Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 27

Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 27 Ég vil að lokum þakka vini mín- um Ingólfi allt er áttum við saman, bæði alvöruna og gaman. Blessuð sé minning Ingólfs Sig- urz. Sigurður Helgi Guðjónsson. Okkur hjónunum barst sú harma- fregn hinn 13. júlí síðastliðinn að hann Ingólfur Sigurz vinur okkar hefði þá um morguninn látist á Borgarspítalanum. Ingólfi, Astu og ijölskyldunni í Búlandi 31 kynntist ég fyrir rúmum 25 árum og tókst með okkur öllum gagnkvæm virð- ing og vinátta. Við Ingólfur áttum mörg sameiginleg áhugamál en þá aðallega lax- og skotveiðar og með Ingólfi fer hafsjór af fróðleik og skemmtilegum veiðisögum. Veiði- gyðjan hafði sótt Ingólf heim á unga aldri og seinna meir miðlaði hann kunnáttu sinni til afkomenda sinna og margra vina og er ég einn þeirra. Ingólfur var félagi í Stanga- veiðifélagi Reykjavíkur um langt árabil og þá stundaði hann stanga- veiði og skotveiði með Landsliðinu, sem er áhugahópur um slík mál. Heimili þeirra Ingólfs og Ástu var ætíð opið fyrir öllum íjölskyldu- meðlimum og vinum og oft settu þau hjón upp veisluborð fyrir hóp vina með stuttum eða engum fyrir- vara, heimili þeirra bar og ber ör- ugglega áfram ríkulegri gestrisni vitni. Ingólfur starfaði í áratugi sem fulltrúi við Borgarfógetaembættið í Reykjavík og nú síðar við Sýslu- mannsembættið í Reykjavík. Ingólf- ur var afkastamikill starfsmaður fyrir embættin og umfram allt var hans aðalsmerki í starfi nærgætni við þá er minna máttu sín í velferð- arríki mammons. Hann var ætíð fús að veita góð ráð á erfiðum tímum og mættu margir opinberir sem sjálfstæðir innheimtumenn taka Ingólf sér til fyrirmyndar í sam- skiptum við þolendur. Ingólfur Sigurz var maður fríður sýnum og eftirtektarvert glæsi- menni. Hann var maður vinsæll og vinmargur. Með Ingólfi Sigurz er horfinn einn af eftirtektarverðustu borgur- um Reykjavíkur og minningin um hann mun ávallt standa uppúr sterk og fölskvalaus. Elsku Ásta, Jó- hanna, Skúli, Ingólfur, Sigurður og aðrir nákomnir, okkar dýpsta sam- úð til ykkar og við biðjum Ingólfi blessunar í æðri heimum. Ragnheiður og Stefán Á. Magnússon. Við vorum uppaldir í sömu götu í Vesturbænum. Bróðir Ingólfs sem nú er látinn, Sigurður, var með mér í bekk í barnaskóla. Ég minnist þess að ég kom í örfá skipti heim til Sigurðar. Mér eru þær minningar einkar kærar, því ljúfmennska og umhyggja móð- ur þeirra umvafði okkur. Ingólfur var nokkru yngri, en það má segja að við höfum þekkst frá barns- aldri. Þegar barnsskónum var slitið lágu leiðir ekki lengur saman. Löngu, löngu síðar þegar ég var orðinn starfsmaður Dagsbrúnar lenti ég í að reyna að bjarga vini mínum úr Dagsbrún og ég gekk á fund fógeta. En það var embætti sem ég hafði einhvern ósjálfráðan ímugust á. Þá tók á móti okkur Ingólfur Sigurz. Skemmst er frá því að segja að hann reyndist í vandkvæðum vinar míns svo hollráður og algjör bjarg- vættur. Upp úr því tókst með okkur aftur hin gamla bernskuvinátta. Um áratugi var hann helsta hjálpar- hella og leiðbeinandi í að afstýra gjaldþrotum eða íbúðamissi fyrir fátækt verkafólk. Hann leiðbeindi mér við hveija ætti að tala til að fá frest á uppboði, frestaði uppboð- um þótt hann ætti að vera svo til „valdalaus", þar sem hann var ólög- lærður fulltrúi, Stundum hringdi Ingólfur og aðvaraði mig út af hættu sem ég væri að komast í persónulega. Þó miklu, miklu oftar að spyrja mig hvort þetta væri ekki Dagbrúnarmaður sem væri í þann mund að fara í gjaldþrot eða upp- boð, ótilkvaddur án nokkurrar emb- ættisskyldu. Þær voru ótrúlega margar símhringingamar sem hann hringdi í lögfræðinga, embættis- menn, til að fá fresti fyrir skjólstæð- inga mína. Og ég sá hann sjaldan glaðari en þegar hann hafði frestað gjaldþroti, íbúðamissi eða annarri skelfingu sem hann afstýrði að kæmi yfir fjölskyldur. Leiðbeiningar hans einkenndust ekki af klækjum heldur skýrri túlk- un sem vart var á færi annarra en lögfræðinga. Aldrei gerði Ingólfur neinar kröfur til mín fyrir alla þá miklu vinnu og fyrirhöfn sem hann innti af hendi. Ingólfur var óvenju glæsilegur maður og mér virtist hann vera frískleikinn uppmálaður. Þegar ég heyrði andlátsfregn hans, þá snart það okkur hjón mjög illa - við viss- um ekki um nein veikindi. Það setti að okkur hryggð og sáran söknuð - mér fannst veröldin öll daufari og mér fannst ég bæði missa vin og hjálparhellu. Kunningsskapur okkar fyrir utan þessi störf var ekki mikill, en við þekkjum ekkju hans, Ástu Hauks- dóttur, en þau áttu saman fjögur börn, sem nú eru uppkomin, en þau eru á svipuðum aldri og okkar börn. Konur okkar eru vinkonur og fer vel á með þeim. Mér fannst Ingólfur lyfta fógeta- embættinu á mannlegra stig og ekki gera það að dauðri afgreiðslu- stofnun. Það verður sjónarsviptir að missa hann úr þessu starfi. Skyndilega um hásumar er þessi glæsimaður hrifínn úr okkar hópi.' Eg færi ástvinum hans öllum virð- ingu mína og samúð. Megi sumaryl- urinn og hlýja móður hans umvefja syrgjandi ástvini hans. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar. Ingólfur Sigurz, fulltrúi hjá sýslumanninum í Reykjavík, lést í Borgarspítalanum 13. júlí sl. Andlát hans bar skjótt að, en hann hafði virst heilsuhraustur og stundaði starf sitt af kostgæfni, eins og hann var vanur, allt til hinsta dags. Ing- ólfur var fæddur 10. júní 1928 og var því 66 ára gamall þegar hann lést. Kynni mín af Ingólfi Sigurz urðu ekki löng. Ég kynntist honum fýrst eftir að ég hóf störf við sýslumanns- embættið um áramótin síðastliðin. Hann hafði unnið hjá sýslumannin- um í Reykjavík og borgarfógetan- um í Reykjavík, eins og embættið hét áður, óslitið allt frá árinu 1949 eða í 45 ár. Þessi stuttu kynni mín af Ingólfi voru öll á einn veg. Hann var ötull og samviskusamur starfs- maður í uppboðsdeild embættisins. Bar fýrir brjósti hag þess og ekki síður hag viðskiptavinanna, sem leituðu gjaman til hans með vanda- mál sín. Hann kunni afar glögg skil á starfsemi uppboðsdeildarinn- ar og þekkti ijölda fólks hér í borg, sem oft kom sér vel og flýtti fýrir afgreiðslu mála. Þá var Ingólfur vinsæll og vel látinn hér innan embættisins og hafði jákvæð og góð áhrif á starfsandann. Hann var ekki síður vinsæll út á við og hafa t.d. margir lögmenn tjáð mér hve gott samstarf þeir áttu við hann. Ingólfur var glæsimenni og bar svipmót heimsmannsins. Með þessum fáu línum vil ég láta í ljós þakklæti sýslumannsins í Reykjavík fyrir að hafa fengið að njóta starfskrafta Ingólfs Sigurz allan hans starfsdag og munum við samstarfsfólk hans hér í Skógar- hlíðinni sakna vinar í stað og minn- ast góðs samstarfsmanns og félaga. Ég færi aðstandendum Ingólfs, eiginkonu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum, samúðarkveðjur. Rúnar Guðjónsson. Við sitjum hljóðir, hann er farinn í ferðina eilífu, við sem ætluðum að gera svo margt. Það voru bara tveir dagar eftir í vinnunni og svo var komið sumarfrí. Þá var nægui tími fýrir áhugamálin, útgerðina og allar veiðiferðirnar sem við átturr eftir að fara til sjós og lands. Ingólf- ur var mikill veiðimaður og naut MINNINGAR þess að vera úti í náttúrunni með vinum sínum, naut þess sem hún hafði upp á að bjóða. Hann var vin- margur, enda með eindæmum við- mótsþýður, gleðimaður á góðri stund og höfðingi heim að sækja. Við vinir hans í Maraútgerðinni óskum honum heilla á hinni ókunnu strönd og vitum að hann tekur á móti okkur er okkur ber þar að landi. Ástu og fjölskyldu sendum við samúðarkveðjur. Jón A. Bardal, Skjöldur Þorgrímsson. Látinn er vinur okkar, félagi og fyrst og fremst veiðifélagi, Ingólfur Sigurz. Fyrir rúmlega tíu árum komum við saman nokkrir veiðifé- lagar og vinir og stofnuðum veiðifé- lag sem nefnt var hinu „hógværa“ nafni, Veiðiklúbburinn Landsliðið. Veiðifélag þetta hefur starfað af fullum krafti frá stofnun þess og höfum við félagarnir farið saman í óteljandi veiðiferðir, á lax- og sil- ungsveiðar eða á gæsa- og ijúpna- veiðar. Ingólfur var í raun og veru alltaf sá sem reikna mátti með og taldi aldrei eftir sér að fara hvernig sem á stóð. Eftir að Veiðiklúbburinn Landsliðið hóf að stunda sjóinn, fyrir nokkrum árum, með Mara útgerðinni í samvinnu við Skjöld Þorgrímsson, var Ingólfur sá aðili sem nær aldrei lét sig vanta. Þær eru margar minningarnar sem leita á hugann og tengjast Ing- ólfi. Til dæmis er það okkur minnis- stætt er hann kom eitt sinn ofan af Holtavörðuheiðinni með nokkra tugi ijúpna á bakinu, gleiðbrosandi og kátur eftir mjög eftirminnilegan dag. Svipmyndir frá Selá í Vopna- firði eru einnig áleitnar og standa þar upp úr veiðistaðimir Vaðhylur og Fossbreiða en þeir voru í miklu uppáhaldi hjá Ingólfi og átti hann þar margar ánægjustundir í glímu við sterka stórlaxa. Ingólfur var mikið náttúrubarn, hann elskaði r.áttúru íslands og virti. Hann var sannur veiðimaður af lífi og sál og jafnvígur á stöng sem byssu. í hópi góðra félaga var Ingólfur ávallt hrókur alls fagnaðar en um leið vinasættir ef eitthvað bar á milli. Ingólfur var glæsilegur mað- ur, hár vexti og vörpulegur. Fram- koma hans var aðlaðandi og átti hann auðvelt með að umgangast fólk enda vinamargur. Greiðvikni og sanngimi var eitt af einkennum hans hvort sem var í leik eða starfi. Að leiðarlokum er Ingólfi þökkuð samfylgdin, sem við hefðum óskað að yrði lengri. Veiðiklúbburinn Landsliðið er fátækari í dag, þegar Ingólfur er allur. En eftir lifir minn- ingin um góðan og ljúfan dreng, sannan veiðifélaga. Við sendum Astu, bömunum og öðrum aðstandendum hugheilar samúðarkveðjur. Veiðiklúbburinn Landsliðið. Fleiri greinar um Ingólf Sigurz bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafað- ir og afi, JÓN ALFONSSON fyrrv. flugumferðarstjóri, sem andaðist 15. júlí sl., verður jarð- sunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 26. júlí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarfélög. Eyrún Eyjólfsdóttir, Alfons Jónsson, Agústa Guðmundsdóttir, Aldfs Jónsdóttir, Eyjólfur Kristinn Jónsson og barnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem veittu okk- ur stuðning og sýndu okkur hlýhug við andlát eiginmanns míns og föður okkar, BJÖRNS EINARS ÞORLÁKSSONAR, Eyjarhólum, Mýrdal. Rósa Haraldsdóttir, Agla Sigrfður Björnsdóttir, Þorlákur Sindri Björnsson, Solveig Björnsdóttir, Ingibjörg Rósa Björnsdóttir, Haraldur Björnsson. Hulda Hjörleifsdóttir, Sveinbjörn Einarsson, Guðrún Hjörleifsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Bergný Hjörleifsdóttir, Steindór Hjörleifsson, Unnur Hjartardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem hafa auðsýnt okkur samúð og vin- arhug við andlát og útför elskulegs eig- inmanns míns, föður okkar, sonar og bróður, KRISTJÁNS STEFÁNSSONAR, Smyrilshólum 2, Reykjavík. Rósa Marfa Guðnadóttir, Stella Guðný Kristjánsdóttir, Stefanía Kristjánsdóttir, Sigrfður Þórarinsdóttir, Þórarinn Stefánsson, Unnur Páifna Stefánsdótir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.