Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 31
SIGRÍÐUR OG ARNOLD TAYLOR
+ Sigríður Ás-
geirsdóttir var
fædd á Blönduósi
6. des. 1911, næ-
stelst af tíu börn-
um hjónanna Ás-
geirs Þorvaldsson-
ar múrarameistara
frá Hjaltabakka í
Ásum og Hólmfríð-
ar Zophoníasdótt-
ur, sem var af
borgfirskum og
húnvetnskum ætt-
um. Hún stundaði
ýmis störf á
Blönduósi og í
Reykjavík, áður en hún hélt til
Kaupmannahafnar 1937. Kom
hún heim 1940 með Esju frá
Petsamo. Árið 1935 hafði hún
kynnst ungum enskum há-
skólastúdent, sem þá var við
framhaldsnám við Háskóla Is-
lands. Nú var hann aftur kom-
inn til íslands, að þessu sinni í
hernámsliði Breta árið 1941.
Gengu þau í hjónaband 14.
mars 1942 og sigldu til Eng-
lands í maí sama ár.
Eiginmaðurinn var Arnold
Rodgers Taylor, f. 28. apríl
1913 í Norton-on Tees í Dur-
ham-skíri, yngstur 4ra barna
hjónanna Arthurs Harrys Tayl-
ors ketilsmiðs og bakarasonar
frá Burnham í Norfolk og
Elizabeth Rodgers járniðn-
aðarmannsdóttur frá Stockton.
Að loknu stúdentsprófi frá
menntaskólanum í Stockton
hóf Arnold enskunám við Há-
skólann í Manchester (St. Ans-
elm Hall) og lauk B.Á. Hono-
urs-prófi þaðan 1934. Hafði
hann dvalist á Islandi við há-
skólann á vormisseri 1933 og
fengið að taka hluta af háskóla-
prófi sínu í Alþingishúsinu og
síðan ferðast um landið fram
á haust. Árið eftir vann hann
að magistersritgerð um Drop-
laugarsonasögu. Að loknu
magistersprófi í Manchester
aflaði hann sér kennsluréttinda
með eins árs viðbótarnámi við
sama skóla.
Eftir að hafa gegnt afleys-
ingakennslu í Ashton under
Lyne 1937 réðist hann að Há-
skólanum í Jena í Þýskalandi
og starfaði þar sem lektor í
ensku frá 1937 til 1939. Að lok-
inni eins árs kennslu við
menntaskólann í Darlington
gekk Arnold í breska herinn,
en þar var mikill hörgull á
mönnum með þýskukunnáttu.
Ári síðar reyndi þó meira á
íslenskukunnáttu hans, er hann
var sendur til Islands á vopn-
uðu kaupfari, sem naumlega
slapp við að verða á vegi Bi-
smarcks. Arnold var í Reykja-
vík, þar til þau hjónin héldu til
Englands 1942 og Sigríður
settist að hjá skyldfólki hans,
en Arnold hlaut frekari her-
þjálfun og barðist síðan með
herjum Breta og bandamanna
þeirra í Norður-Afríku, Ítalíu,
Belgíu og Hollandi til stríðs-
loka. Annaðist Arnold síðan
þýðingar úr þýsku fyrir breska
herinn, þar til hann fékk lausn
frá herþjónustu sumarið 1946,
er hann sneri sér aftur að
menntaskólakennslu í Durham-
skíri.
í ársbyrjun 1947 hóf Arnold
aðalævistarf sitt, sem var
kennsla í cnskum og íslenskum
fræðum við Háskólann í Leeds,
en þar í borg bjó fjölskyldan í
nær aldarþriðjung eða þar til
Arnold fór á eftirlaun haustið
1978. Var hann fyrstu árin
lektor en dósent frá 1956. Voru
kennslugreinar hans einkum
miðaldaenska og ensk málsaga
og íslenska. Árið 1955 var hann
gerður að kennslustjóra i ís-
lenskum fræðum (supervisor
of Icelandic studies). Starfaði
hann m.a. í The Viking Society
for Northern Research og var
forseti þess félags 1952-1954.
Málgagn félagsins, Saga Book,
birti ýmsar greinar og ritgerð-
ir hans um íslensk og norræn
efni. Árið 1957 sendi Oxford
University Press frá sér endur-
skoðaða og aukna útgáfu Arn-
olds af Introduction to Old
Norse eftir læriföður hans við
Háskólann í Mancheseter, E.V.
Gordon prófessor, en sú hefur
lengi verið helsta kennslubók
í forníslensku við breska há-
skóla. Auk framangreindra
starfa kenndi Arnold ensku við
Háskóla íslands á vormisseri
1969.
Fyrir margvísleg störf að
íslenskum fræðum í Bretlandi
sæmdi forseti Islands Arnold
fyrst riddarakrossi og síðar,
er hann lét af störfum við Há-
skólann í Leeds, stórriddara-
krossi hinnar íslensku Fálka-
orðu.
Haustið 1978 fluttust þau
hjónin búferlum frá Leeds til
Sheffield og bjuggu þar til
1983, er þau settust að í Up-
wood nálægt Huntingdon í
Cambridge-skíri. Heilsu Sig-
ríðar hafði þá rnjög hrakað, en
Arnold annaðist hana af frá-
bærri umhyggju, þar til hún
lést 18. desember 1990. Sumar-
ið 1991 kom Arnold í síðasta
sinn til íslands og hafði með-
ferðis ösku Sigríðar, sem hann
jarðsetti að ósk hennar hjá
jarðneskum leifum foreldra
hennar á Blönduósi.
Arnold R. Raylor lést á Eng-
landi 30. maí 1993. Hinsta ósk
hans var að hljóta legstað í ís-
lenskri mold við hlið eiginkonu
sinnar. Verður aska hans jarð-
sett á Blönduósi í dag í viður-
vist barna hans, Jennifer Tans-
er og Ronalds Taylors, barna-
barna, barnabarnabarna og
annarra vandamanna.
í JANÚARBYRJUN 1947 kynnti
þáverandi prófessor í enskri tungu
og miðaldabókmenntum við Há-
skólann í Leeds, Harold Orton
(1898-1975), mig fyrir nýjum
samkennara sínum, sem hann kvað
m.a. eiga að kenna þar íslensku.
Þetta var Arnold Taylor, þá nýflutt-
ur til borgarinnar ásamt íslenskri
eiginkonu sinni og börnum. Kynni
okkar urðu næstu árin slík, að við
hæfí er að rekja aðdraganda þeirra
lítillega, enda snertir hann tengsl
háskólans við ísland og íslensk
fræði.
Á árunum fyrir 1931 var pró-
fessor í ensku við Háskólann í Le-
eds E.V. Gordon, geysivinsæll og
efnilegur fræðimaður og áhuga-
maður um íslensku. Að frumkvæði
hans hafði háskólinn keypt árið
1930 hið mikla bókasafn Boga Th.
Melsteð, og varð það að deild í
háskólabókasafninu í Leeds, The
Brotherton Library. Þetta var eitt
viðamesta safn íslenskra rita á
Bretlandi og taldi á þriðja tug þús-
unda binda er hér var komið sögu.
Þessi merki íslandsvinur, sem því
miður féll frá langt um aldur fram
1938, var m.a. höfundur kennslu-
bókar í forníslensku. Gordon flutt-
ist frá Leeds til Háskólans í Manc-
hester 1931, og fylgdu honum
ýmsir stúdentar hans, þ. á m. Sig-
urður L. Pálsson, síðar enskukenn-
ari við Menntaskólann á Akureyri.
Af öðrum nemendum Gordons má
nefna Eirík Bendikz, sem lengi var
sendiráðunautur í London, og Ja-
mes Anderson Thompson, sá er
þýddi Sjálfstætt fólk á ensku. Sama
ár hóf Amold Taylor nám sitt við
Háskólann í Manchester, eins og
að framan getur.
Er ég hóf nám við Háskólann í
Leeds haustið 1946, höfðu orðið
þar mikil mannaskipti að lokinni
síðari heimsstytjöld. í enskudeild-
inni var valinn maður í hveiju rúmi.
Prófessor í enskum bókmenntum
eftir 1500 var Bonamy Dobrée,
heimsþekktur fræðimaður og síðar
ritstjóri Oxford History of English
Literature, og meðal samkennara
hans voru George Wilson Knight,
síðar prófessor og þekktur Sha-
kespeare-fræðingur; Kenneth
Muir, þekktur útgefandi leikrita
Shakespeares og síðar prófessor
við Háskólann í Liverpool, og Arn-
old Kettle, sérfræðingur í enskri
skáldsagnagerð og síðar prófessor
við The Open University.
Af málfræðingum og miðalda-
fræðingum má telja áðurnefndan
Harold Orton, sem um miðbik
aldarinnar var helsti mállýskufræð-
ingur þarlendis og ritstjóri The
Survey of English Dialects; mið-
aldafræðinginn W.A.G. Doyle-
Davidson, A.C. Cawley Chaucer-
fræðing, eftirmann Ortons á stóli
fræðanna, sem verið hafði sendi-
kennari í British Council við Há-
skóla íslands 1945-1946. Einnig
störfuðu í deildinni á þessum árum
tveir af þekktustu hljóðfræðingum
Breta, David Abercrombie, síðar
prófessor við Edinborgarháskóla,
og Peter A.D.McCarthy, seinna
forstöðumaður hljóðfræðideildar-
innar í Leeds.
Stúdentar voru flestir mun eldri
og þroskaðri en undirritaður, sem
þá var eini íslenskri stúdentinn við
háskólann (en þeim átti eftir að
ijölga mjög á næstu árum); voru
margir þeirra eldri en prófessorarn-
ir, enda voru yfir 95% fyrrverandi
hermenn, og höfðu sumir verið
skólastjórar, kennarar, blaðamenn
og jafnvel þekkt skáld fyrir stríð.
Inn í þetta akademiska samfélag
kom Arnold. Taylor eftir áramótin
1947. Fljótt varð ljóst, að þeir Ort-
on hugðust halda merki Gordons
hátt á loft og leggja traustan grunn
að íslenskum fræðum við deildina.
Eitt af því sem þeir fengu áorkað
var að efna til kennslu í nútímaís-
lensku jafnhliða fornmálinu, og var
undirritaður settur til að kenna
hópi annars árs enskustúdenta
undirstöðuatriði í íslensku talmáli
þá um vorið og því næst sendur
um sumarið með þá á nýsköpunar-
togaranum Kaldbak til Akureyrar,
þar sem þeim skyldi komið fyrir á
bæjum í nærsveitum kaupstaðarins
til frekari þjálfun í málinu. Þannig
hófst uppbyggingarstarf Arnolds á
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar mánudaginn 25.
júlí nk. frá kl. 12.00 eftir hádegi, vegna jarðar-
farar INGÓLFS SIGURZ.
Lagastoð hf.,
Lögmannsstofa Arnar Höskuldssonar hrl.,
Lögmannsstofa Arnmundar Backmann sf.
sviði íslenskra fræða við Háskólann
í Leeds, og hygg ég, að hann megi
telja meðal merkari kennara á því
sviði á Bretlandi, og má þakka það
yfírburða þekkingu hans á ís-
lenskri tungu og bókmenntum fyrr
og síðar, enda talaði hann íslensku
nánast sem innfæddur væri. Er sú
saga þeim mun merkilegri, ef horft
er til þess, að hann átti lengstan
hluta starfsævi sinnar við alvarlegt
heilsuleysi að stríða.
Arnold Taylor verður flestum
sem honum kynntust næsta eftir-
minnilegur. Hann var fremur lágur
vexti, rauðbirkinn og hafði óvenju
gróskumiklar rauðar augnabrúnir.
I viðkynningu var hann einkar blátt
áfram og hinn alúðlegasti. Hann
var maður gagnorður að hætti höf-
uðpersóna í íslendingasögum. Á
deildarfundum í háskólanum, þar
sem oft var hart deilt og margt
talað, hafði hann orð á sér fyrir
að komast skjótt að kjarna hvers
máls í fáum en vel völdum orðum.
— Sigríður kona hans var glæsileg-
ur fulltrúi íslands á erlendri grund,
sem í engu mátti vamm sitt vita.
Slíka öðlinga er gott að hafa átt
að vinum.
Samskipti okkar íslensku stúd-
entanna í Leeds við Arnold og
Siggu (eins og hún var jafnan köll-
uð) verða okkur ógleymanleg fyrir
sakir drengskapar þeirra, gestrisni
og óbrigðullar hjálpsemi. Gott var
að eiga hjá þeim öruggt athvarf,
og tel ég mig mæla fyrir munn
okkar allra, er ég að leiðarlokum
vildi segja: Hafið heila þökk fyrir.
Hvern hug Arnold bar til íslands
og íslendinga má ráða af því, að
hann kaus sér hinstu hvílu í ís-
lenskri mold. Ég leyfi mér að tjá
börnum og öðrum vandamönnum
þeirra hjóna, sem hingað eru kom-
in til þess að fylgja Arnold síðasta
spölinn í dag, innilega samúð og
hluttekningu okkar íslensku stúd-
entanna í Leeds.
Heimir Áskelsson.
Þakleki?
Svalir? - Útitröppur?
Við leysum málið með bestu
þéttiefnum á markaðnum.
PETURSSON HF.
Sími: 91-673730
Takmarkaöur f jöldi
mótsgesta
Góöur valkostur
um Verslunarmannahelgi
Mót án vímuefna
Frítt fyrir börn
yngri en 14 ára
Heilun Manns og Jarðar
Heilunarhelgi, haldin af Snæfellsás
um verslunarmannahelgina, 29.júlí - l.ágúst.
Fjölskyldumót, opið öllu áhugafólki um mannrækt og
heilun. Þarna verða saman komnir nokkrir bestu heilarar
LANDSINS SEM KYNNA MISMUNANDI AÐFERÐIR ÓHEFÐBUNDINNA
LÆKNINGA OG HEILUNAR. MEÐAL EFNIS VERÐUR:
Nálastungulækningar - Heildræn heilsufræði - Reiki -
Yoga - Hugleiðslur - Bænahringir - Ilmolíur til
lækningar - Fæðubótarefni - Heilun Jarðar -
Kinisologia - Handayfirlagning - Öndunaræfingar og
SLÖKUN - NÁTTÚRULÆKNINGAR - HuGLÆKNINGAR -
Óhefðbundnar lækningar - Nudd - Heilun - Heilun við
Lífslindina - Shamballa ritual - Bænahringir -
Tónlistarheilun - Jyotish, stjörnuspeki líkamans -
Helgiþjónusta - Efling lífsorkunnar - Kristallar -
Hugleiðslur - Gönguferð um Hellnar með
LEIÐSÖGUMANNI - KvÖLDVAKA - VARÐELDUR - NÁMSKEIÐ -
Herba Life - Persónuleg kynni af heilun og
ÓHEFÐBUNDNUM LÆKNINUM - OG M.FL.
MeÐAL LEÍOBEINENDA VERÐA:
Ásta Guðvarðardóttir
Anna Carla Ingvadóttir
Bryndís JúlIusdóttir
Einar Gröndal
Erung Kristjánsson
Guðbrandur Jónatansson
Guðrún Óladóttir
HuLD JÓNSDÓTTIR
Marinó Ólafsson
Margrég Elíasdóttir
Selma Júlíusdóttir
SlGRÚN SlGURÐARDÓTTlR
SVEINBJÓRG EYVINDSDÓTTIR
Úlfur Ragnarsson
Ævar Jóhannesson
Verö aöeins Œr^&lffi^erÍ íforsölu kr. 3200
Forsala aögöngumiöa og upplýsingar I versluninni
Betra líf, Borgarkringlunni