Morgunblaðið - 09.09.1994, Síða 17

Morgunblaðið - 09.09.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 17 ERLENT Reuter Grafhýsi Kims? Fregnir herma að lík Kims Il-sungs, „leiðtogans mikla“ í Norður-Kóreu, sé geymt í grafhýsinu, sem verið er að reisa á þessari mynd. Kim Il-sung lést af völdum hjartaáfalls í júlí, 82 ára að aldri, eftir að hafa verið einráður í landinu í 49 ár. Svarta yfirstéttin í Suður-Afríku harðlega ga Ráðherrar í ríkisstjórn Mandela sakaðir um bruðl Soweto. Reuter. FORMAÐUR suður-afríska komm- únistaflokksins, sem hefur samstarf við flokk Nelsons Mandela forseta, fór í gær hörðum orðum um þau háu laun, sem hinir nýju, svörtu stjórnarherrar skömmtuðu sjálfum sér. Tók hann undir með Desmond Tutu erkibiskupi, sem hefur sagt, að blökkumenn í valdastólum séu famir að haga sér með sama hætti og hvítu stjórnarherrarnir áður. Charles Nqakula, formaður kommúnistaflokksins, sagði á fundi með starfsmönnum verkalýðsfé- laga, að hætta væri á, að hinir nýju herrar yrðu aðeins fulltrúar yfirstéttarinnar. Ráðherrar í ríkis- stjórninni fá nú nærri 10 milljónir kr. í laun á ári og þingmenn hátt í fjórar. Þá hafa dagblöð skýrt frá því, að ríkisstjórnin hafi nýlega pantað borðbúnað og silfurvörur fyrir nærri 50 milljónir kr. Þykir þetta stinga dálítið í stúf við sósíal- ískan áróður ráðherranna árum saman. Nqakula sagði, að gættu blökku- menn ekki að sér, gæti útkoman orðið sú, að fýrstu frjálsu kosning- amar hefðu ekki leitt til skipta á völdum, heldur til skipta á forrétt- indum. Hundruð þús- unda loftsteina- g'íg'a á jörðinni? Lundúnum. The Daily Telcgraph. BANDARÍSKUR prófessor, C. Wylie Poag, hefur fært sönnur fyrir þvi að Chesapeake-flói við austurströnd Bandaríkjanna hafi myndast við árekstur risastórs loftsteins. Þessi uppgötvun ætti að minna menn á að hættan á gífurlegri eyðileggingu vegna slíkra árekstra er alltaf til staðar. Líklegt er að á yfirborði jarðar séu hundruð þúsunda gíga, sem hafa ekki enn fundist, huldir gróðri eða undir sjó. „Gígurinn í Chesapeake-flóa er einn af tíu stærstu loftsteinagíg- um jarðar," segir Poag í grein sem birt var í nýjasta hefti tímaritsins Geology. Þar útskýrir hann hvern- ig hann fann óvenjulegt lag af steinum í flóanum sem er talið 35 milijóna ára gamalt. Poag notaði jarðbylgjuupplýs- ingar frá olíufélögum og fann nokkra sammiðja hringi, en sá stærsti þeirra er rúmlega 80 km að þvermáli. Hann er mjög líkur minni loftsteinsgíg sem fannst nýlega í Þýskalandi. A svæðinu hafa einnig fundist lög af steinum sem talið er að hafí kastast upp i loftið við árekstur loftsteins. 2.000 stórir loftsteinar Á þurru og gróðurlausu yfír- borði tunglsins eru fjölmargir smáir og stórir loftsteinagígar. Jörðin ætti að hafa miklu fleiri slíka gíga, enda er hún 16 sinnum stærri en tunglið og því miklu lík- legri til að hafa dregið til sín smá- stirni í 4,6 milljarða ára sögu sól- kerfisins. Áætlað er að a.m.k. 2.000 stór- ir loftsteinar hafi skollið á jörðinni síðustu 600 milljón árin og marg- falt fleiri smáir steinar. Á meðal gíga sem fundist hafa er Barringer-gígurinn í Arizona- eyðimörkinni, sem er um 1,6 km að þvermáli. Talið er að um 17 metra breiður steinn hafi fallið þar fyrir 20.000 árum. Barringer-gígurinn er nokkum veginn hringlaga en með mörg skörp horn. Svipaðir gígar em í Wash-firði á austurströnd Eng- lands, Taranto-flóa á Ítalíu, Car- pentaria-flóa á norðurströnd Ástr- alíu, Mexíkó-flóa og Hudson-flóa í Kanada. Ennfremur hefur fundist gígur neðansjávar við strönd Yucatan- skaga í norðurhluta Mið-Ameríku, sem varð til við árekstur risastórs loftsteins fyrir 65 milljónum ára. Talið er að áreksturinn hafí orðið til þess að flestar risaeðlurnar dóu út. Slíkir árekstrar kunna að hafa tortímt a.m.k. einni þjóðmenningu. Talið er að mykenska menningin, kennd við fomgrísku borgina My- kena, kunni að hafa liðið undir lok vegna slíks áreksturs, en hún hvarf með dularfullum hætti um 1100 fyrir Krist. Borgarnes: KB Hyrnan, Brúartorgi 1 Jón og Stefán, Verslun, Borgarbraut 56 Kaupfólag Borgfirðinga Grundartjöröur: Verslunin Grund, Grundargötu Ólafsvík: Verslunin Hvammur Verslunin Kassinn Verslunin Virkiö, Rifi Stykkishólmur: Verslunin Stykkiskjör, Borgarbraut 1 Verslunin Þórshamar, Aðalgötu 17 Búöardalur: Verslun Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12 Túlknafjörður: Verslunin Arnarkjör, Nesvegi Bíldudalur: Verslunin Edinborg Þlngeyrl: Kaupfólag Dýrfirðinga ísafjördur: Kaupfólag ísfirðinga Verslunin Vöruval, Skeiði Bolungarvík: Verslun Einars Guðfinnssonar Hvammstangi: Kaupfólag V-Húnvetninga Slglufjörður: Verslun KEA Verslunarfélagið Ásgeir Ólafsfjörður: Verslun KEA Verslunin Valberg Dalvfk: Verslun KEA ureyrl: un KEA, Byggðavegi Reykjavfk: 10-10 Verslunin Gnoðavogi 46 10-10 Verslunin Hraunbæ 102 10-10 Verslunin Noröurbrún 2 10-10 Verslunin Suðurveri 10- 11 Verslunin Álfheimum 74 11- 11 Verslunin Kaupás hf. Holtavegi Bónus Skútuvogi 13 Hagabúðin, Hjaröarhaga 47 Melabúöin, Hagamel Hagkaup, Skeifunni Kjöt og fiskur, Mjódd Kjöt og fiskur, Seljabraut 54 Nóatún, Nóatúni Plús markaöurinn, Grímsbæ Plús markaðurinn, Straumnesi Plús markaöurinn, Hvannarima Garðabær: Baugur, Suöurhraun 1, Garðabæ Garðakaup, Garðatorgi 1, Garðabæ Hafnarfjörður: Fjarðarkaup hf., Hólshrauni 1b Kaupfélag Suðurnesja, Miövangi 41 Kjöt og fiskur, Strandgötu 5 Akranes: Grundaval, Garðagrund 1 Skagaver, Miðbæ 3 Sauðárkrókun Hlíðarkaup, Akurhlíð 1 Matvörubúðin, Aðalgötu 8 Kaupfélag Skagfirðinga Blönduós: Kaupfólag Húnvetninga Verslunin Vfsir, Húnabraut 21 Fjölnota pokar til styrktar forvörnum gegn vímuefnum kosta 250 kr. og fást á eftirtöldum stöðum: STYRKJUM FORVARNIR! Verslun KEA, Hrísalundi, Verslun KEA, Sunnuhlíð KEA nettó, óseyri Húsavik: Kaupfólag Þingeyingá Verslunin Búrfell, Garöarsbraut Verslunin Þingey, Garðarsbraut 62 Kópasker: Verslunin Kópaskeri Raufarhöfn: Verslunarfólag Raufarhafnar Þörshöfn: Kaupfélag Langnesinga Vopnafjörður: Kaupfólag Vopnfirðinga Egllsstaðir: Kaupfélag Héraðsbúa Verslunin VAL, Fellabæ Seyðlsfjörður: Kjörbúðin Brattahlíð Verslunin Aldan Reyðarfjörður: Kaupfólag Héraðsbúa Verslunin Lykilinn hf. Búðareyri Eskifjörður: Pöntunarfélag Eskifjarðar, Strandgötu Verslunin Eskikjör, Útkaupstaðarbraut Neskaupstaður: Kaupfélagið Fram Melabúöin, Hólsgötu 9 Fáskrúðsfjörður: Kaupfólag Fáskrúðsfirðinga Viðarsbúð, Búðarvegi 13 Stöðvarfjörður: Kaupfólag Stöðfirðinga Höfn f Hornafirði: Verslunin Hornabær Verslun KASK, Vfk: Verslun K.Á. Víkurbraut 5 Kirkjubæjarklaustur: Verslun K.Á. Klausturvegi 13 Vestmannaeyjar: Verslun KV, Goðahrauni 1 Verslunin Eyjakaup, Strandvegi Verslunin Eyjakjör, Hólagötu Hvolsvöllur: Kaupfólag Rangeyinga Hella: Kaupfélag Rangeyinga Selfoss: Homið sf. Tryggvagötu 40 K.Á. Kaupfélag Ámesinga, Austurvegi 3-5 Verslunin Höfn, Tryggvatorgi Laugavatn: Verslunin Sel Hveragerði: Hverakaup, Breiðumörk Verslun K.Á.- Eyrarbakki: K.Á. Kjörbúð Stokkseyrl: Verslun K.Á. Sandgerði: Kaupfélag Suðurnesja Garður: Kaupfólag Suðurnesja Keflavík: Sparkaup, Hringbraut 55 Verslunin Faxabraut, Faxabraut 27 Verslunin Kaskó, Iðavöllum Verslunin Miðbær.Hringbraut 52 Njarðvík: Samkaup v/Reykjanesbraut Vogar: Kaupfélag Suðurnesja Grindavík: Staðarkjör KROSS GÖTUR Vörri gcgn víriiu | Sjðundí hlmlnn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.