathöfn um séra MARINÓ KRISTINSSON fyrrv. prófast á Sauðanesi, fer fram í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 26. júlí kl. 13.30. Þórhalla Gfsladóttir, Dagný Marinósdóttir, Ágúst Guðröðarson, Hrefna Marinósdóttir, Vffill Þorfinnsson, Ágúst Marinósson, Eli'sabet Ósk Arnardóttir, Gísli Már Marinósson, Erla Ásgrímsdóttir, Rósa Kristín Marinósdóttir, John E. G. Benedikz, Steinunn Marinósdóttir, Kolbeinn Marinósson, Úlfur Heiðar Marinósson, Drífa Aradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. INGÓLFUR SIGURZ + Ingólfur Sigurz fæddist í Reykjavik 10. júní 1928. Hann lést á Borgarspítalanum 13. júlí 1994. Hann var yngstur sex barna hjónanna Guðbjargar Skúla- dóttur frá Ytra- Vatni í Skagafirði, f. 12. febrúar 1896, d. 31. júlí 1957, og Sigurðar Friðriks Sigurz, f. í Reykja- vík 2. júní 1895, d. 1. október 1967, en Sigurður var af einni elstu ætt Reykjavíkur, svokallaðri Borg- arabæjarætt. Ættfaðir hennar, Guðmundur Bjarnason frá Langárfossi á Mýrum, f. 1761, „leysti út“ borgarabréf og hafði smáverslun í „læknishúsinu", en bjó með fjölskyldu sinni í „Borgarabæ“ (áður Marteins- bær, sem nú er Glasgow við Vesturgötu 3). Systkini Ingólfs: Skúli Eggert, f. 28. apríl 1921, d. 1. júlí 1946, Kristjana, f. 1922, Aslaug, f. 1924, Margrét (búsett í Bandaríkjunum), f. 1925, og Sigurður Friðrik, f. 22. maí 1927, d. 1. nóvember 1992. Ingólfur kvæntist eftirlif- andi konu sinni Astu Hauks- dóttur frá Akureyri 1951 og eignuðust þau fjögur börn: Skúla Eggert, Jóhönnu, Ingólf og Sigurð Hauk, en fyrir átti Asta soninn Magnús. Ingólfur hóf störf hjá borgarfógetaemb- ættinu í Reykjavík 1950 (síðar sýslumannsembættinu) og vann þar sem fulltrúi til dauðadags. Útför hans fer fram frá Bú- staðakirkju á morgun. MEÐ Ingólfi Sigurz er góður maður genginn. Mikill og eftirminnilegur persónuleiki og ljúfur drengur er fallinn í valinn. Kallið kom skjótt og óvænt og það er í sjálfu sér þakkarvert að honum auðnaðist að lifa lífinu lif- andi til síðasta dags. Það hefði ekki verið að hans skapi að heyja langt stríð og vera langtímum saman sjúkur og ósjálfbjarga og upp á aðra kominn. Svona hefði hann kosið að fara, í fullu fjöri og með reisn. Þótt ritun eftirmæla sé ekki mín sterka hlið og eftirlætisiðja, finn ég mig knúinn til að kveðja vin minn Ingólf með nokkrum fátæk- legum orðum á þessum vettvangi, þar sem mér auðnaðist ekki að kveðja hann með viðeigandi virkt- um og þakka honum allt og allt meðan hann lifði. Vitur maður sagði eitt sinn þegar mærð í minningargreinum bar á góma, að það væri nú einu sinni svo að best væri að vega og mæla tréð þegar það væri fallið. í þessum orðum eru mikil sannindi fólgin. Kostir manns þykja einatt svo sjálf- sagðir meðan hann lifir, að sam- ferðamenn taka þeim gjaman sem gefnum og fínnst ekki orð á ger- andi. En þegar vænn maður hverfur yfír móðuna miklu, skilur hann eft- ir sig tóm og þá sjá eftirlifendur glöggt hvað þeir áttu og hafa misst. Þegar dauðinn sigrar lífið og ekk- ert er sjálfsagt lengur verða kostir hins gengna bersýnilegri og minnis- stæðari og yfirskyggja ágalla, sem voru gjarnan miklaðir meðan hann lifði. Kynni okkar Ingólfs voru ekki ýkja löng og samskipti okkar í sjálfu sér hvorki mikil né náin. Engu að síður vorum við vinir og vissum báðir hvar við höfðum hinn í því efni. Ég kynntist honum fyrir einum og hálfum áratug þegar ég sem ungur og óreyndur lögfræðingur þurfti að eiga samskipti við upp- boðsréttinn í Reykjavík en þar var Ingólfur starfsmaður áratugum saman og allt til dauðadags. Þótt hann hafi ekki haft þar formleg forráð þá má með sanni segja að þar hafi hann verið kóngur í sínu ríki. Hann bjó yfir mikilli fæmi, reynslu og þekkingu, sem að- eins fæst á vettvangi og í starfi og ekki verð- ur lærð af lagabókum. Var hann sérlega vel liðinn og látinn sem starfsmaður uppboðs- réttarins, bæði af lög- mönnum og öðrum sem til hans þurftu að leita þar. Lagði hann sig ætíð í framkróka um að leysa öll mál með lempni, lipurð og sanngirni og hélt oft hlí- fiskildi yfir þeim, er áttu undir högg að sækja. Lánaðist honum oft að miðla málum, sem komin voru i strand og lögfræðingar stóðu ráð- þrota andspænis. Naut hann þar reynslu sinnar, gæsku og mann- þekkingar og persónutöfra, sem voru ómældir. Hann var mjög ötull, afkastamik- ill og vandvirkur starfsmaður og naut virðingar og trausts í starfí. Var lipurð hans, hjálpsemi og ljúf- mennska annáluð og jafnan var hann óspar á góð ráð og leiðbeining- ar til allra, sem á þurftu að halda, ekki síst til nýútskrifaðra lögfræð- inga, sem gjarnan halda sig spreng- lærða og flest kunna en eru þó oft harla ófróðir um lífíð utan bókarinn- ar. Ingólfur var einstakt ljúfmenni og öðlingur, greiðvikinn og rausnar- legur og bóngóður svo af bar og til hans var ljúft að leita. Hann var sannur vinur vina sinna og hjálpaði þeim og stóð með þeim eins og klett- ur ef á bjátaði. Hann hafði ætíð mikla samúð með þeim, sem minna máttu sín af einhveijum ástæðum. Reyndist hann mörgum slíkum bjargvættur og hjálparhella, bæði í starfí sínu og utan þess. Þarna kynntist ég öðlingnum Ingólfí og naut leiðsagnar hans, hjálpar og greiðvikni. Reyndist hann mér sérlega vel og gaf mér mörg holl ráð í gegnum tíðina úr reynslusjóði sínum. Kom fyrir að heilræði hans forðuðu mér óhörðn- uðum og reynslulitlum frá því að gera mistök og taka rangar ákvarð- anir vegna reynsluleysis. Margt sem hann kenndi mér á þessum árum hefur reynst mér gott vegarnesti, sem ég hef búið að síðan. Ég veit að fjölmargir fleiri lögfræðingar hafa þessa sömu sögu að segja af Ingólfí, að hann hafí reynst þeim ungum og reynslulitl- um hollráður og hjálparhella og haukur í homi í uppboðsréttinum. Síðar átti ég því láni að fagna að verða veiðifélagi Ingólfs og Skúla sonar hans en við fómm ásamt fleirum í mörg ár til veiða á urriðasvæðinu í Laxá í Mývatns- sveit. Þeir feðgar voru veiðimenn af guðsnáð enda Landsliðsmenn og það voru mikil forréttindi að fá að veiða með þeim, læra af þeim og vera samvistum við þá í náttúmlegu umhverfi. Þar kynntist ég Ingólfí betur og þeim mannkostum sem hann prýddu og í þessari veiðiparadís átti ég því láni að fagna að eignast vináttu hans og mat ég hana afar mikils. Sem veiðifélagi var Ingólfur ein- stakur og frábær. Hann var ávallt hlýr, elskulegur, skemmtilegur, fræðandi, hjálpsamur og taldi aldrei eftir sér að eyða tíma og fyrirhöfn í að leiðbeina viðvaningum og að- stoða veiðiklaufa hvenær sem þess var þörf. Það var eins og hann fyndi það á sér ef liðveislu hans var þörf í orði eða verki. Þá var hann umsvifa- laust kominn og gerði öll vandamál okkar hinna að sínum og leysti þau. Alltaf tók hann öllum uppá- komum og vandræðum með ljúf- mennsku og jafnaðargeði á hveiju sem gekk og sjaldan skipti hann skapi þótt tilefni væru stundum ærin. Jafnan hafði hann ráð undir rifi hveiju og ávallt var hlýjan og góð- látleg kímnin á sínum stað. Kímni- gáfa hans var sönn og einlæg og alltaf græskulaus og aldrei var hann meinfysinn. Ingólfur var sagnabrunnur mikill og var frá- sagnargáfa hans frábær og það var hrein unun að sitja við fótskör hans á góðum stundum og bergja af þeim brunni. Ingólfur var sannkallað glæsi- menni á velli og í sjón og mikill og rausnarlegur höfðingi í lund og raun. Hann vakti jafnan athygli og aðdáun hvar sem hann fór fyrir glæsimennsku og höfðinglegan brag og framkomu. Var hann lík- astur filmstjörnu af gamla skólan- um enda kölluðum við veiðifélag- arnir hann einatt Clark Gable og var þá í engu hallað á þann síðar- nefnda, sem var fullsæmdur og ríf- lega það af þeim samjöfnuði. Ingólfur var gleðimaður í þess orðs bestu merkingu. Hann lifði líf- inu lifandi og var óspar á sjálfan sig til hinstu stundar. Stundum fór hann dálítið geyst um gleðinnar dyr og var fylgispakari Bakkusi kon- ungi en sumir töldu við hæfí en í því efni er vandratað meðalhófið og hafa ótalmargir góðir menn og drengir reynt það. Ingólfur var afbragðsmaður og drengur góður en hann var vita- skuld ekki gallalaus og án breysk- leika fremur en aðrir menn. Líf hans var heldur ekki bara leikur og dans á rósum. Honum var úthlut- að dijúgt af andstreymi og mikla erfíðleika fékk hann að reyna en hann lét aldrei bugast og kom keik- ur frá hverri raun. Mannkostir Ingólfs voru svo yfir- gnæfandi að brestir hans verða smáir og falla alveg í skuggann. Og þegar reikningar lífs hans og ævi verða gerðir upp fyrir æðsta dómi að leiðarlokum, þá er engu að kvíða því útkoman verður með ágætum og eftirmælin eins og best geta orðið. Hann var sannarlega góður maður. Því miður voru fundir okkar allt of stijálir hin síðari ár, en alltaf stóð til að bæta úr því en nú er það um seinan. Það er svo sem gömul saga og ný, að menn falli á tíma og við því verður ekkert gert, en eftirsjáin er samt sárari fyrir vikið. Maður nagar sig í handarbökin og ásakar sig fyrir afskipta- og framtaksleysi og að hafa ekki rækt- að vináttuna sem skyldi meðan for- sjónin gaf til þess tíma. Að leiðar- lokum verða þær annir sem höml- uðu samskiptunum svo ómerkileg- ar, smáar og léttvægar, að þær afsaka ekki neitt lengur. Okkar fáu fundir voru samt fagn- aðarfundir og alltaf var jafn gott að hitta Ingólf og finna hlýju hans og vinarþel og slá með honum á létta strengi og rilja upp skemmti- leg atvik og fá svo frá honum nokkrar góðar sögur í nestið. Ég sakna Ingólfs og minnist hans með mikilli þökk og virðingu og tel það mikil forréttindi að hafa verið svo lánsamur að kynnast honum og eignast hann að vini. Samneyti við slíkan mann eru lærdómsrík, gefandi og mannbætandi. Sé það rétt að hinum megin graf- ar séu eilífar veiðilendur þá er það næsta víst að þar mun Ingólfur vera í essinu sínu og una hag sínum vel og verða fremstur meðal jafn- ingja eins og í veiðum þessa heims. Þá þurfa vinir hans ekki að kvíða móttökunum fyrir handan, bestu plássin og svæðin verða örugglega frátekin handa þeim. Ingólfur skilur eftir sig stórt skarð og margir, bæði ættingjar og vinir, trega hann og sorgin er sár og söknuðurinn er mikill. En eftir lifír minning sem aldrei deyr, minn- ing um góðan mann, góðan dreng, ljúfan öðling og höfðingja. Sú minn- ing mun að lokum sigra sorgina og hugga og gleðja okkur öll þegar fram líða stundir. Ekkju Ingólfs, Ástu Hauksdótt- ur, og afkomendum hans og ætt- ingjum öllum, sem nú sakna og syrgja sárast, votta ég samúð mína. Megi góður Guð veita þeim styrk í sorginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.