Morgunblaðið - 09.09.1994, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 9: SEPTEMBER'' 1991 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Skólar sunnan Glerár einsetnir í vetur
Bið eftir rúmi á
skóladagheimili
SKÓLANEFND Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í fyrradag til-
lögu sem beint er til bæjaryfirvalda
þess efnis að athugað verði með
nauðsynlegar framkvæmdir svo
hægt verði að koma á einsetningu
í þeim tveimur skólum bæjarins sem
nú eru tvísetnir en þar er um að
ræða grunnskólana utan ár, Glerár-
skóla og Síðuskóla. Skólamir sunn-
an ár eru nú allir einsetnir.
Tæplega 2.400 nemendur verða
í grunnskólunum á Akureyri í vetur
en skólastarf hófst í gær. Síðuskóli
er fjölmennastur með tæplega 660
nemendur, tæplega 490 nemendur
verða í Glerárskóla, um 320 í
Barnaskóla Akureyrar og Lundar-
skóla. Fæstir em nemendur í Odd-
eyrarskóla um 150 talsins en í
Gagnfræðaskóla Akureyrar verða
um 440 nemendur í vetur, en þar
hefur skólinn verði einsetinn um
skeið að sögn Ingólfs Ármannsson-
ar skólafulltrúa Akureyrarbæjar.
Þrír grunnskólar verða nú ein-
setnir að auki, Oddeyrarskóli, Lund:
arskóli og Barnaskóli Akureyrar. í
öllum skólunum verður að sögn
Ingólfs boðið upp á einhveija gæslu.
Yngstu bömunum verður boðið upp
á rúmlega fjögurra klukkutíma við-
vem í skólunum og eins verður til
staðar gæsla þegar fylla þarf upp
í eyður í stundaskrá þannig að
skóladagurinn verði samfelldur.
Skólanefndin samþykkti einnig á
fundinum að bjóða foreldrum barna
í 1. til 4. bekk upp á gæslu þá
daga sem frí er í skólanum. Þeir
foreldrar sem nýta sér þessa gæslu
greiða fyrir hana ákveðið gjald.
Nefndin samþykkti einnig að gera
tilraun með fjölbreytta gæslu í
Barnaskóla Akureyrar, þannig að
foreldrar geti fengið gæslu fyrir
börn sín eftir þörfum hvers og eins
innan ákveðins tíma en að sögn
Ingólf þarf að panta slíka gæslu
fyrirfram.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
GRUNNSKÓLARNIR á Akureyri hófust í gær og eins og ævin-
lega á fyrsta skóladegi var margt um manninn í miðbænum,
bókaverslanir fullar af ungu fólki að fylla skólatöskurnar sínar
ntföngum
Biðlisti
Nokkur biðlisti hefur myndast
eftir plássi á skóladagheimili og
gerði skólafulltrúi ráð fyrir að um
15 böm biðu eftir slíku plássi nú,
sunnan Glerár þar sem skólar eru
einsetnir. Mismunandi gæsla í
Bamaskóla Akureyrar leysti vanda
og pappír.
sumra þeirra en vissulega stæðu
nokkur eftir sem ekki fengu úr-
lausn. Skortur á húsnæði skóladag-
heimilanna þriggja sem til staðar
eru stæði í vegi fyrir fjölgun en þau
eru öll fullnýtt en einnig þyrfti auk-
afjárveiting einnig að koma til ef
leysa ætti allan vandann.
Geðgóður
kisi
ÞESSI geðþekki köttur hefur
gert sig heimakominn í Ásveg-
inum á Akureyri síðustu daga.
Krakkarnir hafa tekið lieim-
sókn hans fagnandi og meðal
annarra hlutverka í leikjum
þeirra hefur hann verið
„brúða“. Hann kippir sér ekki
upp við smáhnjask og er ekkert
nema geðprýðin þó hnoðast sé
með hann. Eldri íbúum götunn-
ar er þó mikið í mun að kisi
komist til síns heima.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Glæsileg raðhús
_____á Akureyri
Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars hf. er með í byggingu 16 raðhúsa-
íbúðir við Huldugil í Giljahverfi á Akureyri, en það hverfi er verið að byggja
upp. I næsta nágrenni verða verslanir, grunnskóli og leikskóli.
Ibúðirnar eru seldar allt frá því að vera tilbúnar undir málningu og uþp í það
að vera fullbúnar. Stærð íbúða er frá 123 til 140 fm fyrir utan bílskúr en
áföst bifreiðageymsla fylgir hverri íbúð. Auk þess er um 20 fm herbengi yfir
bílskúr. Hægt er að gera ýmsar breytingar á innra skipulagi íbúða, s.s.
stærð herbergja, í samráði við seljanda, sem hefur lítinn eða engan
kostnaðarauka í för með sér.
íbúðirnar eru afhentar eftir óskum hvers og eins allt
frá nokkrum vikum upp í 1 'A ár.
Hafíð samband og við sýnum ykkur íbúðirnar.
Tryggið ykkur vandaða eign á góðu verði.
Trésmíðaverkstæði
Sveins Heiðars hf.
Skipagötu 16, 600 Akureyri.
Símar 96-12366 og 985-27066. Fax 96-12368
Skrifstofan er opin frá kl. 14-17, mánudaga - föstudaga
Sveinn Heiðar Jónsson, framkvæmdastjóri, Bæjarsíðu 5,603 Akureyri sími 96-21589
Bati í rekstri Kaupfélags Eyfirðinga
Hagnaður fyrstu
sex mánuði ársins
BATI hefur orðið í rekstri Kaupfé-
lags Eyfirðinga á árinu miðað við
fyrra ár en hagnaður af rekstri
þess á fyrri hluta ársins nam um
24 milljónum króna samanborið við
um 103 milljóna króna tap árið
áður.
í sex mánaða uppgjöri sem nú
liggur fyrir er eingöngu um að
ræða rekstur móðurfélagsins án
dótturfyrirtækja en unnið er að átta
mánaða uppgjöri fyrir samstæðuna
í heild. Gert er ráð fyrir að það
muni liggja fyrir um miðjan október
næstkomandi.
Velta Kaupfélags Eyfirðinga var
á tímabilinu tæpar 3.900 milljónir
króna sem er um 5% aukning frá
síðasta ári. Launagreiðslur hafa
aukist um 1% milli ára, voru á fyrstu
sex mánuðum ársins um 623 millj-
ónir króna. Hagnaður fyrir fjár-
magnsliði var um 136 milljónir sam-
anborið við 128 milljóna króna
hagnað á liðnu ári.
Fjármagnsgjöld að frádregnum
íjármagnstekjum voru um 103
milljónir samanborið við 229 millj-
ónir ári áður. Fjármunamyndum í
rekstri varð á tímabilinu 137 millj-
ónir króna samanborið við 91 millj-
ón króna á fyrra ári.
Lægri fjármagnskostnaður
Bata í reksti KEA er fyrst og
fremst að þakka lægri fjármagns-
kostnaði, segir í fréttatilkynningu
frá kaupfélaginu. Fjármagnsgjöld
voru mjög há í fyrra vegna gengis-
fellingar í júní það ár og einnig
voru vextir mun hærri þá en nú.
Þróunin hefur orðið sú að afkom-
an í verslun og afurðareikningum
hefur batnað en ýmist versnað eða
staðið í stað i iðnaðar-, þjónustu-
og sjávarútvegsgreinum.
„Þetta er bráðabirgðauppgjör
fyrir fyrstu sex mánuði ársins, það
er unnið að átta mánaða uppgjöri
fyrir bæði móðurfélagið og dóttur-
fyrirtæki og þá sjáum við betur
hver staðan er og hvert stefnir,"
sagði Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Eyfirð-
inga.
rkr & /
OPIÐ:
miðvikudaga: 20:00 - 01:00
fimmtudaga: 20:00 - 01:00
föstudaga: 20:00 - 03:00
laugardaga: 20:00 - 03:00
sunnudaga: 20:00 - 01:00
Yetrarstarf
skátanna hefst
ARLEG veisla eldri skáta verður
haldin í Fálkafelli annað kvöld, laug-
ardagskvöldið 10. september. Tilefn-
ið er eins og oft áður að þetta sama
kvöld eru ný uppgengnir dróttskátar
vígðir og Fálkafellið er formlega
opnað fyrir útilegur vetrarins. Veisl-
an hefst með setningu við Pásustein
kl. 20.15 og þaðan er svo bálganga
upp í Fálkafell þar sem miklar kræs-
ingar bíða veislugesta. Það er drótt-
skátasveitin DRACO sem hefur um-
sjón með þessu.
Sunnudaginn 11. september fer
fram árleg sundkeppni skátafélags-
ins í Sundlaug Akureyrar. Þar mæt-
ir hver skátasveit með sitt keppnislið
og spreyta skátamir sig í hinum
ýmsu sundþrautum. Einnig er ein-
staklingskeppni milli dróttskáta, þar
sem stíll og hraði fara ekki alltaf
saman. Sundkeppnin hefst kl. 19.30
og eru allir hvattir til að mæta og
hvetja sín lið, segir í fréttatilkynn-
ingu frá skátafélaginu.
------» ♦ ♦------
■ POPPHUÓMSVEITIN Pláhnetan
leikur á haustfagnaði í Sjallanum á
Akureyri á föstudagskvöld, 9. sept-
ember og á laugardagskvöld á rétt-
ardansleik í Hótel Valaskjálf á Egils-
stöðum.
JU€ureyrí - §ct
VMTUR
Þriðjudaga, fimmtudaga,
föstudaga og sunnudaga.
Verð frá kr. 3.200
fluqfélaq
noróurlands lif
SÍMAR 96-12100 og 92-11353