Morgunblaðið - 09.09.1994, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 7
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Klappleikur
í FRÍMÍNÚTUNUM fara margir krakkar í áþekka klappleiki og þess-
ar stelpur voru að leika þegar ljósmyndarann bar að garði. Þær slá
saman höndum á ýmsa vegu og hafa um leið yfir óræða þulu. Leikir
af þessu eru margs konar og hverjum og einuin fylgir ákveðið klapp-
munstur og ákveðin þula.
Islenska kvikmyndasamsteypan
Starfsemin fiutt
á einn stað
ÍSLENSKA kvikmyndasamsteypan hefur fest kaup á tveimur hæðum á
Hverfísgötu 46 undir starfsemi sína. Á neðri hæð verður framleiðsluskrif-
stofa og á þeirri efri, hljóðver fyrir kvikmyndir, klippiaðstaða og skrifstof-
ur. Friðrik Þór Friðriksson, eigandi fyrirtækisins, segir að svo fremi sem
fyrirtækið verði ekki flutt úr landi í nánustu framtíð verði stefnt að því
áð hanna tvo litla bíósali á neðri hæð hússins.
Friðrik sagði að fyrirtækið hefði
leigt húsnæði á víð og dreif um
borgina fyrir starfsemi sína og
greitt fyrir um 300.000 króna leigu
á mánuði. Af þeim sökum hefði
verið ráðist í kaup á húsnæðinu,
fyrir um 17 milljónir, og myndi fjár-
festingin borga sig upp á um 8
árum.
Flutningur til umræðu
Hann sagði að fyrir utan hljóð-
stúdíó sem væri hið ein fyrir kvik-
myndir á landinu, yrði klippiaðstað
og skrifstofur á efri hæðinni. Á
þeirri neðri yrðu framleiðsluskrif-
stofa. Þar væri verið að vinna að
samvinnuverkefni með Þráni Bert-
elssyni, kvikmyndinni Einkalíf
Alexanders, en fyrirtækið væri
einnig í samstarfi við Baldur Hrafn-
kel Jónsson, kvikmyndagerðar-
mann, um framleiðslu kvikmyndar-
innar Benjamín Dúfu. Jafnframt
sagði Friðrik að svo fremi sem fyrir-
tækið yrði ekki flutt úr landi yrði
stefnt að því að hanna tvo litla bíó-
sali á neðstu hæðinni.
Um hugsanlegan flutning fyrir-
tækisins sagði Friðrik að fjármagn
Kvikmyndasjóðs væri orðið það lágt
til nýrra verkefna, 18 milljónir, að
fé til hvers verkefnis nægði ekki
til að sækja um áframhaldandi
styrki til stærri erlendra sjóða. Því
væri í raun nær að flytja fyrirtækið
úr landi og sækjast eftir upphafs-
og áframhaldandi fjármagni þar.
Friðrik er nú að ganga frá nýj-
ustu mynd sinni Cold Fever. Hún
verður væntanlega frumsýnd hér á
landi um jólaleyti.
Björn Björnsson,
kaupmaður í Neskaup-
stað er látinn, á 82.
aldursári.
Björn fæddist á
Seyðisfirði þann 25.
desember árið 1912,
en ólst upp á Norðfirði
og í Neskaupstað. For-
eldrar hans voru Björn
Björnsson, kaupmaður
í Neskaupstað og ljós-
myndari og eiginkona
hans, Katrín Málfríður
Arngrímsdóttir. Björn
Iauk gagnfræðaprófi á
Akureyri og sat Sam-
vinnuskólann 1932-1933, starfaði
við verslun föður síns í Neskaupstað
1933-1941, hjá Pöntunarfélagi al-
þýðu þar í bæ 1942-1945, en rak
síðan eigin verslun þar til 1982.
Björn starfaði mikið að félags-
málum, var lengi í stjórn íþróttafé-
lagsins Þróttar í Nes-
kaupstað, um skeið
formaður Rauða kross
deildar Norðíjarðar,
formaður Stangaveiði-
félags Neskaupstaðar,
formaður Verslunar-
mannafélags Norð-
fjarðar og forseti Rot-
aryklúbbs Norðfjarðar.
Þá átti hann sæti í
stjórn Náttúruverndar-
samtaka Austurlands
og Sparisjóðs Norð-
fjarðar. Björn var
varamaður Sjálfstæð-
isflokksins í bæjar-
stjórn Neskaupstaðar og sat í fjölda
nefnda á vegum flokksins. Þá var
hann umboðsmaður Morgunblaðs-
ins í Neskaupstað í mörg ár.
Eftirlifandi eiginkona Björns er
Guðlaug Ingvarsdóttir. Þeim hjón-
um varð níu barna auðið.
ANDLÁT
BJÖRN BJÖRNSSON
KAUPMAÐURí
NESKAUPSTAÐ
með krómgafli
90x200 cm - u&f
120x200 cm -m
140x200 cm -S&f
með dýnum - 70x190 cm
Aöeins
sem hægt er að leggja saman
á sætið í bílnum
Aðeins: (jYjYlTl
með glerplötu
Aðeínsiíln.álðTj
Holtagarði
Reykjavík
Skeifunni 13 Reykjarvíkurvegi 72 Norðurtanga3
Reykjavík Hafnarfiröi Akureyri
I
I